Morgunblaðið - 28.09.1962, Side 5
Föstudagur 28. sept. 1962
M O R C T’lM n r 4 fíl Ð
5
ÍSHH
UM miðjan október mun
Barnamúsikskólinn hefja starf
semi sína á þessum vetri. Hef
ur nýr skólastjóri verið ráð-
inn að skólanum í vetur. Er
það Stefán Edelstein, sonur dr.
Edelstein, er stofnaði skólann.
Stefán, sem er nýkominn
heim frá námi í Freiburg í
Þýzkalandi, ræddi fyrir
skömimu nokkra stund við
fréttamann blaðsins.
— Hefur þú dvalizt lengi
erlendis, Stefán?
— Ég hef nú dvalizt við
nám í Freiburg samtals í
rúmlega 3 ár. Annars er ég
fæddur í Freiburg og átti þar
heima, þangað til* ég var 6
ára gamall, að fjölskyldan
fluttist til íslands og faðir
minn fékk stöðu hér sem cello
kennari við Tónlistarskólann.
— Þú hefur þá gengið hér í
skóla?
— Já, þangað til eftir lands
Auk þess er í skólanum svo-
kaliaðir meistarabekkir í öll-
um helztu hljóðfærunum og
tónsmíði, en honum veitir eitt
fremsta nútímatónskáld Þýzka
lands, Wolfgang Fortner for-
stöðu.
— Skólinn, sagði Stefán er
til húsa í mjög faliegu bar-
okhúsi í miðri borginni. Þá er
Freiburg sjálf mjög skemmti-
leg og falleg 'borg, sem liggur
í dal, urngirt fjöllum Svarta-
skógar nema úr suðri. Stutt
frá borginni er t.d. 1500 metra
hátt fjall, Svartiskógur gefur
ótæmandi möguleika fyrir
gönguferðir á sumrin, og er
sérlega vel fallið til skíða-
ferða á veturna.
— Hvernig eru íbúarnir?
— Mér hafa þótt bændur
Svartaskógar einna líkastir ís-
lenzkum bændum af þeim
bændum, sem ég hef séð. Þeir
eru stoltir og sjálfstæðir hafa
kýr og kindur eins og íslenzk-
ir bændur og lifa af fjárrækt
og mjólkurafurðum, en auk
þess hafa þeir auðvitað skóg-
IMýr skolastjóri
Barnamúsikskólann
próf, árið 1949, að ég fór utan
til Englands til náms í út-
varpstækni. Dvaldist ég í Eng-
landi í rúm 5 ár og hafði reynd
ar hugsað mér að setjast þar
að. En ég skipti um skoðun og
reyndar einnig um atvinnu,
því að eftir að hafa unnið
hálft annað ár í fagi mánu
í Kaupmannahöfn kom ég til
íslands aftur árið 1966 og tók
próf í söngkennslu við Kenn-
araskólann vorið eftir. Jafn-
framt kenndi ég við Barna-
músikskólann hjá föður min-
um og veturinn eftir einnig
við Miðbæjarskólann, en
sigldi svo til Þýzkalands
haustið 1958.
★
— Við hvaða skóla varstu
þar?
— Þar dvaldist ég næsta vet-
ur við nám í Stadtliohe Hochs
ohule fiir Musik í Freiburg,
en kom svo heim og kenndi
við Barnamúsikskólann og
Laugarnesskólann veturinn
1959 til 1960, er ég fór aftur
utan til Freiburg.
í Freiburg stundaði ég nám
í því, sem erlendis kallast
Schulmusik. Við getum kallað
það kennslu í tónlist í skól-
um og er hún miðuð við barna
skóla- til menntaskólastigs.
Nám þetta er eitt umfangs-
mesta tónlistarnám, sem til er
í Þýzkalandi, hélt Stefán" á-
fram. Auk eins aðalfags, verða
menn t.d. að læra söng, kór-
stjórn, hljómsveitarstjórn,
kontrapunkt, raddskrárspil,
þjóðlagaundirspil, músiksögu,
formfræði og tónfræði, o.s.frv.
— Hvaða aðalfag valdir þú?
— Ég valdi píanóleik, en
hann hefur alltaf verið mitt
uppáhald, frá því að ég var
barn.
— Hvernig er prófum hátt-
að í skólanum?
— Prófið er tekið í 2 lið-
um. Eftir 2 ár er tekið próf
í öllum greinum nema aðal-
faginu, söng, kór- og hljóm-
sveitarstjórn og kontrapunkti.
Þessi fög eru stunduð í eitt ár
í viðbót, eða þangað til seinni
hlutaprófið er tekið. Auk
þessa verða þýzkir stúdentar
einnig að læra eitt fag óskylt
músi'kvísindunum til viðbótar
t.d. sögu eða stærðfræði, en
það hafði enga raunhæfa þýð
ingu fyrir mig svo að ég
sleppti því.
— Er þetta stór skóli?
— Nei, hann veitir aðeins
um 250 nemendum inngöngu
og er einh allra minnsti tónlist
arháskóli í Vestur-Þýzkalandi.
Þó starfar hann í mörgum
deildum og veitir kennslu í
öllum hljóðfærum, allt frá
pioooloflautu til kontrabassa.
inn. Hús þeirra eru sérkenni-
lega byggð, þökin gífurlega
löng og ná næstum því alla
leið niður að jörðu, og er á
þeirn mikill halli ti'l þess að
snjórinn renni niður á vet-
urna, þegar snjóþyngsli eru
mifcil.
— Hvað eru margir íbúar í
Freiburg?
— Þeir eru um 140 þúsund.
Borgin fór afar illa út úr stríð
inu, en hefur verið byggð upp
aftur að mestu leyti, og yfir-
leitt í gamla stílnum.
Freiburg er merkilega mik-
il menningarborg miðað við
fólksfjölda. Það gerir háskól-
inn, þar sem 12000 stúdentar
stunda nám. Einnig eru þar
þrjú leikhús, óperuíhiús, sin-
fóníutónleikar og aragrúi af
tónleikum listamanna frá
Þýzkalandi og öðrum lönd-
um. Kom það oft fyrir, að
ég færi á tónleika 4—5 sinn-
um í viku. Auk þess efnir
skólinn sjálfur stundum til
nemendatónleika.
-— Komst þú ekki fram á
slífcum tónleikum.
— Jú, tvisvar sinnum. Auk
þess tók ég þátt í píanósam-
keppni í skólanum og hlaut
þar verðlaun ásamt öðrum.
Þá var ég sendur á vegum
skólans til Berlínar í júní árið
1961 til þess að taka þar þátt
í skólamúsikmóti, sem þar
stóð yfir í 10 daga. Var þar
margt um hljómleika og fróð-
Stefáln Edelstein.
haldið annað hvert ár og
sækja það milli 7 og 8 hundr-
uð manns, hvaðanæva að úr
Þýzkalandi. Ég sótti einnig
fleiri mót í Þýzkalandi, t.d.
Kranichsteiner Musikfest í
Darmstadt, og Musifcfest í
Donanerschingen, þessar há-
tíðir voru helgaðar nútíma-
tónlist bæði með tónleikum
og námskeiðum.
í Darmstadt hafði ég það
einstaka tækifæri að komast
í námskeið í píanóleik hjá
próf, Steuermann, sem var
mikill vinur Sohönbergs, föð-
ur tólftónatækninnar. Kenndi
Steuermann m. a. hvernig
leifca ætti og túlka píanóverk
Séhönbergs.
Tilgangur alls þessa náms
míns, sagði Stefán að lok-
um, var að fullmennta mig
áður en ég tæki við skóla-
stjórn Barnamúsikskólans en
sá skóli var eins og flestir vita
stofnaður af föður mínum
fyrir meira en 10 árum
Stjórnaði hann skólanum þang
að til hann fór utan árið 1956.
Hafði Ingólfur Guðbrandsson
þá skólastjórn með höndum
næsta vetur, en dr. Róbert A.
Ottósson tók við skólastjórn
haustið 1957. Haustið 1961 tók
Dr. Róbert við embætti söng-
málastjóra þjóðkirkjunnar og
sé hann sér þá ekki fært að
halda skólastjórninni áfram.
Var þá fundin sú ágæta lausn
að fá Jón G. Þórarinsson til
þess að vera skólastjóra í
fyrravetur og brúa þannig bil
ið þangað til ég kæmi heim
og tæki við þessari arfleifð
Framhlið Staatliche Hochschule i Freiburg.
Haíló Kópavogsbúar! Óska eftir að kaupa 3ja herb. íbúð í Kópavogi, — helzt í Vesturbænum. Get borgað 130 þús. Uppl. í síma 10749 milli 7—8 í kvöld. Til leigu 4 herbergi og eldhús á Njálsgötu 5. Engin fyrir- framgreiðsla. — Barnlaust fólk gengur fyrir. Uppl. á staðnum kl. 2*ó—6 í dag, föstudag.
Tvö samliggjandi skrifstofuherbergi í Mið- bænum til leigu. Hentug fyrir heildverzlun. Tilboð merkt: „3440“ sendist Mbl. fyrir 1. okt. Stúlka óskast til þess að annast heimili fyrri hluta dags, þar sem húsmóðirin vinnur úti. — 4 fullorðnir. Uppl. í síma 33747 eftir kl. 7.
Kona óskar eftir vinnu við matreiðslu eða oakstur, t. d. fyrir mötuneyti eða verzlun. Tiiboð merkt: „3426“ sendist blaðinu fyrir sunnudag. Stúlka 14—16 ára óskast til sendiferða Og snúninga. — Fyrirspurnum ekki svarað í Sima. Hálsbindagerðin Jaco Suðurgötu 13.
Hjón með eitt barn óska að taka á leigu litla íbúð. Má vera í úthverfi. Tilboð merkt: „Fyllsta reglusémi — 3026“ sendist blaðinu. Til leigu góð 3ja herb. Ibúðarhæð við Miðbæinn. Fyrir barn- laus hjón. Tilb. sendist Mbl ásamt uppl. um greiðslu, merkt: „3436“ fyrir 10. okt.
Stúlka óskast í blaða- og tóbaks- verzlun. 5 tíma vaktir. Yngri en 20 ára kemur ekki til greina. Uppl. í síma 14301. RACÐAMÖL Rauðamöl, fín og gróf. — Vikurgjall. — Ennfremur mjög gott uppfyllingarefni. Sími 50997.
Þýzk húsgögn Óvenju falleg þýzk mahog- any svefnherbergishúsgögn til sölu á Laugarásvegi 53. Sími 3-82-74. Verzlunarhúsnæði óskast í Suðvesturbænum. Tilboð sendist Mbl. fyrir laugardag, merkt: „2010 — 3446“.
Hafnarf j örður Ung bannlaus hjón óska eftir að taka á leigu 1 eða 2 herb. og eldhús, sem fyrtst. Uppl. í síma 51192. Hið margeftirspurða Terylene í drengjabuxur o. fl. nýkomið, ódýrt. Klæðaverzlun H. Andersen & Sön, Aðalstræti 16.
Keflavík Svartur óg galvaniseraður saumur nýkominn í öllum stærðum. Veiðiver. sími 1441. Takið eftir íbúð óskast 1. okt. Reglu- semi. Arsfyrirframgreiðsla, ef óskað er. Uppl. í síma 10504.
2ja—4ra herb. íbúð óskast til leigu nú þegar fyrir fámenna og reglu- sama fjölskyldu. Uppl. í síma 15667. • Ritvél Sem ný Rheinmetall ritvél til sýnis og sölu að Öldu- götu 5, kjallara, í dag og næstu daga.
Hús á Stokkseyri til sölu. Get tekið bíl upp í útborgun. Uppl. í síma 12600. Mæð<fur, sem vinna úti, vantar 2—3 herb. íbúð. Uppl. í síma 36542.
Óskum eftir 4—5 herb. íbúð 1. i — Þrennt fullorðið. Hringið í síma 33400. Geymsluhúsnæði Geymsluhúsnæði til leigu á góðum stað í bænum. Uppl. í síma 38138.
Röskur sendisveiiin
óskast nú þegar. Gott kaup.
SINDRASMIÐJAN HF.
Borgartúni.
l\lý sending
Kvöldkjólar
Mikið úrval.
Skólavörðustíg 17 — Sími 12990.