Morgunblaðið - 28.09.1962, Side 6
6
MORGUTSBLAÐ1Ð
Fostudagur 28. sept. 1962
Unnið er nú að því að reisa
nýtt hús fyrir hælið á Kvía-
bryggju í Grundarfirði í
stað þess sem brann fyrr á
þessu ári. Nýbyggingin sést
t.h. á myndinni en gamla
hælið t.v. Kirkjufell gnæfir
þar yfir. — Ljósm.: SV. Þ.
S.Þ. sam-
þykkja
Frá Sameinuðu þjóðunum
22, september — AP —
í GÆR var samþykkt á fundi
AUsherjarþings Sameinuðu þjóð-
anna sú lausn er fengizt hafði
fyrir tilstuðlan U Thants fram-
kvæirdastj. á deilu Hollendinga
og Indónesa vegna vestur Nýju
Guineu. Er þar kveði'o svo á að
landsvæðið verði verndarsvæði
S.þ. undir stjórn Indónesíu, en
árið 1970 skuli þjir fara fram
atkvæðagreiðsla um það hvort
íbúarnir lúti Indónesum áfram
eða gerast sjálfstæð þjóð.
Mál þetta var látið sitja í fyr-
irrúmi fyrir öðrum á dagskrá
þingsins og fór atkvæðagreiðsla
fram síðdegis. Úrslit hennar
urðu, að lausnin var samþykkt,
að því er snerti SÞ, með 89 at-
krvæðum gegn engu. Frakkland,
12 fyrrverandi nýlendur Frakka
í Afríku og Haiti sátu hjá.
í ávarpi er U Thant flutti að
atkvæðagreiðslunni lokinni fagn
aði hann mjög undirtektum
þingsins, og kvaðst vona að
Sameinuðu þjóðirnar ættu oft
og lengi eftir að stuðla að frið-
samlegri lausn deilumála.
Leopoldville, 26. sept. —
Cyrille Adoula, forsætisráð-
herra stjórnarinnar í Leopold-
ville, lýsti því yfir í dag, að
það hefðu verið hermenn úr
liði Katanga, sem skutu niður
flugvél SÞ á dögunum. Hins
vegar viðurkenndi hann, að
hermenn úr hans eigin her,
hefðu í fyrstu búizt til árásar á
mennina, er í vélinni voru, eft
ir að hún féll til jarðar. Sagði
Adoula, að hermennirnir
hefðu í fyrstu talið að hér væri
um skæruliða að ræða, en kom
izt að liinu sanna mjög fljót-
lega.
Franski herinn
verður þrískiptur
og búinn kjarnorkuvopnum...
París, 22. sept. AP-NTB Reuter
FRÁ því var skýrt í París í dag
að franski herinn muni, er hann
hefur verið endurskipulagður,
telja 700 þúsund manns. Hann
verður búinn kjamorkuvopnum,
svo sem franska stjórnin hefur
fyrr boðað.
Landvarnamðherrann.. Pierre
Messmer, er nýkominn til Par-
ísar úr ferðalagi um landið, bar
sem hann lagði áætlunina um
endurskipulagningu hersins fyr
ir helztu hershöfðingja Frakk-
lands. Meðan á Alsírstyrjöldinni
stóð taldi franski herinn eina
milljón manna.
Eftir endurskipu'lagninguna
mun hernum skipt í þrjár aðal-
greinar; kjarnorkuher, íhlutunar
her og heimavarnarher. íhlutun
arherinn. mun taka yfir þær her
deildir, sem tilheyra Atlantsbafs
bandalaginu og eru staðsettar í
Þýzkalandi — og ennfremur her
deildir, sem í neyðartilfellum er
unnt að beita til bess að stöðva
staðbundna árás. Kjarnorkuiber
inn mun fyrst um sinn búinn
gerðihni .yfirage V þær geta bor
ið kjarnorku sprengjur. Þessar
flugvélar verða að öllu leyti und
ir franskri stjórn, en fyrirhugað
er að unnt sé að beita þeim í
sameiginlegri varnaráætlun að-
ildarrílkja Atlantáhafsbandalags
ins. Mögulegt verður að láta
flugvélar þessar flytja vetnir,-
sprengju, í stað kjamorku
sprengja. Ennfrc jr kann síð-
ar að verða breytt bannig til, að
í stað sprengjuflugvélanna komi
fjarstýrðar eldflaugar sem skjóta
úr landi.
Nýja Delhi, 26. sept. —
— NTB.
Indverskir ráðamenn saka
Kínverja um bardaga þá, sem
standa við landamæri Tíbets.
Segja þeir kínversku hermenn
ina hafa skipanir yfirboðara
sinna um að berjast. Nokkur
hundruð hermanna munu taka
þátt í bardögunum.
Vantar skólastjóra og
kennara á Bíldudal
BÍLDUDALUR, 21. sept. —
Andri er kominn heim af síld-
veiðum. Var aflinn 9500 mál og
hásetahlutur kr. 50 þús. Skip-
stjóri á Andra var Snæbjörn
Áriíiason og er þetta í fyrsta
skipti sem hann er með bát á
síldveiðum. Báturinn mun hefja
línuveiðar héðan tun mánaða-
mótin.
Þrjú Eimskipafé-
lagsskip sigla til
norskrar hafnar
ÞAR SEM viðskipti milli Norð-
manna og íslendinga hafa aukizt
í seinni tíð, hefur Eimskipafélag
ið ákveðið að láta þrjú af skipum
sínum hlaða í Kristjansand í mán
uðunum fram til áramóta; m.s.
Tungufoss um 8. október, m.s.
Fjallfoss um 8. nóvember og m.s.
Gullfoss um 5. september.
Ákvörðun hefur ekki verið tek
in ennþá um það hvernig sigling
unum verður hagað eftir áramót-
in, en fastlega má gera ráð fyrir
því, ef svo verður sem nú horfir,
að framvegis hafi skip félagsins
viðkomu í norskum höfnum.
(Frá Eimskipafélagi Islands).
Þórleifur
B}arnason
formaður
IMámsstjóra-
félagsins
NÁMSSTJÓRAFÉLAG fslands
hélt aðalfund sinn 28. ágúst sl.
Fráfarandi stjórn skipuðu: Jónas
B. Jónsson, íormaður; Aðalsteinn
Eiríksson og Halldóra Eggerts-
dóttir. í stjórn voru kjörnir: Þór
leifur Bjarnason, Aðalheiður
Jónsdóttir og Magnús Gíslason.
Aðalmál fundarins voru skipu
lags- og kjaramál.
Pétur Thorsteinsson er kominn
heim. Hann hefur verið í síldar-
leit í sumar. Er hann farinn suð-
ur í vélarhreinsun og er væntan-
legur aftur í byrjun október.
Kennaraskortur er hér mikill,
vantar bæði skólastjóra og báða
kennarana. Ekki vitað til að úr-
lausn sé á næsta leiti.
Slátrað 3500 fjár.
Slátrun hefst hér um miðja
næstu viku og verður slátrað
um 3500 úár, sem er heldur meira
en í fyrra.
Ekkert hefur verið unnið í Mat
vælaiðjunni í sumar og ekkert
frétzt um hvenær rækjuveiði
hefst, en það er aðalverkefni
hennar. Verksmiðjan hefur sótt
um leyfi fyrir 3 rækjubáta í vet-
ur.
Afli hjá snurvoðabátum er
tregur og gæftir stirðar nú síð-
ustu dagana.
Engar ferðir
til Bíldudals.
Áætlunarbíllinn frá Reykjavík
er hættur að ganga hingað, en
hann kom einu sinni eða tvisvar
i viku í sumar. Hann gengur enn
þá á Patreksfjörð. Má því segja
að orðið sé samgöngulaust við
staðinn og er þetta mjög baga-
legt fyrir byggðarlagið, og menn
mjög óánægðir. Heimta Bílddæl-
ingar að þessu verði kippt í lag.
— Hannes.
Fulltrúar á
þing ASÍ
EFTIRTALIN félög hafa kjörið
fulltrúa á þing Alþýðusambands
fslands nú síðustu daga:
Sjómannafélag Isafjarðar: Jón
H. Guðmundsson og Ólafur Rós
irakarsson; til vara: Jón Mark-
ússon og Guðmundur Sigurðs-
son.
Bóbindarafélag íslands: Grét-
ar Sigurðsson; til vara: Guðmund
ur Þorkelsson.
Verzlunarmannafélag Akur-
eyrar: Jón Aspar, Sigurður Jóh-
annesson; til vara Baldur Hall-
dórsson og Jón Samúelsson.
Verkalýðs- og sjómannafélag-
ið í Hnífsdal: Jens Hjörleifeson.
• Alltaf á tali
Á Keflavílkurflugvelli býr
fjöldi manns og að auki vinnur
þar að jafnaði margt manna,
sem kunnugt er. Þettá fólk
þarf ekki síður en aðrir á land-
inu að nota síma, einkum þar
sem fjöidinn býr annars staðar
Auk þess er þetta alþjóðlegur
flugvöllur með allri beirri starf-
semi og því umstangi, er því
fylgir.
En það er ekki auðvelt að
ná símasambandi viS fólk á
flugvellinum. Og ekki heldur
fyrir þá sem þar eiga leið um,
að komast í síma og ná sam-
bandi við Reykjavík.
Þegar við hér á blaðinu þurf-
um að ná í einjhvern þar suður
frá, fórnar símastúlkan okkar
oftast höndum og biður fyrir
sér, því það getur tekið hana
marga tíma að ná sambandi
þegar mesta álagið er á línunum
þangað. Alltaí er á tali.
# Ekki hægt að komast
i sima
Hitt urðum við áþreifanlega
vör við þegar þýzku flugvéi-
arnar lentu vegna hugsanlegra
vítissprengna á flugvellinum
þá komumst við sem sagt að
raun um, að enginn almenn-
ingssími er í þessari stóru flug-
afgreiðslu, þar sem fólk getur
hringt út af vellinum. Á þess-
um velli hafa farþegar sem
koma með stórum flugvélum,
viðdvöl. Það hl; tur oft að kwna
fyrir, að einhver vilji hringja
/////>
■ • / ÁVt
inn í bæ, til að heilsa upp á I
íslenzkan kunningja og láta vita
af sér, eða eigi einhver önnur
erindi. — Margir þeir sem
komu suður eftir eiga sjálfsagt
lí'ka erindi í síma við umheim-
inn. En þá er einasta vonin að
maður geti ruðzt inn á flugum
sjónarskrifstofuna, og beðið um
að fá lánaðan síma. Og flug-
umsjónarmenn munu yfirleitt
greiða vel úr því, ef þeir geta
og eru ekki sjálfir að nota síma
sína. En þegar eins stendur á
og í gær, að Amsterdam, New
York, Reykj avík og guð má vita
hvaða staðir eiga við þá brýn
erindi, er ekki gott í efni.
Eitt á maður erfitt með að
skilja. Því er ekki fjölgað lín
um suður eftir, úr því álagið
er svona mikið á simann? í
símaskirá eru gefnar upp 5 lín-
ur. Það er greinilega langt frá
því að duga svo stórum stað.
Og eins virðist alveg nauðsyn-
legt að hafa almenningssíma,
með sambandi vig bæinn, á flug
stöð þar sem önnur eins um-
ferð er.
• Svanimir komu.
Varla hafði Kjártan bruna-
vörður skrifað um að svanirn
ir væru horfnir af Tjörninni i
Velvakanda, þegar 7 svanir
settust þar og síðan aðrir 8.
Hvoi. þeir hafa lesið Moggann
skal ósagt látið.