Morgunblaðið - 28.09.1962, Síða 15
Föstudaeur 28. sept. 1962
MORCVNBLAÐIÐ
1?
Rússneska höfnin á Kdbu
skal rdma 130
Talsmenn bandarísku stjórnarinnar
tek'a hana þó ekki þurfa að vera lið
í hernaðaráætlun
Washington, Moskvu, 26. sept.
— NTB-AP —
Varautanríkisráðherra Banda
ríkjanna, George Ball, sagði
á fundi með fréttamönnum í
Washington í dag, að hann
áliti að fiskimiðstöð sú, sem
Rússar ætla nú að koma sér
— Sau&árkrókur
Framh af bls. 10
ritasafn og einnig væri þar
filmusafn af öllum kirkjubókum í
í>j óðsk j alasaíninu.
>á sagði Björn okkur frá Sögu
félagi Skagfirðinga, sem einnig
hefur bækistöð sína á Sauðár-
króki. Hefur það að undanförnu
annazt heilmikla útgáfustarfsemi
og m. a. gefið út 9 bindi af sögu
Skagfirðinga og skagfirzkum
sagnaþáttum og einnig hefur það
gefið út Jarða- og búendatal í
Skagafirði í 4 heftum, auk skag-
firzkra ljóða. Sagði Björn, að
félagið hefði nú í undirbúningi
útgáfu á Æviskrám Skagfirðinga,
sem fyrirhugað væri, að kæmi
út í heftum á næstu árum. Yrði
væntanlega mikill fengur að
þessum æviskrám, sem gæfu ná-
kvæmar og ijósar upplýsingar um
íbúa héraðsins.
.. — ásl.
upp á Kúbu, sé sennilega
ekki ætluð sem athvarf her-
skipa, heldur kunni hér fyrst
og fremst að vera um efna-
hagsaðstoð við Kúbu að
ræða.
Hins vegar sagði Ball, að
Bandaríkjamenn myndi fylgj
ast með öllu, sem fram færi
á Kúbu, varðandi hafnargerð-
ina, enda væri hér um óheilla
vænlega þróun að ræða. Þó
sagði hann áhrif Rússa á
sjálfri Kúbu vart mundu
verða mikið meiri en orðið
er — til þess væru þau þegar
orðin allt of mikil.
Rússneskar fréttastofur fluttu
í dag nánari fregnir Eif fiski-
skipahöfninni væntanlegu. Gert
er ráð fýrir, að höfnin geti rúm-
að 130 skip. Rússar munu leggja
fram fé til framkvæmdanna, en
Kúbumenn vinnuafl. Frá höfn-
inni, Sem enn hefur ekki verið
tilkynnt, hvar verður, mun
stjórnað fiskveiðum, fiskrann-
sóknum og lögð verður sér-
stök áherzla á samvinnu kúb-
anskra og rússneskra hafrann-
sóknastofnana.
Fleiri talsmenn Bandaríkja-
stjórnar hafa látið í ljós álit
sitt á þessum væntanlegu fram-
fiskiskip
kvæmdum. Kemur þeim yfirleitt
saman um, að höfnin muni að
öllum líkindum ekki verða not-
uð í hernaðarlegum tilgangi.
Hins vegar benti talsmaður
bandaríska utanríkisráðuneytis-
ins á það í dag, að slík höfn,
sem nú hefur verið ákveðið að
koma upp, verði ógnún við sigl-
ingar á Panamaskurði. — Mun
þeirrar skoðunar nokkuð hafa
gætt innan hersins vestra, eftir
að um áætlunina fréttist, að hér
væru kommúnistar að skapa sér
aðstöðu tíl þess að geta gripið
inn í og hindrað siglingar á leið-
um skipa Vesturveldanna.
Þá var einnig tilkynnt í dag,
að bandaríska og brezka stjórn-
in hefðu náið samband sín á
milli um þróun mála á Kúbu,
en ástandið þar að undanförnu
hefur vakið talsverðan óróa,
sérstaklega í Bandaríkjunum.
fNPoRNÝJIÐ RAFt>R«|-
FARIP Gkma MEP
FíAFTAlKI !
H armonikuskóli
Karls Jónatanssonar
Kennsla hefst 1. okt. nk. — Upplýsingar daglega
kl. 6—8. — Kennt verður bæði í Rvík og Kópavogi.
Nýir nemendur vinsaml. hafi samband við mig sem
fýrst.
Karl Jónatansson, sími 34579.
Húseigendafélag ReyKjavíkur.
Flugfélagið tekur umboð
fyrir Japan Air Lines
FLUGFÉLAG fslands oig jap-
anska flugfélagið Japan Air Lin
es hafa gert samning um gagn-
kvæmt aðalumboð á fslandi og í
Japan. Forstjóri hinnar skandi-
navisku deildar japanska félags-
ins, Herra Mukai, kom hingað í
fyrraikvöld til þess að undirrita
þar að lútandi samning ásamt
Erni Ó. Johnson, framkvstj.
Flugfélagsins.
Á fundi með fréttamönnum í
gær sagði Örn, að hans félag
vænti engrar stórvaxandi flutn-
inga milli íslands og Japans með
tilkomu samningsins, en hins veg
ar væri öllum kunnugt um það,
að verzlunarviðskipti Japana við
önnur ríki væru í örum vexti,
fsland hefði nú þegar töluverð
viðskipti við Japan — og slíkum
viðskiptum fylgdu ætíð ferðalög
kaupsýslumanna. >að væri því
hagstætt að hafa þennan samn-
ing við japanska flugfélagið, sem
eitt sex japanskra flugfélaga,
heldur uppi flugferðum til út-
landa.
Mukai greindi blaðamönnum
svo frá, að félag hans ætti ail-
margar þotur af DC-8 og Con-
vair 880 gerðum og færu flutn-
ingar ört. vaxandi. Helzta tekju-
lind félagsins væri af ferðum
yfir Kyrrahaf, en flutningar
væru líka ört vaxandi á leið-
inni Tokyo — Kaupmannahöfn,
London, París — ag er þá flog-
ið yfir heimskautssvæðið. Frá
Kaupmannahöfn til Tokyo tekur
ferðin 17 klst, með DC-8 þotu,
en tók áður 27 stundir með DC-
7C. Hins vegar mundi flugið á
þessari leið styttast niður í 12
stundir, ef Rússar mundu leyfs
flug yfir Siberiu. Engar horfu’’
eru samt á að það verði.
Tefst vegno
monneklu
f HVASSVIÐRINU um helgina
urðu nokkrar skemmdir á steypi
vélum íslenzkra Aðalverktaka,
sem eru við vinnu á Keflavíkur-
veginum.
Segl, sem eru yfir vélunum til
að skýla fólkinu sem vinnur við
þær, fuku og skemmdu um leið
uppistöður. Eru skemmdirnar
bagalegar. Verkið hefur ekki taf
izt vegna þessa, en gengur seinna
en ella, þar eð vantar starfslið.
Vantar nú alveg vinnuflokk tii
þess að leggja niður mótin á und-
an vélunum, að minnsta kosti tíu
manns. Þótt þarna sé mjög langur
vinnutími er ekki unnt að fá
mannskap.
Matsveinn
1. flokks veitingahús óskar að ráða dugandi kunn-
áttu mann með meistararéttindum og mikla reynslu
að baki til að stjórna eldhúsi. Tilboð merkt:
„Matargerð — 3438“ sendist afgr. Mbl.
Efiir þvl sem byggðin eykst og fólkinu fjólgar er
þörfin æ brýnni ffyrir ódýran Bipran og öruggan sendibíl
Volkswagen sendibíllinn
* er einmitt
★ Ódýr í rekstri
★ Léttur í akstri
★ Fljótur í förum
fyrir
yður
SendJJJinn sem síðast bregzt
— Alltaf fjölgar
VOLKSWAGEN -
Heildverzlunin HEKLA hf. Hverfisgötu 103
sími 11275.