Morgunblaðið - 14.10.1962, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 14.10.1962, Qupperneq 13
Sunnudagur 14. oktöber 1962 MORGIIN BLAÐIÐ 13 Jón Kjartansson látinn Því miður má sá, sem kominn er á miðjan aldur eða meira og bregður sér frá um tveggja til þriggja vikna bil, gera ráð fyr- ir, að einhver náinn kunningja eða vina sé horfinn úr hópnum jþegar heim kemur. Að þessu sinni var andlát Jóns Kjartans- sonar hið fyrsta, sem séð varð í Morgunblaðinu, þegar því var útbýtt í flugvélinni á Kastrup- flugvelli sl. þriðjudag. Jón Kjart- ansson hafði lengi verið van- heill en ljúfmennska hans og til- lögugæði voru ætíð hin sömu. .Vinir hans vonuðu því að eiga enn marga samfundi með hon- um. Morgunblaðið á Jóni Kjartans- syni mikið að þakka. Hann var ritstjóri þess í nær aldarfjórð- ung. Af ástæðum, sem hann átti enga sök á, þurfti hann í fyrstu að sækja fram gegn hörðum mótblæstri. Þeir félagar, hann Fáar þjóðir eru háðari flugvélum í daglegu lífi en okkar. REYKJAVÍKURBRÉF og Valtýr Stefánsson, sem Jón átti upptökin að því að ráðinn var meðritstjóri hans, stóðu þá hríð hressilega af sér, svo sem framgangur blaðsins undir stjórn þeirra sannaði. Samvizku- semi, óeigingirni og drengskap- ur lýstu sér í öllum störfum Jóns Kjartanssonar fyrr og síðar, jafnt í ritstjórn hans á Morgunblað- inu, sýslumennsku, sem hann kaus að hverfa til eftir að hann var orðinn þreyttur á blaða- mennsku, og á Alþingi. Hann var einn þeirra manna, sem all- ir, er honum kynntust, fengu mætur á. Mismunandi farkostur Táar þjóðir eru háðari flug- vélum í daglegu lifi en okkar. Fjarlægðirnar gerðu fslendinga áður einangraða, bæði frá öðr- um þjóðum og innbyrðis. Ekk- ert samgöngutæki eyðir fjar- lægðunum fremur en flugvélar. Þess vegna verður seint orðum aukið hversu mikið við eigum þeim að þakka. En flugferðir hafa einnig sína ókosti. Segja má, að ferðalag með þeim sé svipaðast því, að maður sé sett- ur upp í kassa á brottfararstað og tekinn úr honum aftur innan stundar, þegar á ákvörðunar- staðinn er komið. Farþegar kynnast sáralítið því landi, sem yfir er flogið, og eftir langar flugferðir verða flestir þreytt- ori en þeir í fljótu bragði gera sér grein fyrir. Þess vegna er það holl tilbreyting, ef tími er til, að nota öðru hvoru hægfar- ari farartæki, skip, járnbrautir og bifreiðir. Sá, er þetta ritar, átti nýlega erindi suður til Rómaborgar og kaus þá að fara með skipi til Edinborgar, járn- braut þaðan til Svisslands og með almenningsbifreiðum frá Genf til Rómar. Þetta er í sjálfu sér ekki í frásögur færandi, en á það er minnzt til þess að mæla með því, að þeir, sem þess eiga kost, taki sér far rneð almenn ingsbifreiðum. Vandinn er sá að velja réttar leiðir og ætla sér ekki of langar dagleiðir. Með því móti sjá menn miklu meira of landinu, sem um er farið, en með nokkru öðru móti. Úr slík- um vagni fær maður mun betri yfirsýn en þótt ekið sé í einka- bifreið, auk þess sem ferðalagið er miklu skemmtilegra og síður þreytandi. Er einkum mjög að lofa aðbúnað og þjónustu í ítölsku vögnunum. .Laugard. 13. október • Aukinn ferða- mannastraumur Hvert sem farið er verður nú vart miklu meiri ferðamanna- straums en áður sást. Sú var tíð- in, að það þótti í frásögur fær- andi, ef íslendingur rakst á landa á götu í Kaupmannahöfn, hvað þá í Berlín eða London. Nú hittast íslendingar af algerri tilviljun á götu í Róm og kunnu þá sumir að segja frá því, að þeir höfðu séð almenningsbif- reið setna löndum, sem voru á skemmtiferð suður við* Neapels- flóa. Þvílík ferðalög eru ánægju- legt vitni velmegunar og sýna, að fleiri geta veitt sér nokkurn munað en ungir Framsóknar- menn, sem í sumar efndu til langferðar um Noreg. Þá sýndi Alþýðusambandsstjórnin lofs- verða fyrirgreiðslu með því að beita sér fyrir för til sólskins- eyjunnar Borgundarhólms á miðju sumri. íslenzkir verka- menn eru og ekki einir um að leggja land undir fót. Enskur uppskafningur sagðist nýlega ekki lengur geta dvalizt á Mall- orca af því, að „even the work- ing people“ úr hans eigin landi væru farnir að sækja baðstaði þar! Skrælingjahátturinn í því- líku orðbragði er íslendingum andstyggilegur. Við samgleðj- umst yfir því, að bættur efna- hagur skuli nú gera miklu fleiri en áður fært að fulínægja útþrá sinni. Siun er siður í landi hverju Vegir í hinum þéttbýlli lönd- um eru miklu betri eh hjá okk- ur. Engu að síður er varlega í það leggjandi að ætla að aka þar bifreið sjálfur, nema fyrir þaulæfða menn. Er þá fyrst á það að líta að alls staðar á meg- inlandinu, utan Svíþjóðar, tíðk- ast hægri handar akstur. Svíar hafa gert skrá yfir það, að all- fjölmennur hópur bíður bana ár- lega af þessum sökum, bæði Svíar, sem fara til annarra landa, og útlendingar, er koma til Svíþjóðar. Ekki sízt I þess vegna telja þeir Svíar, sem gerzt mega vita, að þess sé skammt að bíða, að þar verði breytt til og tekinn upp hægri handar akstur. Þá er það mjög erfitt fyrir ókunnuga — og sums stað- ar nær ógerlegt — að átta sig á akstursreglum í stórborgum, auk þess sem þar er mjög sein- farið, jafnvel fyrir þá sem ger- kunnugir eru. Enn má á það minnast, að ótrúlega þreytandi er að aka eftir löngum, þráð- beinum vegum, hinum alþjóð- legu bifreiðabrautum — „auto strata“ — og ekki meira að sjá þaðan en þó farið sé í járnbraut. Loks er þess að geta, að þótt okkur þyki vegir víða bugðóttir og yfir há fjöll að fara hér á landi er það smáræði miðað við það, sem sjá má, jafnvel í út- köntum Alpanna og í Norður- ítalíu. Þar eru vegir svo vand- farnir og engu að síður svo hratt ekið, að ekki er nema fyrir þraut vana og þaulkunnuga menn að leggja slíkt á sig. Umferðarslys eru og hvarvetna mikið áhyggju efni. Er það raunar ekki furða, þegar þess er gætt, að sums staðar, t. d. í Belgíu, þarf bif- reiðarstjóri ekki að taka neitt próf til þess að fá ökuleyfi. Þar er hægt að fá ökuskírteini með því einu að greiða gjald fyrir! Minnir á Sigur- björn í Vísi Mismunandi siðir lýsa sér í fleiru en ólíkum umferðarregl- um. Það var t.d. fróðlegt að vera leiddur fyrir ítalíuforseta. Sjálf- ur er forsetinn vingjarnlegur, roskinn maður, sem býr í hinni gömlu konungshöll. Þar virðast enn haldast fornir hirðsiðir, sízt geðfelidir þeim, sem öðru eru vanir. Þá er ólíkt ánægjulegra að koma í samsvarandi móttöku á Bessastöðum þar sem tekið er á móti mönnum eins og á hverju öðru góðu heimili. Allt annað mál er, þótt hefð- bundnu formi sé haldið í páfa- garði, því að páfadæmið er elzta stofnun, sem til er meðal hvítra þjóða. Þar er óslitin arfleifð aft- an úr öldum og sannarlega er gaman að sjá hina svissnesku varðmenn, enn klædda einkenn- isbúningi, sem sagt er, að sjálfur Micelangelo hafi fyrstur sett saman. En einnig þar er ytri umbúnaðurinn að sjálfsögðu aukaatriði. Samanburður á mönnum er ætíð vandmeðfarinn. Vissulega er Jóhannes 23. mjög ólíkur fyrirennara sínum, Píusi, sem var heldur þurr en þó alúð- legur tignarmaður, er bauð af sér mikinn virðugleik. Núver- andi páfi er að vísu virðulegur en með öðrum hætti, góðlátlegri en hinn og tsflar þannig, að hann sýnist vera að gera að gamni sínu, jafnvel egar hann ræðir um alvarleg efni. Þegar hinn heilagi faðir kom nær gat ekki dulizt hversu líkur hann er. einkum að augnasvip og í brosi. alkunnum Reykvíkingi, Sigur- birni í Vísi Þork.elssyni, núver- andi kirkjugarðsverði. Allur er þó páfi meiri um sig, svo sem stöðu hans sæmir. Ógleymanlegt augnablik Annars er sannast bezt að segja, að ómögulegt er að vera í návist páfa án þess að fyllast lotningu fyrir helgi embættis hans og ábyrgð þeirri, sem á honum hvílir. Og áreiðanlega hefur það verið hátíðleg stund þegar hjð mikla kirkjuþing var sett í Péturskirkjunni síðastlið inn fimmtudag. Undirbúnings þess mátti mjög verða vart undanfarna daga. Hið leiðasta var, að Péturskirkjunni hafði verið lokað af þeim sökum, raunar eitthvað fyrr en ella vegna sprengjutilræðis, sem þar hafði komizt upp um. -Nokkra uppbót var þó að fá sl. sunnu dag. Þá villtust nokkrir íslend ingar af fyrirhugaðri leið og lentu á torgi fyrir framan eina höfuðkirkjuna í Róm, þar sem um fór mikil helgiganga til bænahalds vegna kirkjuþingsins Sjálf var gangan gífurlega fjöl menn, skipuð ungum og göml um, leikum og lærðum, og var síðast borið mikið kristslíkneski Á undan því gengu biskupar og kardínálar. Allt var þetta áhrifa mikið, og þó enn áhrifarikara að sjá og heyra þátttöku fjöldans torginu, a. m. k. margra tug þúsunda, í því, sem fram fór Sú stund mun ekki hverfa úr minni þeirra, er þangað höfðu „villzt". Þar mátti sjá, að til eru býsna margir, sem hugsa svipað og séra Emil Björnsson brýndi fyrir alþingismönnum við þing setningu, að til séu fleiri verð mæti í heiminum en peningarn ir einir og að annað en eilíft jag um efnahagsmál fyllir huga sumra, a. m. k. á suðlægari slóð um. Hversu langt nær emingm' Öðrum þræði er hið mikla kirkjuþing í Róm ætlað til þess að efla einingu meðal kristinna manna. í augum okkar hefur kaþólska kirkjan sínar sérkredd ur, sem nú á dögum sýnast úr eltar. Hins vegar tjáir ekki að neita því, að hún býr yfir meiri reynslu en aðrar stofnanir þessum heimshluta hafa yfir að ráða. Nútímatækni er mjög framandi kenningum hinna fornu kirkjufeðra, en mannleg sál og lögmál samskipta ein staklinga sín £ milli hafa ekki eða furðu lítið breytzt á árþús undum. Kaþólska kirkjan og þjónar hennar þekkja flestum eða öllum betur mannlegt eðli. Fáir eru því þess um komnir að kenna henni. Á meðan hún held- ur því fram, að páfinn, — þótt með aðstoð hinna æðstu preláta og kirkjuþings sé — sé óskeikull misvirðir hún samt mannlega hugsun. óskeikulleiki er engum manni gefin, hverri stöðu og stétt sem hann er í, hvorki ein- um saman né með neinna ann- arra samráði. Aðalviðfangsefn- ið nú er að láta sérkreddurnar lúta í lægra haldi. Látum kirkju leiðtogana um að leysa sinn vanda. Hann verður þó ekki leystur án atbeina heilbrigðrar skynsemi. Líkleg leið til friðar Eyðing fjarlægðanna, afnám hindrana gegn nánari kynnum almennings í öllum löndum er mikilsvert til sameiningar. Þess vegna eru ferðalög alls almenn- ings og náin kynni fólksins sjálfs sín á milli, einna álitlegasta leiðin til friðar, sem enn hefur verið fundin. Enginn skyldi halda, að það sé tilviljunin eln- ber, að Sovétstjórnin hefur á þessu ári, stórlega látið draga úr utanlandsferðum Rússa, a.m.k. til Stóra-Bretlands. Efnahagsörðug- leikar í Rússlandi kunna ein- hverju að valda um, en einræðis herrunum geðjast og síður ensvo að því, að þegnar þeirra fái að kynnast háttum annarraþjóða og sjá að þær eru allt öðru vísi á vegi staddar en þeim hafði verið talin trú um. Af sama toga »r spunnið þegar Þjóáviljinn fyrir nokkrum vikum birti svívirð- ingargrein um Tel-star, sjón- varpshnöttinn bandaríska, sem vitrir menn telja að kunni að verða upphaf nánari kynna þjóða í milli, en nokkuð annað tæki, sem menn enn hafa smíð- að. — Framför gegn aft- ur-úr-kreistingi Ómögulegt er að ferðast um meginland Evrópu nú án þess að veita athygli hinni miklu framþróun, sem þar hefur átt sér stað og gerbreytingu lifs- kjara til batnaðar á örfáum ár- um. Fyrir 6 árum virtist Belgía t. d. vera staðnað land. Nú kem- ur ferðalangur þaðan með allt önnur og lífvænlegri áhrif. — Hvort sem það er rétt eða rangt telja þeir sem við er talað á meginlandinu, að Efnahags- bandalagið hafi gjörbreytt við- horfi þeirra og nú þegar stór- bætt lífskjörin. Fáir efast um, að Bretar muni gerast aðili þess áður en langt um líður. Einn helzti maður írlands sagði að í írlandi væru allir nema ein- staka sérvitringar yzt til hægri og vinstri sammála um, að fr- land yrði sjálfs sín vegna að gerast aðili að bandalaginu. í augum Breta er málið engan veginn svo einfalt. Gaitskell, for ingi Verkamannaflokksins, hélt á sínu flokksþingi þrumandi ræðu, sem flestir töldu beinast gegn bandalaginu en þó opnaði hann sér leið til samþykkis, að vísu þrönga. Nákunnugur mað- ur í Bretlandi, hlyntur Verka- mannaflokknum, sagði hins veg- ar að. með afstöðu sinni skapaði flokkurinn íhaldsmönnum færi á að ryðja brautina til framtíð- ar landsins, og sneri _ þannig hlutverki flokkanna við.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.