Morgunblaðið - 24.10.1962, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.10.1962, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐ1Ð IVTiðvikudagur 24. október 1962 >Mi ■Ma i ii% <»>!» Wl« Kveðja til lesenda Morgunblaðsins íro. Willy Brandt borgarstjóra V - Berlínar Willy Brandt í TILEFNI a£ dvöl fréttarit- ara Morgunblaðsins í Berlín um miðjan september síðast- liðinn hefir Willy Brandt, borgarstjóri sent lesendum blaðsins eftirfarandi kveðju. Berlín-Shöneberg 17. okt. ‘62 Ég þakka bréf yðar, sem þér senduð mér er bér voruð staddur í Þýzkalandi. Eink- um þakka ég yður þann á- huga er þér látið í ljós um örlög og vandamál sundur- slitinnar höfuðborgar Þýzka- lands. íbúar hins frjálsa hluta Berlínarborgar kunna vel að meta og þakka samúð þá og stuðning, sem þeir njóta svo víða um heim. Við vitum hve mjög þróun mála á þessum blettj álfunnar er undir þeim skilningi komin, sem menn utan Berlínar og Þýzkalands íhafa á vandamálum okkar. íbúar hins frjálsa hluta klof- innar höfuðborgar Þýzka- lands, Vestur-Berlínar, efla traust sitt á framtíðinni við þá samúð, sem þeir skynja frá frið- og frelsiselskandi fófki um allan heim; sjálfir vilja þeir einungis fá að búa í friði og frelsi við frjálst stjórnmálakerfi þingræðis, eins og þeir hafa sjálfir kos- ið sér. Um leið og ég óska þess, að sífellt fleiri þjóðir, sem sjálfcir ráða samfélagsformi sinu og ríkisstjórnir þeirra skilji naöðsyn samvinnu, sendi ég yður og lesendum Morgunblaðsins vinarkveðj- ur frá Berlín. Willy Brandt □ • □ í greininn, „Smánarmúr- inn 1 Berlín" sem birtist her í blaðinu fyrir skömmu voru engar tölur nefndar. Það er nú upplýst, að 30 menn hafa verið drepnir við múr- inn, frá því hann vair reisst- ur fyrir rúmu ári. í Bandaríkjunum er nú tal- ið að Krúséff hafi boðað til fundar með Kennedy forseta í Vínarborg í maí 1961 til. þess að kynna sér afstöðu hans, áður en hann gæfi sam- þykki sitt til þess að Ulbricht og menn hans fengju að reisa smánarmúrinn Nú er Krú- séff aftur á ferðinni og er mælt að hann vilji fá að hitita Kenndy á nýjan leik í Waáhington nú í nóvember. Kennedy er sagður fús til þess að taka á móti Krús- éff í Washington, en hann mun líta svo á að fundur þeirra til þess að ræða alvarleg mál, sé tilgangslaus eins og sakir standa. SMkur fundur gæti jafnvel gert illt verra, þar sem hann gæti leitt til þess að þeir skildu reiðir. 1 Washington er á það bent, að 9 klst samræður, sem Gromikof, utanríkisráðherra Rússa átti fyrst við Kennedy forseta og síðan við Rusk utan ríkisráðherra, í vikunni sem leið, hafi í engu breytt af- stöðu Bandaríkjanna og Rússa til Berlínarmálsins. Það sem fyrst og fremst ber á milli er, að Rússar vilja að Vest- urveldin flytji her sinn frá Vestur-Berlín, en Vesturveld- in telja sig hafa skýlausan rétt til þess að hafa þar heri sína og segjast hvergi munu 'hvika fiá þeim rétti. Sunnudaginn 21. október fluttist Willy Brandt borgarstjóri ræðu á fundi sósialdemokrata í Berlín og sagði þá, að ljóst væri, að Krúséff hefði nú loks gert sér grein fyrir því, að Banda- rí'kjamönnum væri það full alvara að láta heldur sverfa til stáls, heldur en að hvika frá rétti sínum í Berlín. Hafa þessi ummæli borgarstj órans vakið athygli víða um heim. Það er athyglisvert hve ná- in samskifti hafa verið milli Bandaríkjamanna og Vestur- þýzkra stjórnarvalda á und- anförnum vikum. Upp úr miðjum september fór Willy Brandt vestur um haf og dvaldi þar í viku. Skömmu síðar fór Sohröder, utanríkis- ráðherra Bonnstjórnarinnar til Washington, hitti þar Kennedy forseta og Rusk ráð herra. Þó að vitað sé að nokk ur ágreiningur sé á milli Bonnstjórnarinnar og Banda- ríkjastjórnar í einsta'ka mál- um, þá mun þó Sohröder hafa sannfærst um að Bandaríkja- menn eru staðráðinir í því að standa við gefin loforð í Vestur-Berlín .Og í byrjun næsta mánaðar, eða strax eft- ir kosningarnar í Bandaríkj- unum, heldur dr. Adenauer, hinn aldni kanzlari Vestur- Þýskalands, af stað til Was- hington. Á hinn bóginn hefir Gom- úlika, forsætisráðherra Pól- verja nýlega verið í Austur- Berlín og hefir það komið nokkuð á óvart, að hann hef- ir lýst yfir stuðningi við þá kröfu Krúséffs að vesturveld- in verði á burt með heri sína úr Berlín. Fólkið i Vestur-Berlín horf ir að sjálfsögðu með nokkrum kvíða á þessi geigvænlegu á- tök milli austurs og vesturs. Því líða fólki þessir atburðir ekki úr minni á meðan það hefir smánarmúrinn fyrir ut an gluggan sinn. Þau tíðindi gerðust nú um helgina, að fólfc í Vestur- Berlín veitti því athygli, að rússneskir hermenn höfðu tekið sér varðstöðu við múr- inn í Bernauerstrasse, í stað austurþýzkra hermanna, sem voru þar áður. Sumir hyggja jafnvel gott til þessarar breyt ingar, þar sem hún er talin benda til þess að Rússar geri sér ljóst að það sem gerast kann f Berlin, er fyrst og fremst á þeirra ábyrgð. Pól. Kínverjar fara fram á samninga- viðræður við Indverja Aður dragí herir beggja sig til baka um 20 km. BREZKA útvarpið skýrði frá því á miðnætti í nótt, að Pekingstjórnin hefði lagt til, að Indverjar og Kínverjar drægju heri sína til haka um 20 km á landamæravígstöðv- unum og samningaviðræður færu fram í Peking eða Delhi. Sagði útvarpið, að talið væri, að Kínverjar hefðu borið þessa tillögu fram eftir að Nehru, forsætisráðherra Ind- lands, hefði svarað tilmælum Krúsjeffs, forsætisráðherra Sovétríkjanna, Nassers, for- seta Arabíska sambandslýð- veldisins, og Tugmans, for- seta Líberíu, um málamiðlun á þá leið, að Indverjar myndu ekki ræða við Kínverja á meðan kínverskir hermenn væru á indverskri grund. — Rússar Framhald af bls. 1. árásáröflum, sem ógna frelsi þeirra og sjálfstæði.“ „Sovétríkin hafa alltaf verið trú grundvallarreglum stofnskrár Sameinuðu þjóðanna, hafa stöð- ugt stefnt að því að tryggja og efla friðinn. Allur heimurinn veit um þær umfangsmiklu til- raunir, sem Sovétríkin hafa gert til að draga úr spennunni í heim- inum....“ Yfirlýsing Sovétstjórnarinnar lýkur með því að skora á allar ríkisstjórnir heims að mótmæla gjörðum Bandaríkjastjórnar, og segist Sovétstjórnin munu gera allt til að koma í veg fyrir fyrir- ætlanir árásaraflanna í Banda- ríkjunum. Nýju Delhi, 23. okt. — NTB-AP • HARÐIR bardagar geisuðu enn á landamærum Indlands og Kína í dag. — Kínverjar sækja fram á norðausturvígstöðvunum, en Indverjum hefur tekizt að stöðva framsókn þeirra í Ladak- héraði, að sögn varnarmála- ráðuneytis Indlands. Kinverjar segja hins vegar, að hermönn- um þeirra hafi einnig vegnað betur í Ladakhéraði. • Forseti Indlands sagði í ræðu í dag, að Indverjar yrðu að efla herlið sitt á landamær- unum og ná aftur landsvæðun- um, sem Kínverjar hafa tekið. • Pekingstjórnin hefur sagt hermönnum sínum, að þeir þurfi ekki að takmarka sig við hin umdeildu svæði á landamærun- um, er þeir ráðast á Indverja. • Macmillan, forsætisráðherra Breta, tilkynnti Nehru í dag, að Bretar væru reiðubúnir að selja Indverjum vopn. Sex vígstöðvar Bardagarnir á landamærum Indlands og Kína hafa enn breiðzt út og er nú barizt á sex vígstöðvum, að þvi er fréttir Pekingútvarpsins herma. Fjór- um vígstöðvum í Ladakhéraði i Kasmír og tveimur á norðaustur- landamærunum. Kínverjar sækja fram til borg- arinnar Twang, sem er verzlun- armiðstöð á svæðinu milli Butan og Tíbet, 80 kílómetrum fyrir sunnan landamæralínu þá, sem Indverjar víðurkenna. Talið er í Nýju Delhi að Kínverjar ætli að taka borgina og svæðið um- hverfis hana og ná um leið yfir- ráðum yf-ir leiðinni til Nam Yong-dalsins, sem liggur í suð- vestur gegnum Butan að Brama- putrasléttunni. | NA /5 hnútar 1 SV SÖ hnutar ¥ Snjókoma t 06 i 7 Skúrír E Þrumur 'W.z, KuUoM H Hml L Lmo» Kínverjar hafa einnig sótt fram við Kibitoo, austast á landamærunum rétt við Burma. Ofursti úr „indverska hernum, sem flaug yfir vígvellina í Lad- akhéraði í dag, sagði, að þar Mfefði Indverjum tekizt að stöðva framsókn K'nverja, en Kínverj- ar sendu aukinn herstyrk til víg- stöðvanna. Fréttastofan Nýja Kína til- kynnti aftur á móti, að Kínverj- um hefði vegnað betur á þess- um vígstöðvum. Kínverjar vildu ekki samningaviðræður Forseti Indlands, Radhalsrishn- an, flutti ræðu í dag og sagði hann, að indverska þjóðin ætti ekki annárs úrkosta en styrkja varnir sínar, verja land sitt og ná aftur þeim svæðum, sem Kín- verjar hefðu tekíð. Sagði hann, að Kínverjar hefðu vísað kulda- lega á bug tilboði Indverja um samningaviðræður, og gert árás á Indland. Blöðin í Peking skýrðu í dag frá yfirlýsingu ríkisstjórnarinn- ar þess efnis, að landamæraher- sveitir Kínverja þyrftu ekki að takmarka sig við hin umdeildu svæði við MacMahon-línuna. Indverjar hefðu ráðizt inn i Kína og hefði árásin verið lengi í und- irbúningi. Vilja miðla málum Krúsjeff forsætisráðherra lagði það til við Nehru, forsætisráð- herra Indlands, í bréfi, sem hann sendi honum í dag, að hafnar yrðu viðræðyr um lausn landa- mæradeilunnar. — Áður höfðu Arabíska sambandslýðveldið og Líbería lagt það sama til. Bretar senida vopn Macmillan forsætisráðh. Breta 'hét Nehru forsætisráðherra .Ind- í GÆR var fremur stillt veður og úrkoroulítið um mestan hluta landsins, en á Vestfjörðum gerði um morg- uninn talsverða snjókotmu, sem stóð þó stutt. Út af Vest- fjörðum var hins vegar ANA- hvassviðri og snókoma. Lægð in suður af Grænlandi, sem er til komin úr fellibylnum Ellu, stefndi hingað, og voru allt upp í 10 vindstig nalægt lægðarmiðju. lands því í dag, að Bretar myndu selja Indverjum vopn og annað er þeir þörfnuðust til að verjast Kínverjum. Lýsti hann samúð brezku þjóðarinnar með Ind- verjum á þessum erfiðu tímum. Það var tekið skýrt fram af opinberum embættismönnum í London, að vopn þau, sem Bretar létu Indverjum í té, væru ekki gjöf. Ástæðurnar til þess væru, að enginn varnarsamningur væri í gildi milli Bretlands og Ind- lands — þess hefðu Indverjar ekki óskað — og að Bretar gætu ekki gefið Indverjum vopn, sem þeir gætu selt öðrum, fyrst og fremst bandamö mum sínum. 3 verzlanir á sama stað VERZLUNIN Drangey hefur ný- lega aukið húsrými sitt við Laugaveg. Þrjár verzlanir eru reknar þar á sömu hæð: Hljóm- plötudeild, leðurvöruverzlun og Bólstrun Harðar Péturssonar. Drangey hóf starfsemi sína ár- ið 1936. Á síðustu 15 árum hefur dótturfyrirtæki verzlunarinnar íslenzkir tónar gefið út .nær 200 hljómplötur 78, 45 og 33 snún- inga, ýmist danslaga-, þjóðlaga- og barnaplötur. í hljómplötu- verzluninni fást einnig margs- konar erlendar plötur. í leðurvörudeildinni eru ís- lenzkar kventöskur frá 5 helztu töskuverzlunum landsins, ög í Bólstrun Harðar Péturssonar fæst mikið úrval húsgagna. Leiðbeiningar um matarræði LÆKNISDÓMAR alþýðunnar nefnist nýútkomin bók eftir bandarískan lækni, D. C. Jarvis, M.D. Gefur þessi bók mönnum leiðbeiijingar um mataræði og lifnaðarhætti og niðurstöður byggðar á athugunum höfundar. Hefir bók þessi vakið mikla at- hygli bæði í Bandaríkjunum og Englandi og einnig verið þýdd á fjölda tungumála. Höfundurinn. dr. Jarvis er nú að verða áttræð ur en stundar enn lækningar af fullum krafti og hefur auk þess skrifað margar bækur um holl- ustuhætti manna og dýra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.