Morgunblaðið - 24.10.1962, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 24.10.1962, Blaðsíða 23
Miðvikudagur 24. október 1962 MOnCVlSltL AÐIÐ 23 Vilja ekki afnánrs prestskosninga Frd héraðsfundi Kjalarnesprófastsdæmis HÉRAÐSFUNDUR Kjalarness- sama hætti og verið hefur, að prófastsdæmis var haldinn í Keflavík sl. sunnudag. Hófst liann með messugjörð í Kefla- víkurkirkju. — Séra Kristján Bjarnason predikaði, séra Bjarni Sigurðsson og séra Bragi Frið- riksson þjónuðu fyrir altari. — Prófasturinn, séra Garðar í»or- steinsson, setti síðan fundinn og stjórnaði honum. Til fundar voru mættir allir prestar prófastsdæmisins, nema prestarnir í Vestmannaeyjum, og 12 safnaðarfulltrúar. Tillögur kirkjuþings um veit- ingu prestsembætta, án al- mennra prestskosninga, var aðal- mál fundarins. Að loknum um- ræðum voru tillögurnar“Telldar með 16 atkvæðum gegn 2, en því- næst samþykkt einróma, að prestsembætti verði veitt með — Öryggisráðið Framhald af bls. 1. undir milljóna í efnahagsaðstoð við önnur ríki. — Ég hef oft velt því fyrir mér, sagði Stevenson, hvernig heimurinn væri í dag, ef aðstað- an í stríðslok hefði verið öfug — ef Bandaríkin hefðu orðið fyrir eyðileggizigum og sundrungu styrjaldarinnar, og Sovétríkin ósnert og ein átt kjarnorku sprengjur og voldugasta her heims. Hefðu Sovétríkin fylgt sömu stefnu og einbeitt sér að því að tryggja friðinn í heiro- inum? Aðgerðir Sovétríkjanna Stevenson sagði að árásir Sov étríkjanna á Bandaríikin hafi hafizt jafnskjótt og sjá mátti fyrir ósigur nazista 1945. Rakti hann útþenslustefnu Sovétrí'kj- anna frá því stríðinu lauk, her- námi Austur Evrópu og aðgerð- um þeirra í Grikklandi, Tyrik- landi, Suðaustur Asíu, Kóreu og Berlín. Sakaði hann Sovétríkin um að hafa rofið gagnkvæma griðarsamninga við Eystrarsalts löndin og Finnland, og um að neita löndunum í Austur Evrópu um sjálfsákvörðunarrétt. Hann benti á að Sovétríkin hafi brot- ið bann við tilraunum með kjarn orku og hafi 100 sinnum beitt neitunarvaldi í örýggisráðinu til að hindra framgang mála Grundvallarhvöt Rússa Enginn hefur sagt það betur en Krúséff, sagði Stevenson að reynslan sýnir að sáttmálar, samn ingar, loforð og siðalögmál al- þjóða samskipta voru Stalín eng in vegatálmi. Sagði Sevenson að enginn vafi væri á því að Krúséff hefði mörgu breytt. En einu hefði hann ekki breytt, og það væri grundvallarhvöt Rússa til að afmá þann heim, sem byggður væri á sbofnskrá Sam- einuðu þjóðanna. Hinsvegar ságði hann að Bandaríkin væru ttireykin af því að hafa barizt fyrir frelsi þjóðanna. „Við höfum aldrei neitað að semja .. Við ttiÖfum neitað að láta draga okk ur út í aðgerðir er gætu leitt til styrjaldar .. þrátt fyrir ögranir eins og innilokun Berlínar, aðra eins smán gaignvart mannkyni og er Rússar bældu niður bylting- una í Ungverjalandi, hryðjuverk eins og byggingu skammarmúrs iris til að löka inni Austur-Þjóð- verja, sem flúið höfðu í stórhóp um til Vestur-Þýzkalands. Stevenson sagði að nú væri tími til kominn fyrir Öryggis- ráðið að taka ákvörðun um það hvort gera beri alvarlega tilraun tii að koma á friði í heiminum, eða standa aðgerðarlaus og horfa * aðgerðir kommúnista, som vona að ekkert eitt atvik sé nægilega þýðingarmikíð til að hinn frjálsi heinMir snúist til varnar. undangenginni kosningu, en kosningalögunum verði breytt til samræmis við lög um aðrar almennar kosningar. — Tveir fundarmanna greiddu atkvæði með tillögu um það, að prests- kosning skyldi ekki fara fram, ef % safnaðarstjóra væri ein- huga um einn umsækjanda eða um köllun prests. Tillögur þessar höfðu áður verið bornar undir safnaðar- fundi í sóknum prófastsdæmis- ins og yfirleitt hlotið svipaða af- greiðslu þar. Þá var og þessi tillaga sam- þykkt einróma á héraðsfundin- um: „Fundurinn lýsir yfir bryggð sinni vegna niðurlæg- ingar og vanhirðu Viðeyjar- kirkju og skorar á biskup, að hann beiti sér fyrir því, að hið bráðasta verði gjörðar á henni nauðsynlegar endurbætur". Á fundinum var kosin þriggja manna nefnd, er í samráði við prófast kanni möguleika og gjöri áætlun um byggingu sum- arbúða á vegum safnaðanna inn- an prófastsdæmisins. Rætt var um endurreisn hins forna Kálfatjarnarprestakalls með Kálfatjarnar- og Njarðvík- ursóknum. Talc’i fundurinn ekki tímabært að gjöra ákveðna til- lögu um breytingu frá því sem nú er, en samþykkti eftirfarandi tillögu: „Fundurinn skorar á kirkjustjórnina, að koma nú þegar á fastri prestsþjónustu á Keflavíkurflugvelli fyrir þá ís- lenzka starfsmenn, sem þar dveljast, og skyldulið þeirra“. Prestshjónin í Keflavik buðu fundarmönnum til kaffidrykkju á heimili sínu og sóknarnefnd Keflavíkursafnaðar bauð þeim til kvöldverðar að fundi lokn- um. — Frumvarp uin kornrækt TVEIR þingmenn Framsóknar flokksins í efri deild hafa flutt frumvarp um kornrækt. Fluttu sömu þingmenn, Ásgeir Bjarna- son og Páll Þorsteinsson, frum- varp sama efnis á síðasta þingi, en það hlaut þá ekki samþykki. Leggja flutningsmenn m. a. til í frumvarpi sínu, að þeim aðilum, sem mynda með sér félagssam- tök um að gera kornrækt að framleiðslugrein, þar sem bygg, hafrar eða aðrar korntegundir eru ræktaðar svo, að þær nái þroska, skuli gefinn kostur á sér- stökum stuðningi. INDIA ^ , 300 MILES ,J — Herskip Framh. af bls. 24. um slóðir. Flest öll herskip, sem bækistöðvar höfðu í Florida, eru sigld þaðan, sennilega til að taka þátt í aðgerðunum gegn Kúbu. Bannað að lenda Talsmaður bandaríska utan- ríkisráðuneytisins sagði í dag að viðbrögð annarra ríkja við ræðu Kennedys í gær hafi verið betri en unnt var að vona. Sérstak- lega sagði hann að ánægja ríkti í Washington yfir því að Kanada hefði bannað rússneskum flug- vélum á leið til Kúbu að lenda á kanadískum flugvöllum. Orðrómur hefur gengið um það að Krúsjeff forsætisráð hérra hafi fyrirskipað rússnesk- um skipum á leið til Kúbu að halda áfram þrátt fyrir aðflutn- ingsbannið. —■ Pierre Salinger, blaðafulltrúi Kennedys, var spurður að því í dag hvort orð rómur þessi hefði við rök að styðjast, en hann baðst undan því að svara. IVIclVlahon línan umdeilda Landamerkjalínan um- deilda — Mc-Mahon-línan, sem um standa heiftugir bardagar Indverja og Kín- verja, var ákveðin árið 1914, eins og fyrr hefur verið frá skýrt í fréttum. Lína þessi var nefnd eftir brezkum stjórnarerind- reka, Sir Henry McMahon, en hann var einn þeirra, sem stóðu að samnings- gerðinni um línuna og átti hugmyndina að legu henn- ar. — Línan á upptök sín, þar sem ríkin Tíbet, Indland og Bhut an koma saman, í 10 þús. feta hæð í Himalayafjöllum. Og hún liggur um 900 km. leið eftir fjallgarðinum þar til, er Indland, Burma og Tíbet koma saman. Indverjar segja línu þessa hin einu lögmætu landa mörk á þessu svæði, en Kín- verjar neita að viðurkenna hana. Sir Henry McMahon lagði fram uppástungu um þessa landamerkjalínu á ráðstefnu, sem fulltrúar Breta, Dalai Lama í Tíbet og kínversku miðstjórnarinnar sátu. Full- trúar þessara þriggja aðila undirrituðu samninginn, með fyrirvara, en Kínverjar neit- uðu síða að staðfesta hann. Nú krefst Pekingstjórnin 135 þús. ferkílómetra landsvæðis, suð ur af línunni. — xxx — McMahon línan fylgir vatna skilunum norður af Brahma puti--fljóti. Kínverjar halda því hinsv^gar fram, að línan ætti með réttu að fylgja fjalls rótum Indlandsmegin. Enn- fremur staðhæfa þeir, að ætt- flokkarnir Mishmi, Aka og Abor hafi ásamt fleirum viður kennt yfirráð Tíbets og Bret ar hafi aldrei haft á hendi otjórn þeirra landssvæða s„n ættbálkarnir byggja. Þessu svar- Indverjar, að fyrrgreind ir ættflokkar hafi alls engin þjóðfræðileg tengzl við Tíbeta og hafi þeir allir svarið ind- verskum þjóðhöfðingjum holl ustueiða snemma á 19. öld. Loks segja Kínverjar, að Mc Mahon línan h«xi hvergi verið merkt á brezk kort fyrr en árið 1836, en Indverjar stað hæfa að Bretar hafi viljað bíða með það í þeirri von, að Kínverjar staðfestu undirrit- un samningsins frá 1914. In-,-erjar staðhæfa, að þess séu engin dæmi fyrr í sögunni að Kínverjar hafi reynt að ná yfirráðum eða gert kröfur til landsvæða á þessum slóðum — eða þar sem Bretar hafa jafnan kallað „Northeast Frontier Agency“ — skamm- stafa NEFA, en það er aust- asta landsvæði Indverja. íþróttir — Skiptist Framh. af bls. 24. finna friðsamlega lausn á Kúbu- málinu hjá Sameinuðu þjóðun- um. Talsmenn útgerðarmanna í Japan hafa lýst því yfir að jap- önsk skip hafi aldrei flutt vopn til Kúbu, og muni þeirra skipum verða beint frá Kúbu í næstu framtíð. París: Franska stjórnin hefur enn ekki gefið út yfirlýsingu varðandi Kúbu, en talsmaður stjórnarinnar sagði í dag að full- trúa Frakklands hjá SÞ yrði falið að greiða atkvæði með Banda- ríkjamönnum. Moskva: Sovétstjórnin sendi í dag frá sér langorðaða yfirlýs- ingu, þar sem hún mótmælir að- gerðum Bandarikjamanna (sjá annars staðar í blaðinu). Fól stjórnin varnarmálaráðherran- um að afturkalla öll leyfi her- manna og sérstaklega að leysa ekki frá herþjónustu menn, sem lokið hafa herskyldu sýjni, en starfa í eldflauga- og loftvarna- deildunum og í kafbátaflotanum. Fylgdu flest ríki Varsjárbanda- lagsins í fótspor Rússa og birtu samskonar yfirlýsingar. Oslo: Halvard Lange forsætis- ráðherra flutti ræðu í dag þar sem hann lýsti því yfir að norska stjórnin teldi aðgerðir Banda- ríkjanna hafa verið nauðsynleg- Hvar er R-372? SKELLINÖÐRUNNI R-372 var stolið frá Grettisgötu 81 laugar daginn 13. þ.m. Hjólið er ljósgrænt að lit af gerðinni NSU. Smíðaár er 1955. Þeir sem hafa orðið varir við hjólið eftir 13. október eru vin- samlega beðnir að gera rannsókn arlögreglunni aðvart. Framh. af bls. 22. svæðunum á 3—4 klst. ná Stt ekki niður. Þarria hefur verið snjór á þessum tíma árs svo lengi sem skýrslur herma. Um stökkpallinn sagði Sig- mund Ruud, hélt Rieder á- fram, að hann væri betur gerð ur en Holmenkollen. Pallur- inn- kostar líka 20 millj. ísL kr. — Ég veit það verður tap á Vetrarleikunum ef bara er horft á tekjur og gjöld. Gjöld in vegna bygginga og breyt- inga verða um 1000 millj. ísl. króna, en tekjurnar litlar móti því. Innsbruok fer ekki illa út úr málunum. Ríkið greiðir helming gjalda, Tyrol-ríki 25% og Innsbruck 25%. Inns- bruck sem lifir af ferðamönn- um fær áreiðanlega sitt. Aust urríki og Tyrol fá einnig sitt á löngum tíma. Það er góð auglýsing lítiili þjóð at standa vel í stykkinu með að halda slíka vetrarleika. Við eigum reynda menn til að stjórna verkinu og ég er sannfærður um að Vetrarleikarnir 1964 verða eins vel eða betur skipu lagðir en nokkuð annað vetr aríþróttamót sem haldið hef ur verið. Þetta sagði Otto Rieder og bætti við. — Ég vona að það verði hópur keppenda frá ís landi á leikunum. Hóx ur nær lengra en einstaklingar og það er andi Olympí ..ieika ..ð taka þátt en ekki sigra. fslendingar hafa mætt of fáir til slíkra móta, en þegar þeir hafa verið flestir hefur „liðið“ staðið sig bezt. Og vonandi mætir „lið“ frá íslandi. — A. St. — Ævintýraförin Framh. af bls. 15 Jeríkó voru skoðaðar rústir hinna fornu múra sem hrundu þegar Jósúa lét þeyta hrútshorn- in um Í300 árum fyrir Krist. Fyrir ofan Jeríkó blasir við Freistingafjallið, þangað sem Jesús var leiddur þegar hann fastaði úti í eyðimörkinni. Á leiðinni til Jerúsalem var ekið um hrjóstrugar en sögu- frægar byggðir Júdeu, komið við í Betaníu, þar sem Lazarus var vakinp til lífsins, og síðan haldið með hlíðum Olíufjalls- ins inn í Borgina helgu. í dag hafa hinir íslenzku pílagrímar heimsótt Getsemane-garðinn og Betlehem, sem liggur 17 km frá Jerúsalem, og loks gengið Via Dolorosa, píslarbraut Jesú frá höll Pílatusar til Golgata. Var sú ganga hátíðleg, því í dag er föstudagur, og mikill fjöldi píla- gríma og munka hélt til Gol- gata með viðeigandi helgiathöfn um, eins og venja er til á þess- um degi. Á morgun verður musteris- svæðið heimsótt og hinn forn- kunni grátmúr, en annað kvöld verður flogið til Kaíró, þar sem hópsins bíða pýramídar og önn- ur forn mannvirki. Síðan liggur leiðin til Rómar og Lundúna, en á föstudag, 26. okt., lýkur þess- ari ævintýraferð heima í Reykja vík. — Duglegir unglingnr eðu krukkur óskast til að bera MORGUNBLAÐIÐ í þessi hverfi í borginni: FJÓLUGATA — KLEIFARVEGUR — BERGSTAÐARSTRÆTI mpndbliúS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.