Morgunblaðið - 24.10.1962, Blaðsíða 6
6
MORGVNBLAÐIÐ
VTiðvikudagur 24. október 1962
Reisa stórkaupmenn
stórhýsi við höfn'na?
FÉLAG íslenzkra stórkailÍJmanna
hefur lengi óskað eftir því, að
fá lóð við Reykjavíkurhöfn til
að byggja hús þar sem yrðu skrif
stofur meðlimanna og vöru-
geymslur. Nú hefur hreyfing kom
ið á málið og fjallar borgarráð
um þessar mundir um lóðaúthlut
un til félagsins.
Morgunblaðið sneri sér í gær
til Kristjáns G. Gíslasonar, for-
manns Félags íslenzkra stórkaup
manna, og spurðist fyrir um mál
ið.
Kristján sagði, að félagið
hefði í nokkur ár sótt um lóð við
höfnina fyrir sameiginlegt skrif
stofu- og vörxihús og skildist sér
að borgarráð fjallaði nú um mál
ið.
Fjölmargir stórkaupmenn,
sagði Kristján, hafa áhuga á að
fá inni í húsinu, hafa þar bæði
skrifstofur sínar og vöru-
geymslu.
Það væru mikil þægindi fyrir
viðskiptavinina, sagði hann, að
geta haft vörugeymslur svo
margra aðila á einum stað. Það
sparaði vinnu, kostnað og fyrir
höfn bæði fyrir viðskiptavinina
og stórkaupmennina. Auk þess
myndi það létta mikið á umferð
inni í miðbænum, ef stórkaup-
mennirnir hefðu vörugeymsluxm
ar á einum stað, en ekki út um
hvippinn og hvappinn.
Kristján G. Gíslason, sagði að
borgarráð hefði í hyggju að láta
félaginu í té lóð nærri höfninni
fyrir skrifstofubyggingu og aðra
lóð fyrir vörugeymslur, þar sem
nýja höfnin á að koma. Félagið
gæti fallizt á þá lausn.
Að lokum sagði Kristján, að
Félag íslenzkra stórkaupmanna
hefði kosið nefnd til að vinna að
málinu. Formaður hennar væri
Jón Jóhannesson.
Kunnur brezkur þing-
maður flytur erindi
á vegum Angliu
ANGLIA, félag íslendinga og
enskumælandi manna á íslandi
•r nú um það bil að hef ja vetrar-
starfsemi sína. Aðalfundur félags
ins var haldinn 18. okt. sl. og var
ný stjórn kjörin.
Ætlunin er að hefja starfsem-
ina af fullum krafti innan
skamms, en hún hefur legið mjög
niðri á undanförnum 4 árum. Fé-
lagsmenn Angliu eru um 400
talsins.
Roy Harris Jenkins, einn
þekktasti þingmaður brezka
verkamannaflokksins, er væntan-
legur hingað til lands næskom-
andi fimmtudag í boði Angliu og
mun halda fyrirlestur í 1. kennslu
stofu Háskólans á föstudag kl.
ersydhan Grammar Sdhool og
Balliol, Oxford. Hann er þing-
maður fyrir Birmingham og hef-
ur sinnt mörgum mrkilvægum
trúnaðarstörfum fyrir samtök
menntamanna rithöfunda og rí'kis
stjórnar Bretlands. Jenkins hefur
einnig ritað fjölda bóka um ýmis
efni, svo sem ævisögu Clement
Svipmynd af þinginu. Fremst á myndinni séra Þorgrímur Sigurðsson. Páll Kolka í ræðustóli.
Annar
fundur
kirkjuþings
Kirkj'UÍþinig hélt áfram í fyrradag
og hófst fundur kl. 13,30. — Tvö
mál voru á dagskrá: Kosning í
fastanefndir og skýrsla kirkju-
ráðs. Fastanefndir eru: löggjafar
nefnd, sem fjallar um mál er
heyra undir Alþingi, og allsherj-
arnefnd, sem fjallar um almenn
kirkjumál. Að kosningu lokinni
var ákveðið að Hákon Guðmunds
son hæstaréttarritari skuli kalla
saman löggjafarnefndina, en séra
Þorgrímur Sigurðsson á Staðar
stað allsherjamefndina.
Annar fundur var haldinn eftir
kaffihlé, og fjallaði hann um
frumvarp um veitingu presta-
kalla, sem lagt var fram af bisk
upi og kirkjuráði. Var frum-
varp þetta afgreitt á síðasta þingi
með því að vísa því til héraðs
funda. Var því nú vísað til lög-
gjafarnefndar. Forseti Kirkju-
Attlee og Sögu Verkamanna-
flokksins.
U-m miðjan næsta mánuð verð-
ur fyrsti fundur Angliu haldinn.
Formaður skemmtinefndar er
Brian Holt, sendiráðsritari. Kvik-
myndasýningar munu haldnar
fyrir félagsmenn í vetur og sú
fyrsta á myndinni „The Great
Expectations" eftir bók Charles
Dickens verður sýnd fyrir jól.
Framhaldsleikritið Glæstar vonir
sem leikið vár í útvarpið síðast-
liðinn vetur var gert eftir sömu
sögu. Bókasafn Angliu með rúml.
2000 bindum er starfandi í
brezka sendiráðinu fyrir félags-
menn og aðra.
Öllum er heimil innganga í
Angliu, hvort sem þeir eru ensku
mælandi eða ekki. Inntöku nýrra
félaga annast einkum þeir Gunn-
ar Schram, ritstj. og Haraldur
Á. Sigurðsson, xtórkaupm. Vetr-
arstarfsemin verður auglýst síð-
ar í blöðum.
Biskupinn í forsæti.
þingsins er biskup fslands, herra
Sigurbjörn Einarsson, varafor-
seti Hákon Guðmundsson hæsta
réttarritari og ritarar þeir séra
Þorgrímur Sigurðsson og Þórður
Tómasson.
Roy Harris Jenkins.
17.30 um málefni Bretlands og
Efnahagsbandalags Evrópu, og er
öllum heimill aðgangur. Jenkins
er í flokki helztu fylgismanna um
inngöngu Bretlands í EBE og því
einn harðasti andstæðinga Geit-
skell innan flokksins. Jenkins er
tæpra 42 ára, mentaður í Ab
• Biður um lífsnæringu
á nóttunni
Maður kom að máli við
Velvakanda í gær og bað hann
mjög eindregið að koma þeirri
ósk á framfæri að ‘*hægt væri
að hafa einhvern matsölustað
opinn eftir miðnætti, sömu-
leiðis að hægt væri að fá
benzín keypt að nóttu til. —
Þessi ungi maður kvað það
mjög hvimleitt fyrir ein-
hleypa menn, sem ekkert heim-
ili eiga, en þurfa oft að vinna
að nóttu til, að geta þá hvergi
komið til þess að fá sér lífs-
næringu. Hann vildi mælast
til þess að borgarstjórn beitti
sér fyrir að lagfæring fengist í
þessu efni.
Okkur virðist þétta sann-
girniskrafa hjá unga mannin-
um. Því hefur löngum verið
borið við, að slíkur staður
yrði aðsetur fyrir slæpingja og
drykkjuróna, sem myndu nota
sér aðstöðuna til þess að sitja
þar að sumbli. Það er ein-
kennilegt, ef ekki er hægt að
annast þjónustu sem þessa af
ótta við að nokkrir drykkju-
sjúklingar eyðileggi gott mál-
efni.
• Ætti að vera vandalaust
að reka slíkan stað
Við fáum ekki séð að ekki
sé hægt að fá það ötula menn
til að annast greiðasölu að
næturlagi, að þeir hefðu fulla
sinnu á að losa staðinn við
flækinga, sem þar eiga ekkert
erindi. Okkur hefur einnig
dottið í hug að verkamanna-
skýlið Sjóbúð væri heppi-
legur staður til þessara nota.
Staður sem þessi þjónar fyrst
og fremst starfandi fólki, en
ekki slæpingjum. Mönnum er
fullvel kunnugt um fjölda
fólks sem starfar að nóttunni
og það er einnig kunnara en
frá þurfi að segja, að fjöldi
þessa fólks hefur ekki aðstöðu
til mafcargerðar. Þá er þetta og
mjög slæmt fyrir gesti og
ferðamenn, sem hingað koma
að næturþeli, ferðlúnir og
svangir. Það virðist hastarlegt
að sjálf höfuðborgin geti ekki
boðið ferðamönnum hvorki
lífsnæringu né benzín frá því
kl. 11.30 að kvöldi og þar til
kl. 7—8 að morgni. Velvakandi
vill eindregið taka undir óskir
þeirra er fara þess á leit að
þetta vandamál verði leyst.
• Leyfið okkur að leggja
þar bilum
Kæri Velvakandi!
Nú virðast ekki vera horf-
ur á því um sinn, að haldið
verði áfram framkvæmdum í
sambandi við fyrrverandi til-
vonandi menntaskóla í Olíu-
portinu bak við KFUM við
Amtmannsstíg. Vildi ég því
biðja þig að koma þeirri á-
kveðnu beiðni á framfæri við
byggingameistarann, sem hóf
©PIB
COPENHAGíH
verkið á sínum tíma, eða
aðila þá, sem hér eiga hlut að
máli, að þeir fjarlægi nú þeg-
ar húsgrind þá, sem enn stend-
ur á bílastæðinu við KFUM og
er okkur bíleigendunum til
hins mesta ergelsis, þegar við
þurfum að leggja farkostum
okkar á stæðið þarna, enda er
stæðið lítið og má ekki við því,
að það sé skert.
Jafnframt vildi ég leyfa mér
að stinga upp á því, að yfir-
völd borgarinnar slétti nú svo-
lítið ónofcaðan „grunninn", sem
grafinn var fyrir nefndan
skóla, fjarlægi allt draslið,
sem þar er, láti setja upp ljós,
sem lýsi upp svæðið — og
bjóði svo okkur bíleigendunum
upp á stæði fyrir nokkra bíla,
meðan staðurinn bíðxxr frek-
ari ákvarðana um framtíðar-
hlutverk sitt. Það er kunnara
en frá þurfi að segja, að í mið-
bænum eru oft hreinustu vand-
ræði að finna bílum stað, þar
sem hægt sé að leggja þeim
um stundarsakir, án þess að
vígalegir lögregluþjónar komi
til skjalanna.
Úr því að ég hef stungið
niður penrxa og er farinn að
tala um bíla, datt mér í hug að
minnast á eitt atriði enn, raun-
ar óskylt hinum fyrri. Það er
hin mesta óprýði á fallegum
bíl, ef hann er með skrámað
eða skrapað númer. Þetta virð-
ist mér liggja í augum uppi, en
þó eru þeir ótrúlega margir
bílarnir, sem sjá má á götum
borgarinnar, sem auðsjáanlega
er lagt kapp á að halda hrein-
um og fáguðum — en eru með
Ijótar númeraplötur, og einatt
skakkar, sem eyðileggja hinn
fallega heildarsvip bílsins og
gera jafnvel nýjan bíl drasl-
aralegan. — Bíleigendur! Rétt-
ið einkennisskiltin á bílum
ykkar, haldið þeim hreinum
og málið þau, ef þörf krefurl
— S. S.