Morgunblaðið - 24.10.1962, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 24.10.1962, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 24. október 1962 MORCl’NBY 4 Ð 1 Ð 5 «a»%i MENN 06 = MALEFNIs Tíðindamaður frá Morgun- blaðinu hitti fyrir skömni'U að máli franskan vínkaupmann og togaraútgerðarmann frá Bordeaux, Bertrand Peyrel- ongue. Hvernig á því stendur, að vínkaupmaður gerist tog- . araútgerðarmaður, sem hér á landi virðist hvergi nærri gróðavænleg starfsgrein, skal ekki reynt að rekja nánar hér, en ættin var löngu gró- in í vínkaupmennskunni áð- ur en hún byrjaði útgerð skömimu eftir fyrri heimis- styrjöldina. Vínfyrirtsekið hefur gengið mann frá manni í nokkur hundruð ár, og sonur tekið við af föður, og eins er um stöður í fyrirtæikinu. Fyrir skömmu lét aðalbókari fyrir- tsekisins af störfum, 83 ára gamall. Hafði hann þá starfað í fyrirtækinu síðan hann var 13 á'ra gamall. Við starfinu tók sonur hans og nú er sonur hans byrjaður að vinna hjá föður sínum. Eins er um önn- ur störf, það eru alltaf sömu fjö'lskyldurnar sem eru í vinnu við fyrirtækið, enda eru starfs mennirnir orðnir nánast sem ein stór fjölskylda. — Það andrúmisloft, sem þannig skapast, er nauðsyn- legt til þess að geta búið til gott vín, því það er eins með vínið og með börnin, það þarf natni og aðhlynnimgu meðan það er að þroskast. Vínið er undir því andrúmslofti komið, sem það elzt upp í, og það miá aldrei knýja það til neins, sem því er óeðlilegt. Gæði vínsins eru algerlega komin undir því, hvort að því sé farið með gætni eða hvort það sé knúið áfram með of- beldi. Vínið óhreinkast, og það er jafn eðlilegt og þeg- ar lcrak'ki verður óhreinn, en þó verður að þrífa það, og ekki er sama hvernig það er gert — Getið þér sagt mér hvaða aðferðir eru notaðar? — Flest óhreinindin botn- falla, og þau hreinsum við einfaldilega frá með því að láta vínið renna ofan af í hreina ámu En sum óhrein- indin falla ekiki til botns, og til þess að ná þeim úr, hrær- um við þeyttar eggjahvítur saman við vínið í hverri ámu, og hsegt og rólega sígur eggja- hvítan til botns og tekur þá með sér gruggið Þetta er var- færnislegasta aðferðin, sem til er, og vínið er ekki beitt neinu ofbeldi, og missir þess vegna ekki bragð Bertrand Peyrelongue og konan hans, þegar blaðamaður Morg unblaðsins hitti þau á Hótel Sögu. — En hvernig er svo sag- an af togaraútgerðinni? — Hún hófst 1922. Var þá keyptur einn togari, sem við gerðum síðan út fram í seinna strið. Togarinn var til- búinn til að fara á veiðar, og átti að fara næsta morg- un, en Þjóðverjarnir komu þá um nóttina og tóku hann. Hann varð þeim samt ekki sarna happafleyta og okkur, því hann sökk ári seinna. — Byrjuðuð þið svo aftur eftir stríllið? — 1947 létum við svo smíða fyrsta togarann okkar eftir stríðið. Við fengum leyfi til að láta smíða hann í Banda- ríkjunum, því frönsku sikipa- smíðastöðvarnar voru allar ó- starfhæfar. Hann var samt teiknaður í Frakklandi, tengdasonur mannsins, sem rekur útgerðina hefur teikn- að hann, eins og þá seinni Hann er snjall og hugsar mik- ið um endurbætur — Hann hefur þá væntan- lega teiknað fyrir ykkur fleiri skip? — Já, 1950 létum við smíða fyrir okkur togara í Hollandi Hann var yfirbygigður öðru megin. Næst léturn við svo smíða fyrir okkur skip 1958. Hann var allur yfirbygigður og mikið af nýjungum í hon um, en trollið samt upp á gamla mátann. Þetta var fyrsti togarinn, sem var þann- ig gerður, og hann var lika sá fyrsti sem hafði aðgerðarvél- ar um borð. Hann er smíð- aður til að hafa hraðfrysti- vélar um borð, en við höfum ek'ki sett þær í ennþá. — En hafið þið ekki látið smíða skuttogara? — Jú, við fylgdumst með, þegar Þjóðverjar byrjuðu með þá, en þá féfck tei'knarinn okkar hugmynd um stórar endurbætur á honum. Út úr því kom togari, sem er nýbú- ið að afhenda okkur, og er hann talinn vera fullkomn- asti togarinn, sem ennþá hef- ur verið smíðaður. — Getið þér sagt mér nán- ar frá honum? — Hann er skuttogari, en byggður allt öðru vísi. Bygg- ingarlagið er eins og á flug- móðurskipi, brúin og yfirbygg ingin öll staðsett út til hliðar. Með því móti fáum við mi'klu meira þilfarspláss. Hann er um 75 metra langur. Svo að segja öll vinna fer fram inni í skipinu. Varpan er tekin inn og dregin fram á þilfarið, og fiskurinn síðan látinn um op niður í skipið, en þar er svo gert að honum, hann er flak- aður og frystur. Svo eru marg ar aðrar nýjungar í skipinu, því teiknarinn og skipasmíða stöðin í Nante, þar sem hann er smíðaður tóku út 35 einka- leyfi, sem öl'l voru notuð í hann. — Hvar eru þessir togarar svo á veiðum, og hvað eru þeir lengi í túr? — Við notum þá náttúru- lega á fjarlægum miðum, við Grænland og Nýfundinaland. Þessi nýjasti fór í fyrstu ferð ina núna seinast í ágúst og er ekki væntanlegur í höfn fyrr en í byrjun desember. Með hliðsjón af því hvað hann er lengi úti, hefur hann verið byggður þannig að þyrla getur setzt á hann. Þetta get- ur oft komið sér vel, því það er dýrt að þurfa að leita hafn- ar ef maður meiðist, eða eitt hvað slífct kemur fyrir. — Er ekki erfitt að fá fólk til að vera á togara, sem er svona lengi úti? — Þetta þykir alls efcki langt Auk þess hefur fólkið það eins gott og það getur hugsað sér. Til dæmis er sér svefnpláss fyrir hverja vakt. Nú, það hefur útvarp og fleira Það er engan veginn erfitt. Við kvöddum svo þennan vínkaupmann, sem hefur kom ið sér upp fullkomnasta tog- ara, sem enn hefur verið smíð aður. H.Í.: Eimskipafélag fslands: Brúar- foss ér á leið til Keykjavíkur. Detti- foss ier frá Hamborg í dag til Reykja- víkur, Fjallfoss fer frá G-autaborg I dag tiil Gdynia, Goðafoss er á Akur- eyri, Gullfoss er á leið til Leith og Reykjavíkur, Lagarfoss er á leið til Turku, Pietersari, Reykjafoss fer frá Hul'i i dag til Reykjavíkur, Selfoss er á leið til NY, Tröllafoss er í Ham- borg, Tungufoss er á leið til Siglu- fjarðar, Húsavíkur og Seyðisfjarðar. H.f. Jöklar: Drangajökuii er i Reykjavik, Langjökull er i Riga, fer þaðan til Hamborgar og Reykjavíkur Vatnajökull fór 22. þ.m. frá Rotter- dam til Reykjavíkur. Skipaútgerð rikisins: Hekla er á Vestfjörðum á norðurleið, Esja er á Austfjörðum á norðurleið, Herjóifur fer frá Reykjavík kl. 21.00 í kvöld til Vestmannaeyja, Þyrill er á Norð- urlandsJiöfnum, Skjaldbreið fór frá Tekið á móti tilkynningum trá kl. 10-12 f.h. Reykjavík í gær vestur um land til Akureyrar, Herðubreið kemur til Rvík í dag að austan úr hringferð. Pan. Am. flugvél kom til Kefla- víkur í morgun frá NY og hélt áfram til Glasgow. Hún er væntanleg aftur í kvöld og fer til NY. Flugfélag íslands h.f.: Millilanda- fJ.ug: Millilandaflugvélin Hrímfaxi fer til Glasgow og Kaupmannahafnar kl. 08:00 í fyrramálið. Innanlandsflug: í dag er áætlað að fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Húsa- víkur, ísafjarðar og Vestmannaeyja Á morgun er áætlað að fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Egilsstaða, Kópa skers, Vestmannaeyja og Þórshafnar. Loftleiðir h.f.: Leifur Eiríksson er væntanlegur frá NY kl. 5. Fer til Oslo og Helsinki kl. 6.30. Kemur til baka frá Oslo og Helsinki kl. 24. Fer til NY kl. 1.30. f»orfinnur Karls- efni kemur frá NY kl. 6. Fer til Gautaborgar, Kaupmannahafnar og Stafangurs kl. 7.30. Snorri Sturluson er væntanlegur frá Stafangri, Kaup- mannahöfn og Gautaborg kl. 23. Fer til NY kl. 00.30. Hafskip h.f.: Laxá lestar á Norð- urlandshöfnum. Rangá fór frá Flekke- fjord 20 þ.m. Skipadeild S.Í.S.: Hvassafell er í ArChángelsk, Arnarfell er á Norðfirði, Jökulfell fór í gær frá Reykjavík til London, Dísarfell er á Sauðár, krók, fer í dag til Siglufjarðar, Litla- fell kenuir til Reykjavíkur* á morg- un, Helgáfell er í Stettin, Hamrafell er í Batumi, Polarhav er á Húsavík. Myndatökur Fermingar, fjölskyldu, — barna, brúðar og portrett í ekta litum. Stjömuljósmyndir Flókagötu 45. Sími 23414. Kona óskar eftir vinnu fyrir hádegi. Er vön skrif- stofu- og gjaldkerastörfum. Tilb. sendist afgr Mbl. fyrir fimmtudagskvöld merkt: „Skrifstofustörf — 3655“. Til sölu Morris 10 ’47 í sæmilegu ásigkomulagi. Mjög ódýr. Uppl. í síma 19125 og eftir kl. 6 í síma 35234. Pathe kvikmyndatæki, tökuvél, sýningarvél með tali og tón. Selst ódýrt. Uppl. í síma 17895 á kvöldin. Frá Borgarlækni Frá skrifstofu borgarlæknis: Far- 1 sóttir í Reykjavík vikuna 7.-13. okt. 1962 samkvæmt skýrslum 40 (38) starf andi lækna. HáJsbólga ............... 140 (135) Kvefisótt ............... 179 (147) Iðrakvef ................. 32 ( 25) Influenza ................ 27 ( 26) Mislingar ................. 8 ( 7) Hettusótt ................. 3 ( 0) Kveflungnabólga .......... 10 ( 9) Rauðir hundar ............ 2 ( 3) Skarlatssótt ............ 7(2) Munnangur ................. 7 ( 1) Hlaupabóla ............... 3 ( 5) KAUPENDUR Morgunblaðsins hér í Reykjavík sem ekki fá blað sitt með skilum, eru vinsamleg- ast beðnir að gera afgreiðslu Morg unblaðsins viðvart. Hún er opin til klukkan 5 síðdegis til afgreiðslu á kvörtunum, ncma laugardaga til klukkan 1 e.h. Á sunnudög- um eru kaupendur vinsamlegast Jseðnir að koma umkvörtunum á framfæri við afgreiðsluna fyrir klukkan 11,30 árdegis. TIL LEIGU er gott húsnæði. Hentugt fyrir smábarnakennslu eða hliðstæða starfsemi. Uppl. í síma 13094. íbúð 3 herb. og eldhús til leigu í úthverfi bæjarins. Hús- hjálp óskast. Tilb. merkt: „Húshjálp 3558“, sendist Mbl. fyrir laugard. FOBD Öska eftir Ford fólksbíl til kaups. Lítil útborgun. Tilb. sendist Mbl. fyrir fhánaðarmót merkt: „Ford 3519“. Vantar 4ra—5 herb. íbúð nú þegar. Fyrirfram- greiðsla. Uppl. í síma 19442 og 13899. Jón Hj. Jónsson. 2—3 herb. íbúð í Reykjavík, Keflavík, eða Kópavogi óskast til leigu nú þegar. Upplýsing- ar í síma 14670. Óska eftir 2—3 herb. íbúð til leigu. Einhver fyr- irframgreiðsla. Uppl. í síma 19125 og eftir kl. 6 í 35234. Sendill piltur eða stúlka óskast í Bókaverzlun ísafoldar. Bókaverzlun Isafoldar Atvinna 1—2 duglegar stúlkur óskast nú þegar til verk- smiðjustarfa. — Uppl. í verksmiðjunni í dag. Nærfataefna- og prjónlesverksmiðjan h.f. Bræðraborgarstíg 7. Beygjnvél ósknst fyrir allt að 2 mm. þykkt og 140 cm. breitt járn. Upplýsingar hjá Haraldi Þórðarsyni í síma 22180 og 22183. STRÆTISVAGNAR REYKJAVÍKUR. Vonur skriistohunaSnr Óskum að ráða vanan skrifstofumann strax. BÆJARÚTGERÐ HAFNARFJARÐAR símar 50929, 50117. Ung stúlka ♦ helzt vön saumaskap óskast strax. Engar upplýsingar í síma. Eygló Laugavegi 116. Acgreiðslustörf Stúlka vön afgreiðslu óskast hálfan eða allan dag- inn í tízkuverzlun í Miðbænum. Tilboð ásamt uppL um aldur og fyrri störf sendist afgr. Mbl. merkt: „Ábyggileg — 3557“ fyrir laugardag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.