Morgunblaðið - 24.10.1962, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 24.10.1962, Blaðsíða 3
I Miðvikudagur 24. október 1962 MORC l ISBL4Ð1Ð S55S -. ■■ ' •.vyw.srt- •.v.Ws - VV.W. %w.v w w y . w%y wwww,w//wtyw*iyiymAWMwwwAywv^,aa- V.AWA^V{^r4^| I i I Steypti vegurinn lengist STEYPTI spottinn af Kefla- víkurveginum teygði sig nú um helgina suður á Hvaleyrar holt. Af því tilefni brugðu blaðamaður og ljósmyndari frá Morgunblaðinu sér suður eftir, til að líta nánar á fram- kvæmdirnar. Steypti búturinn er nú orð- inn 3,4 kílómetrar á lengd, og verkfræðingar íslenzkra Aðal* verktaka gerðu ráð fyrir að i þessari viku bættust enn við 600 metrar, ef tíðin héldist hagstæð. Hjá vegamálastjórninni feng Steypan er sett á bílana úr „sílói“. Steypan er það þurr, að það er hægt að flytja hana á vanalegum bílum. Hér er steypistöðin, sem blandar steypuna í Kef lavíkurveginn. Steypiefnið er malað á staðnum. Steypistöðin blandar að jafnaði 460 rúmmetra á dag, þá daga, sem steypt er. Það magn dugir í um 260 metra langan kafla. Vegurinn er IVt metri á breidd og þykkt steypunnar 20 cm. Ljósm.: Sv. Þorm. ust fréttir af undirgöngunum, sem ætlunin er að gera hjá læknum. Tillöguuppdrætt- ir hafa verið gerðir, en ekki <? ................................................................................................................................................................................................................................. '•••'•• • •••■••■•:■■•• ....................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................... verður hafizt handa um fram- kvæmdir á þessu ári. Ætlunin mun hins vegar vera að gera görrgin á næsta sumri. Ekki hefur ennþá viðrað til þess að fylla í raufarnar, sem myndast þar sem steypan er söguð Til þess að það sé hægt verður að vera þurrt veður og helzt frostlaust. En vegur- inn verður tekinn í notkun smám saman, eftjr því sem raufarnar eru fylltar og geng- ið verður frá köntum. Væntanlega verða síðar byggð fleiri undirgöng og göngubrýr, eftir því sem byggðin austan megin vegar- ins eykst. Hafnarfjarðarbær mun nú þegar hafa í fórum sínum skipulagstillögur fyrir þetta svæði, svo og tillögur um lausn umferðarvandamáls- ins þar. nyiMmiWMi Friðarhöll byggð í Japan ÞANN 22. þ.m. var hátíðdega opnuð höll mikil í Odawara í Japan fyrir Siðvæðinguna í Asíu. Rúmar hún um 1000 manns og stendur á fögrúm stað 80 km frá Tokíó. IKEDA forsætisráðherra Jap- ans framkvæmdi opnunina. Fyr- ir mannvirki þessu stóðu marg- ir af forystumönnum japönsku þjóðarinnar, þar á meðal KISI, fyrrverandi forsætisráðherra frægur stjórnmáilamaður í Asíu. Jafnframt opnunni er þarna haldinn fjölmenn alþjóðleg ráð- etefna Siðvæðingarinnar. í boðs- bréifi til þessara hátíðahalda etendur, að forystumenn í Japan hafi ákveðið að bygigja þetta höfuðsetur „til þess að leggja ^rundrvöli að heimsfriði og sam eina Asiu.“ Þessi einstaka ,,friðarhöil“ Asíu er bygigð fyrir samskotafé Yfir 10 þúsund einstaklingar og á annað hundrað félög hafa gefið fé tU framkvæmdanna. Gjafir hafa borizt víðs vegar að, og einnig frá löndum, sem Japanir herjuðu í síðustu styrjöld. Þann- ig gáfu menn í Ástralíu öll hús- gögn, sem þurftu. Ungverskur fiðluleik- ari leikur með Sin- fóníuhljómsveitinni 2. tönleikar vetrarins á morgun ANNAÐ kvöld, fimmtudags- kvöld, verða aðrir tónleikar Sinfóníuhljómsvéitarinnar í Háskólabíói. Hljómsveitar- stjóri er William Strickland en einleikari með hljómsveit inni verður ungverskur fiðlu leikari, Bela Detraköy, sem búsettur er í Danmörku. Sala áskrifta að tónleikum hljómsveitarinnar hefur geng ið mjög vel, og var áskriftar skírteini nr. 500 afgreitt í gær. Á efnisskrá hljómleikanna verða að þessu sinni Sinfónia nr. 104 í D-dúr, Lundúna-Sinfónían eftir Joseph Haydn; Symphonie Espagnole f. fiðlu og hljómsveit eftkr Edouard Lalo og loks Sin- fónía nr. 5 op. 50 eftir Carl Níel sen. Bela Detraköy er fæddur í Búdapest og stundaði nám í Tón listarháskólanum þar í borg frá tíu ára aldri. Hann fluttist til STAKSTEIM/VR Sovétríkin munn bregðast hart víð! Magnús Kjartansson ritstjóri Þjóðviljans er sem kunnugt er nýlega kominn heim frá Kúbu. Hann lýsir því yfir í gær í blaði sínu að Sovétríkin „muni bregð- ast mjög hart við ræðu“, Kennedys Bandaríkjaforseta og þeim öryggisráðstöfunum, sem Bandaríkin hafa gert vegna þess að Rússar hafa gert Kúbu að víg- hreiðri sínu í Vesturheimi. Kemst Moskvumálgagnið á íslandi m. a. að orði um þetta á þessa leið: „Ræða Kennedy var haldin svo seint um kvöldið að Evrópsk um tíma, að ekki höfðu borizt fréttir um viðbrögð við henni, þegar blaðið fór í prentun. Full ástæða er að búast við að Sovét- ríkin og, ekki þau ein, muni bregðast mjög hart við ræðu hans, enda eiga þær ráðstafanir, sem hann boðaði sér ekki nokkra stoð í neinum lögum. En það má þyí ganga út frá þvi sem vísu að Sovétríkin neiti með öllu að leyfa bandarískum herskipum leit í sovézkum kaupförum og muni ekki hika við að beita vopnavaldi til að tryggja frjálsar siglingar skipa sinna. Ljóst er að slíkir árekstrar gætu hæglega orðið sá neisti, sem kveikti ófrið arbál um allan heim“. Friðarhöll Siðvæðingarmanna i Japan í byggingu. Danmerkur árið 1945 og hefur búið þar síðan .Hann hefur í 10 ár leikið með hljómsveit Kon- unglega leikhússins í Kaupmanna höfn og leikið einleik með öllum hljómsveitum Danmerkur við mjög góða dóma gagnxýnenda. Hann hefur ennfremur leikið með sinfóníuhljómsveitinni í Malmö, í Svíþjóð. Leikur einnig fyrir útvarpið Detraköy sagði í stuttu viðtali við fréttamenn í gær, að aðsókn að tónleikum í Danmörku hefði mjög minnkað frá því fyrst eft ir heimstyrjöldina síðari. Hefði svo verið oft undanfarin ár, að jafnvel víðkunnir hljómlistar- menn léku fyrir hálftómum hús um. Var hann etaki frá því, að sjónvarpið hefði átt þarna í nokkurn þátt. Á hinn bóginn taldi hann þetta horfa til hins betra því að áihugi yngri kynslóð arinnar virtist mikill og vaxandi Auk þess að leika einleik með Sinfóníiuihljómsveitinni annað kvöld, mun Detraköy leika fyr- ir Ríkisútvarpið sónötu fyrir fiðlu, án undirleiks, eftir Bela Bartók. Er sónatan næst síðasta verkið, sem Bartók samdi (frá 1944, og hið síðasta er hann lauk við að fullu. Pianókoncert nr. 3 tókst honum ekki að ljúka endanlega, áður en hann lézt. Fiðlusónatan, sagði Detraköy að væri talin eitt erfiðasta ein- leiksverk, sem samið hefði verið fyrir fiðlu. Væri hún tónsmíð, sem tæki heila ævi að læra — °g dygði þó vart, hún væri svo margslungin og krefðist svo fjöl- breyttra eiginleika flytjanda, að á fárra færi væri að gera henni þau skil, sem vert væri. Sinfónían nr. 5 op. 50 eftir Carl Nielsen er nú flutt hér- Framhald á bls. 8. Kúbufarinn, ritstjóri Moskvu- málgagnsins á íslandi er þannig búinn að taka afstöðu fyrir Krú- sjeff. Hann segir að Sovétríkin muni halda áfram að flytja vopn til Kúbu og muni fara í stríð við Bandaríkin ef þau reyni að hindra þessa vopnaflutninga! Víll hann hækka kjarnfóðrið? Halldör bóndi á Kirkjubóli er öðru hvoru að ávarpa Mbl. í sam- bandi við landbúnaðarmál. S.l. laugardag ritaði hann all langa grein um niðurgreiðslu á kjarn- fóðurverði og fleira í Tímann. Helzt er á honum að skilja að það sé bændum síður en svo hag- kvæmt að verð á erlendu kjarn- fóðri skuli haldið niðri með þvl að greiða það niður, hafa frakt- imar mjög lágar og sem enga tolla. Er hann með bolla- leggingar um ýmsar óheppi- legar afleiðingar af óeðlilega lágu kjarnfóðurverði. En myndi ekki hafa kveðið við annan tón hjá honum og öðrum Framsóknarmönnum ef verð á kjarnfóðri hefði verið hækkað til fulls í samræmi við gengisbreyt- inguna er viðreisnarráðstafan- irnar voru gerða á sínum tíma? Kjarni málsins er sá, að svo mikil og snögg verðbreyting sem orðið hefði án sérstakrar ráðstaf ana, var líkleg til þess að verka sérstaklega illa á mjólkurfram- leiðsluna og íþyngja bændum. Vaiasamur áróður En það er vafasamur áróður nú, frá sjónarmiði bænda, eftir erfitt heyskaparsumar um mik- inn hluta landsins að taka upp baráttu gegn lágu verði á inn- fluttu kjarnfóðri. Innflutningsgjöld á dráttarvél- um er annað mál, sem að vísu hefur áhrif á verðgrundvöll land búnaðarvara, eins og kjamfóður- verðið. Tollskráin er nú í endur- skoðun, þ. á. m. innflutnings- gjöld af dráttarvélum eins og öðr um tækjum til framleiðslustarfa, bæði í landbúnaði og sjávarút- vegi. Er vitanlega eðljlegt að sam ræmi sé milli aðflutningsgjalda af framleiðslutækjum, hvort sem þau eru flutt inn í þágu sjávar- útvegs eða landbúnaðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.