Morgunblaðið - 24.10.1962, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 24.10.1962, Blaðsíða 20
20 MORCUNBL4Ð1Ð IVTiðvikudagur 24. október 1962 __,^HOWARD SPRINGv_64 _ I RAKEL ROSING — Þú heíðir átt að leggja til hliðar af peningunum, svo við ættum fyrir benzíni til heimferðarinnar. Hún þekkti ekkert til veitinga- staða og skipaði því bílstjóranum að aka til Vínviðarins, sem hún hafði heyrt þá Julian og Charlie nefna oftar en einu sinni. Hún hallaði sér aftur í sætið og naut þess að láta fara vel um sig. — Svona var það þá! Svona skyldi Rakel Rosing láta fara um sig, þegar hún færi út að skemmta sér á fínum stöðum. Þetta var ekki nema vitleysa hjá Minu að klæða sig eins og drusla og sitja í verstu sætunum í leikhúsinu. Áfram stríðsvagn! Gatan, sem bíllinn fór loksins inn í, gerði hana undrandi, væg- ast sagt. Hún hafði .hugsað sér breiðgötu, ljómandi af ljósadýrð. En þarna í þessari ómerkilegu götu, sem ekki mátti vera lakar lýst, stóð nafnið á Vínviðnum, milli tveggja ljóskera, svo að ekki varð um villzt. Vikadrengur opnaði bíldyrnar. Það var strax í áttina. Hún sagði bílstjóranum, að hún þyrfti aftur á honum að halda klukkan átta og svo gekk hún inn í forsal, sem henni fannst ótrúlega lítill. En þegar inn kom var allt svo líflegt, að það olli henni engum vonbrigð- um. Tiguleg í hvíta búningnum sínum, eins og skrautskip á sjó, lét hún þjóninn vísa sér til sætis, og það gladdi hana, að mörg augu hvíldu á henni og fylgdust með ferðum henar. Hún lét alls ekki hugfallast af öllu því ný- stárlega, sem hún sá, eins og marga vill henda, heldur gekk hún áfram jafn örugg og fata- sýningarstúlka og gat vel athug- að rólega það, sem fyrir augun bar. Það var ekkert að hræðast. Engin kona þarna inni var eins vel klædd og hún sjálf, og engin hafði til að bera meira sjálfs- ^ryggi og fegurð. Andlit hennar var rétt eins og útskorið með næstum ósvífnum þóttasvip. Hún hefði nú alveg getað bjarg azt hjálparlaust, en engu að síð- ur varð hún fegin, þegar Cecil Hansford reis úr sæti sínu og kom til að heilsa henni. Eruð þér hér ein, frú Banner- mann? Já. Maðurinn minn er farinn í húsið sitt í Chichester. Hún hafði ánægju af að nefna þetta, enda þótt hana langaði síður en svo sjálfa til Ohichester. Þér verðið að koma til okkar, sagði Hansford með ákafa. Ev er hér með henni Joyce Willows. Hafið þér kynnzt henni? Langa hvíta höndin á Rakel kom fram úr hvíta hjúpnum og hún heilsaði Joyce Willows. Jú, það hef ég. Þér munið kannske ekki eftir því, ungfrú Willows? Mina Heath fór með mig inn í búningsherbergið yðar í Hogarth leikhúsinu. Þér spurðuð mig, hvort ég væri með leikdellu? Það var heppilegt, að þér skyld uð koma hingað einmitt nú, sagði Hansford. Þið Joyce verðið að kynnast. Hún hefur einmitt tekið að sér að vera til vara í hlut- verkinu yðar í ,,Veikum ís“. Þér sjáið, að ég dreg ekki hlutina á langinn! Rakel fannst Joyce ekki nema rétt svona miðlungi vingjarnleg, og hún var í engum vafa um ástæðuna. Joyce var ekki annað en óekta málverk við hliðina á kuldalegri fegurð Rakelar. Það var hún en ekki Joyce, sem allir horfðu á þarna inni og það var hún sem Cecil Hansford beindi sér aðallega að við borðið. — Joyce tók sér einhvern litinn bita, en sagðist svo verða að þjóta. Þún afsakar mig, Cecil og þið bæði. Vertu sæl, Rakel. Verið þér sælar, ungfrú Willows, sagði Rakel. Veslings Joyce, sagði Cecil, þegar hún var farin. Eg hélt, að hún ætlaði að hrækja framan í mig, þegar ég bauð henni vara- hlutverk. En svona er það. Þetta leikrit í Hogarth fór í hundana, og það er almanna rómur, að hún hafði átt ekki hvað minnstan þátt í því. Hún er bölvuð rellu- skjóða. Á ekki grænan eyri og enginn sækist eftir að fá hana í hlutverk. Þess vegna verður hún að lægja í sér rostann. Iris Means er betra hlutverk fyrir hana en það, sem hún hefur verið að reyna að leika. Hún gæti líklega komizt vel frá því. Hún skal ekki koma til að leika hana, sagði Rakel. Það ætla ég að gera. í guðs bænum, sagði Hansfórd, sem var hjátrúafullur. Freistaðu ekki örlaganornanna. Hann horfði á hana þar sem hún sat þarna, köld og róleg — sjálfur hrokinn uppmálaður. — Það fór hrollur um hann, rétt eins og gustur frá köldum ísjaka færi gegn um salinn. Temdu þér auðmýkt, sagði hann. Rakel, sem gerði lítið að því að hlæja, hló nú. Hann kunni ekki við tóninn. Það var líkast því, þegar þunnur ís er að brotna. Þegar hún sagði honum, að hún ætlaði í Krónuleikhúsið, spurði hann, hvort hún hefði tryggt sér sæti. Það hafði hún ekki. Það hefðirðu átt að gera, sagði hann. Það er alltaf nauðsynlegt að kaupa sæti fyrirfram á mínar sýn ingar. Vissirðu það ekki? Jæja komdu, ég skal sjá um, að þú in á baðherberginu hennar sat föst. Geymirinn í bílnum henn- ar tæmdist. Bíllykillinn týndist. Einu sinni sagði hún leikstjór- anum, að hún hefði orðið benzín- laus á leiðinni og ekki getað feng ið far hjá neinum. Það þótti nú með ólíkindum, að enginn hefði viljað taka Marilyn upp í bíl, en bíll frá kvikmyhdaverinu var sendur eftir henni. Einu sinni gerði hún þessa grein fyrir seinlæti sínu: „Það er ekki ég, sem kem ofseint, 'heldur liggur hinum svona mikið á“. En hvað er Marilyn þá að gera allan þennan tíma, sem aðrir eru að bíða eftir henni? Hún er að hugsa um líkamann á sér. í stytztu máli sagt. Hún getur fall- ið í draumaástand við að horfa á andlitið á sér í speglinum. Hún getur hamazt við að bursta á sér hárið. aftur og aftur. Hún getur fundið upp á því að þvo það hvað eftir annað. Margar kon- ur eru í vandræðum með, hvað þær eigi að fara í, og þessi eiginleiki er næstum orð- inn átrúnaður hjá Marilyn. Hún getur séð sig um hönd, viðvíkj- andi því, í hvað hún eigi að fara, tíu sinnum, tuttugu sinnum eða hundrað sinnum. Og eftir því sem fatabirgðir hennar ukust, jókst og þessi hæfileikaskortur hennar til að ákveða sig. En fyrst og fremst hefur hún ástríðu til að baða sig, og getur legið 1 baðkerinu tímunum sam- an. „Klukkan getur orðið bæðf átta og meira, og enn ligg ég í baðkerinu. Ég held áfram að hella ilmvatni í baðvatnið, svo læt ég renna úr kerinu og fylli það aftur. Ég gleymi því sem ég á að gera og hugurinn er hundr- að mílur í burtu. Stundum renn- ur það upp fyrir mér, hvað ég er raunverulega að gera. Það er ekki Marilyn Monroe, sem liggur þurfir ekki að verða afturreka. Síðan útvegaði hann henni sæti á bezta stað í húsinu og yfirgaf hana síðan. Og svo átti hún kvöld, sem var einmitt eins og hún hafði hugsað sér. Hún horfði um leikhúsið, skrautbúið fólkið í beztu sætunum og hitt, sem var lengra frá í hálfgerðu rökkri. — Þetta voru áhorfendurnir henn- ar. Þetta voru fagnaðarlæti fyr- ir hana hugsaði hún, þegar hún heyrði lófatakið. Hún fór út í hléinu og fékk sér kaffi frammi. Þar hlustaði hún á tal fólks um leikinn og leikarana. Bráðlega færi það að tala um hana á svip- aðan hátt. En henni var sama — hér þekkti hún enga sálu. Hún stóð því, hvít og hlédræg með kaffibollann í hendinni og saup teprulega á honum, öðru hverju. Bráðlega kæmi að því, að hún stæði ekki svona alein, hugsaði hún með sér. Áköf upplýfting greip hana, en það fékk enginn að vita, og bráðum var hringt Og tigulega hvítklædda konan gekk róleg til sætis síns. XXVIII. í miðjum júnímánuði flutti Julian Heath í nýju íbúðina sfna og samtímis tók Rakel hann her- taki. Það urðu engar umræður um það, hvað þetta gæti haft í för með sér, né heldur, hvert stefndi. Hún bara brann af þrá í baðkerinu, heldur Norma Jean. Ég er að gera þetta fyrir hana. Hún var vön að nota vatn, sem fimm eða sex voru búnir að nota á undan henni. Nú getur hún baðað sig í vatni sem er eins tært og gagnsætt og gluggarúða. Og það ©r eins og Norma Jean geti aldrei fengið nóg af hreinu vatni og ekta ilmefnum.“ Svo þegar baðinu er lokið er ég lengi að nudda smyrslum á mig. Mér þykir gaman að því og get gleymt mér við það, einn klukkutímann í viðbót, alsæl“. „Þegar ég svo loksins fer í fötin, fer ég mér eins hægt og ég get. Ég fer að skammast mín, af því að það er eins og þetta sé ástríða hjá mér að koma eins seint í boð og ég mögulega get. Ég hef einhvernveginn nautn af því að koma ofseint. Fólk er að bíða eftir mér. Það er æst í að sjá mig. Og ég minnist þeirra ára, þegar engan langaði að sjá mig eða hitta. Öll þau hundrað skipti sem enginn vildi sjá litlu vikastelpuna Normu Jean — og heldur ekki hana mömmu henn- ar. „Ég hef nautn af því að hefna mín á þessu fólki, sem nú er að sækjast eftir mér. Þó er ég ekki að hefna mín á þeim sjálfum, heldur hinum, sem fyrirlitu Normu Jean forðum. En það er meira í þessu. Ég verð hrifin, sem Norma. Nú er hún að fara í samkvæmi, en ekki ungfrú Monroe. Því seinna sem ég kem, því hrifnari verður Norma Jean. Hvað snertir Normu Jean „vikastelpuna, sem enginn vildi sjá“, þá er það ef til vill stór biti ab kyngja, en þarna er Marilyn að réttlæta fjandskap sinn við almenning — og ég held helzt, að hún þykist finna á sér einhverja andúð, og það sé ástæð an til þessa seinlætis hennar. Hún er að hefna sín. Og það ekki einungis fyrir gamla harma, held eftir honum og tók hann með valdi, en hann gafst upp án nokk urra mótmæla eða nánari urn- hugsunar. í fyrsta sinn á æfinni gat hún haft karlmann, af því að hún þráði hann, en ekki vegna þess, að hún vildi hafa eitthvert gagn af honum. Allt sem til óhófs lífs heyrði, hafði hún þegar, en nú hafði hún líka það, sem líkami hennar og sál þráðu. Hún blómstraði upp og varð æ feg- urri.. Þessi græðgi hennar í Juli- an gekk alveg fram af honum og hann veitti enga mótstöðu. Hann gat ekki synt gegn þeim straumi, sem hún hafði kastað lífi þeirra út í, heldur lét hann berast með honum, nauðugur viljugur. Áldrei hafði Julian lifað jafn ur og nýja. Hún á svo bágt með að skeyta skapi sínu á fólki með orðum eða gjörðum, að hún gríp- ur til þessa ráðs — seinlætisins — til þess að ná sér niðri. Og fólkið, sem fyrir þessu verður, finnur vel fjandskapinn, sem að baki liggur, og það með, að hann á að vera hefnd. En svo liggur líka ýmislegt annað að baki því, sem á undan er gengið og seinlætinu veldur. Umhugs- unin um útlitið er einkenni allra kvikmyndaleikkvenna. Það er sama, hversu fallegar þser eru — þeim finnst þessi fegurð eitthvað ófullkomin og ó-sannfærandi. Sjálfum finnst þeim þær ekki vera neitt girnilegar. Þessvegna leggja þær á sig þrælavinnu við snyrtiborðið, og eru, eins og Marilyn, sjaldnast stundvísar, enda þótt engin sé eins óbrigð- ult óstundvís og hún. Tvær leik- konur þekki ég, sem láta alltaf bíða eftir sér eina til tvær klukkustundir, og það eru Jenni- fer Jones og Elizabeth Taylor. Þetta, hve Marilyn hefur mikla ástríðu til að þvo sér, virðist ef til vill ekki vera annað en hiri velþekkta „hreinlætisdella". Sál- fræðingarnir halda því fram, að hlutaðeigendur séu með þessu að þvo af sér áhyggjur og kvíða, og að þeim finnist þeir vera að losa þetta af sér, um leið og þeir þvo þessi óhreinindi, sem ekki eru til. En hvað sem öllu því líður, bætir það ekkert úr skák fyrir hinum, sem þurfa að bíða eftir svona fólki. í flugvélinni fór Marilyn í rauða kjólinn, sem hún hafði not að í „Niagara" — þe-nnan, sem var „fleginn niður að hnjám“. Lögreglumaður og fylgdarmað- ur á vélhjóli komu til móts við hana á flugvellinum í Atlantic City. Með blæstri og hávaða þutu þeir með hana á járnbrautar- stöðina og komu þangað rétt í æsilegu lífi. Hversu lostafull sem Rakel kynni að vera, lét hún vinnuna aldrei sitja á hakanum. Hvar sem eitthvert smáverk bauðst í einhverju leikhúsinu, urðu Julian og Cecil Hansfoiv. að fá það handa henni. Ekkert var henni oflítið, ef það aðeins félli við leikstíl hennar. Hansford ög Julian fylgdust vandlega með þróun þessara hæfileika, sem faöfðu svo lengi legið óséðir. Þegar hún var ekki við vinnu, var hún flesta daga og flestar nætur með Julian. Hún hafði sagt frú Bright, að henni leiddist í húsinu, og hún skyldi ekkert vera að fást um þá að hún kæmi alls ekki heim. Hún mundi vera í íbúð Minu Heath í Panton- stræti. tæka tíð áður en lestin kom —- þessi lest, sem hún hafði misst af, en átti að koma með að réttu lagi. Borgarstjórinn tók á móti henni og var sýnilega tauga- óstyrkur, rétti henni stóran rósa- vönd og festi á hana heiðurs- merki borgarinnar — og átti fullt í fangi með að finna nokk- urn blett, sem hægt væri að mæla það í. Síðar varð hún fyrir aðfinnsl- um af hendi fólks þarna í borg- inni, fyrir ósæmilegan klæða- burð. Þessum vandlæturum svar- aði Marilyn þannig: „Ég varð ekki vör við að kjóllinn minn væri neitt ósæmilega fleginn. Ég sé, að fólk er að glápa á mig allan daginn en ég hélt, að það væri að skoða heiðurs- rnerkið". Marilyn sat svo uppi á saman- brotnu þakinu á opnum bíl og ók þannig ‘ sigurgöngu gegnum borgina, og kastaði rósum til að- dáenda sinna. Eftir æðisgengið kokteilsam- kvæmi með ljósmyndurum og blaðamönnum, flýtti Marilyn sér að baða sig og klæða og fór síð- an til frumsýningarinnar í leik- húsinu. Hún hafði enga matar- lyst og borðaði því engan kvöld- verð. Hún kom fram á leiksviðið og sagði nokkur orð um „Monkey Business". Aðeins tilbúnar og hrversdagslegar setningar. Maður, sem þarna var við- staddur, lýsti þessu þannig, að það hefði verið „fjöldadáleiðsla“, Marilyn var orðin fórnarlamib síns eigin frama og baráttunnar fyrir honúm. Hún átti ekki tím- ann sinn sjálf, og heldur ekki persónuleik sinn. Ekkert næði. 'Hún hafði myrt næðið, eins og Macbet/h svefninn forðum. Hún hafði leitað uppi múginn og komið honum til að elska sig. Hún hafði gengið til samvinnu við auglýsingavélina, og nú var hún þræll hennar. Hún hafði engin tök á að vita, hvað var hreinskilið og hvað hræsni af því, sem sagt var um hana í blöðum. Höfðu dátarnir á Aleutaeyjunum rauiiverulega samþykkt, að hún væri eina ’Stúlkan, sem gæti þítt Alaska? iHafði heil hersveit í Kóreu beð- ið hennar sér til eiginkonu? (Hafði hópur herlækná kosið hana „stúlkuna, sem þá langaði mest til að rannsaka?“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.