Morgunblaðið - 24.10.1962, Page 10
10
MORGVNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 24. október 1962
ANDRÚMSLOFT KALDA STÍÐSINS: Myndin var tekin, er Kennedy, forseti, hitti Gromyko, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, sl. fimmtudag. Talið frá vinstri:
Dean Rusk, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Kennedy, forséti, Llewellyn E. Thompson, sérfræðingur forsetans í málefnum Sovétríkjanna, Gromyko (fremst til
hægri) og að baki honum Anatoly Dohrynin, ambassador Sovétríkjanna í Washington, og túlkur.
sovézku stjórnarinnar og
sagði, svo notuð séu orð
Ken/nedys:
„Sl. fimmtudag, þegar samn
ingarnir fyrir hinni hröðu her
væðingu Kúbu voru komnar
í mínar hendur, sagði Grom-
yko, utamríkisráðherra Sovét-
ríkjanna yið mig í skrifstofu
minni, að honum hefði verið
falið að lýsa l>ví yfir, enn
einu sinna, eins og hann sagði,
að stjórn sín hefði gert áður,
að aðstoð við Kúbu „væri gerð
í þeim tilgangi einum að bæta
varnarmátt hennar“, og „að
þjálfun Kúbumanna undir
handleiðslu rússneskra sér-
fræðinga í meðferð varnar-
vopna væri á engan hátt í
árásarskyni. Ef því væri varið
á annan hátt, myndi Sovét-
stjórnin aldrei hafa veitt
slíka aðstoð“. Sú yfirlýsing
var líka fölsun“.
Mennirnir sex, sem sitja
fundinn, sem myndin er af
hér fyrir ofan, sitja í and-
rúmslofti fullu af ógniunum —
ógnunum við heimsfriðinn á
Vesturhveli jarðar. Banda-
rísku fulltrúamir þrír til
vinstri vita um aðgerðir Rússa
— og rússnesku fulltrúarnir
til hægri eru komnir til að
gefa yfirlýsingar, sem brjóta
í bága við betri vitund! Eitt,
sögulegt atvik kal'la stríðsins.
heldur munni yðar hreinum
SL. fimmtudag var haldinn í
Hvíta húsinu í Washington
funidur, sem sennilega verður
lengi í minnum hafður sem
einn sögulegasti fundur ráða-
manna austurs og vesturs í
kalda stríðinu á unidanförnum
árum.
Þá hittust Kennedy, Banda-
ríkjaforseti, og Andrei Grom-
yko, utanríkisráðherra Sovét-
ríkjanna. að beiðni þess síð-
amefnda.
Tveimur dögum fyrir þenn-
an fund hafði forsetinn fengið
í hendur óyggjandi samnanir
fyrir því, að árásarstöðvar fyr
ir kjarnorkueldflaugar hefðu
verið byggðar á Kúbu. Þá þeg
ar iá í loftinu nýr þáttur í
kalda stríðinu, sem forsetinn
lýsti þanmig í ræðu sinni í
fyrrakvöld:
„Enginn þarf að vera í vafa
um að þetta eru erfiðar og
hættulegar aðgerðir, sem víð
höfum hafið nú. Enginn getur
sagt nákvæmlega fyrir um,
hvað gerist mæst, né hvaða
fórnir verði færðar. Margir
mánuðir sjálfsfórna og sjálfs-
aga eru framundan — “.
Á þessum fundi var m. a.
rætt um Berlínarmálið, hugs-
amlega heimsókn Krúséffs til
Bandarikjanna á hessu hausti,
og Kúbumálið. í-á endurtók
Gromyko fyrri fullyrðingar
Rauðu rákirnar í Signal tannkreminu innihalda
Hexachlorophene, sem hreinsar tennur yöar og heldur
munni yöar hreinum. En Signal gerir meira en að halda
tönnum yðar mjallahvítum, það ver yóur einnig andremmu.
Sjálfstæðismenn!
SKYNDIHAPPDRÆTTI Sjálfstæðisflokksins, sem staðið
hefur í tæpan mánuð, er nú senn á enda. Eins og tilkynnt
var í upphafi, mun dráttur fara fram föstudaginn 26. októ-
ber — eftir aðeins 2 daga — og verður drætti ekki frestað.
Nú eru því síðustu forvöð, að gera skil fyrir heimsenda
miða — eða kaupa fleiri, en reyndar eru nú ekki eftir hjá
happdrættinu nema örfáir miðar óseldir. Það er að sjálf-
sögðu mjög mikilvægt, að þeir Sjálfstæðismenn, sem enn
eiga eftir að gera skil, skerist ekki úr leik — heldur ljúkl
því af helzt strax í dag. Arangur happdrættis þessa skiptir
mikilsverðu máli fyrir möguleika Sjálfstæðisflokksins til að
halda uppi þeirri kosinaðarsömu flokksstarfsemi, sem fyrir-
sjáanleg er strax á næstu mánuðum. Framundan eru ný
átök á stjórnmálasviðinu og þar krefst þjóðarheill þess, að
hlutur Sjálfstæðisflokksins þurfi ekki eftir að liggja. Tök-
um því öll höndum saman um að efla Sjálfstæðisflokkinn
og veita honum öflugt bolmagn til að vinna stefnu sinni
framgang — landi og lýð til farsældar.,