Morgunblaðið - 26.10.1962, Qupperneq 14
14
MORCl!l\RLAÐlÐ
Föstudagur 26. október 1962
Sigurður Tryggvi Guðjénsson
múrarameistari ísafirði, minning
ÝMSIR hafa lagt fyrir sig að
skilgreina þá manngerð, sem
nefnd er nútímamaðurinn. Margt
verður uppi á teningunum í þess-
um efnum, eins og við er að bú-
ast. En flestir, sem um málið
fjalla, segja það skoðun sína, að
nútímamaðurinn mætti að skað-
lausu fara sér hægar og hafa
hljóðara um sig, menn lifi til
annars, en að gera hlut sinn sem
stærstan af heimsgæðunum,
þeim gæðum sem mölur og ryð
fær grandað. Ef þessi kenning
er nær sanni, þá verður að segja
það, að sá maður. sem mig lang-
ar til að minnast hér með örfáum
orðum, Sigurður Guðjónsson, var
langt frá því að vera nútíma-
maður í þessum skilningi. Hann
var hinn hljóðláti maður í orðs-
ins fyllstu merkingu. En hljóð-
leiki hans var slíkur, að eftir
honum var tekið. Það var fagur
hljóðleiki. Sigurður safnaði ekki
veraldlegum auðæfum. Honum
nægði að vita sig og sína vel
haldna. Hann leitaði þeirra verð-
mæta, sem búa hið innra með
manninum sjálfum, þess auðs
sem ekki glatast og aldrei fell-
ur á.
Sigurður Tryggvi Guðjónson
var fæddur að Svarfhóli í Geira-
dal, 3. ágúst árið 1905. Foreldrar
hans voru þau hjónin, Guðmund-
ína Jónsdóttir og Guðjón Sig-
urðssön. Barn að aldri flutti Sig-
urður með foreldrum sínum til
ísafjarðar. Arið 1930 tók hann
próf í múraraiðn hjá Þórði G.
Jónssyni múrarameistara, ísa-
firði, og stundaði iðn sína alla
tíð síðan. Hann hélt heimili með
foreldrum sínum meðan þeirra
naut við. f>au létust bæði fyrir
fáum árum, en Sigurður kostaði
kapps um að halda heimilinu
uppi með þeim sama svip og
myndarbrag, sem foreldrar hans
höfðu sett á það, í samibúð með
yngsta bróður sínum, Ásigeiri,
bróðurdóttur sinni, Ósk Óskars-
dóttur og manni hennar, Her-
manni Sigfússyni Alla tíð var Sig
urður heilsuhraustur maður, en
sl. sumar kenndi hann sjúkdóms
þess er varð banamein hans.
Hann lézt að heimlli sínu 2i2.
sept. sl. og var jarðsunginn af
sóknarprestinum, Sigurði Krist-
jánssyni, 2S, s. m.
Sigurður var maður í minna
meðallagi á vöxt, vel limaður og
fríður sínum. Hið hljóðláta fas
hans var gætt þokka og hlýju.
Hann var maður sem gott var að
dvelja meö, enda hvað traustast-
ur þegar mest á reyndi Hann bar
það með sér, að hann bjó yfir
fleiru, en séð varð í fljótu
bragði. Hann var frábær verk-
maður og góður fulltrúi stéttar
sinnar. Hann vann mikið að
húsateikningum. Hús eftir hann,
ef svo má að orði kveða, eru
fleiri en ég kann að nefna, og
ekki bara á ísafirði, heldur viða
í nágrenninu. Þessar teikningar
lét Sigurður af hendi fyrir litla
greiðslu og sumar þeira hafa
aldrei verið greiddar með hin-
um gyllta gjaldmiðli.
Sigurður var listfengur mað-
ur. Um árabil sást handbragð
hans á ýmsu, sem varðaði félags-
líf í bænum. Þetta kom bæði
fram í stóru og smáu. Ef þurfti
að gera auglýsingu, er vekja átti
sérstaka athygli, þótti sjálfsagt
að leita til Sigurðar og hann beð-
inn að gera litskreytt auglýsinga-
spjald. Hann aðstoðaði ýms fé-
lög við margs konar skemmtana-
undirbúning. En i þessum efnum
vann hann mest og bezt fyrir
Leikfélag ísafjarðar, eða allt frá
því árið 1927 og þar til heilsan
bliaði. Má segja, að á þessu ára-
bili hafi vart verið fært upp
leikrit á ísafirði, svo að Sigurður
hafi ekki annast leiktjaldamál-
un og sviðsbúnað allan. Þarna
liggur eftir hann mikið starf,
sem félagar hans í leikfélaginu,
og raunar bæjarbúar allir kunna
vel að meta.
En listamannseiginleikum Sig-
urðar varð ekki fullnægt í þess-
um störfum. Ungur að árum fór
hann að fást við að teikna og
mála, einkum landslagsmyndir.
Hann var óvenju drátthagur að
náttúrufari. Á augabragði gat
hann dregið upp á þá mynd, sem
í hugann kom með fáum mark-
vissum dráttum. Það, sem ein-
kennir myndir hans helzt, er birt
an. Það er mikið ljós í þessum
myndum. Blátt, gult og grænt,
það eru hans eftirlætislitir Hann
iærði undirstöðuatriði listar sinn
ar af bókum og í erlendum bréfa
skóla. í annan listaskóla kom
hann ekki, nema í skóla sjálfs-
reynslunnar, sem er höfuðskóli
hvers manns í öllum greinum
lífsins. Hann hafði ekki opinber-
ar sýningar á myndum sínum,
gerði ekkert til að auglýsa þær
eða selja, en gaf þær gjarna þeim
mönnum, sem kunnu að meta
þær. Hann trúði penslinum fyrir
því sem í hugann kom. Þess
vegna stóð hann iðulega við mál-
aragrindina að loknum löngum
og annasömum erfiðisdegi. Birt-
an í myndum hans er aldrei
skjannaleg eða tilbúin. Þessi
birta kemur að innan og ijær
myndinni líf og hreyfingu. Þeg-
ar ókunnugir sjá beztu myndir
Sigurðar þá bregzt ekki að þeir
segja:
— Þetta er fallegt.
Það er sannleikurinn um mynd
ir hans; þær eru fallegar, — og
þannig var raunar um lífsferil
hans allan. Minning hans er
slungin þeirri fölskvalausu birtu
er stafar af myndum hans. Skyld
menni hans og vinir þakka hon-
um samfylgdina, hjálpfýsina, sem
aldrei brást og kyrrlátt viðmótið,
sem vermdi hvað heitafet á erfið-
um reynslustundum.
Vinur. 1
s /\ m v i rs i\ u i u \ c* g i rs c; \ «
Fundur dómsmálaráðherra Norður-
landa haldinn í Reykjavík (11).
Fundur Stéttarsambands bænda hald
inn í Biíröst 1 Borgarfirði (11).
Sjálf3tæði9félag stofnað í Eyrar-
hreppi í N.-ís. Sigurður Sveinn Guð-
mundsson kosinn formaður (14).
SjáTfstæðisfélag stofnað í Árnes-
hreppi. Marís Björnsson, bóndi Felli,
kjörinn formaður (15).
Sjálfstæðisfélag stofnað við ísa-
fjarðárdjúp Baldur Bjarnason, bóndi
Vigur kosinn formaður (15).
Benedikt G. Waage lætur af for-
setaémbætti ÍSÍ (15). Gísli Halldórs-
son kjörinn forseti sambandsins (19).
Séra Pétur Sigurgeirsson endur-
kjörinn formaður félags kirkjunnar
í Hólastifti (15).
Séra Sigurður Pálsson endurkjörinn
formaður Prestafélags Suðurlands (15)
Kosníngar hafnar til þings Alþýðu-
sambahds íslands (15).
Opinberir starfsmenn fá launahækk
un (76).
Akureyringar og ísfirðingar keppa
1 skák (18).
,,Hernámsandstæðingar“ fara ,,Kópa
vogsgöngu" og halda útifund í Reykja
vík~<18).
Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna
stofnað í Norður-ísafjarðarsýslu. Bald
ur Bjathason í Vigur kjörinn for-
maður (20).
12L sambandsráðsfundur UMFÍ hald
inn r Reykjavík (21).
Hans Jörgensson endurkjörinn for-
maður Skólastjórafélags íslands (21).
ÆskuTýðsráði Reykjavíkur settar
Btarfsreglur (21).
Sfofnað fulltrúaráð Sjálfstæðisfé-
laganna í Strandasýsl . Vígþór Jör-
undsspn, skólastjóri, Hólmavík, kjör-
inn'formaður (22).
Þmg SÍBS haldið í Reykjavík (23).
Félag skólastjóra gagnfræðastigsins
stoöxað- Árni Þórðarson kosinn for-
maðttf 723).
: 20. þing sambands ísl. rafveitna
haldið í Keflavík (23).
Þprleifur Bjarnason formaður Náms-
-Jðtj óraf élagsins (28).
-J Gísli Jóhann Sigurðsson kosinn for
; maður Landssambands ísl. rafvirkja-
meistata (30).
ÍÞRÓTTIR
- Í^Land gerði jafntefli við írland í
landsleik í knattspyrnu, 1:1 (11).
íslandsmótið í knattspyrnu: Akur-
eyri-Fram 2:2. — Valur-Akranes 4:1
(11),
Vilhjálmur Einarsson varð 6. í þrí-
stökki á EM 1 frjálsíþróttum (14).
KR vann Fram í úrslitaleik Reykja
víkurmótsins í knattspyrnu með 2:1
*(19).
Landslið valið 1 körfuknattleik. (20).
ísland skipar átjánda sæti á stiga-
lista á EM í frjálsíþróttum (21)
Helgi Daníelsson, markvörður Akra
nessliðsins, leikur með skozku liði
til reynslu (25).
ísland lendir í B-riðli á Olympíu-
mótinu í skák (27).
Kvennameistaramót íslands í frjáls
íþróttum fer fram á Akureyri (28).
ÝMISLEGT
Viðgerð á símastrengnum milli ís-
lands og Færeyja hefst 9. sept (1).
Umferðakönnun fer fram í Reykja-
vík (11).
Manni bjargað frá drukknun í
Reykjavíkurhöfn (11).
Lokið viðgerð á sæstrengnum milli
íslands og Skotlands (11).
Smyglvarningur tekinn á Akranesi
(11).
24 millj. kr. jafnað niður í Hafn-
arfirði (12).
Brezki togarinn Northern Jewel
tekinn að ólöglegum veiðum í land-
helgi (13).
Gjaldskrá Hitaveitu Reykjavíkur
endurskoðuð (14).
Brezki togarinn Margaret Wick frá
Fleetwood tekinn í landhelgi (14).
Verð til bænda hækkar um 12 prs.
(14) .
Tveir ungir piltar teknir fyrir stór-
fellt ávísanafals (14).
Sjálfstæð deild í viðskiptafræðum
tekur til starfa við Háskóla íslands
(15) .
Heimavistarskóli með nýju sniði að
Löngumýri í Skagafirði (15)
Undirbúningsdeild fyrir tæknínám
starfrækt við Vélskólann (15).
Gömul mannabein finnast í t>or-
lákshöfn (18).
Viðskiptasamningur undirritaður
við Pólland (18).
Viðskiptasamningur undirritaður
við Tékkóslóvakíu (18).
Réttir hafnar (19).
Við athugun kom í ljós, að bolta,
sem halda áttu saman dekkinu á
varðskipinu Maríu Júlíu vantaði (19).
Gott laxveiðisumar í ár (19).
Veiki hrjáir hreindýrastofninn á
Austurlandi (19).
Kornuppskera gengur vel á Rang-
árvöllum (20).
Danskir íæknar gera hér hjarta-
þræðingar á íslenzkum sjúklingum
(20).
Félag eftirlitsmanna raforkuvirkjun
gangast fyrir aukinni fræðslu um varn
ir gegn slysum af rafmagni (20).
15 millj. kr. jafnað niður í Vest-
mannaeyjum (20).
Skipulögð kennsla í verkstjórn hefst
á þessu hausti (21).
Skipverjar á Goðafossi ekki ákærð
ir vegna smygls írsku happdrættis-
miðanna til New York. (22).
Kommúnistaríkin kaupa vörur hér
til sölu á frjálsum markaði (22).
Stöngulsýki gerfr vart við sig í
kartöflum (22).
Ágreiningur vegna uppsagnar flug-
stjóra hjá Flugfélagi íslands (22).
Árbæjarsafni lokað til næsta sum-
ars (23).
Flutningar Flugfélags íslands stór-
jukust í sumar (23).
Fóðurbirgðir minni en undanfarin
haust á Suðurlandi (23).
Heyfengur í meðallagi í Skagafirði
(23).
Heyskapur hefur gengið vel á Snæ-
fellsnesi (23).
Neytendasamtökin kæra vegna sölu
á skemmdum kartöflum (25).
Vöruskiptajöfnuðurinn hagstæður í
ágúst, en óhagstæður um 57,6 millj.
fyrstu 8 mán. ársins (26).
Gamla húsið að Smiðjustíg 5, þar
sem elzta bæjarskrifstofan var til
húsa, rifið (26).
Kuml úr heiðni finnst á Öxnadals-
heiði (26).
ísland eitt þriggja landa Sterlings-
svæðisins með hagstæðari greiðslu-
jöfnuð 1961 en 1960 (26).
Minni hey en betur verkuð í Þing-
eyjarsýslu (26).
Gerð hefir verið kvikmynd af björg
un Douglas-flugvélar af Vatnajökli
(26).
Vísitala framfærslukostnaðar hætok
ar úr 120 í 122 stig (26).
Ormaveiki fer vaxandi í fé, sér-
staklega á Austurlandi (26).
Kristsmynd Einars Jónssonar altar-
istafla í Skálhol-ti? (26).
Slátrun hafin um allt land. Dilkar
virðast sízt lakari en 1 fyrra (27).
Miklar framkvæmdir á Siglufirði.
Vinnuafl vantar þar (27).
Húsnæðismálastofnunin hefur veitt
lán að upphæð 82 millj. kr. á þessu
ári (28).
Útsvör í Sandgerði 2,4 millj. króna
(28).
Flugferðum fækkar í innanlands-
flugi F.í. yfir vetrarmánuðina (28).
Þrjú Eimskipafélagsskip sigla til
norskrar hafnar (28).
Vantar skólastjóra og kennara á
Bíldudal (28).
Sumarið var eitt hið bezta í sögu
íslenzkra ferðamála (28).
Flugfélag íslands tekur umboð fyr-
ir Japan Air Lines (28).
Fyrsta Eimskipafélagsskipið leggur
að í Grímsey (28).
Umræður hafnar um sölu Faxaverk-
smiðjunnar (28).
200 nýir bílar fluttir inn á mán-
uði að jafnaði (28).
Hey góð í Húnavatnssýslu (29).
Námskeið hafið í ýmsum greinum
trygginga (29).
Dagblaðið Mynd hættir að koma
út (29).
Yfirdráttarlán íslands að fullu
greidd. Gjaldeyrisstaðan hefur batn-
að um 1095 millj. kr. síðan núver-
andi átjórn tók við (30).
Rúmur helmingur kartaflanna á
markaðinum svikin vara (30).
ÝMSAR GREINAR
Samtal við Guðmund Frímann,
skáld (1).
Landið okkar — Breiðdalur (16).
Landið okkar — Vopnafjörður (18).
Biblían í hinni væntanlegu útgáfu
eftir Snæbjörn Jónsson (18).
Landið okkar — Hvammstangi (19).
Sæmundur Bjarnason skrifar Vett-
vang um „níðherferð gegn Hvera-
gerði og Hvergerðingum“ (20).
Hugleiðingar um landsmót hesta-
manna, eftir Jón Pálsson (22).
Landið okkar — Rætt við GXiðbjart
Ásgeirsson, ísafirði (22).
Smávegis um sambúð kirkju og
kommúnisma (23).
Greinargerð frá Hrossaræktarsam-
bandi Norðurlands vegna blaðaskrifa
um töku og sölu stóðhesta (23).
Landið okkar — Þrír athafnabæir
á utanverðu Snæfellsnesi (23).
Landið okkar — Þórshöfn (25).
Landið okkar — Ólafsfjörður (26).
Landið okkar — Sauðárkrókur (28).
Landið okkar — Eskifjörður (29).
MANNALÁT
Ingunn Guðjónsdóttir, Laugavegi 147A
Ragnheiður Jónsdóttir, Bárugötu 36.
Jón M. Jónsson, Mófellsstöðum,
Skorradal.
Jóhannes Benediktsson frá Breiðabóli
Steinunn Jónsdóttir, Rauðárstíg 36.
Kristjana Kristjánsdóttir, ljósmóðir
frá Bolungarvík.
Gunnlaugur Arnoddsson, Vesturgtöu
11, Keflavík.
Helgi E. Thorlacius, Vesturgötu 55A.
Magnús Hjörleifsson, Heiðargerði 35.
Matthías E. Guðmundsson, lögreglu-
þjónn.
Elín Þorláksdóttir, Stöpum.
Jónas Guðmundsson, fyrrum bóndi að
Bakkakoti í Skorradal.
Jón Guðmundsson frá Hafrafelli.
Jóna Bjarnadóttir frá Gesthúsum á
Álftanesi.
Guðrún Þórarinsdóttir, Digranesvegi
10, Kópavogi.
Tómas Sigurðsson frá Sandeyri.
Kristín Þorsteinsdóttir, Ólafsfirði.
Jóna Sólveig Einarsdóttir, Brúarlandi
Hellu.
Magnús Eiríksson frá Geirastöðum.
Guðný Kristjánsdóttir, Hófgerði 16,
Kópavogi.
Málmgeir Bjarnason, Bergstaðastyæti
40.
Þórunn Wathne, fædd Jónsdóttir.
María Ólafsdóttir frá Skerðingsstöðum
Eyrún Guðmundsdóttir, Þinghól, Akra
nesi.
Jón Einarsson, Grænuhlíð.
Steingrímur Kristinn Jónsson, Týsgötu
4B.
Ólafur Jónsson bifreiðarstjóri, Blöndu
hlíð 24.
Þórður Jónsson, járnsmiður, Höfða-
borg 47.
Sigurður Kr. Einarsson, frá Laufási,
Þingeyri.
Jón Jónsson, Brautarholti, Vestmanna
eyjum.
Steinunn Guðrún Jónsdóttir, frá Arn«
gerðareyri.
Jónína Einarsdóttir, Steinsstöðum.
Jón Þorsteinsson, frá Firði, Syðisfirði.
Sigurður Finnnsson, skólastjóri, Vest-
mannaeyjum.
Ragnheiður Jónsdóttir, Ránargötu 36.
Jónas Sigurðsson Hafragili Laxár-
dal.
Sigríður Jónsdóttir frá Sandprýði á
Eyrabakka.
Halldór Pálsson, verkfræðingur.
Sesselja Helgadóttir, Hverfisgötu 20,
Hafnarfirði.
Arngrímur Fr. Bjarnason, ísafirði.
Hafliði Ólafsson frá Keflavík, Rauða*
sandshreppi.
Magnús Jónsson frá Hellissandi. {
Jón Sveinsson, Vatnskoti.
Ásta Guðríður Pálsdóttír, Haukatungu
Kolbeinsstaðahreppi.
Jónína Jóhannsdóttir, Vesturhúsum,
Vestmannaeyjum.
Snæbjörn G. Jónsson, húsgagnasmíða-
meistari.
Björn Rögnvaldsson, byggingameist-
ari.
Hákon Kristjánsson, Mávahlíð 38.
Friðrik V. Ólafssoh, skólastjóri.
Jón G. ÓLafsson, Grenimel 24.
Marta María Árnadóttir, Hofteig 28.
Guðrún Anna Björnsdóttir, Suður-
götu 113, Akranesi.
Hannessína Sigurðardóttir, LJosvalla-
götu 16.
Gísli Þórðarson, Ölkeldu, Snæfellsnesi
Jón Bjarnason frá Fáskrúðsfirði.
Guðmundur Guðjónsson, bílstjóri,
HólmgarðilO.
Guðmundur Ó. Bæringsson, skipstj.,
Meðalholti 10.
Guðrún Ólöf Sturludóttir frá Súg-
andafirði.
Jóninna Sigurðardóttir, matreiðslulc,
Steinunn Sigurðardóttir, Flateyri,
Hornafirði.
Sigurður Tryggvi Guðjónsson, múr-
arameistari, Túngötu 13. ís.
Sigríður Guðmundsdóttir frá Hlið-
skjálf.
Elísabet Hallsdóttir, fyrrv. hjúkrun-
arkona.
Ingimundur Jónsson, Ásvallag. 51.
Ingileif Ingimundardóttir, Suðurgöttl
5, Keflavík.
Gyðríður Einarsdóttir, Ósgerði, Ölfusl
Kristín Guðmundsdóttir frá Þingeyri,
Hjálmfríður Jónatansdóttir, Búð,
Hnífsdal.
Álfheiður Briem, amtmannsekkja.
Ingibjörg Magnúsdóttir, prestsekkja
frá Laufási.
Vilborg S. Guðmundsdóttir frá Grjót-
nesi.
GunnJaugur Sigurðsson frá Stafafelli.
AFMÆLI
Verzlun Ludvig Storr 40 ára (1).
7 'Norræna félagið á íslandi 40 ára
(27).
^ Rafveita Akureyrar 40 ára (30).