Morgunblaðið - 26.10.1962, Blaðsíða 16
16
MORGUISBLAÐIÐ
Föstudagur 26. október 1962
Islenzk sýningar-
deild í Frankfurt
HIN ALÆ>JÓöLBGA haustkaup-
stefna í Frankfurt am Main í
Þýzkalandi var haldin dagana
2.—6. september sl. Þessi kaup
stefna er ein hin elztí og merk
asta í Evrópu og ieggja margir
íslenzkir kaupsýslumenn leið
sína suður þangað haust og vor
þar sem þar gefst kostur á að
ikynna sér fran.leiðsli um það
bil 2500 iyrirtækja frá 30 lönd-
ucn á einum og sama stað.
Fyrir atbeina Ferðaskrifstofu
ríkisins og í samvinnu við Flug
félag Islands og Loftleiðir var
ákrveðið*að efna til landlkynning
ar og vörusýningar af íslands
Ihálíu. Er þetta í fyrsta skipti sem
fslenzkir aðiljar sýna framleiðslu
sína >arna.
Haustsýningin er einkum helg
uð h/erskonar listiðnaði, hand-
unnum vörum, vefnaðarvörum
og húsbúnaði og var því megin-
áherzla lögð á íslen'zkan heimil
isiðnað og • listiðnað. Tókst að
útvega sérstakan sýningarskála
miðsvæðis, við svonefnt „Stræti
Þjóðanna", sem hentaði einkar
vel sýningu sem þessari.
Alls sýndu þama 10 fyrirtæki
vörur sínar auk Ferðaskrifstofu
ríkisins og flugf liaganna tveggja
er höfðu sameigmlega landkynn
ingardeild í hluta skélans þar
sem veittar voru upplýsingar um
land og þjóð og útbýtt þúsund-
um fræðslurita og upplýsinga-
bæklinga um ferðalög í landinu
og þjónustu íslenzkra skipa c J
flugvéla.
Félögin sem þarna sýndu fram
leiðslu sína voru þessi:
Sindrasmiðjan hf. stóla af
ýmsum gerðum, Glit hf. kera-
mik vasa og skálar af nýrri gerð
gullsmiðimir Kornelíus Jónson
og Jón Dalmannsson, ýmsa list
murd úr silfri svo sem armbönd
hringa, men, festar og íslenzka
eðalsteina, Ultíma hf. ofin glugga
tjaldaefni, Leðuriðjan hf. veski,
töskur, möppur og aðra muni úr
leðri og selskinni, Sportver hf.
Nýtt frá
HAFRAMJ0L
Byrjið daginn með því að fá yður og gefa barninu
KELLOGGS-haframjöl — og það á áreiðanlega
eftir að njóta sömu vinsælda og aðrar framleiðslu-
vörur KELLOG S.
Kellogg's HAFRAMJÖLIÐ er að koma. á markaðinn
Biðjið kaupmanninn um Keliogg's
Þetta er likan af risastökkbrautinni, sem Austurríkismenn
eru að reisa fyrir Olympíuleikana. Þar verða áhorfendasvæði
fyrir 30.000 manns og fyrirtækið kostar 20 millj. ísl. kr.
sportfatnað, íslenzkur Heimilis-
iðnaður uliarvöirur ofnar og
prjónaðar af ýrnsu tagi. Auk þess
voru sýndir handunnir listmun
ir nokkurra einstaklinga svo
sem Þorleifs Þorleifsson og Bar-
böru Árnason o.fl.
Það vakti allmikla athygli er
íslenzkur vamimgur var sýndur
þarna í fyrsta skipti og var sýn
ingin tvívegis kynnt í sjónvarpi
og útvarpi og farið mjög lofsam
legum orðum urn vörurnar og
sýninguna í heild. Þess má geta
að Ríkissjónvarpið í Hessen
flutti ýtarlegan þátt um sýning
una og spjallaði við starfsfólkið.
Sýningin var opin frá kl. 9—6
eftiir hádegi og jafnan mikill
fjöldi gesta og því ærin starfi
fyrir strfsfólk að svara spurn-
ingum. og veita hverskonar upp
lýsingar. Voru þama tvær starfs
stúlkur Ferðaskrifstofuninar, þær |
Rosemarie Þorlei'fsdóttir og |
Ohristel Peters auk Stefáns
Hauks Einarssoo'ar .sem 'hafði um
sjón með sýningunni.
Þótt hér hafi rau|: ar vedið
fremur um tilraun og kynningu
að ræða en eiginlega sölusýningu
reyndist vera mikill áhugi á
flestum vörutegundunum og
voru gerðar verulegar pantanir
einkum á prjónuðum og ofnum
ul'larvörum svo og listmunum.
Yfirledtt reynóust vörurnar fylli
lega samkeppnisfæra'r bæði um
verð og gæði.
Vilfa bisk-
upsstól
á Hólum
SUNNUDAGINN 14. október var
héraðsfundur Skagafjarðarpróf-
astsdæmis haldinn á Hofsósi. —
Hófst hann með messu kl. 2. Sr.
Guðmundur Benediktsson á Barði
prédikaði en prófastur sr. Björn
Björnsson á Hólum og sr. Árni
Sigurðsson þjónuðu fyrir altari.
Að messu lokinni var drukkið
kaffi í boði sóknairnefndar, að
því loknu hófst fundur í Barna-
skólanum. Þar voru meðal annars
samþykktar tvær tillögur. önnur
þess efnis að skora á kirkjuyfir-
völd landsins að vinna að því að
prestskosningar yrðu lagður nið-
ur, en prestsembætti veitt skv.
tillögum biskups. Hin tillagan
var þess efnis, að unnið yrði að
því hið fyrsta að endurreisa bisk-
upsstól á Hólum í Hjaltadal, og
að þar yrði komið á fót kirkju-
legri menntastoinun við hlið
bændaskólans.
Að fundi loknum sátu fundar-
menn kvöldverðarboð prestshjón-
anna á Hofsósi.
BanasSys af völd
um umferðar
"Banaslysum af völdum
umferðar fjölgar hvarvetna
nema í Bandaríkjunum
Banaslysum af völdum um-
ferðar heldur áfram að fjölga
hvarvetna í heiminum nema í
Bandaríkjunum, þar sem þeim
hefur fækkað. Frá þessu er
skýrt í skýrslu Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunarinnar. Flest
banaslys af völdum umferðar á
Norðurlöndum verða í Finn-
ISndi, miðað við fólksfjölda. Af
25 löndum í Asíu, Evrópu, Norð-
ur- og Suður-Ameríku urðu
flest banaslys í Austurríki á ár-
Bv. Ólafur Jóliann
esson dreginn
til Reykjavíkur
SEINNI hluta dags í gær kom
varðskipið Ægir til Reykjavíkur
frá Tálknafirði með bv. Ólaf Jó-
hannesson í eftirdragi. Varðskip-
ið Gautur kom með togarann
inn á innri höfnina. Bv. Ólafur
Jóhannesson er nú ríkiseign. —
Hann mun fara í Slippinn, þar
sem hann verður botnhreinsað-
ur. —
inu 1960. Á töflunni hér á eftir
er sýndur fjöldi banaslysa af
völdum umferðar í nokkrum
löndum 1950 og 1960 og er mið-
að við 100.000 íbúa:
1950 1960
Austurríki (1953) . . 5,9 27,5
V-Þýzkaland (1952 . 14,9 25,6
Ástralía 21,8 25,6
Kanada 16,7 20,8
Bandaríkin 23,1 20,6
Finnland (1952) .... 7,8 17,1
Danmörk (1951) .... 9,8 16,9
Svíþjóð (1951) .... 10,3 14,6
Noregur (19516 .... 5,0 8,4
Island (1951) 6,9 6,3
★
1 liði Þ í Kongó 12. september
sl. voru 17.973 menn frá 20 lönd-
um, flestir frá Indlandi, eða
5,735, frá Danmörku 99, frá Nor-
egi 149 og frá Svíþjóð 952.
Matvæla- og landbúnaöarstofn-
un SÞ, Alþjóðakjarnorkumála-
stofnunin, Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunin og heilbrigðisyf-
irvöld Bandaríkjanna efna til
námskeiðs í Cincinnati sem hófst
17. sept. og lýkur 26. okt. Þar
er fjallað um áhrif geislavirkra
efna á matvæli. Þátttakendur
eru 24, m.a. frá öllum Norður-
löndum nema Islandi.