Morgunblaðið - 28.10.1962, Blaðsíða 2
2
MORGVNBLAÐIÐ
Sunnudagur 28. október 1962
Viö hreinsum tii á Kúbu
og þið í Tyrklandi, segir Krúsjeff
Moskvu, 27. okt. (AP).
KRÚSJEFF forsætisráðherra So-
vétrikjanna tilkynnti Kennedy
Bandarikjaforseta í dag að hann
væri reiðubúinn til að flytja heim
frá Kúbu „vopn þau, sem for-
setinn nefnir árásarvopn“, ef
Bandaríkjamenn flytji heim eld-
flaugar sínar frá Tyrklandi.
í orðsendingu sinni til Kenne-
dys forseta, sem útvarpað var
frá Moskvu í dag, segir Krúsjeff
að hann geti falíizt á að flytja
frá Kúbu „vopn þau, sem forset-
inn (Kennedy) telur árásarvopn"
og gefa yfirlýsingu hjá Samein-
uðu þjóðunum um að það yrði
gert. En hann sagði að það væri
ósanngjarnt að ætlast til þess að
Sovétríkin flyttu vopn sín frá
Kúbu meðan eldflaugar frá
bandarískum herstöðvum í Tyrk-
landi væri beint gegn Sovétríkj-
unum. Lausnin lægi í því að
báðir aðilar flyttu vopnin heim,
Bandaríkjamenn frá eldfiauga-
stöðvum í Tyrklandi og Rússar
frá Kúbu.
Ef samningar nást um brott-
flutning vopna frá Kúbu og Tyrk
landi, segir Krúsjeff, geta full-
trúar frá Öryggisráði SÞ ferðast
til beggja landanna og fylgzt með
því að báðir aðilar standi við
heit sín.
Segir Krúsjeff að Kennedy telji
sig hafa rétt til að setja aðflutn-
ingsbann á vopn til Kúbu, vegna
þess að eldflaugastöðvar þar séu
hættulegar öryggi Bandaríkj-
anna, en hann viðurkenni ekki
sama rétt Rússum til handa.
Bandarikin hafi flutt eldflaugar,
sem þeir sjálfir nefni árásarvopn,
til Tyrklands, rétt við landamæri
Sovétríkjanna.
Svar frá Washington
Eftir að þessari orðsendingu
Krúsjeffs hafði verið útvarpað,
en áður en orðsendingin hafði
borizt til Washington, var skýrt
frá þvi í Hvíta húsinu að orð-
sendingin fæli i sér öryggisað-
gerðir utan Vesturálfu. En það
væri eingöngu Vesturálfu, sem
stafaði ógnun af vígbúnaðinum
á Kúbu. Það er þessvegna frum-
skilyrði fyrir umræðum um þess
ar nýju tillögur Krúsjeffs, segir
í yfirlýsingu Bandaríkj astj órn-
ar, að vinna verði stöðvuð við
eldflaugastöðvar á Kúbu, árás-
arvopnin þar gerð óvirk og all-
ur frekari vopnaflutningur til
eyjunnar stöðvaður. Allar þessar
aðgerðir verði undir öruggu al-
þjóðareftirliti.
Að því er varðar öryggi þjóða;
utan Vesturálfu, segir ennfrem-
ur í yfirlýsingunni, hafa Banda—
rlkin og bandalaigsr.lki þeirra?
lengi haft forustu um að koma;
raunuim má halda áfram strax
og bundinn hefur verið endir
á yfirstndandi hættuástand við
Kúbu
Birgir ísl. Gunnarsson
HeámdalBar-
fundur um
Kúbumálið
HEIMDALLUR F.U.S. efnir til
almenns umræðufimdar félags-
manna, í Valihöll n.k. þriðju-
dagskvöld 30. október kl. 8.30,
um Kú'bumálið. Frummælandi
verður Birgir ísL öunnarsson
Fundur hjá Lands-
málafélaginu
Fram
HAFN ARFIRÐI — Landsmála-
félagið Fram heldur fund í
Sjálfstæðishúsinu annað kvöld
(mánudag) kl. 8,30. Frumimæl-
andi verður Hafsteinn Baldvins-
son bæjarstjóri og ræðir hann
bæjarmál. — Er þetta fyrsti
fundur Fram eftir að Sjálfstæðis
fLokkurinn tók við stjóm bæjar-
ins, og er því fróðlegt áð heyra
hvað Hafsteinn hefir að segja
um bæjarmálin. — Eru allir vel-
komnir á fundinn meðan hiús-
rúm leyfir.
á takmörkunum á vígbúnaði all-
ra viðkomandi aðila. Þessum til—
Bæn um
frið
BISKUP beinir þeim tilmæl-
um til þjóðarinnar að hún •
sameinist í bæn til Guðs um '
það, að þeirri hættu, sem nú
ógnar heimsfriði og þar með ‘
lifi mannkynsins, verði bægt j
frá. Mælist hann tii þess að :
þessa verði sérstaklega minnzt |
í guðsþjónustum kirkjunnar í ‘
dag. i
— Olíuskipið
Framhald af bls. 1.
Það voru ekki nema nokk-j
ur hundruð metrar milli skip-:
anna, þegar tundurspillirinnl
beygði skyndilega frá og lét
olíuskipið sigla inn í sundið
milli Kúbu og Haiti.
Nokkru áður sáum við úrj
nálægð, hvar olíuflutninga-í
skip var á austurleið. Robert;
Shutz tók einnig myndir af
því. Reyndist það bera nafnið
„Oriente“ og vera frá Hav-
ana. Skipið hafði stóra kassa
á dekki. Nokkrir af áhöfn sá-
ust ofan þilja.
hdl.
Þær aðgerðir Sovétstjórnar-
innar að setja árásareldflaugar
búnar kjarnorkuvopnum á Kúbu
bafa vakið ugg og reiði fólks
um allan heim. Hér er ekki um
að ræða mál sem snertir aðeins
Amerikuríkin, heldur allar þjóð-
ir heims.
Stjórn Heimdallar hefur því
talið rétt að efna til umræðu-
fundar um mál þetta og er ekki
að efa að Heimdellingar muni
fjöjmenna é fundinn til þess
að ræða þessar ögrandi aðgerð-
ir Sovétstjórnarinnar.
Listkynning Mbl.
Kristjan Daviðsson
KRISTJÁN Davíðsson, listmál
ari, sýnir um þessar mundir
máiverk á vegum Iistkynning-
ar Morgunblaðsins í sýning-
arglugga blaðsims. Eru það
myndir málaðar með þekjandi
vatnslitum. Málverkin eru
máluð á árunum 1959 og 1960.
Þau eru öil til sölu hjá af-
greiðslu blaðsins eða lista-
manninum sjálfum, en heim-
ili hans er að Unuhúsi í Garða
Deyfilyf finnast
við húsrannsökn
EINS og skýrt hefur verið frá
éður í Morgunblaðinu var fyrir
skemmstu fyrirskipuð rannsókn
vegna neyzlu deyfilyfja, en mál
þetta hafði borið nokikuð á góma
í blöðuim.
í sambandi við þessa rannsókn
var nú í vikunni gerð húsrann-
eókn hjá manni einum hér í bæ,
sem legið hefur undír grun um
að hafa slík lyf í fórum sínum,
og jafnvel að hafa seit þau.
Við húsrannsðkn þessa munu
hafa_ fundist um 1000 töflur af
amfetamíni og auk þess nokkuð
magn af öðrum veikum deyfi-
lyfjum. Þá munu einnig hafa
fundizt sprautuglös (amipúlur).
Mál þetta er nú í rannsókn hjá
sakadómaraembættinu í Reykja-
vík, en emhættið hefur ekki vilj-
að láta bafa neitt eftir sér opin-
berlega um mál þetta meðan það
er enn á rannsóknarstigi. __
stræti.
Kristján Daviðsson, listmál-
ari, hefur áður sýnt verk siná
vegum listkynningar Morgun-
blaðsins. Hann er einn af hin-
um þekktari yngri málurum
okkar. Hann hefur haldið
margar sjálfstæðar sýningar á
verkutn sínum og oft hlotið
ágæta dóma. Síðasta mál-
verkasýning hana var í Boga-
salnum sumarið 1961.
— Háskólahátið
Framlh. af bls. 24.
stóðu. Þennan atburð mætti telja
hinn merkasta, þar sem þetta
hefði verið fyrsta raunvísindaráð
stefnan, sem menn frá mörgum
þjóðum hefðu sótt hér. Kvað
rektor það von sína að fleiri
slíkar fylgdu á eftir.
Rektor sagði að ráðstefnan
héfði örugglega örvað áhuga
manna og skilning á því hér á
landi, hversu mikið átak þyrfti
til að skapa náttúruvísindamönn-
um vorum rannsóknarskilyrði við
þeirra hæfi og hversu brýn þörf
væri á að efna hið fyrsta til
kennslu í náttúrufræðum við há-
skólann. Af hálfu skólans hefðu
þegar verið lagðar fram tillögur
um það efni, og sagði rektor
að þær hefðu mætt góðum skiln-
ingi hjá menntamálaráðherra og
ríkisstjórn. Rektor sagði það von
sína að unnt yrði að hefja slíka
kennslu þegar á næsta ári.
Þá greindi rektor frá að laga
og viðskiptadeild hefði nú verið
greind í tvær deildir.
Þá minntist rektor á að brýna
nauðsyn bæri til að efla stórlega
tannlæknadeild háskólans. í því
sambandi ræddi rektor hinna
merku og víðtæku rannsókna á
tann og munnsjúkdómum lands-
manna, sem tannlæknadeild
Aiabamaháskóla hefði fram-
kvæmt um margra mánaða skeið
að undanförnu í samráði' við
læknadeild háskólans. Kvað
rektor þetta vísindastarf stórum
þakkarvert og minntist sérstak-
! lega dr. Volker, forstöðumanns
tannlæknadeildar Alabamahá-
| skóla og prófessors John Dunbar,
sem unnið hefur að rannsóknum
hér.
Þá gat rektor gjafa, sem há-
skólanum hafa borizt. Stofnaður
hefði verið minningarsjóður um
háskólarektor dr. Þorkel Jóhann
esson til að stuðla að rannsóknum
og fyrirlestrahaldi um ísl. sagn-
fræði. Þá hefði háskólanum verið
afhentur minningarsjóður um
Pál Melsted stúdent til þess að
styrkja kandidata til náms erlend
is. f þessum mánuði kvað rektor
hafa borizt rausnarleg og mikils-
háttar bókargjöf frá dr. Alvar
Nelson prófessor í Lundi og konu
hans. Er það mikið safn bóka,
einkum í klassískum fræðum. í
gjöfinni eru um 4,500 bindi og
kvað rektor þetta einhverja
mestu bókagjöf, sem skólanum
hefði borizt. Þá afhenti stjórn
Hins ísL kvenfélags í upphafi
skólaárs rausnarlega peningagjöf
sem framlag til Háskólasjóðs.
Þá gat rektor þess að Bandalag
háskólamanna hefði á afmælis-
hátíð skólans afhent ritið Vís-
indin efla alla dáð með tabula
gratulatoria, þar sem á voru rit-
uð nöfn 530 háskólamanna. Kvað
rektor stjórn bandalagsins nýlega
hafa afhent skólanum hagnað
þann, sem orðið hefði af riti
þessu, 130 þús. kr. Væri það ósk
bandalagsins að þessum hagnaði
yrði varið til að bæta aðstöðu
stúdenta til félagsiðkana, t. d. til
væntanlegs félagsheimilis stú-
denta. Þakkaði rektor góðair gjaf
ir.
Þá minntist rektor á afhend-
ingu gömlu Loftskeytastöðvarinn
ar til handa háskólanum, er.Ing-
ólfur Jónsson, samgöngumálaráð
herra, tilkynnti skólanum um
með bréfi 14. okt. sl. Sagði rektor
að háskólinn mæti þessa gjöf
mikils.
Þá ræddi rektor Handritastofn
un íslands og skýrði frá því að
prófessor Einari Ólafi Sveinssyni
hefði verið veitt embætti forstöðu
manns hennar.
Þá skýrði rektor frá því að rík
isstjórnin hefði sýnt háskólan-
um þá miklu vinsemd og skiln-
ing að taka til greina á fjárlaga-
frumvarpi allar óskir skólans.
Þá rakti rektor rannsókna-
starfsemi háskólans. Minntist
hann í upphafi á samningu ís-
lenzkrar orðabókar, sem unnið
hefði verið að frá 1944. Kvað
hann 100 þús. kr. viðbótarfjár-
veitingu hafa fengizt til starfs-
ins.
Á rannsóknastofu háskólans í
meinafræði sagði rektor að unn-
ið hefði verið að rannsóknum
á krabbameini í maga. í eðlis-
fræðistofnun háskólans hefði ver-
ið unnið að segulmælingum og
mælingu á geislavirkum efnum
í matvælum.
Þá gaf rektor að venju yfirlit
um tölu nýskráðra stúdenta sem
nú eru 238 og hafa aldrei verið
fleiri. Eru stúdentar í háskólan-
um alls nú um 800 talsins, þar
af 19 erlendir stúdentar.
Nýskráðir stúdentar svo á deildir: skiptast
Guðfræðideild ., .. 3
Læknisfræði .. ,. 32
Tannlækningar .... 11
Lyf jafræði lyfsala .. 7
Lögfræði 20
Viðskiptafræði .. .. 28
Islenzk fræði .. .. 14
Heimspeki 27
Nám til B.A.-prófa 61
Verkfræði 16
Tala brautskráðra kandídata á
háskólaárunum 1960—61 Og 1061
til 1962 var þessi eftir deildum.
(síðari talan á við síðara áriðj:
Guðfræði .. .. .. 3 3
Læknisfræði 24 26
Tannlæknisfræði .. 4
Lögfræði 8 10
Viðskiptafræði .... 8 4
íslenzk fræði .. .. 2
Meistarapr. í ísl. fr. 1
B.A.-próf 10 14
Verkfræði 6 5
Samtals 66 65
Þá minntist rektor á framgang
raunvísindastofnunarmálsins og
sagði orðrétt um það mál:
„Annað, sem ég vil benda á,
er raunvísindaráðstefnan, sem
haldin var í Háskólanum í ágúst
1961 að frumkvæði menntamála-
ráðherra. Sú ráðstefna tók tíl
meðferðar skipan rannsóknar-
mála í raunvísindum til frambúð
ar hér á landi, bæði hagnýtar
rannsóknir og rannsóknir í undir
stöðugreinum. Sú ráðstefna tókst
mjög vel og var vekjandi ög
markverð. M. a. virtist það vera
ríkjandi viðhorf, að Háskólinn-
ætti fyrst Og fremst að hasla sér
völl, þar sem eru undirstöðu-
rannsóknir. Af hálfu Háskólans
voru gerðar tillögur um þetta
verkefni skólans veturinn 1961,
og vöru þær hugmyndir m.a. til
umræðu á ráðstefnunni og virt-
ust njóta þar mikils byrjar. Eftir
að Háskólanum barst hin mikla
gjöf Bandaríkjastjórnar á afmæl-
ishátíð fyrir ári síðan, hafa ver-
ið samdar nýjar tillögur, er að
þessu lúta og sniðnar eru með
það fyrir augum, að hið fyrsta sé
unnt að reisa raunvísindastofnun
fyrir handbært fé. Nú nýlega hef
ir menntamálaráðherra heimilað
Háskólanum að hefjast handa
um að koma stofnuninni á fót,
og er sú heimild mjög mikilvæg
og mikilsmetin. Er það von mín,
að nú verði hægt að gera veru-
legt átak í raunvísindum hér við
skólann, því að þau mikilvægu
fræði hafa ekki notið þeirxar að-
Stöðu, sem skylt er hér á landi,
þegar litið er til híns ‘ síáukha
gildis þeirra fyrir vísindalegar og
efnahagslegar framfarir.“
Loks ræddi rektor húshygginga
mál skólans og sagði áætlanir nú
uppi um byggingu bæði lækna-
deildarhúss og raunvísindastofn-
unar. Sagði rektor að einnig væri
æskilegt að reisa á næstunni hús,
er rúmaði nokkrar kennslustof-
ur, vinnuherbergi kennara, nokkr
ar rannsóknastofnanir í hugvís-
indum auk semínarstofa og vænt
anlega einnig sérlestrarherbergja
fyrir stúdenta. Meðal mála mál-
anna kvað rektor einnig vera
byggingu bókasafnshúss, og kvað
nauðsynlegt að skriður kæmist á
það mál þegar á þessu háskóla-
ári.
Ræðu sinni Iauk rektor svo:
Ég þakka ánægjulegt samstarf
við hæstvirta ríkisstjóm, og eink
um þá tvo ráðherra, er ég mest
skipti hef átt við, hæstvirtan
menntamálaráðherra og hæst-
virtan fjármálaráðherra. Ég
þakka Alþingi fyrir glöggan skiin
ing á þörfum Éáskólans. Ég
þakka fyrir ánægjulega sam-
vinnu við Háskólaráðsmenn og
aðra samkennara mína, svo og
prýðilegt samstarf við háskóla-
stúdenta. Megi heili og gæia
fylgja Háskólanum. _