Morgunblaðið - 28.10.1962, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 28.10.1962, Blaðsíða 6
6 MORCVNBLAÐIÐ Sunnudagur 28. október 1962 Magnús Á. Árnason og' eitt nsálverka hans. Afeð anraan fótinn i síðustu öld Ásgerður Búadóttir við vefstól sinn. Vinnustofunni breytt í sýningarsal ¥ GÆR kl. 2 var sýning á yerkum Magnúsar Á. Árnasonar opnuð í Bogasal Þjóðminjasafns- ins. Verða þar til sýnis 54 olíu- málverk, og tvær höggmyndir, og stendur sýningin til 4. nóv- ember nk. Magnús Á. Árnason, listmálari, sagði í viðtali við blaðamann Morgunblaðisins, að hann sýndi eingöngu nýjar myndir að þessu sinni, landslagsmyndir frá suð- vesturlandi og fimm andlits- myndir. Margar myndanna væru frá Snæfellsnesi. Ekki kvaðst Magnús vita, hversu margar málverkasýningar hann hefur haldið samanlagt, en þetta væri þriðja árið í röð, sem hann sýndi verk sín, bæði mál- verk og höggmyndir. Máiverk hans eru öll „natúralistísk“. Ég er með annan fótinn í síðustu öld,“ sagði hann, „og býst ekki við að oreyta til héðanaf.“ AKUREYRI, 20. okt. — Mikið hefur borið á óspektum unglinga hér á kvöldin. Hefur ýmislegt brak og drasl verið fært inn á umferðargötur og umferðar- merki verið beygð og brotin. Sökudólgarnir hafa náðst og eru þetta mest unglingar á aldr- inum 16—19 ára. Vitað er, að — Arekstrar Framh. af bls. 3 að gefa neinar sannanlegar skýringar, en óneitanlega hvarflar að mönnum, að ekki sé alltaf viðhöfð sú varúð, sem æskileg væri. Of hrað- ur akstur er algeng orsök slysa, en þó alls ekki sú eina. Óvarkámi ökumanna getur lýst sér á margan annan hátt, svo sem þann, að afka of ná- lægt bílnum undan, að taka fram úr á gatnamótum eða þegar önnur bifreið kemur á móti o.s.frv. Ókurteisi og þrjóska ein- kennir líka akstur margra og veldur mörgu slysinu. Þegar gangandi menn eiga í hlut, bera þeir oft engu minni ábyrgð á slysunum. Ógætni vegfarenda er mjög áberandi t.d. á aðalgötum miðbæjarins. Er þar oft hvorki sinnt umferð né um- ferðarljósum, en stormað beint í veg fyrir bílana og treyst á hemla og hæfni ökumanna. Það væri því ekki úr vegi að bílstjórar og aðrir veg- farendur tækju nöndum sam- an og reyndu að koma hér á dálítilli umferðarmenningu, enda er það tímabært. þeir, sem stóðu að skemmdum á umferðarmerkjum, eru menn, sem hafa það að aðalatvinnu að aka bifreiðum á daginn. Á einum stað í innbænum vái brotin útihurð hjá gömlum manni af prakkaraskap. — St. E. Sig. ÁSGERBUR Búadóttir opnaði í gær kl. 4 sýningu á þrettán list- Ofnum teppum í vinnustofu sinni, Karfavogi 22. Sýningin verður opin daglega milli 2 og 10, fram til þriðjudagskvölds hins 6. nóvember. — Það er verst að þurfa að halda sýninguna svona úr al- mannaleið, sagði frú Ásgerður. Enn sem komið er, er ekki til neinn lítill sýningarsalur hér í bæ, þar sem iistafólk getur kom- ið á framfæri einhverju smáveg- is. — En kemur sýningin ekki til með að raska öllum heimilis- háttum? — Ég var í fyrstu svolítið kvíð in því, en drengirnir mínir tveir eru orðnir hálfstálpaðir og þeir hafa lofað að vera með engin ólæti. Og ég vona að þetta fari allt vel. Sýning Ásgerðar Búadóttur mun vera hin fyrsta hérlendis á myndvefnaði einvörðungu. Hún hefur áður tekið þátt í sýningum, erlendis og innlendis og hlaut gullverðlaun á alþjóðlegu listiðn aðarsýningunni í Múnchen 1956, Teppin, sem hún sýnir að þessu sinni, eru ofin úr íslenzku bandi (sem er það eina sem fáanlegt er hér), bæði sléttur vefur og flosvefnaður. Hún hefur unnið að þeim sl. tvö ár og hafa þau aldrei komíð fram áður, nema ÞÓú. Untylíngar ú Ækur- eyri meö óspekiir VELVAKANDI sneri sér til eins af varðstjórum lög- reglunnar út af hinum tíðu umferðarslysum, sem orðið hafa nú að undanförnu. — Sverrir Guðmundsson varð- stjóri í umferðardeild svar- ar hér í fáum dráttum spurn ingunni um það hvað helzt væri hægt að gera til úr— bóta í þessum málum. — Það er eins og það sé árátta á okkur íslendingum að okkur skortir tillitssemi í um- ferðinni og gildir það bæði um ökumenn á bifreiðiun, hjólum og öðrum farartækjum og einn ig um gangandi fólk. k Einblínið ekki á réttinn Umferðarrétturinn getur ver ið ágætur og er sjálfsagður, en menn verða að gæta þess að einblína ekki á hann. Mörg at- vik geta verið þannig að sá sem á réttinn verði að víkja. Það eru t. d. mörg nærtæk dæmi er sýna að hemlar bifreiða, eða annar búnaður, hefir bilað og ökumaður hefir ekki getað spornað gegn því að aka í veg fyrir þann, sem samkvæmt hinum almennu reglum á rétt- inn. Það er eins og mönnum gleymist sú ófrávíkjanlega öku regla, sem gefin er sem frum- regla öllum ökumönnum, „að þeir eigi að geta stöðvað bif- reið sína á % þess hluta veg- arins, sem er hindrunarlaus framundan“, Það er þessi regla, sem menn verða að hafa í huga og svo hin almenna tillitssemi og nán- ast kurteisi við aðra vegfar- endur. Það er til máltæki, sem hljóðar eitthvað á þá leið að það kosti ekkert að sýna kurteisi. Það kostar heldur ekk ert að sýna ofurlitla tillits- semi jafnvel þótt maður eftir ströngustu reglum geti farið fram með frekju. Ef þessi til- litssemi yrði hér í vaxandi mæli er ég þess fullviss að um- ferðin færi mun betur fram og þá drægi jafnframt úr slys- unum. k Virðið þó ökuréttinn Samfara þessu er það tals- vert ríkt í mönnum að virða ekki umferðarréttinn til hlít- ar. Þeim gleymist að sinna bið- skyldu, þar sem hennar- er krafizt og grípa þá hæpin tæki færi, sem leitt geta til árekstra. Einnig er misbrestur á því að menn sinni stöðvunarskyld- unni þar sem hennar er skil- yrðislaust krafizt. Þetta hefir þó í seinni tíð farið batnandi. Þá eru stenfuljósin enn tals- vert vandamál hér hjá okkur. Þau eru að sönnu tiltölulega ný, en notkun þeirra þó ekki það flókin að mönnum ætti ekki að vera hún fyllilega ijós. Það er kennt í ökuprófum að ökumanni beri að gefa stefnu- Ijós 50 m. áður en hann breýtir stefnu, en á þessu vill verða mjög almennur misbrestur, þar sem menn gefa stefnuljósin of seint. Samfara þessu ber mönn um að sjálfsögðu að fylgjast vel með umferðinni fyrir aft- an sig með því að líta í hliðar- spegla eða baksýnisspegla bif- reiðarinnar og aka ekki snögg- lega í veg fyrir bifreið, sem er fast á eftir. Þetta kemur einna mést fram þar sem akreina- skipting er á vegunum. Fjöldi ökumanna skiptir um akreinar án alls tillits til umferðarinn- ar. Hér gildir að sjálfsögðu sem annars staðar í umferðinni tillitssemi við aðra vegfarend- ur. —• Skuggsýni og snjókoma Nú fer í hönd skammdeg- ið með myrkri og snjókomu samfara hálku á vegunum. Þá verða ökumenn að gæta þess sérstaklega vel að rúðurnar á bílum þeirra séu jafnan hrein- ar og auðar svo vel megi sjá út um þær. Það er góð regla fyrir ökumann, sem er að setja bifreið sína í gang að morgni, að fara út í bifreiðina og ræsa hana og þrífa rúður, en láta hana síðan ganga meðan hann skreppur inn og drekkur morg unkafíið sitt. Þá hefir bifreið- in hitnað og rutt sig á með- an. Þá verða menn að muna að hafa þurrkurnar í lagi og eins verða þeir að hafa tæki til að þurrka af rúðunum að inn- an. Til þess fást litlar hand- hægar sköfur, sem ættu að vera í hverri bifreið. Á þessu vill verða mikill misbrestur og ótal slys hafa einmitt orðið af því að menn hafa ekki gætt þess sem skyldi að b.’einsa vel rúðurnar í bifreiðunum. Gangandi fólk verður líka að gæta varúðar Gangandi fólk verður einn ig að gæta tillitssemi og var- úðar í umferðinni. Nú, er skyggja tekur, verður það að gæta þess að ganga á móti um- ferðinni, einkum þar sem göt- ur eru illa lýstar, svo og verð- ur það að virða ljósmerkin þar sem þau eru og ganga ekki út á umferðargötur án þess að hafa fullvissað sig um að öllu sé óhætt. Þá verða menn að leggja sér það ríkt á hjarta að aka jafnan við þær aðstæður, sem eru á hverjum stað og hverjum tíma. Hámarkshraði er yfirleitt 35 km hér innan bæjar, en það þýðir ekki að alltaf sé hægt að aka með þeim hraða. Veðrið leyfir það ekki í dag, þú ert að fara fram hjá skóla við næstu götu og á enn öðrum stað er verið að gera við göt- una. Það er því frumskilyrðl hvers vegfaranda að sýna til- litssemi og laga sig eftir þeim aðstæðum sem fyrir eru. Hafi menn þetta ríkt í huga má vænta batnandi umferðar og minnkandi umferðarslysa.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.