Morgunblaðið - 09.12.1962, Page 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 9. des. 1962 t
d
tíðindi
V-Þýzkaland
EFTIR sex vikur er fullvíst
talið, að endir sé bundinn á
stjórnarkreppuna 5 V-þýzka-
landi. Með lausn hennar er
einnig raunverulega bundinn end
ir á stjómmálaferil Adenauers,
kanzlara. Honum tókst ekki að
efna til nýs stjórnarsamstarfs
með Frjálsum demokrötum,
nema að heita t>ví að hætta störf
um næsta haust. Tilraunir til
samstarfs við Sósíaldemokrata
strönduðu á kröfu Adenauers um
að breytt yrði kjördæmaskipu-
lagi landsins, og höfðu þó ráða-
menn Sósíaldemokrata lægt þær
raddir innan flokks síns, er
gerðu það að kröfu sinni fyrir
samstarfi, að Adenauer færi frá.
Það var krafa Frjálsra demo-
krata, er þeir gengu til sam-
vinnu við Kristilega demokrata
eftir kosningarnar sl. ár, að valda
tícmi Adenauers yrði takmarkað-
aður. Eftir stjórnarslitin, fyrir
sex vikum, taldi Adenauer sig
ekki lengur bundinn loforði því,
er gefið var i fyrra. Kenndi hann
Frjálsum demokrÖtum, hvernig
farið hefði. Þeir kenndu aftur
afskiptum Strauss, iandavarna-
ráðherra, af „Spiegelmálinu“, og
sögðu hann hafa sýnt dómsmála-
ráðherranum, Stammberger. lítils
virðingu með því að hafa látið
framkvæma handtökur starfs-
manna tímaritsins, án hans vit-
undar. Gerðu þeir tvær kröfur
til Kristilegra demokrata, ætti
stjórnarsamstarf að takast á
nýjan leik, að Strauss yrði ekki
ráðherra í nýrri stjórn, og Aden-
auer héti því að fara frá, eins og
um ar samið í fyrra.
Hv jrugur kosturinn mun Aden
auer hafa þótt góður. Sjálfur
mun hann hafa kosið að sitja
sem lengst, væri á nokkurn hátt
hægt að samrænja slíkt nýrri
stjórnarmyndun. Kosningasigur
undirdeildar Kristilega demo
krataflokksins í Bavaríu, en
Strauss er leiðtogi fulltrúa þess
héraðs, hefur gert Adenauer enn
erfiðara um vik, þar eð þá var
ekki annað vitað, en Strauss nyti
fulls trausts þeirra fulltrúa. Þeir
eru 50 á þingi og stuðning þeirra
varð Adenauer að hafa.
2. desember varð ljóst, að í
vikunni á undan höfðu farið
fram viðræður milli Kristilegra
demokrata og Sósíaldemokrata
um stjórnarmyndun. í fyrstu
munu bæði Frjálsir demokratar
og margir Sósíaldemokratar hafa
talið, að hér væri aðeins um að
ræða tilraun til að gera þá fyrr-
nefndu auðveldari viðfangs fyrir
Kristilega demokrata í viðræð-
um um nýja stjórn.
Þó samíþykkti nefnd þingfull-
trúa Sósíaldemokrata að taka
upp viðræður vio Kristilega
demokrata. Munu þeir fyrr-
nefndu hafa lagt fram áætlun í
sex liðum um væntanlega stjórn
arstefnu. Eitt af því, sem þar var
lagt fram, og það, sem þyngst var
á metunum fyrir Adenauer, var,
að starfsferli hans voru ekki sett
takmörk. Þá mun einn af full-
trúum Sósíaldemokrata, í við-
ræðunum, Herbert Wehner, vara
formaður þingnefndar flokksins,
hafa fallizt á fyrir sitt leyti, að
kjördæmaskipulagi landsins yrði
breytt.
Samtímis því, sem viðræður
milli þessara flokka fóru fram,
héldu Kristilegir demokratar
uppi viðræðum við Frjálsa demo
krata, og var það í anda sam-
þykktar hins fyrrnefnda flokks.
Einnig fóru Frjálsir demo-
kratar þess á leit við Sósíáldemo
krata, að hafnar yrðu viðræður
um myndun stjórnar. Þessir
tveir flokkar hefðu getað náð
meirihluta, 7 sætum, en hann
hefði þó tæpast fengizt staðizt
í raun og veru, þar eð margir
íhaldssamir Frjálsir demokratar
hefðu vart stutt Sósíaldemokrata.
Er á herti, kom hins vegar í
ljós, að Sósíaldemokratar gátu
ekki fallizt á skoðun fulltrúa
síns, Wehners, um að kjördæma
skipulaginu skyldi breytt. Það
hefði þýtt, að miðað við úrslit
síðustu kosninga, hefðu Frjálsir
demokratar enga fulltrúa fengið
á næsta þingi. Sú hætta hefur
vafalaust gert Frjálsa demokrata
samningaliprari, enda varð það
niðurstaðan, að þeir tóku hönd-
um saman við Kristilega demo-
krata um myndun nýrrar stjóm
Ný stjórnarsamvinna í V-Þýzkalandi-
Hver verður endanleg ákvörðun IMehrus
-Leysist Kasmírdeilan? -
ar. An þess, að Sósíaldemokrat-
ar samþykktu að breyta kjör-
dæmaskipulaginu, taldi Aden-
auer sér ekki fært að mynda
stjórn með þeim, jafnvel þótt
áframhaldandi völd hans yrðu
tryggð.
Sósíaldemokratar og Kristileg-
ir demokratar hafa ekki starfað
saman í stjórn um langan tfcna,
enda skoðanir . og stefnumál
misjöfn. Þótt samkcmulag muni
hafa náðst um ýmis atriði, m.a.
varnarmál, meðan á viðræðum
íþessara tveggja flokka stóð, þá
greindi enn á um ýmislegt.
Auk þess er margt, sem í aug-
um Kristilegra demokrata hefur
gert stjórnarmyndun með Frjáls-
um demokrötum mögulega og
æskilega, úr því að ljóst var, að
ekki var hægt að binda endi á
þingsetu Frjálsra demokrata með
samvinnu við Sósíaldemokrata.
I ljós kom við skoðanakönnun,
að fulltrúar Kristilegra demo-
krata í Bavaríu kusu heldur að
snúa baki við Strauss en veikja
aðstöðu flokksins á þingi. Mikil
ósamstaða ríkti og innan Kristi-
lega demokrataflokksins um sam
vinnu við Sósíaldemokrata.
Með því að mynda stjórn með
Frjálsum demokrötum virðast
Kristilegir demokratar því geta
haldið Strauss fyrir utan nýja
stjórn, án þess að veikja að-
stöðuna á þingi. Ákvörðun Aden
auers um að hætta næsta haust,
er raunar ekki þungbærari, en
ákvörðun hans, sama efnis, í
fyrra.
Ákvörðun Frjálsra demokrata
um að slíta stjórnarsamstarfinu,
og lausn stjórnarkreppunnar nú,
er reyndar stærstur sigur fyrir
'þá sjálfa. Þeir tryggja tilveru
flokks síns, tryggja, eftir því,
sem síðast fréttist, að Strauss láti
af ráðherraembætti og fá loforð
um að Adenauer fari frá. Sú
ákvörðun á ekki síður fylgi að
fagna meðal Kristilegra demo-
krata.
Indland og Kma
ALLT frá því, að Indverjar
fengu sjálfstæöi sitt fyrir 15 ár-
um, hafa þeir átt í erjum við
tvær mannflestu nágrannaþjóðir
sínar. Deilur hafa staðið við
Kína um landamæri, sem eru
nær 3000 km löng, og deilt hefur
verið við Pakistani um Kasmír.
Síðustu daga hefur þó ýmislegt
bent til þess, að samkomulag
kunni að nást um Kasmír við
Pakistani og bardagar við Kín-
verja hafa nær algerlega legið
niðri tvær undanfarnar vikur.
Kínverjar hafa tilkynnt, að
þeir hafi tekið að flytja lið sitt
til baka frá vígstöðvunum. Margt
bendir til, að svo sé, a.m.k. á
norðausturvígstöðvunum, þótt
engrar hreyfingar hafi orðið vart
á liði þeirra í Landakh.
Er Indverjar taka lokaákvörð
un sína um, hvort gengið skuli
til samninga við Kínverja, verða
þeir að taka ákvörðun, sem er
í senn hernaðarlegs og stjórn-
málalegs eðlis. Kínverjar hafa
sýnt yfirburði sína á hernaðar-
sviðinu. Indiverjar eru liðfærri,
ver vopnum búnir, og urðu í
sífellu að hörfa, meðan bardagar
stóðu.
Það er auk þess augljóst, að
það myndi taka mjög langan
tíma er endurskipuleggja ind-
verska herinn. Á það bæði við
um viðleitni Indverja sjálfra og
framlag Breta og Bandaríkja-
manna. Vopn þeirra koma ekki
að fullum notum, nema þjálfaðir
menn séu fyrir hendi til að fara
með þau. Indverski herinn telur
ekki nema rúma hálfa milljón
manna, og þjálfun nýliða tekur
sinn tíma.
Þótt hernaðaraðstaðan sé lélag,
þá hefir indverska þjóðin sam-
einazt í þjóðernistilfinningu, eft-
ir að árás Kínverja bar að hönd-
um. Þær raddir eru bæði margar
og áhrifamiklar, sem krefjast
þess, að árás Kínverja sé mætt
með þekn ráðum, sem duga- Ind-
verjar megi ekki gefast upp.
Hefðu Indverjar gengið að
vopnahléstillögum Kínverja, þá
hefði það falið í sér landvinn-
inga fyrir þá síðarnefndu.
Á norðaustursvæðinu hefðu
landvinningarnir ekki orðið
miklir. Hins vegar hefðu Kínverj
ar fengið yfirráð yfir um 12.000
fermílum lands í Ladakh, svæði,
sem Indverjar hafa ætíð talið sitt
land.
Þar liggur vegur sá, sem Kín-
verjar hafa gert frá Sinkiang til
Tibet. Þótt tilgangur Kínverja
með árásinni á Indland sé vafa-
laust margþættur, þá efast fáir
um, að landvinningar í Ladaklh
hafi verið þungir á metunum.
Nú í vikunni fór Nehru í eftir-
litsferð um norðausturhéruðin,
og hann hefur síðan lýst því yfir,
að Kínverjar hafi hörfað á norð-
austurvígstöðvunum, þ.e. dregið
lið sitt til baka. Hins vegar er
athyglisvert, að Indverjar hafa
ekki sent hermenn sína inn á
þau svæði, sem Kínverjar hafa
yfirgefið. •
Þótt Nehru hafi síðan haldið
Framh. á bls. 23.
• HÁTÍÐ MAMMONS
Jólin nálgast, þessi minningar-
hátíð um fæðingu frelsarans,
þessi hátíð barnanna. Þegar
Velvakandi fór að hugleiða
hvað heppilegt væri í sunnu-
dagsvelvakanda urðu jólin
fyrst fyrir, en flestir virtust
svo önnum kafnir af jólaundir-
búningnúm að þeir máttu ekki
vera að því að sinna þessu
vikulega rabbi hér í dálkum
Velvakanda.
En er nú allt þetta vafstur
og miklu annir fyrir jólin gjört
í minningu frelsarans og til
þess að gleðja börnin einvörð-
ungu? Tímarnir breytast og
mennirnir með. Þetta gildir
einnig um jólin og þá miklu
minningarhátíð. Okkur er nær
að halda að jólin snúist nú
um flest annað .meir en þetta
tvennt, sem fyrr er greint. Allt
skrautið, prjálið og peningamir
virðist okkur í fljótu bragði
vera farið að skyggja á þessa
trúarhátíð. Margir þeir, sem
vaxnir eru úr grasi, minnast
jólanna með nokkrum öðrum
blæ en þau eru nú. Fyrr á
árum var hógværð öllu meiri
yfir jólum og jólaundirbún-
ingi. Þá glöddust börnin yfir
minni gjöfum en nú, jafnvel
eitt lítið kerti var þeim nægi-
legt tákn jólagleðinnar og nýir
hvítbryddaðiir sauðskinnsskór
gerðu þau fullkomlega ham-
ingjusöm. Það er vissulega gleði
legt að efnahagur okkar í dag
skuli geta leyft okkur glæsilegar
jólagjafir og dýrindis veizlur
marga daga í senn. Hitt er svo
annað mál, hvort mennirnir eru
nokkuð sælli eða ánægðari með
þá miklu viðhöfn, sem nú er
höfð, er jólin ganga í garð. Mörg
um finnst að þessi hátíð sé nú
orðin fremux hátíð Mammons og
peninga en hátíð Krists og trú-
arminningar. Um leið og við
gleðjumst yfir velgengninni
megum við þó ekki gleyma hvað
jólin tákna í raun og veru. Ég
er hræddur um að fleiri hafi nú
þyngri og stærri áhyggjur af
því hvað þeir eigi að velja til
jólagjafar handa ættingjum og
vinum, heldur en hinu hvað líð-
ur sálarbeill þeirra og trúarleg-
um þroska. Fleiri munu að lík-
indum velta því fyrir sér, hvort
þeir hafi nú munað eftir að
senda öllum kunningjunum jóla
kort helduir en hvort þeir kom-
ist í kirkju á aðfangadagskvöld
eða jóladag. Feningarnir eru
þessa dagana ríkasta hugðarefnl
hvers heimilisföður, því nú
þarf að tína saman allar þær
krónur sem fyrirfinnast, svo
hægt sé að gera jólin sem glæsi-
legust. Þannig er desembeirmán
uður orðinn flestum fjárhags-
leg martröð í stað þess að vera
hljóðlátur mánuður hins ís-
lenzka skammdegis.
Við skulum vissulega gleðj-
ast yfir veraldlegri velgengni
okkar. Við skulum gleðjast yfir
því að geta keypt okkur falleg
föt og gengið glæsilega búin.
Við skulum gleðjast yfir því að
geta keypt okkur veizluföng og
búið okkur veizluborð. Við skul
um einnig gleðjast yfir því að
hafa efni á því að búa í dýrum
og glæsilegum húsum, eiga
gljáandi og ganghraðar bifreið-
ir. Við skulum-gleðjast yfir því
að geta siglt til annarra landa
og frílystað okkur þar eins og
þjóðhöfðingjar. Yfir öllu þessu
skulum við gleðjast, aðeins ef
við gleymum ekki því sem þýð-
ingarmest er; andlegum þroska
okkar sjálfra. Ög við skulum
gleðjast yfir miklum og glæsi-
legum jólum, fullum af jóla-
gjöfum, prjáli og dýrum mat,
aðeins ef við týnum ekki sál-
arheill okkar í öllu þessu veldi
Mammons.
• JÓL SR. JÓNASAR
Ekki er úr vegi að enda þessa
jólahugleiðingu með því að líta
á frásögn sr. Jónasar frá Hrafna
gili um jólin. Hann segir:
„Jólanóttin var ársins helg-
asta stund í augum almenning3
og er það víða enn í dag. Þá var
víða siður og er sums staðar
enn að kveikja Ijós um allan
bæinn, svo hvergi bæri skugga
á. Þegar búið var að sópa hann
allan, gekk þá húsfreyja
kringum bæinn og um hann
„bauð álfum heim“ og sagði:
„Komi þeir sem koma vilja,
veri þeir sem vera vilja, fari
þeir sem fara vilja, mér og
mínum að meinalausu“. Sumir
létu ljós lifa í bænum alla nótt-
ina og sjálfsagt í baðstofunni
og hefur það sumstaðar haldizt
við fram á vora dag og er tii
enn í dag“.
Og enn segir sr. Jónas:
„Sérstaklega eru jólin og
voru enn hátíð fyrir bömin.
Þá var nú bæði að þau fengu
góða fylli sína að borða en svo
hefur það verið gamall siður á
íslandi að gefa þeim kerti. En
kertaljósin voru dýrindisljós á
meðan lýsislamparnir og grút-
arkolurnar voru aðalljósin á
bæjum. Víða var líka öllu fólk
inu gefið sitt kertið hverju, var
þá ekki lítið um dýrðir, þegar
mörg böm kveiktu hvert á sínu
kerti og brá svo ljósbjarm-
anum um alla baðstofuna".
Okkur er hollt að muna að
það er ekki langt síðan að hér
á landi vom átti þessi lýsing
við á nærfellt hverju einasta
heimili. Nú er þetta breytt og
flest til bóta.
Það er að síðustu ósk Velvak
anda til allra lesenda sinna að
þeir megi hafa góð og blessunar
rík jól, minnugir þess að hóf
er bezt á hverjum hlut.