Morgunblaðið - 09.12.1962, Qupperneq 17
Sunnudagur 9. des. 1962
MORGUNBLAÐIÐ
17
tm
- „Þjóðfylking"
Framih. af bls. 10.
í áætlun sinni, að „þjóðfylk-
ingarstjóm“ þeirra og banda-
manna þeirra muni eftir valda
töku sína framkvæma ýmsar
„djarfar og róttækar ráðstaf-
anir“. Síðan segir:
Helztar þessara ráðstafana
eru:
1) Að koma upp heildar-
stjóm á atvinnufmmkvæmd-
um og framleiðslu íslendinga
samikvseimt áætlun, að svo
miklu leyti sem framleiðslu-
skipunin leyfir, ifteð raunveru
lega hagsmuni þjóðarheildar-
innar, en eklki nokkurra auð-
manna, fyrir augum.
2) Að ríkið taki yfirráð
utanríkisverzlunarinnar í sín-
ar hendur og sjái um, að henni
sé stjórnað með alþjóðarhag
fyrir augum.
3) Tekin séu stórlán til nauð
synlegra framkvæmda hjá ríkj
um sósíalismans með iágum
vöxtum og hagstæðum greið-
sluskilmálum í sambandi við
viðskiptasamninga. Þannig sé
fsland gert fjárhagslega óháð
og dregið úr þvií arðráni, sem
við verðum að sæta af hálfu
auðvaldsbanka.
Jafnframt þarf að kont<a
til þjóðnýtingar, þar sem
þarfir þjóðfélagsins kalla á
hana, og þar sem hún er ó-
hjákvæmileg til þess að fram-
'kvæima stefnu þjóðfylkingar-
innar. Koma þá fyrst til
greina stærstu fiskiðjuverin
og togararnir. Þessar ráðstaf-
anir fela í sér og eru forsenda
fyrir haglegri skipulagningu
atvinnuliífsins, aukinni fram-
leiðslu, minnkandi gróða at-
vinnurekenda, stjórn bank-
anna, hag almennings, en ekki
gróðasjónarmið fyrir augum,
breytingu rikiskerfisins til
sparnaðar og bættra starfs-
hátta, upprætingu skriffinnsku
og f jármá 1 aspi 1 li ngar
★ Öll andstaða verður brot-
in á bak aftur.
.jÞað þarf að tryggja góða
stjórn ríkisfyrirtækja og sjá
til þess, að þau séu til fyrir-
myndar um allt, er til fram-
fara horfir og einnig um að-
búð verkafólks og afstöðu
til verkalýðishreyfingarinnar.
Þau verða að slíta öllu sam-
stanfi við atvinnurekendur
gegn verkafólkinu en kapp-
kosta vinsamlegt samstarf við
verkalýðssamtökin.
Loks ber brýna nauðsyn
til að gera án alls hiks þær
ráðstafanir, sem duga til
þess að hnekkja öllum til-
raunum afturhaldsafla, til
þess að koma í veg fyrir
framkvæmd þessarar
stefnu og svifta þau vald-
inu til slíkra verkh.“
A Skoðanafrelsi víki fyrir
„einingunni“
„Flokkurinn verður að gera
sér ljóst og kosta kapps um
að gerá öllum öðrum það
ljóst, að allar smærri andstæð
ur og sboðanamunur verður
að víkja fyrir hinni miklu
nauðsyn einingarinnar um
þau meginatriði, sem ein geta
tryggt, að íslenzka þjóðin
hörfi ekki aftur á bak til ó-
frelsis og niðurlægingar og
stofni tilveru sinni í voða, held
ur sæki fram til betra ldfs."
Síðar er sagt:
„En þetta er ekki sósíal-
ismi, heldur fyrsta skrefið í
þróuninni, áfangi að því
marki, sem Sósíalistaflokkur-
inn stefnir að“.
Og ennfremur segir:
„Hér hefur verið gerð grein
fyrir 'hinum þjóðfélagslegu
skilyrðum fyrir fram.kvæmd
sósíalismans á fslandi, svo
og hinum pólitísku verkefnum
flokksins og því, hvernig bar-
áttuaðferðum hans skuli hátt-
að á núverandi þróunarskeiði,
þannig að þau þjóni sem bezt
hinum sósíalistísku markmið-
um hans“.
★ Hvað verður þjóðnýtt?
Á öðrum stað í ályktuninni
segir m.a.:
„Þær greinar framleiðslunn
ar og þau fyrirtæki, sem fyrst
mundu verða þjóðnýtt, eru
þessi:
Öll utanrikisvefzlun, bæði
innflutningur og útflutningur
og allir banikar og lánastofn-
anir, ennfremur stór fram-
leiðslutæki, svo sem togarar
og önnur stórútgerð, síldar-
verksmiðjur, fiskiðjuver og
fiskvinnslustöðvar og önnur
stóriðnaðarfyrirtæki. Sömu-
leiðis verzlunarflotinn.
Öll ný stóriðjufyrirtæki,
raforkuver, hitaorkuver og
hivers bonar stóriðnaður í
sambandi við þau mundu að
sjálfsögðu vera í höndum rík-
isins. Hið sama mundi oftast
gilda um öll önnur ný iðn-
aðarfyrirtæki. Þjóðnýting á
sviði þess neyzluvöruiðnaðar,
sem fyrir væri í landinu,
mundi verða framkvæmd í
samræmi við það, sem hent-
ugast þykir á hverjum tíma
og ráðast mjög af því, hvern-
ig samvinna getur tekizt við
eigendurna.
Undir þennan lið fellur
einnig fiskiðnaður í smáum
stil“.
ýý SÍS fær að lifa undir
pólitískri stjórn.
„Hvers konar handverk eða
iðja, þar sem um enga eða litla
launavinnu er að ræða, mundi
að sjálfsögðu vera áfram í
einkaeign. Þar sem um sam-
vinnufyrirtæki á framleiðslu-
sviðinu væri að ræða, til að
mynda í iðnaði og skipaút-
gerð, getur komið til greina,
að samvinnufyrirtækin haldi
áfram að annast reksturinn í
nánu sarr.itarfi við heildar-
stjórn hinnar þjóðnýttu fram-
leiðslu og samkvæmt þeim
reglum, sem hún setur.
Hér á landi höfum við þá
sérstöðu, að ýmis stærstu fyr-
irtækin og sum þeirra, sem
mi'kilvægust eru í hagkerfinu,
eru rekin af ríkinu. Aðal-
bankaarnir eru ríkiseign, enn-
fremur allar stærstu síldar-
verksmiðjurnar og stærstu
iðnaðarfyrirtækin, svo sem
Áburðar- og Sementsverk-
smiðjan. Nokkrir togarar og
önnur fyrirtæki eru í bæjar-
eign, en þessi ríkisrekstur á
líftið skýlt við sósiíalistiska
þjóðnýtingu. Þessi fyrirtæki
eru yfirleitt sett á sixxfn með
heildarhagsmuni auðstétt-
arinnar fyrir augum og rekin
á kapitalíska visu í þjóðfél-
agi, sem í einu og ðUu er
byggt upp að hætti kapital-
ismans.
í öllum árekstrum milli
stétta eru þau á bandi ráð-
andi stéttar og oftast brjóst-
vörn hennar gegn verkafólk-
inu. Með sósíalismanum verð-
ur að formi til engin breyt-
ing á eignarhaldi þessara
staínana og fyrirtæfkj'd; en
þau gerbreyta um eðli. Þau
varða mikilvægur þáttur í
hinum sósíalistíska áætlunar-
búskap, verða að öllu leyti
í þjónustu hinnar vinnandi
stéttar og gegna engu öðru
hlutverki en því, sem er aðals
merki allrar sósíalistískrar
framleiðslu, að bæta lífskjör
þeirra, sem vinna og fram-
leiða“.
A Bankarnir munu gegna
mikilvægu hlutverki.
„Bankarnir munu gegna
sérstaklega mikilvægu hlut-
verki við skipulagningu og
stjórn áætlunarbúskaparins.
í bátaútveginum mundi
feoma til greina ýmis rekstrar-
form, svo sem bæjarrekstur,
samvinnurekstur og útgerð,
sem hin þjóðnýttu fiskiðju-
ver oig fiskvinnslustöðvar
hefðu með höndum og svo
einkarekstur, sem fyrst um
sinn mundi verða mjög stór
þáttur í bátaútgerðinni. Sama
gildir um hinar smærri fisk-
vinnslustöðvar og frystihús,
en líklegt má telja, að rekstur
þeirra yrði oftast í höndum
bæjarfélaga eða samvinnufél-
aga. Getur það hvort tveggja
feomið til greina, að eignar-
hald og rekstur fari saman,
eða hitt, að bátar eða húsa-
og vélakostur fiskvinnslu-
stöðva séu í almenningseign,
enda þótt samvinna sé um
reksturinn.
Enda þótt einkaeign og
einkarekstur verði um skeið
mjög ríkur þáttur í bátaútgerð
inni, hlýtur þróunin að stefna
í þá átt, að hann þokar fyrir
hinu fullkomnara rekstrar-
formi, félagsrekstrinum.“
A Einkaverzlunin
mun þoka um set.
„f smásöluverzluninni
mundi þrenns konar rekstr-
arflorm einnig verða hlið við
hlið fyrst um sinn, ríkisverzl-
un, samvinnuverzlun og einka
verzlun. Fyrst í stað mundi
verzlunin innanlands að lang
mestu leyti verða samvinnu-
verzlun og einkaverzlun, en
samvinnuverzlunin vinna á
jafnt og þétt og einkaverzl-
unin þok um set.
í landbúnaðinum mundi
einkareksturinn enn um nokk
urt skeið verða yfirgnæfandi.
Rífeið mundi hins vegar á all-
an hátt stuðla að frjálsu sam-
starfi og samvinnu sveitaal-
þýðunnar í æ ríkari mæli,
bæði um afurðasölu og fram-
leiðslu.
Að því er varðar afurða-
sölu og vinnslu landbúnaðar-
afurða mundi sú samvinna
í landbúnaðinum, sem þróazt
hefur í auðvaldsþjóðfélaginu
verða góður grundvöllur og
auðvelda hina stórstígu þró-
un í þessum efnum, sem al-
þýðuvöld og sósíalisllískir
framleiðsluhættir mundu haÆa
í för með sér“.
A' Samyrkjubú í stað
einkabýla.
„Á sviði sjálfs búreksturs-
ins mundi fyrsta stigið verða
samvinna um vélabost, búpen
ingshús og fleira í stöðugt rík-
ara mæli. Ríkið mundi koma
upp fyrirmyndarbúum, sem
mundu gegna miklu hlutverki
við að ryðja nýja braut í
landibúnaðinum, hafa með
höndum rannsóknir í búvis-
indum og leiðbeina bændum
með allt það, er að landbún-
aði lýtur. Á óbrotnu landi
mundu fljótt rísa samyrkju-
bú með tilstyrk ríkisins, er
einnig mundu hafa skilyrði
til að ryðja nýjar brautir og
yrðu bændum til fyrirmynd-
ar um yfirburði félagsreksturs
ins. Bændur mundu fljótlega
sannfærast um yfirburði fél-
agsrekstursins, og samyrkju-
rekstur yrði í æ rikari mæli
tekinn upp að frumkvæði
þeirra sjálfra".
Náin samvinna við
kommúnistaríkin.
Síðar segir:
„Við sósíalistisk lönd hlýt
ur að vera náin efnahagssam-
vinna, sem mundi tryggja ör-
yggi íslenzks atvinnulifs með
hagkvæmri verkaskiptingu á
framleiðslusviðinu".
Þá segir enn í þessum kafla
ályktunar innar:
„Samtímis yrði gerð alhliða
athugun á viðskiptamöguleiik-
um landsins til þess að tryggja
allri framleiðslunni öruggan
efnahagsgrundvöll. Að svo
miklu leyti sem innlent fjár-
magn hrykki ekki til, yrði
leitað lána erlendis. Náin sam-
vinna við sósíalistísku löndin
mundi meðal annars verða
fólgin í því, að þegar í upp-
hafi yrði tryggður markað-
ur fyrir afurðir nýrra stórfyr-
irtækja og framleiðslugreina
og lánin greidd með þeim.“
★ Eignarnám, „bætt“ með
„skuldabréfum“.
„Það er stefna Sósíalista-
flofeksins að kosta kapps um,
að breytingin frá auðvalds-
Skipulagi til sósíalismans geti
farið fram á sem friðsamleg-
astan hátt. Til þess áð draga
úr árekstrum, mundi fyrri
eigendum þjóðnýttra fyrir-
tækja og annarra eigna verða
greiddar skaðabætur eftir at-
vikum, miðað við það að auð-
velda þeim að samlagast hinu
nýja hagkerfi og getu þjóð-
arinnar. Mundi slík greiðsla
venjulega fara fram með
skuldabréfum".
Hefur nú verið getið nokk-
urra þátta þess fyrirmyndar-
ríkis, sem hugmyndin er að
koma á hér á landi. Morgun-
blaðið lætur lcsendur um að
dæma um það, hvort ekki sé
ástæða til árvekni, hvort ekki
sé nauðsynlegt, að kommún-
istar og þeir menn, sem nú
hafa við þá einlægt banda-
lag fái makleg málagjöld,
næst þegar kjósendur fá að
kveða upp dóm sinn.
KARLMANNA-
Dg DRENGJA-inniskór
úr VELOR.
Franskir og enskir
karlmannaskór.
Margar gerðir.
Verð frá kr. 366,00.
‘eidablil
Laugavegi 63.
Tímaritið Úrval
Desemberhefti timaritsins
ÚRVAL er komið út, einkar fjöl-
breytt að efni. — Meðal greina
má nefna: „Kjarnorka í þágu
sakamálarannsókna“ — „Hraust-
ustu hermenn heims“ — Könnun
á heila lifandi manna“ — „Sann-
leikurinn um krabbamein og
vindlinga" — „MorS innan fjöl-
skyldunnar" — „Sannleikurinn
um Moby Dick“ — „Hin dular-
fulla reikistjarna, Plútó“. — —
Úrvalsbókin er „Læknir land-
nemanna" eftir Robert Tyre og
einnig má nefna fasta þætti svo
sem „Má ég kynna, Svona er lífið
og „Ógleymanlegur maður“ sem
Helgi P. Briem ambassador skrif-
ar um Vilhjálm Stefánsson.
Tímaritið er um 200 blaðsíður
í mjög vönduðum búningi og
kostar kr. 25,- heftið og hefur
verð þess haldizt óbreytt þótt
önnur blöð hafi nýlega hækkað.
Ingi Ingimundarsort
héraðsdómslögmaður
nálflutningur — lögfræðistörl
Ciarnargötu 30 — Simi 24753-
Dúkadamask
Höfum fengið hvítt damask
í matardúka í breiddum 130 og 150 cm.
Einnig stakar serviettur.
Martelnri
Fata- & gardínudeild
Einarsson & Co.
Laugavegi 31 - Sími 12816
Hefi opnað lækningastofu að
Hverfisgötu 50
Viðtalstími mánudaga, þriðjudaga, fimmtu
daga og föstudaga kl. 6—7 og miðvikudaga
kl. 2—3 e.h.
ÓLAFUR ÓLAFSSON, læknir.
Sími 17474 og 18888.