Morgunblaðið - 09.12.1962, Side 24
H1 BÝLAPRÝDI HF
Hallarmúla aíml 38 177
Búið að leyfa 20
hrennur á
gamlárskvöld
M ORGUN BLAÐIÐ sn-eri sér í
gær til Erlings Pálssonar, yfir-
lögregluþjóns, til þess að leita
frétta af brennuundirbúningi fyr-
ir gamlárskvöld.
20 umsóknir, sem hafa borizt,
'hafa verið samþykktar af löig-
reglu og slökkviliði. Þetta er
minna en verið hefur undanfar-
ið, en því virðist valda að heldur
er hörgull á brennuefni.
Þó taldi Erlingur líkur á að
nmsáknunum mundi mikið
fj öSga upp úr miðjum mánuðin-
inum, þegar búið vaeri að taka
upp allan jólavarning í verzl-
ununum. Allmargir hafa snúið
sér til lögreglunnar, en þegar
þeir hafa verið spurðir hvort
þeir hefðu nokkurt efnd á ta‘k-
teinuim, kváðust þeir aðeins
treysta því, að þeir gætu orðið
sér úti um það.
Áfengi og „kínver j-
ar“ gert upptækt
í VIKUNNI fannst nokkur
smyglvarningur í ms Arnarfelli.
116 flöskur af áfengi voru gerð-
Br upptækar og enn fremur
nökkurt magn af vindlingum. Þá
tóku tollverðir tvo kassa af
„kínverjum“, sem skipverjar
voru að bera í land að næturþeli.
„Kínverjarnir" voru af ómerki-
legri gerð á við gildan blýant,
©g tuttugu þús. talsins.
Maður á sundi í
Hafnarfj.höfn
AÐFARANÓTT föstudags var
lögreglunni í Hafnarfirði til-
kynnti að drukkinn maður hefði
farið í höfnina. Lögreglan fór á
staðinn, og var maðurinn þá á
sundi í höfninni. Lögreglumenn
tóku trillu og héldu í áttina til
mannsins, en þegar hann sá bát-
inn nálgast, synti hann að stór-
um vélbát við bryggjuna. Voru
þar komnir félagar hans, og
drógu þeir sundmanninn upp.
Tekur við ráðu-
neytisstjóraem-
bætti á ný
ÞÓRHALLUR Ásgeirsson, sem
undanfarin 4 ár hefur starfað
sem fulltrúi Norðurlanda í stjórn
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Was-
hington, hefur á ný tekið við
starfi ráðuneytisstjóra í við-
skiptamálaráðuneytinu.
Dr. Oddur Guðjónsson, sem
gegnt hefur störfum ráðuneytis-
stjóra í viðskiptamálaráðuneyt-
inu síðastliðið ár, hefúr verið
skipaður viðskiptaráðunautur
ríkisstjórnarinnar og mun hann
einkum fjalla um viðskipta-
samninga og mál, er þá varða.
Jónas H. Haralz, forstjóri Efna
hagsstofnunarinnar, sem undan-
farið hefur starfað sem ráðu-
nautur ríkisstjórnarinnar í mark
aðsmálum Evrópu, lætur nú af
því starfi.
w (Frétt frá ríkisstjórninni).
Unddrbúningur byrjaði annars
óvenju snemma í ár, þvi þegar
í október var farið að hlaða
upp fyrstu bálkestina.
Að iokum spurðum við Erldng
hvernig menn ættu að haga sér
til þess að fá brennuleyfi.
— Það þarf aðeins að hringja
á skrifstofu mína, í síma 14819.
Ég læt svo Stefán Jóhannsson,
varðstjóra, hafa þær umsóknir
sem berast,' og hann fer á stað-
inn ásamt slökkviHðsmanni og
athugar allar aðstæður.
Oftast er um að ræða staður,
sem hefur verið notaður áður,
en ef byggðin hefur þrengt að
staðnum þarf stundum að færa
bálköstin til, og stundum verða
þeir að velja alveg nýjan stað.
Lögreglan fylgist svo með á
hverjum degi hvort einhverjir
bálkestir séu hlaðnir í óleyfi, eða
hvort þeir séu hlaðndr öðru vísi
en um var samið í upphafi. Þeir
athuga líika hvort einhver eld-
fim efni eins og bensin eða ann-
að slíkt, séu hjá brennunum,
því það er það sama og að bjóða
einhverjum prakkaranum að
kveikja í þeim fyrir tímann,
auk slysahættunnar, sem af því
stafar.
Loks er rétt að geta þess,
að engin brenna er leyfð, nema
einhverjir fullorðnir hafi lofað
að fylgjast með gangi málanna
og hafa umsjón með henni.
— Hvar verða svo stærstu
brennurnar í éir?
— Það verður stóra brennan
á Klambratúni, sem bærinn sér
um, og önnur inni 1 Laugardal
hjá Þvottalaugavegi á vegum
íþ rót tabanda 1 ags ins. Svo hafa
alltaf verið stórar brennur á
Ægissíðunni, og ég býst við að
það verði eins núna.
Kópur sjósettur
Akranesi, 8. des.
KEFLAVÍKURBÁTURINN Kóp-
ur, sem smíðaður hefur verið
upp og lengdur um 3,3 metra í
Dráttarbraut Akraness, verður
sjósettur í dag. Nýr er hann 92
tonn, en áður 60. í Kóp er ný-
leg 360 hestafla Lister diesel-vél.
Báturinn er eign Hraðfrysti-
stöðvar Keflavíkur (Einars Sig-
urðssonar). Báturinn er búinn
öllum fullkomnustu öryggis- og
fiskileitartækjum. Kópur fer til
síldveiða í byrjim vikunnar. Er
hér um glæsilegt skip að ræða.
— Oddur.
Ólafur Thors.
Kiemmdist milli
bíla á Hringbraut
Hlaut opíð beiubrot á fæti
NOKKRU fyrir kl. 7. í gær-
kvöldi, laugardagskvöld, varð
það slys á Hringbraut við Syðri-
Tjömina, að maður, sem þar var
að gera við sprunginn hjólbarða
á bíl sínum við ljós frá öðram
bíl fyrir aftan klemmdist milli
bílanna er þeim þriðja var ekið
á þann, sem lýsti. Hlaut maður-
inn opið beinbrot á fæti auk
annarra meiðsla.
Samkvæmt því sem Mbl. fregn
aðd í gærkvöldi voru nánari at-
vifc sem hér segir:
Á hægri hekningi afcbrautar-
innar stóð bíllinn R 7098 og var
ökumaður bílsins, Jón Pétursson,
Skúlagötu 68, að lyfta bílnum að
aftan með „tjakk“, en einn hjól-
Stjórnarkjör í
Sjómannafélaginu
STJÓRNARKOSNING stendur
nú yfir í Sjómannafélagi Reykja
víkur. Kosið er í skrifstofu
félagsins i Alþýðuhúsinu í dag
frá kl. 2—7 siðd. og eftirleiðis
daglega frá kl. 3—6 eL. — Listi
I lýðræðissinna er A-listinn.
Aðalfundur
fulltrúaráðsins
í Kópavogi
AÐALFUNDOR fulltrúaráðs
Sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi
verður haldinn í dag, og hefst
kl. 2 e.h. í Sjálfstæðishúsinu við
Borgarholtsbraut.
Ólafur Thors, forsætisráðherra,
mætir á fundinum og flytur
ræðu um stjórnmálaviðhorfið.
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa verða kosnir fulltrúar í
kjórdæmisráð.
barðanna hafði sprungið. Fyrir
aftan R 7098 stóð annar bíll K
449 og lýsti Jóni við verkið.
Eftir Hringbrautinni kom
þriðji bíllinn, og að því er talið
var í gærkvöldi var ökumaður
'þess bíls að aka framúr bíl, Og
var því á bægri helimingi ak-
brautarinnar. Skipti engum tog-
um að bíll þessi rakst á K 449,
og kastaðd honum aftan á R 7098
með þeim afleiðingum að Jón
varð á milld. Var vélarhlíf K
449 töluvert dælduð eftdr höiggið.
Jón hlaut opið beinibrot á fæti
og önnur meiðsli. Var hann flutt-
ur í Slysavarðstofuna og síðan
í Landaikotsspítala.
Landlega lijá
Akranesbátum
Akranesi, 8. des.
AFLEITAR gæftir hafa verið
hjá trillum hér og þá sjaldan að
þær hafa róið, hefur lítið sem
ekkert fiskazt.
Heimaskagi bilaði í gær er
hann átti eftir 20 sjómílna sigl-
ingu heim. Vélbáturinn Ásmund
ur fór út og dró hann til hafnar.
Landlega er í dag hjá bátum
hér. Fjórir bátar, sem fóru út í
gærmorgun, komu heim seint í
gærkvöldi.
Danska skipið Irene Frijs los-
ar hér 400 tonn af salti. Tungu-
foss kom hingað í dag með vör-
ur til Sementsverksmiðjunnar og
útgerðarmanna. — Hér er nú ís-
ing og flughálka hvar sem stig-
ið er. — Oddur.
Stefnis-bingó
HAFNARFIRÐI. — Stefnir, fé-
lag ungra Sjálfstæðismanna, held
ur leikfangabingó í Sjálfstæðis-
húsinu í dag og hefst það klukkan
4. Þar verður á boðstólum mikið
úrval af girnilegum leikföngum.
Allir eru velkomnir á bingóið
meðan húsrúm leyfir.
36 daga í
fönn
Kirkjubæjarklaustri 8. des.
NÁLÆGT Heiðarseli á Síðu
fannst nýlega ær í fönn, þar
sem hún var búin að vera í
36 daga, því að hana mun hafa
fennt í bylnum mikla aðfarar
nótt 29. október sl. Þetta var
gömul ær og illa útlítandi eins
og vænta mátti eftir allan
þennan tíma. Samt var hún
ekki máttfarnari en svo að
hún gat gengið og fór strax
að bíta er hún kom úr skafl-
inum. Ærin er í eigu Harðar
Kristinssonar, bónda að
Hunkuibökkum. J
— G. Br. I
Vinnu lýkur í
Hvalstöðinni
Akranesi, 8. des.
25 STARFSMENN hættu vinnu
nú um helgina í Hvalstöðinni I
Hvalfirði. Er nú búið að undir-
búa stöðina fyrir næstu vertíð,
nema hvað sex menn starfa þar
enn um tíma við að koma í lag
bílum Hvalstöðvarinnar.
— Oddur.
Eldhraunsvc"ur
fær
Kirkjulbæjarklaustri 3. des.’’
EINS og áður hefur verið skýrfc
frá varð vegurinn yfir Eldihraun-
ið í Skaftafellssýslu ófær vegna
vatnagangs. Viðgerð er nú lokið
Og hófust bílferðir um veginn j
dag.
— G. Br.
Aðalfundur
Oðins í dag
AóALFUNDUR Málfundafélags-
ins Óðins verður haldinn í
Sjálfstæðishúsinu í dag kl. 2 e.h.
Á fundinum fara fram venjuleg
aðalfundarstörf, en auk þess
verða bornar fram tillögur til
lagabreytinga. Önnur mál. Óðins
félagar eru hvattir tU að fjöl-
menna á fundinn.