Morgunblaðið - 11.12.1962, Blaðsíða 2
^ 2
MORGVTSBIAÐIÐ
Þriðjudagur 11. desemb'er 1962
Sjóorusta sett á
svið fyrir Eirík
Sal hóf togaraskipstlóra
í Grímsby
ElRfKUR Kristófersson, skip-
herra, kom heim með togaranum
Þormóði goða sl. sunnudag, en
Eiríkur fór í heimsókn til Bret-
lands í hoði Barry Andersons,
kapteins, svo sem kunnugt er.
Fréttamaður Mbl. hitti Eirík
Kristófersson að máli á heimili
hans í gær og ræddi við hann
um Bretlandsferðina.
— Það er nú svo sem ekki frá
miklu að segja, sagði Eiríkur.
— Ég fór með Russel héðan á
hádegi 27. nóv. Á leiðinni tóku
skipverjar sjóprufur hér og þar.
Á milli Færeyja og fslands var
stoppað til þess að sýna mér
hvernig sjóorusta færi fram. Þar
mættum við Palliser og mikil or-
usta var sett á svið. ímynduð
voru fleiri herskip, fjórir kaf-
bátar og Queen Mary. Þessi æf-
ing tók um 5 tíma og að henni
lokinni var haldið SA á bóginn,
framhjá Færeyjum, milli Orkn-
eyja og Shetlandseyja og austur
í Norðursjó. Þar fóru fram skot-
æfingar og djúpsprengjukast.
Síðan var haldið til hafnar í
Rosyth í Skotlandi. Þar tók And
erson á móti mér, og þar voru
mættir blaðamenn og ljósmynd-
arar, og menn frá sjónvarpinu.
Tóku þeir myndir um borð í
Russel og einnig af siglingu báts-
ins til lands. Ekki var minnzt á
landhelgina við mig.
— Er í land kom fórum við
á skrifstofu Andersons. Þar var
einnig fyrir fjöldi blaðamanna
og ljósmyndara. Ekki talaði ég
mikið við blaðamennina, en þeir
fengu í hendur blað- með upplýs-
ingum um helztu atriði ferils
míns í landhelgisgæzlunni.
— Þá sýndi Anderson mér
birgðastöðvar flotans, viðgerða-
verkstæði og margt fleira. Þá
fór næsti maður hans með mér
í matsal yfirmanna á staðnum
um hádegisbilið, og litlu síðar
kom Anderson þangað. Þar var
drukkin skál áður en matazt
var ,og voru þarna margir yfir-
menn saman komnir.
— Eftir hádegisverð fór And-
erson með mig til þess að skoða
hina miklu brú, sem verið er að
byggja yfir Forth-fjörðinn. Er
þetta gífurlega mikil hengibrú.
Við fórum upp í annan brúar-
stöpulinn í lyftu, en hæð hans
er 512 ensk fet, og brúarhafið
er 1 kílómeter. Var mikið út-
sýni og fagurt af stöplinum. —
Síðar um daginn skoðuðum við
ýmis skip og fleira.
— Heim til Andersons komum
við kl. 4 síðdegis, og tók kona
hans á móti okkur. Anderson
býr fyrir utan Edinborg, í stóru
húsi, sem byggt var sem sjúkra-
hús í heimsstyrjöldinni fyrri.
Býr Anderson á efri hæð húss-
Colombo, Ceylon 10. des.
(AP)
í DAG hófst I Colonr.bo ráð-
stefna sex Afríku og
Asíuríkja um landamæra-
deilur Indverja og Kínverja.
Ætla fulltrúarnir á ráðstefn-
unni að freista þess að finna
friðsamlega lausn deilunnar,
sem þeir telja ógn við heims-
friðinn. Samþykkt var á fund-
inum í dag, að ríkin sex kæmu
ins en á neðri hæðinni er lög-
regluskóli. Húsið tilheyrir flot-
anum.
— Daginn eftir fórum við í bíl
til þess að skoða Edinborg og
næsta dag fór ég til Grimsby til
þess að heimsækja minn gamla
vin Þórarin Olgeirsson. Fékk ég
þar höfðinglegar viðtökur. Á
mánudaginn fór ég með Þórarni
að hitta ýmsa útgerðarmenn, sem
vildu heilsa upp á mig, en um
kvöldið sat ég boð togaraskip-
stjóra í Grimsby í klúbb þeirra.
Var ég þar í góðu yfirlæti.
— þriðjudagsmorguninn fór
ég til London ásamt Þórarni. Þá
var þokan mikla skollin á og
spillti hún mjög fyrir. Hún var
svo slæm að það var varla hægt
að hreyfa sig, skyggnið ekki
nema ca 5 metrar. Þetta var eins
Varð bráðkvaddur
SÁ sviplegi atburður varð í gær-
morgun, þegar sjópróf áttu að
hefjast í strandmáli ms Esju, að
loftskeytamaður skipsins, Sverrir
Smith, varð bráðkvaddur. Var
réttarhaldi frestað af þeim sök-
um.
Sverrir sat frammi á gangi
ásamt fleiri skipsfélögum sínum,
þegar hann hraut skyndilega úr
sæti sínu og féll á gólfið. Hann
rankaði þó skjótt við sér og var
hjálpað á fætur. Hafði hann þá
fengið blóðnasir. Sverrir fór síð-
an til snyrtiherbergis til þess að
þvo framan úr sér, en þegar þang
að kom, steyptist hann aftur í
gólfið. Var þá hringt eftir sjúkra-
bíl, sem kom að vörmu spori og
flutti Sverri í Slysavarðstofuna.
Þegar þangað kom, var hann lát-
inn.
Sverrir var um sextugt og hafði
starfað lengi í þjónustu Skipaút-
gerðar ríkisins.
Á BÓKAUPPBOÐI Sigurðar
Benediktssonar í Þjóðleikhús-
kjallaranum kl. 5. e.h. í dag
verða m.a. Jarðabók Árna Magn-
ússonar og Páls Vídalín, allar
bækur Þorvalds Thoroddsen.
Af öðrum bókum mætti nefna
m.a. útg. Bókmenntafél. á Bisk-
upasögum, 1. og 2. bindi, fyrstu
63 árganga Andvara, Sunnan-
fara I-XIII, Sýslumannaævir
Boga Benediktssonar, fyrstu 12
bindi íslenzks fornbréfasafns, Is-
lands Kortlægning, Blöndu, Safn
til sögu fslands, 1.—6. bindi og
Stuttan Siðalærdóm fyrir góðra
ekki fram sem dómarar held-
ur leiðbeinendur. Þau skyldu
gera sér far um að rannsaka
deilur Indverja og Kínverja
ofan í kjölinn og verða til
ráðuneytis um lausn hennar,
ef þess væri óskað.
Ríkin sex, sem að ráðstefn-
unni standa eru: Arabíska
sambandslýðveldið, Burma,
Ceylon, Cambodia, Ghana og
Indónesia.
og í gömlu eldhúsunum, reykur
og sót svo mig sveið í augu og
nef. Hendrik Björnsson, sendi-
herra, ók með mig um borgina.
Komum við m. a. í St. Pálskirkj-
una, en þar inni var einnig svo
mdkil þoka að allir hlutir sáust
ógreinilega.
— Frá London hélt ég aftur til
Grimsby síðari hluta þriðjudags,
og fór þaðan með Þormóði goða
rétt fyrir miðnætti.
— Þú ert ánægður með ferð-
ina?
— Já, en þokan eyðilagði mik-
ið fyrir mér. Ég vil nota tæki-
færið og þakka kærlega Þórarni
Olgeirssyni, Hendrik Björnssyni
og síðast en ekki sízt Anderson
fyrir höfðinglegar móttökur. Svo
og Snell skipstjóra á Russel og
skipshöfn hans.
— Loks vildi ég gjarnan
leiðrétta misskilning, sem fram
kom í viðtali við Anderson, og
birtist í Mbl. Ég vil taka það
fram að við Andersón hittumst
aðeins tvisvar á meðan hann var
hér við land. 1 fyrra skiptið var
það er við settum mennina um
borð í Norðhern Foam, og það
sem okkur fór á milli þá er til
á segulbandi í útvarpinu, en
fréttamaður þess var með okk-
ur. Síðari fundurinn var snemma
í janúar. Þá bað Anderson mig
að koma um borð til sín tH þess
að ræða um hvernig afstýra ætti
veiðarfæraskemmdum hér við
land. Þau loforð, sem hann gaf
mér þá í því sambandi, hélt hann
með prýði, enda hafa aldrei orð-
ið jafn litlar veiðarfæraskemmd-
ir af völdum útlendra togara og
þennan vetur.
— Eins vil ég taka fram, sagði
Eiríkur að lokum, — að ekki er
rétt að minnzt hafi verið á að ég
ætlaði að aðstoða Breta við tund
urduflaslæðingar hér. Anderson
sagði aðeins að samningar stæðu
yfir um að slætt yrði hér á næsta
hausti í Seyðisfirði og Eyjafirði
og hann mundi æskja aðstoðar
Landhelgisgæzlunnar.
Manna Böm, Leirárg. 1799. Bæk
urnar verða til sýnis frá 10—4.
Góð gjöf þökkuð
ÉG undirritaður hefi tekið á móti
tíu þúsund krónum — gjöf frá
ónafngreindum vini — til drengs
ins Einars Sævars og móður hans.
Ég færi hér með gefandanum inni
legustu þakkir fyrir mína og
þeirra hönd.
Þórarinn ögmundsson.
Til skýringar skal þess getið
að 4. maí s.l. fórust þrír ungir
menn á trillu við Reykjanes. Á
bátnum voru tveir bræður Einar
og Sævar Þórarinssyni. Einari
fæddist um svipað leyti sonur
og var honum gefið nafn og
heitinn eftir föður og frænda,
Einar Sævar. Þórarinn Ögmunds-
son er móttók hina ónafngreindu
gjöf er faðir piltanna er fórust.
Hraunprýðis-
fundur
HAFNARFIRÐI. — Jólafundur
Slysavamadeildarinnar Hraun-
prýði er í Sjálfstæðishúsinu í
kvöld og hefst kl. 8,30. Þar verð-
ur framleitt kaffi og fjölbreytt
skemmtiatriði fara fram, svo sem
söngur, upplestur og fleira.
Ilraunprýðiskonur eru beðnar að
! fjölmenna og taka með sér gesti.
Sex ríki ræða
landamæradeilur
Jorðnbók flrnn Magnnssonor
ó bóknuppboði Sig. Ben. í dag
Sveinbjöm Hannesson.
SveinbjÖrn
Hannesson
formaður Oðins
SUNNUDAGINN 9. þ.m. hélt
Málfundafélagið Óðinn aðal-
fund sinn í Sjálfstæðishúsinu.
Fyrir fundinum lágu venjuleg
aðalfundarstörf ásamt lagabreyt
ingum. Fundurinn var mjög fjöl
mennur, og miklar og snarpar
umræður um málefni félagsins.
Fundurinn gat ekki lokið störf-
um, og verður því boðaður fram
haldsfundur svo fljótt sem auðið
er. í féilagið gengu 56 nýir fé-
lagar.
Stjórn félagsins skipa:
Sveinbjörn Hannesson, forrnað-
ur, Pétur Sigurðsson, varaformað
ur, Jóhann Sigurðsson, ritari, og
Valdimar Ketilsson gjaidkeri.
Meðstjórnendur:
Friðleifur Friðriksson, Þor-
steinn Kristjánsson og Guð-
mundiur Sigurjónsson.
Dregið um millj-
ónina í gær
í GÆR var dregið í Happdrætti
Háskóla íslands um 3150 vinn-
inga að upphæð samtals 7.890.000
kr. Hæsti vinningurinn, ein millj.
króna, leom á hálfmiða nr. 47092,
selda í Sandgerði og Hafnarfirði.
Sá, sem átti hálfmiðann í Sand-
gerði, er ungur maður, kvænt-
ur og á tvö börn. Hann átti miða
í röð og hlaut báða aukavinning-
ana. Fær hann því alls 550.000
kr. Hann á ekki íbúð og hafði
orð á því í gærkvöldi, að hann
hefði helzt hug á að bæta úr
því og leggja jafnvel í bílakaup.
— 200 þús. kr. vinningur kom
á heilmiða, 30479, seldan í um-
boði Guðrúnar Ólafsdóttur í
Reykjavík. 100 þús. kr. vinning-
ur kom á hálfmiða nr. 43624,
seldan á Seyðisfirði.
Mislinga-
faraldur
MISLINGAFARALDUR geng
ur nú um bæinn. Skv. upp-
lýsingum skrifstofu borgar-
læknis er vitað um allmörg
tilfelli sjúkdómsins. Ekki er
vitað til þess, að mislingar
séu neitt sérstaklega skæðir í
þetta skipti, en eins og kunn-
ugt er, ganga mislingar venju-
lega á tveggja ára fresti a.m.k.
Skarlatssótt hefur stungið
sér niður á stöku stað, en alls
ekki er hægt að tala um neinn
farald.
Oveður
vík um
Húisavík, 10. desember.
UNDANFARIÐ hefur tíð verið
hér mjög stirð, þótt stórviðri
hafi ekki verið fyrr en aðfara-
nótt sunnudags, þegar stórhríð
var hér. Fylgdi veðrinu þó nokk-
uð mikið brim. f þessu veðri
urðu þeir skaðar, að ein fjög-
urra tonna trilla, Kristinn, eign
aðkomumanns hér, dró legufær-
in út úr höfninni, og rak hana
síðan á land suður undir Hauka
mýrum. Brotnaði hún þar í
tvennt, svo að hún er gjörónýt.
Vél og dýptarmæli hefur verið
bjargað, þó eitthvað skemmdu.
Ekið á Renault
árgerð 1962
SL. sunnudagskvöld skrapp öku-
maður bifreiðarinnar Y—284 í
kvikmyndahús í Reykjavík og
lagði bifreiðinni á stæði í Lækj-
argötu norðan við innkeyrslu
BSR.
Bifreiðin er Renault, árgerð
1962, kremlituð. Þegar maður-
inn kom aftur hafði verið ekið
á framhurðina og hún dælduð.
Rauður litur sást í dældinni.
Áreksturinn hefur gerzt á miUi
klukkan 9 og 11 á laugardags-
kvöld.
Sá sem er valdur að þessu og
jafnframt sjónarvottar eru beðn-
ir að gefa sig fram við rann-
sóknarlögregluna sem fyrst.
á Húsa-
helgina
— Engar aðrar skemmdir urðn
hér.
Áætlunarbíllinn á leiðinni fná
Akureyri, sem fór tvær ferðir
á laugardag, fékk gott veður í
fyrri ferðinni og var ekki nema
þrjá tíma frá Akureyri og hing-
að. í seinni ferðinni, sem hann
fór frá Akureyri kl. 19, lenti
hann í blindistórhríð á Vaðlaheiði
og alla leiðina eftir það. Var
hann átta tíma á leiðinni, þótt
snjór væri ekki til fyrirstöðu,
heldur eingöngu veðrið. Með
bílnum voru allmargir farþegar,
mest megnis kvenfólk.
Jólafundur Hús-
mæðraféla^sins
HÚSMÆÐRAFÉLAG Reykjavík-
ur heldur sinn árlega jólafund
kl. 8,30 næstkomandi fiimmtudag
í Lídó.
í upphafi fundarins talar séra
Jónas Gíslason, en síðan verður
fluttur fróðleikur um ýmislegt
varðandi jólaundárbúninginn,
m.a. sýnir blómaskreytingarmað
ur frá Alaska einfaldar skreyt-
ingar. Veizlustöðin og Síld og
fiskur sjá um jólaborðið. Þá
verða tH sölu uppskriftir af hvers
kyns mat, kökum og ábætisrétt-
um. Allt annað fá konur endur-
gjaldslaust og eru velkomnar á
meðan húsrúm leyfir.
Bílvelta í hálku nyrðra
AKUREYRI, 10. des.
f HINU rysjótta veðri að undan-
förnu hafa orðið nokkrar sam-
göngutafir, ekki þó vegna snjóa-
laga heldur vegna veðurs. Á það
einkum við á austurleiðinni héð-
an. Norðurleið hf. hefur haldið
uppi samgöngum milli Reykja-
víkur og Akureyrar þrisvar í
viku, og hafa bílarnir venjulega
verið komnir hingað um kl. 21.
Næstu daga mun Norðurleið hf.
fara á hverjum degi milli Akur-
eyrar og Reýkjavíkur og fram
að jólum. Mikil hálka hefur ver-
ið á vegum á Akureyri og í ná-
grenni. Hefur það orsakað smá-
slys og sums staðar allstóra
árekstra. Kl. 22 í gærkvöldi valt
t.d. bifreið á Moldhaugnahálsi og
skemmdist hún mjög mikið. í
bílnum voru 4 menn, og sakaði
þá ekki.
— St. E. Sig.