Morgunblaðið - 11.12.1962, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 11.12.1962, Qupperneq 15
Þriðjudagur 11. desemUer 1962 MORGUNBLAÐIÐ 15 StefánG. Þormar AÐ MORGNI 3. þ. m. lézt í sjúkrahúsinu á Egilsstöðum Stefán Guttormsson Þormar frá Geitagerði í Fljótsdal, hálf átt- ræður að aldri. Stefán var fæddur á Eiðum 12. ágúst 1887, sonur Guttorms Vig- fússonar skólastjóra og síðar alþingismanns, og konu hans, Sigríðar Sigmundsdóttur, stúd- ents Pálssonar, bónda á Ljóts- Stöðum í Skagafirði. Vorið 1894 fluttust foreldrar Stefáns frá Ströna í Skógum að Geitagerði í Fljótsdal. Þar ólst Stefán upp til fulltíða aldurs, í hópi margra systkina Rúmlega tvítugur að aldri tók Stefán að leita sér náms utan heimilisins. Við Eiðaskóla stund- aði hann nám veturinn 1908/9 og á Seyðisfirði næsta vetur í skóla, sem Hákon Finnsson hélt þá þar. Nokkru síðar sigldi hann til Danmerkur og var árlangt á stórbúi á Falstur til að kynna sér danskan landbúnað. TJT Danmerkurförinni hvarf Stefán heim aftur að Geitagerði til foreldra sinna og vann á búi þeirra þar til faðir hans lézt í árslok 1928. Síðan vann hann að búi í Geitagerði með Vigfúsi, bróður sínum, sem ábúð tók á jörðinni eftir foreldra þeirra. Stefán var áhugamaður um búskap, einkum hafði hann mik- inn áhuga á ræktun sauðfjárs og glöggt auga fyrir þrifum þess. Hafði hann og að mestu á hendi alla umsjón þess og gæzlu þess á vetrum. Hestamaður var hann einnig og átti góða reiðhesta. — Áhuga sinn og alúð batt hann við heimilið og búskapinn í Geitagerði alla tíð. Stefán var meðalmaður á vöxt, vel á sig kominn að áliti og atgervi. Hann var glaður og ræðinn. Þar var aldrei dauflegt aem Stefán var annarsvegar, hvort sem var í einmæli eða fleiri saman. Talsvert miseldri var okkar Stefáns. Ég kynntist honum í nppvexti og einnig eftir að hann var fullmótaður. öll mótuðust kynni okkar af samúð og hlý- leik. Feður okkar höfðu alizt upp í Fljótsdal samtímis, og höfðu bundizt vdnaböndum, enda fiákomnir að frændsemi. Stefán bar nafn föður míns og það var eérstök taug okkar í milli í allri kynningu okkar og viðskiptum. Með Stefáni Þormar er horf- tnn af sviði lífsins góður dreng- «r og eftirminnilegur. Fráfall hans vekur söknuð og trega ná- kominna ættingja, frænda og vina, og allra sem höfðu af hon- um náin kynni. Halldór Stefánsson. — Með Valtý Framh. af bls. 6. hans og vandvirkni sýnir, hvert komast má. Ritað er um danskt og íslenzkt lundarfar, leiklist o.fl., og það kröftuglega undirstrikað, að allt, sem er list, það lifir. Þá les ég með athygli minn- ingarnair um hinn fyrsta safnara íslenzkra listaverka, um framtaks semi hans, áhuga og dugnað, ást hans á list og listrænni fegurð. Ég dáist að áræði og kjairki hins stórvirka manns. Valtýr getur skrifað um alit, getur t.d. leiðst út í músíkalskar hugleiðingax í viðtali við unga stúlku, sem telur sér það jafn eðlilegt að leika á hljóðfæri eins og að gangíu Þá er lýsing á blaðamemnsku Einars H. Kvaran og fróðlegur kafli, er nefnist „Sólarhringur við Morgunblaðið“, ritaður fyrir 24 árum, og þar lýst hinu skipu- lagða annríki. Er hér skemmti- lega sagt frá margþættu starfi þeirra, sem sjá um, að Morgun- blaðið veki menn af svefni. öll er bók þessi hin vandaðasta, prýdd mörgum myndum, frá- gamgur allur og prentim í bezta lagi. Síðasti kafli bókarinnar er um nótt á Þingvöllum, er hátíðin var haldin 1930. Bókin endar með þessari setningu: Hátíðin er að byrja. Mér hefir verið það sönn ánægja að lesa þessa bók og heilsa þar góðum vintun. Ég er viss um, að við lestur þessarar bókar komast menn hið bezta skap, og segja oft, er þeir le9a hina ýmsu kafla: Hátíð- in er að byrja. Bj. J. Guðmiindur Eyjólfsson Fæddur 1. ágúst 1876. Dáinn 30. nóvember 1962. Æskuvor að Á á Síðu Lenti þessi vinur minn. Lengi brátt í ljúfu ag stríðu l'étti smaladrengurinn. Ungan heim að Brekkum bar Bæ með konu reisti þar. Sambúðin var sómi beggja. Sögu reifa var þá létt. Iljaði mörgum innan veggja alúð þín og handtak þétt. Þó að örbirgð þrengdá sveini þá var gesti veittur beini. Ýmsar raunir að þér hnigu ungra barna er misstir sár. Áfram þungu árin si'gu, eljan jöfn þó gisni hár. Öilu lífi að þú hlúir og á mátt hins góða trúir. Oft við náttfall aftan kyrrðar, afli heyja er bóndans raun, axlaðir þínar ævibyrðar, enda hlauzt þú sigurlaun: manndómsríka og merka sonu, mannhylili og virta konu. Árum saman sat í myrkri sæmdardrengur: Guðmundur. Handllék nál í hendi virkri, hann var að sauma ábreiður, til að bjarga búi ef giæti. Breitt var yfir stakk og sæti. Nú er stirnuð höndin haga. Hljótt er yfir bæ í Steig. Trúmennsku og dygigð um daga Drottánn sjálfur bindiur sveig. Á. Guðs-vegum aftur sjónin ykkur gleðji sænjdarhjónin. Einar J. Eyjólfsson. Jólahreingerning Tökum að okkur jóla- hreingerningar. — Fljót og vönduð vinna, helzt stór verkefni, t. d. skólar, sjúkra- hús og félagsheimili. Tilboð sendist afgr. Mbl., merkt: „Ódýrt — 3052“. ATLAS Crystal Kiny ÞEIB EBU KONUNGLEGIB! i( glæsilegir utan og innan hagkvæmasta innrétting, sem sézt hefur: stórt hrað- frystihólf með sérstakri ..þriggja þrepa“ froststill- ingu, 5 heilar hillur og grænmetisskúffa, og í hurð inni eru eggjahiUa, stórt hólf fyrir smjör og ost og 3 flöskúhillur, sem m. a. rúma pottflöskur if sjálfvirk þíðing i( færanleg hurð fyrir hægri eða vinstri opnun ★ nýtízku segullæsing i( innbyggingarmöguleikar i( ATLAS gæði og 5 ára ábyrgð * eru þó LANG ÓDÝBASTIB Ennfremur ATLAS Crystal Queen og Crystal Prince. Góðir greiðsluskUmálar. Sendum um aUt land. 1ÖNIX Q. KORNERUP-HANSEN Sími 12606 — Suffurgötu 10. Verzlunarfólk Verzlunármannafélag Reykjavíkur efnir til félags- fundar í Iðnó, fimmtudaginn 13. des. n.k. kl. 21.00. Bætt verður um framkomna tillögu um lengingu afgreiðslutíma verzlana. Verzlunarfólk er hvatt tii að mæta vel og stundvíslega. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur. • ••o 'u*-* Eiginmenn léttið konunni heimilsstörfin með því að gefa henni Progress hrærivél fyrir jólin. Þær eru sterkar og öruggar. Æ9' fú. VESTUBGÖTU2 IAUGAVEGIK) 6IMI20900 JÚLAGJÖF HEIMILISINS HEIMILISTRYGGINGAR M BRUNABÓTAFÉLAG ÍSLANDS LAUGAVEGI 105 SÍIVll 24425 Tryggingin kostar miðað við að verðmæti innbúsins sé 100.000 kr.: í steinhúsi ....................... kr. 300,00 í timburhúsi....................... kr. 500,00 Arður ársins við endurnýjun Óska hér með að kaupa heimilistryggingu. Verðmæti innbús tel ég vera kr................. .............................................. Nafn ..............•••••••*•••••••••••••••••••••••••••••••••••»•# Heimilsfang Sími Sendið beiðnina til aðalskrifstofunnar eða næsta umboðsmanns.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.