Morgunblaðið - 19.12.1962, Blaðsíða 24
Sementsnotkun innanlands virðist vaxandi
hvert tonn af venjulegu sementi
og 123 sh. eða 741,87 kr. fyrir
hvert tonn af harðharðnandi sem
enti.
Alls hefur verksmiðjan flutt 40
þús. tonn út og fengið fyrir það
um 25 millj. kr. brúttó í erlend-
um gjaldeyri, þar af tæp 18 þús.
tonn í ár og um 20 þús. tonn 1961.
En þar sem sementsnotkunin inn
anlands fer vaxandi, hefur stjórn
Sementsverksmiðjunnar ekki tal
ið rétt að binda meira magn á
næsta ári.
Sjá nánar -viðtal við Ásgeir
Pétursson, form. stjórnar Sements
verksmiðju ríkisins, á bls. 6, en
hann er nú nýkominn heim frá
London.
Landlega
Akranesi, 18. des. FYRRIHLUTA
daigs var suð-austan stonmur ag
hiaugasjór <?g því landilega hjá
sjóimönnium.
Klukkan 6 var hann kominn
á sunnan og var hvass sem áð-
ur. — Oddur.
Drengirnir
flugu út
um
gluggann
MORGUNBLAOIf) náði í gær
tali af einum farþeganna í áætl
unarbílnum, sem steyptist út
af Þrengslaveginum á laugar-
dag. Sagði hann, að færðin
hefði verið mjög slæm alla’
leið austur, flughált gler yfir
öllu. Rétt áður en slysið varð,
kom él eða bylgusa, og bætti
það sízt úr. Slysið varð mjög
skyndilega, og áttaði sig eng-
inn á neinu fyrr en eftir á,
en fólkið var mjög ringlað,
meðan það var að komast út
úr bilnum. Bíllinn flaug út af
veginum á hálkunni og stakkst
á nefið um það bil hálfri ann
arri mannhæð fyrir neðan veg
inn. Síðan valt bíllinn á hlið-
ina. Við höggið hrökk fram-
rúðan úr með umgerð og öllu
saman. Fremst í bílnum sátu
tveir bræður, 12 og 9 ára, en
í næsta sæti m.a. drengur, sem
varð þriggja ára á mánudag,
sonur bílstjórans. Skipti það
engum togum, að yngri bróðir
inn í framsætinu þeyttist út
gegnum framgluggann, en sá
eldri festist í stýrinu. LiUi
drengurinn fyrir aftan þá
flaug út um gluggann og lenti
í fangi þess, sem fyrr hentist
út. Svo mikil ferð var á þeim,
að þeir köstuðust talsvert fram
fyrir bílinn og lentu þar í
skafli. Var það mikil mildi, að
þeir skyldu ekki verða undir-
bílnum. Eins og frá var sagt í
blaðinu i gær meiddust aUir
meira eða minna, en enginn
slasaðist alvarlega. Fólkið kast
aðist til í bílnum og rúður
brotnuðu. Skárust margir við
það. Fólkið komst út úr bíln
um og upp á veg. Hélt sumt
af því þegar á læknisfund,
enda var einn viðbeinsbrotinn
og skorinn á höfði, en aðrir
höfðu skorizt og marizt illa. —
Allir eru sammála um það, að
hér hafi engu mátt muna, að
stórslys yrði.
STJÓRN Sementsverksmiðju rík
isins hefur gengið frá samningum
við Cement Marketing Company
Ltd. um 10 þús. tonna lágmarks-
útflutning til Bretlands, en hugs
anlegt er, að meira verði flutt
út, ef Bretar óska þess og Sem-
entsverksmiðjan verður aflögu-
fær.
Samið er um óbreytt verð frá
því í fyrra. Fær verksmiðjan
112% shilling eða 678,54 kr. fyrir
Mjólkurbíllinn 16
tíma á leiðinni
Kirkjulbæjarklaustri, 18. des.
HÉR hefur verið versta tíð
undanfarna viku, skipzt á blota-
byljir og norð-austan stormur
með skafrenningi.
Fénaður er allur kominn á
gjöf og veldur því bæði óveður
og hagleysi.
Færð er mjög þung víða á
vegum og t. d. var mjólkurbíllinn
16 tíma á leiðinni frá Vík í gær
og þurfti að lokum að senda
jarðýtu á móti honum suður í
Land.brot og ýta snjónum af veg-
inum, þar sem skaflarnir voru
stærstir í dýpstu lautunum.
— Fréttaritari.
Þessa mynd tók Ijósmyndari Mbl., 61. K. M., í Tryggingastofnun ríkisins, er greiðslu fjölskyldu
Iwhéfl Iw, M ■ A*fW|«a Cw.MIM AAWMA ■, .A f U.. I X. ■ 1 . . L, ! Y
bóta hófst þar í gær. Sýnir hún ösina við afgreiðsluborðið,
Lífeyristryggingar greiöa
30 millj. kr. í desember
Fjölskyldubótagreiðslur til Reykvíkinga
16,4 milljónir kr. í jólamdnuðinum
I GÆRMORGUN og allan dag-
inn í gær var geysileg ös í
Tryggingastofnun rikisins, en í
gærmorgun hófst greiðsla á fjöl-
Skyldubótum til handa fjölskyld-
um, sem eiga eitt eða tvo börn,
en þær munu vera nálægt 7000
í Reykjavík. — Samtals greiðir
Try ggingastofnun ríkisins bætur
lífeyristrygginga í desember í
Reykjavik einni um 30 milljónir
króna, og þar af liggja fyrir til
greiðslu samtals 16,4 milljónir
króna í fjölskyldubótum. Er hér
um miklar fjárhæðir að ræða,
sem fjölskyldur fá nú fyrir jólin.
Eyjólfur Jónsson, skrifstofu-
stjóri Tryggingastofnunarinnar,
tjáði Mbl. í gær að með hverju
barni væru árlega greiddar 3028
kr. Fjölskyldubætur til þeirra,
sem eiga eitt eða tvö börn, eru
greiddar ársfjórðungslega, þann-
ig að þær fjölskyldur fá tiltölu-
lega mest í desember. Bætur til
þeirra, sem eiga þrjú börn og
fleiri eru greiddar mánaðarlega,
þannig að til þeirra er aðeins
greiddur einn mánuður í desem-
ber líkt og aðra mánuði.
Allar útborganir á bótum líf-
eyrisstrygginga nema nú um 30
milljónum króna í desember. —
Eyjólfur sagði að ekki væri fylli-
lega vitað hve greiðslurnar yrðu
miklar úti á landi, en frá 20.
nóvember til desemberloka væru
umboðsmönnum úti á landi send-
ar 55 milljónir króna til greiðslu
í desember. Sagði Eyjólfur að
bætur lífeyristrygginga alls 1962,
þar með talin 7% hækkun á elli-
og örorkulífeyri frá 1. júní, yrðu
samtals um 500 milljónir króna.
Eyjólfur sagði að lokum að nú
lægju fyrir til greiðslu í fjöl-
skyldubótum 16,4 milljónir kr.
til handa Reykvíkingum, en þar
væri með talið það, sem ósótt er
frá fyrri mánuðum.
Alþingí
frestað
20. des.
Forisætisréðherra, Ólafur Thors
hefur lagt fram á Alþingi svo-
hljóðandi tillögu tiil þingsálykt-
unar: „Alþingi ályiktar að veita
samþykki tiil þess, að fundum
þinigsins verði frestað frá 20 des.
1962 eða síðar, ef henta þykir,
enda verði það kvaitt saman á
ný eiigi síðar en 29. jan. 1963.“
Síðustu fundir neðri og efri
deildar voru haldnir í gær og
óskuðu forsetar, Jóhann.Hafstein
oig Sigúrður Ó. Ólafsson, þing-
mönnurn gleðilegra jóla, góðrar
heimkomu og að þeir mættu hit-
ast heilir tiil starfs að nýju. Lúð-
ví'k Jósefsson og Karl Kristjáns-
son urðu fyrir svörum fyrir hönd
þingmanna. Þökkuðu þeir hlý orð
forseta og óskiuðu þeim og fjöl-
skyldium þeirra gleðilegra jóla.
Tóku aliþingismenn unddr árnað-
aróskir þeirra með því að rísa
úr sætum.
Selfossi tvívegis siglt með
neyðarstýri aftur lll hafna?
EIMSKIPAFÉLAGSSKIPIÐ Sel-
foss fór áleiðis til írlands frá
Reykjavíkurlhöfn í fyrrakvöld.
Undan Reykjanesi bilaði rafkerfi
stýrisvélar, svo að skipið lét ekki
að stjórn.
Skipinu var snúið við til
Reykjavíkur og þurfti að nota
neyðarstýri, sem er aftast á skip
inu.
Selfoss kom á ytri-höfnina í
fyrrinótt og fór dráttarbáturinn
Magni á móts við skipið og að-
stoðaði við siglinguna inn á höfn.
Skoðun fór fram strax á stýr-
isvél og hinu flókna rafkerfi
ihennar, en skemmdir fundust
ekki.
Selfoss hélt svo aftur af stað
í gærmorgun, en þegar skipið
var komið út á Flóann bilaði
stýrisvélin aftur.
Skipinu var stýrt til hafnar
aftur á sama .. hátt og fer nú
fram niákyæm rannsókn á orsök
um bilunarinnar.
Virðist sem hennar verði fyrst
vart, þegar skipið tekur að velta
á rúmsjó.
Selfoss átti að taka 1800 tonn
af frystu kjöti í Dublin og flytja
til New York.
10 þús. tonn af sem-
enti til Englands