Morgunblaðið - 20.12.1962, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 20.12.1962, Blaðsíða 24
 4 DAGAR TIL JÓLA I! m Fiskverðinu vísað tíl yfirnefndar UNDANFARNA daga hefur Verðlagsráð sjávarútvegsins, fiskideild, unnið að verð- ákvörðun bolfisks fyrir árið 1963. Ráðið hefur ekki náð fullu samkomulagi um verðið og endanlegri verðákvörðun hef- ur því verið vísað til yfir- nefndar, samanber lög um Verðlagsráð sjávarútvegsins nr. 97/ 1961. Aðilar ráðsins samþykktu samhljóða að óska eftir þvi við Gunnlaug G. Björnsson, bankafulltrúa, að taka að sér starf oddamanns í yfirnefnd- inni. Gunnlaugur hefur fall- izt á tilmælin. | Verðlagsráð kaus yfirnefndj ina á fundi sínum í gær. Hana skipa: 1 Gunnlaugur G. Björnsson, bankafulltrúi, formaður, Helgi Þórarinsson, framkvæmda- stjóri, Reykjavík, Guðlaugur Stefánsson, framkvæmdastj., Reykjavík, Sigurður Péturs- son, útgerðarmaður, Reykja- vík, og Tryggvi Helgason, sjómaður, Akureyri. (Frá Verðlagsráði sjávar- útvegsins) Útibú frá Búnaðar bankanum á Blönduósi HINN 1. janúar næstkomandi tekur til starfa á Blönduósi nýtt bankaútibú frá Búnaðarbanka Islands. Tekur útibúið við öllum innláns- og útláns viðskiptum Sparisjóðs Húnavatnssýslu. Úti- búið verður fyrst um sinn rekið í húsakýnnum Sparisjóðsins, en á næsta vori er áformað að hefja húsbyggingu við Blöndubrú fyr- ir útibúið og ýmsa starfsemi hrepps og sýslu. Útibúið annast öll venjuleg innlend bankaviðskipti og fyrir- greiðslu við aðalibankann í Reykjavík. Útibússtjóri hefur verið skipað ur Hermann Þórarinsson, spari- sjóðsstjóri á Blönduósi. Þetta er þriðja úti'bú B. naðar- bankans úti á landi, en hin eru á Akureyri og í Egilsstaðakaup- túni. (Frá Búnaðarbanka Islands) Bílar lenda í erflö- leikum vegna roks SEINNI HI.UTA dags í gær og í gærkvöldi urðu bilar fyrir mikl- um töfum af völdum veðurofsans á leiðinni norður. Á Kjalarnesi héldu margir bílar kyrru fyrir, þar sem bíl- stjórarnir treystust ekki til að aka í rokinu. Töldu sumir jafn- vel, að vegurinn væri ófær á verstu köflunum. Lítill sem eng- inn snjór var þarna, en hálka á blettum. „Enginn bíll til“ MIKIÐ annríki var á leigubíla- stöðvum í allan gæirdag vegna veðursins. Margir þurftu að kom ast uam bæinn í jólaannríkinu, og þar sem veðrið var ekki beint fallið til þess að vera mikið úti við, þurftu margir á leigubíl að halda. f>að vair þó hægara sagt en gert, því að eftirspurnin var meiri en framboðið. Ýmist var ekki svarað í síma hjá bílastöðv unum, eða síminn var á tali. Sum ir fengu þó svar, en þá var ann- að hvort enginn bíll til um ó- fyrirsjáanlegan tíma, eða bið- tíminn upp í klukkutíma a.m.k. Kom þetta sér afar illa fyrir suma, sem þurftu nauðsynlega á bil að halda vegna atvinnu sinn ar, læknisvitjunar eða annars. Undir Hafnarfjalli var geysi- hvasst. I>ar voru 5 eða 6 flutninga bílar frá Akureyri á leið suður, sem áttu í erfiðleikum. Hafði einn bíllinn misst af sér seglið, þótt það hefði verið vandlega fest, og annar framrúðuna. Kl. 23.30 var langferðabíllimn að norðan að komast á móts við sæluhúsið á Holtavörðuheiði. Þar kingdi niður snjó og hvassviðri var á. Ætlunin var að halda á- fram í nótt, enda var jarðýta í för með bílnum. Einn bíll hafði lent út af véginum á heiðinni, en honum var hjf' ~ð upp á veg- inn aftur. Neistar komust í einangrun SLÖKKVILIÐIÐ var kvatt inn að Síðumúla 23 kl. hálf sex á mið- vikudagskvöld, en þar hefur Gamla kompaníið verkstæði. Neistar höfðu komizt í pappa- einangrun í kjallaravegg, og höfðu starfsmenn rofið múrinn, þegar slökkviliðið kom á vett- vang. Ekkert vatn var notað, held ur var einangrunin borin út. — Skemmdir urðu óverulegar, nema á veggnum. 70 milljón kr. lán til nýja Keílavíkurvegaiins 28 milljón kr. lán til byggingar menntaskóla, kenn- araskóla og hjúkrunarskóla KJARTAN J. Jóhannsson, formað ur fjárveitingarnefndar, gat þess á Alþingi í gær, að fjárveitingar- nefnd hefði orðið sammála um eftirfarandi breytingar á fjárlaga frumvarpinu m.a.: Að ríkisstjórninni sé heimilt að taka allt að 28 milljón kr. lán til byggingar Menntaskólans í Reykjavík, Kennaraskóla íslands og Hjúkrunarskóla íslands. Að ríkisstjórninni sé heimilt að taka allt að 70 millj. kr. lán til lagningar steinsteypts Keflavík- urvegar, en þar er umferðin orð in svo mikil, yfir 1000 bifreiðar á dag, að ógemingur er að halda malarvegi við. í athugun er að óska heimildar AJþingis til að leggja á sérstakt umferðargjald um veginn, er lánin verði a.m.k. að nokkru leyti greidd með; loks skuli 1 millj. kr. veitt til byggingar bókhlöðu á Akureyri Sæmileg færð út um land FLESTIR vegir voni færir í gær, en færð var ákaflega erf iff aS visu á HoltavörSuheiSi, og Hellisheiðarvegur er enn lokaSur. Farinn er Þrengsla- vegur, og verður ekki reynt að opna veginn um HellisheiSi, fyrr en veður batnar að ráði. vegna 100 ára afmælis kaupstað- arins. Nánar verður umræðnanna get ið síðar. Rafmagnsbilun í gærkvöldi RAFMAGNSBILUN varð í gær- kvöldi í hluta Vesturbæjarins og Miðbæjarins, þegar háspennujarð strengur „brann yfir“. Fór raf- magnið um kl. 22.45 og kom ekki aftur fyrr en kl. 0.55. Tafðist út* koma Morgunblaðsins töluvert af þeim Sökum. Umferðin í gær LÍTIÐ VAR um árekstra og um ferðarslys í gær, enda var um ferð bæði gangandi fólks og far artækja með minnsta móti vegna veðurs. Hins vegar var talsvert um það, að fólk dytti á hálkunni í rokinu, en ekki var vitað til þess, að neinn hefði slasazt alvar lega. Fram til dagsins í gær höfðu orðið 170 umferðarslys (árekstr ar o. s. frv.) í desember í Reykja- vík. Mun sú tala þó lægri en sam bærilegar tölur erlendis. Viðbótarbygging og nýr menntaskóli Menntamálaráðherra Gylfi Þ. Gíslason lýsti því yfir á Aliþinigi í gær, að þegar næsta sumar yrði hafizt handa um einnar hæðar viðbótarbyggingu við Menntaskólann í Reykjavík með sex sérkennslustofum, sem yrði tiilibúdn til notkunar þegar næsta haust. Suimarið 1964 yrði svo til viðbótar reist leikfimdhús, er Verkfalli veitingafólks aflýst Samið til tveggja ára SAMNINGANEFNDIR Sam- bands veitinga- og gistihúseig- enda og Félags starfsfólks í veit ingahúsum undirrituðu kl. 5 að faranótt 19. des. nýjan kjarasamn ing, eftir að hafa setið á samn- ingafundi með sáttasemjara, Torfa Hjartarsyni, frá kl. 20.30 kvöldið áður. Breytingar þær, sem gerðar voru frá fyrra samn- ingi, eru þessar: Allir kauptaxtai- hækka um 11%, og er í því sambandi rétt að geta þess, að kaup starfsfólks (ófaglærðs) í veitingahúsum hefur hingað til verið nokkuð lægra en kaup þess fólks, sem vinnur svipuð störf. Samið var um, að 6% orlof greiddist að fullu á alla auka- vinnu. Einnig bættust við frí- dagarnir II. jóladagur og 17. júní. Samið var nú í fyrsta skipti við yfirsmjörbrauðsstúlkur og svonefnda „húsmenn", sem er nýyrði í fyrrnefndum samningi. Starf húsmanna er birgðarvarzla og ýmis sýslan á hótelum og stærri veitingahúsum. Að lokum var samið um, að hinn nýi samningur skuli halda gildi tií 31/12 1964. Þó eru á- kvæði í samningnum um að segja megi upp kaupgjaldsákvæðum samningsins, ef vísitala fram- færslukostnaðar hækkar um vissa prósentu á samningstíma- bilinu. Með samningi þessum hefur SVG tekizt að nokkru að sam- ræma gildistíma mismunandi starfshópa, er vinna á hótelum og í veitingahúsum, þar sem t.d. samningurinn við þjóna frá sl. sumxi eru einnig í gildi til 31/12 1964. Verkfall hafði verið boðað 26. desember. jafnframt yrði samkomusalur. Áður hafði verið áikveðið að hafdzt yrði handa sl. vor, en úr þedm framkvæmdum gat ekki orðið þar sem sumir aðilar töddiu þær ekki samrýmast skipulags- reglum borgarinnar. Nú er ákveðið,*að Menntaskól inn fái tii umráða svœðið midli BókMöðustígls og Amtmannsstigs annans vegar og Lækjargötu og Þingholtsstrætis hins vegar þó þanniig að ein húsaröð verði neð- an ÞingíholtsistrætLs. Gert er ráð fyriæ að þessar framkvæmdár kosti um 25 miilj. kr., og muni fullnægja Menntaskóianum næstu 2-4 árin. Jafnframt hefur rlkisstjórnin áikveðið að reistur verði nýr menntaiskóld í' Hamraíhdíð með 20 almennum kennsl ustoÆum, er rúmi 500 nemendur með einsetn ingu. Standa vonir tid, að unnt verði að hefjast handa við bygg ingu skóllans haustið 1964 oig verð ur henni hraðað svo sem kost- ur er. Með þessu kvað ráðherrann séð fyrir húsnæðisþörf Mennta- skólans tii frambúðar svo að á næstu árum ætti ekki að þurfa að grípa til bráðabirgðaráðstaf- ana sakix hiúsnæðisskorts, og hann þar bætt úr áratuga van- reeksiu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.