Morgunblaðið - 04.01.1963, Page 1

Morgunblaðið - 04.01.1963, Page 1
24 slður Fyrsla skipti, sem skæruliðar gefa færi á orustu Saigon, Tan Hiep, 3. jan. (NTB-AP) BLÓÐUGIR bardagar geis- uðu í dag milli skæruliða kommúnista, Viet Cong, og hers stjórnar Ngos Dinh Dim- es í S-Viet Nam. Var barizt á tveimur vígstöðvum, í ná- grenni Saigon, höfuðborgar S-Viet Nam, og í grennd við þorpið Tan Hiep, við óshólma árinnar Mekong. Er þetta í fyrsta skipti frá því að skæru- liðar hófu baráttu gegn stjórn arhernum, sem þeir gefa færi á orustu. Mikið mannfall er í liðum beggja, en engar nám- kvæmar tölur hafa horizt. — Herma óstaðfestar fregnir, að hundruð manna hafa fallið. Lítið hefur spurzt um það hvorum vegni betur, en það sem Sjómanna- verkfallið IMoregi I Osló, 3. janúar (NTB) — Norskir sjómenn hófu verkfall 1. janúar sl. Nær verkfallið til allra sjómanna á fiskiskipaflotan- um og hafa þeir hætt störfum, að undanteknum fiskimönnum í þremur þorpum, sem eru mót- fallnir verkfallinu. Fiskiskortur er enn ekki farinn að gera vart við sig í Noregi, því að nægar birgðir af frystum fiski voru fyrir hendi, þegar verkfallið hófst. Engar samningaviðræður hafa farið fram um lausn verkfallsins, en gert er ráð fyrir að þær hefj ist næstu daga. mest er talið því til trafala, að stjórnarherinn geti unnið sigur á skæruliðunum í orustunum, er skortur á þyrlum til þess að flytja hermenn til vígstöðvanna. Flestar þær þyrlur, sem Banda- ríkjamenn hafa látið stjórnar- hernum í té, eru í notkun fjarri vígstöðvunum. Bandarískir hernaðarsérfræð- ingar, sem hafa leiðbeint stjórn- arhernum í S-Viet Nam, hafa komið því til leiðar, að þorp í landinu hafa verið víggirt og í- búarnir vígbúnir, en áður komu skæruliðar kommúnista oft íbú- um þorpanna í opna skjöldu og gátu náð þeim á sitt vald bar- áttulaust. í morgun tóku liðsveitir skæru liga með áhlaupi eitt slíkt þorp, Ap Bac, nálægt Mekong. Her- menn stjórnarinnar hófu sprengjuárás á þorpið og á með- an á henni stóð henti það óhapp, að þeir, sem sprengjunum vörp- uðu, miðuðu skakkt og hæfðu sína eigin liðsmenn. Hermenn- irnir, sem urðu fyrir sprengjum félaga sinna leyndust á hrisakri nálægt Ap Bac og bjuggust til þess að taka þorpið. Þrátt fyrir þetta óhapp tókst stjórnarhern- um að ná þorpinu úr höndum skæruliða. Adenauer til Parísar París, 3. janúar (NTB) — Konrad Adenauer, kanzlari V- Þýzkalands, kemur í opinbera heimsókn til Frakklands 21. jan úar n.k. Mun kanzlarinn ræða við de Gaulle, Frakklandsforseta og ýmsa ráðherra frönsku ríkisstjórn arinnar. Heimsóknin er í framhaldi af þeim viðræðum, sem nýlega fóru fram um aukna samvinnu Frakk- lands og V-Þýzkalands. Hermenn SÞ í Elizabetville meðan óeirðir voru í borginni SÞ tóku Jadotville í gær Talið að Tshombe hafi flúið til Kolwezi, en það er eina mikilvæga borgin, sem' Katangaher hefur enn d valdi sínu Leopoldville, London, 3. jan. (NTB-AP) # Liðssveitir Sameinuðu þjóðanna náðu í dag á sitt vald námuhorginni og sam- Fregnir frá aðalstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York hermdu, að Ralph J. Bunch, aðstoðarframkvæmda- stjóri samtakanna, færi til Leopoldville í kvöld tii þess að ræða aðgerðir SÞ í Kat- anga. göngumiðstöðinni Jadotville í Katanga. Til varnar í borg- inni voru um 3000 hermenn 32 Rússar biðjast hælis í sendiraði USA í Moskvu Katangahers og 100 erlendir málaliðar. Mannfall varð í liði SÞ, en ekki er vitað hve margir féllu. • Tshombe, fylkisstjóri Kat anga, var í Jadotville í gær, en nú er ókunnugt um að- setursstað hans. Þó er talið, að hann hafi haldið til Kol- wezi, norðvestur af Jadot- ville, en það er eina mikil- væga borgin í Katanga, sem Katangaher hefur enn á valdi sínu. • I dag hótaði Tshombe, að láta Katangaher hef ja skæru- hernað og skemmdarverk, ef SÞ gæfu liðssveitum sínum ekki fyrirmæli um að hætta hernaðaraðgerðum. • Tilkynnt var í London í kvöld, að brezka stjórnin hyggðist gera allt, sem í henn ar valdi stæði til þess að fá Tshombe til að snúa aftur til Elizabethville. Talsmaður brezku stjórnarinn- ar kvað það álit hennar, að koma Tshombe til Elizabethville gæti afstýrt því að Katangaher hæfi skæruhernað. Brezka stjórn in teldi að hægt yrði að leysá Katangamálið á friðsamlegan hátt, þegar Tshombe væri kom- inn til höfuðborgarinnar. Verja Kolwesi með öllum ráðum Liðssveitir Sameinuðu þjóð- anna í Katanga hafa nú á valdi sinu fjórar af mikilvægustu borgum fylkisins, Elizabethville, Framhald á bis. 3. Synjaði ^ leyfisbeið- ni Loftleiða Kaupmannahöfn, 3. jan. Einkaskeyti til Morgunblaðs- ins. ÞAÐ hefur nú verið upp- lýst, að norska samgöngumála ráðuneytið hefur vísað á bug þeirri beiðni íslenzka flug- félagsins Loftleiða, að það fái leyfi ráðuneytisins til að flytja norskar áhafnir skipa með lægri fargjöldum en flug félaginu er nú heimilt. — Rytgaardí Blóðugir bardagar í Suöur-Viet Nam Segjast vera ofsóttir vegna trúar sinnar OAS ætlar aö ráða de Gaulle af dögum Moskvu, 3. jan. (NTB-AP) f DAG komu 32 Rússar, þar af 12 konur og 14 börn, til banda- ríska sendiráðsins í Moskvu. Sögðust þeir vera kristnir menn, ofsóttir vegna trúar sinnar, því að trúfrelsi ríkti ekki í Sovét- ríkjunum. Báðu þeir um hæli í bandaríska sendiráðinu og fóru þess á leit, að sendiráðið aðstoð- aði þá við að flýja land. Bandaríski sendiherrann sagði, að lögum samkvæmt væri ómögu legt, að veita rússneskum ríkis- borgurum hæli í bandarísku sendiráði á rússneskri grund. Var utanríkisráðuneyti Sovétrikjanna gert aðvart um að fólkið væri í sendiráðinu og sendi það menn til þess að sækja það. Banda- ríski sendiherrann fór þess á leit við utanríkisráðuneytið, að fólk- inu yrði ekki gert mein og var því lofað. Fólkið var flutt í gisti- hús. # 4 daga ferð. Flóttafólkið skýrði frá því í sendiréðinu, að það hefði ferð- ast fjóra daga með járnbrautar- lest frá heimabæ sínum í Síberíu, en þar væri því ekki lengur vært. Væri það ofsótt vegna trúar sinn ar og fyrir skömmu hefði því verið hótað, að börn þess yrðu tekin frá því, ef það léti ekki af trú sinni. Þegar fólkið .kom til sendiráðs Bandaríkjanna spurði það hvort þarna væri sendiráð ísraels. Þeg- ar því var sagt, að það væri í sendiráði Bandaríkjanna fór það þess á leit, að því yrði veitt aðstoð til þess að bomast úr landi, helzt til ísraels, eða einhvers annars lands þar sem það gæti haft trú sína óáreitt. # „Þeir skjóta okkur“. Bftir að fulltrúar utanrikis- Framhald á bls. 3. París, 3. janúar (NTB) — Upplýsingamálaráðherra Frakka Alain Peyrefitte, sagði í dag, að leynifélagsskapurinn OAS héldi enn áfram hryðjuverkum, og stefndi að því að ráða de Gaulle Frakklandsforseta af dögum. Perefitte ræddi þetta á þing- fundi í dag og á eftir honum tók innanríkisráðherra Frakka, Rog- er Frey, til máls. Sagði hann að um 70% allra rána og ofbeldis- árása, sem framdar hefðu verið að undanförnu, væru að undir- lagi OAS. Sagði Frey, að enginn ástæða væri til þess að ætla, að OAS-menn, hefðu lagt upp laup ana. Talið er, að fyrrv. forsætis- ráðherra Frakka, Georges Bidault sé foringi OAS-manna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.