Morgunblaðið - 04.01.1963, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 04.01.1963, Qupperneq 15
Fostudagur 4. janúar 1963 MORCVNBLAÐIÐ 15 Mynriir á sýningu fVlark Frankland skrlfar frá Moskvu NIKITA Krúsjeff, forsætisráð- | Ungi maðurinn hélt því fram, að iherra Sovétríkjanna hafa ugg- I ekkert væri við það að athuga, laust orðið á mistök, hafi sá ver- ið tilgangur árásar hans á sovézka nútímamálara á ðögun- um, að skera úr um það í eitt skipti fyrir öll, hvaða list hæfi rússnesku þjóðinni. Þessi árás hans hafði þau áhrif, að aðsókn tvöfaldaðist að listasafninu, þar sem málverk þeirra voru til sýn- is og töluverðar umræður urðu meðal sýningargesta um rétt- mæti þessarar árásar rússneskra ráðamanna. Þegar ég sótti þessa sýningu. eá ég fjölda manna umhverfis málverk þau og höggmyndir, sem orðið höfðu tilefni hinnar hörðustu gagnrýni. Og fólkið hneigðist jafnvel fremur til þess að rökræða um listaverkin held- ur en horfa á þau. Hjá högg- mynd einni stóð ungur maður og talaði fyrir tugum áheyrenda. ííann gerði stórorða árás á aka- demíu sovézkra listmálara, sem er eindregnasti andstæðingur allra breytinga í sovézkri list. Sovézkt blað ræðir herstöðvar U.S.A. Moskvu 2. jan. (NTB). TASSFRÉTTASTOFAN skýrði frá því í dag, að í síðasta hefti sovézka mánaðarritsins ..Alþjóð- Ieg stjórnmál“ hefði birzt grein þar sem sagði, að lönd þau, sem hefðu bandarískar herstöðvar innan Iandamæra sinna, gætu átt á hættu að verða fyrir kjarn- orkuárás, ef bandarískir hernað- arsinnar æstu til styrjaldar. Blaðið segir, að bandariskar herstöðvar miði aðeins að því að hafa áhrif á viðkomndi þjóðir og etjórna málefnum þeirra. Ennfremur hefur fréttastofan eftir blaðinu, að lönd. sem ekki séu hlynnt styrjöld stefnu sinni til framdráttar, þarfnist ekki slikra herstöðva. þótt einhverjum listamanni lík aði ekki eitthvert listaverk. Á hinn bóginn væri ótækt, að hann reyndi að neyða aðra til þess að fallast á skoðun sína Fólkið um- •hverfis unga manninn virtist fallast á flest rök hans, en þó voru gerðar nokkrar athuga- semdir. Höggmyndin, sem þeir stóðu við, var af móður og barni og ber keim af verkum Henry Moore. Einn í hópnum kvartaði yfir því. að konan væri óhrjáleg. „Viljirðu sjá stór brjóst", sagði ungi maðurinn „geturðu fundið þau í hvaða sorpblaði sem er“. Hann benti ennfremur á, að rúss- neskir listamenn hefðu ekki ávallt gert mannamyndir _ af fullkomnu raunsæi. Helgimynda- málarar hefðu til dæmis oft haft höfuðin óeðlilega lítil, eins og væri á þessari höggmynd. Þá sagði annar úr hópnum: „Helgi- myndamálarar voru klessumál- arar“. Allir hópuðust reiðir að manninum, sem hafði sig ekki meira í frammi. Sá ungi hélt áfram að ræða um myndina. Engin leið var að skoða hana á meðan — og þegar ég kom þar Prúðmannlcg ára- mót í Borgarnesi Borgarnesi, 2. janúar. BÆRINN var ljósum skreytt- ur um áramótin og jólatré prýddu staðinn. Á gamlárskvöld fóru Lionsfé- lagar blysför um bæinn að vanda og höfðu flugeldasýningu á mið- nætti. Áramótadansleikur var í sam- komuhúsinu og fór hann mjög vel fram. Rólegt var og áramót- in prúðmannleg. Veður var indælt, þó nokkuð kalt. — H. aftur klukkustund síðar, var hann enn að. Annar álíka fundur var hald- inn fyrir framan nokkrar mynd- ir eftir Falk, listamann, sem lézt fyrir nokkrum árum. Krúsjeff hafði helt úr skálum reiði sinnar yfir mynd af mið- aldra konu naktri. Hér hafði annar ungur maður orðið, ró- legri en hinn, með gleraugu og í mollskinnsjakka. Hann lýsti því af augljósri hreinskilni hvernig smekkur hans á málverkum hefði þroskazt. Ekki væri unnt Puskhin væri mikill höfundur og því er ég sammála en nú hef ég mun meiri ánægju af því að lesa kvæði eftir Maríu Tsvetay- evu“. (Tsvetayeva lézt árið 1941 og var um langt skeið erfitt að ná í verk hennar. Það var talið framfaramerki, að kvæði hennar voru gefin út á síðasta ári). Þau lönd munu fá, þar sem ungir menn og stúlkur tala af slíkri hreinskilni og svo feimnis- laust um afstöðu sína til lista frammi fyrir hópi ókunnugra manna. Þessir ungu menn sögðu ekkert, sem komið gæti vest- rænum manni á óvart, en í raun og veru voru þeir — og aðrir, sem ég heyrði til á sýningunni. að halda fram rétti sínum til þess að hafa persónulegan smekk. Þennan rétt er erfitt að samræma stefnu rússneskra ráða að vænta þess. að allir hefðu manna í listum. Hikið um dýrðir í Siglufirði Siglufirði, . jan. H É R var óvenju gott tíðarfar um hátíðarnar og áramótin, svo að við lá, að menn segðu „gleði- legt sumar“ í stað „gleðilegra jóla“. Bærinn var venju fremur Ijósum skrýddur, stórt jólatré á Ráðhústorgi og jólastjörnur við kirkju og sjúkrahús, auk skreyt- inga við verzlanir og íbúðarhús. Kirkjusókn var með ágætum, og voru níu börn skírð við messu á annan jóladag. Sala í verzlunum yar meiri en nokkru sinni fyrr. Á gamlárskvöld var brún Hvanneyrarskálar og fjöllin beggja vegna hennar prýdd ljós- um og hið nýja ártal myndað með ljósum í fjallshlíðina fyrir ofan bæinn. Að þessu sinni voru notuð rafljós við skreytingar þessar, og mun það nýmæli á ára mótaskreytingu hérlendis. — Sá Skíðafélag Siglufjarðar um framkvæmd þessa verks, en Siglufjarðarkaupstaður tekur þátt í kostnaði þess. Þá gengu nokkrir félagar úr skíðafélaginu á Hólshyrnu, tendruðu þar bál- köst mikinn og skutu stóreflis skipaflugeldum til himins. Börn og unglingar stóðu fyrir nokkrum brennum í fjallshlíð- inni og kveiktu á blysum um- hverfis Gimbrakletta. Setti allt þetta skemmtilegan svip á ára- mótafagnað bæjarbúa. - Ms. Arn arfell og Fjallfoss lágu ljósum skrýddir hér á höfninni um ára- mótin. Á nýjársnótt var dansað að Hótel Höfn. Mannfagnaður allur fór fram með ró og spekt og hvergi bólaði á óspektum. — Stefán. öllum sviðum og neyddi aðra til þess að fallast á skoðun síha?“ Flestir þeirra, sem til máls tóku. lögðu áherzlu á, að þeir hefðu rétt til þess að mynda sér sína eigin skoðun. Þetta minnti mig sem fall Stalíns hefði haft á á orð ungs Rússa um þau áhrif, hans kynslóð. „Það hefur ekki gert okkur sinnulaus", sagði hann“, við verðum að horfa og hlusta, vega og meta. og ákveða sjálf, hvað sé satt og hvað sé ekki satt. Ráðamenn geta ekki gert sér vonir um að þröngva sjónarmið- um sínum inn á þá, sem á þess- ari sýningu þörðu' að láta álit sitt í ljós við hvern sem var. Einn ræðumanna sagði í gamni eftir beitar umræður um eitt listaverkanna „Jæja, við getum að minnsta kösti dregið ýmsa lærdóma af deilunni um þessa mynd“. En það, sem fólkið hafði lært, virtist ekki vera það. sem ráðunautar Krúsjeffs í listum höfðu viljað kenna því. (OBSERVER — öll réttindi áskilin). Krúsjeff skoðar sýninguna sama smekk á málverkum, því að skilningur manna og reynsla væri mismunandi. Sumir hefðu enn ekki lært að meta Falk. Á hinn bóginn hefðu málverk eins og hið fræga „Bréf frá vígstöðv- unum „ekki lengur áhrif á sig. Það málverk er einnig á sýning- unni og líkist einna helzt lit- skrúðugri ljósmynd. Hann gagn- rýndi einnig skólana fyrir að kenna nemendum, að sumir höf- undar vseru góðir en aðrir slæm- ir. „Þetta hefur haft þær afleið- ingar“. sagði hann, „að frá því ég kom úr skóla, hef ég vaxið mest öllum tíma mínum til þess að varpa fyrir borð þeim skoð- unum, sem kennarar mínir tróðu í mig. Allir sögðu þeir, að Cloudmaster lend- ir við Sauðárkrók FÖSTUDAGINN 28. des. lenti stærsta flugvél á Sauðárkróki, sem hingað til hefur lent þar. Var það Skýfaxi, Cloudmaster- vél Flugfélags íslands. Flugstjóri var Jóhannes Snorrason. Lending og flugtak tókst með ágætum. Flugvöllurinn við Sauðárkrók er nokkuð gljúpur, og því helzt ekki hægt að lenda þar þungum flug- vélum, nema þegar frost er í jörðu og gerir hann harðan. Auðvitað voru ekki allir sam mála. Sumir sögðu að fólkið vildi ekki sjá abstrakt málverk — en þá benti einhver á, að fólkið hefði alls ekki fengið tækifæri til þess að sjá abstrakt málverk. Aðrir sögðu, að málarar eins og Falk mundu gleymdir að tuttugu árum liðnum. Fólkið yrði leitt á þeim. En þennan dag sá ég engan þeirra halda lengi velli rökræðunum, sem héldu til streitu afstöðu sovézkra yfir- valda í þessum efnum. Reiði var heldur ekki að sjá á neinum þeirra, sem gagnrýndu árásina á nútímamálara Sovétríkjanna — þó lagði maður nokkur allhörku- lega fram þessa spurningu: „Var það ekki á dögum Stalíns, sem einn maður þóttist sérfræðingur Veðurblíðaá Hornafirði HÖFN í HORNAFIRÐI — Sama veðurblíðan hefur verið hér yfir hátíðina og annars staðar á land- inu. Kauptúnið hefur verið vel skreytt. Á gamlárskvöld voru hér að venju tvær brennur, önn- ur mjög stór. Ekkert hefur verið róið undanfarið, en bátar munu hefja róðra upp úr áramótum, — Gunnar. Ágæt kirkjusókn og góður nýárs- fagnaður Húsavík, 2. jan. UM hátíðarnar hefur verið ein munatíð hér á Húsaví'k, og kinkjusótkn mikil. Setti það sinn svip á messurnar, að við hverja þeirra þjónuðu tveir prestar, sr. IngóMur Guðmundsson og sr. Friðrik A. Friðriksson fyrrver- andi prófastur. f einni messunni voru skírð ellefu börn, og nokkr ar hjónavígslur fóru fram um jólin. Áramótabrennur voru tvær, önnur á Stórhól og hin á Húsa- víkurtúni. Nutu þær sín vel í logninu og heiðríkjunni. Um kvöldið var dansað á tveimur stöðum og drukkið allfast, en engar óspektir hlutust ai ,enda er sliikt óþekkt fyrirbærí hér um áramót, þótt púðurkerlingar og blys vi'lji fjúka og háir hvell ir glymji í eyrum. Óvenju mörg um flugeldum var skotið. í dag hafa svo margir eftir ánægju- leg jótl kvatt heimili sín, því að með flugvélum fóru héðan í dag 70 manns, skólafólk og vertíð- arfólk. — Fréttaritari aS auglýsing I stærsta og útbreíddasta blaSinu borgar sig bezt. Enska - Danska - Þ yzka - Franska - Spánska - ítalska 3-79-08 SÍMI 3-79-08 Innritun frá kl. 5—8 e. h. — Kennsla hefst 10. jan. — Ath.: Síðdegistímar fyrir húsmæðm. MÁLASKÓLI HALLDÓRS ÞORSTEIIVS SOIMAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.