Morgunblaðið - 04.01.1963, Síða 16

Morgunblaðið - 04.01.1963, Síða 16
16 MORCUNBLAÐ1Ð Fðstudapur 4. Janúar 1963 IVHálfundafélagið Óðinn Skrifstofa félagsins mun í vetur verða opin á föstudagskvöldum frá kl. 8,30—10 síðdegis. Sími 17807. Á þeim tíma mun stjórn félagsins verða til viðtals við félags- menn, og gjaldkeri taka við félagsgjöld- um. IMytt og glæsilegt úrval af vetrar kápum EygSó Laugavegi 116. Kópavogsbúai athugið! Ný verzlun opnuð á morgun aS Kópavogsbraut 42 undir nafninu Þórsbuð. Á boðstólum verða allar algengar nýlenduvörur, svo og kjöt.— Sendum heim. Gjörið svo vel og reynið viðskiptin. Þórsbúð Kópavogsbraut 42 — Sími 10083. Ópelbílarnir í HAPPDRÆTTI FRAMSÓKNARFLOKKSINS komu á þessi númer: Nr: 36563 Hvítur með bláum toppi. — 27642 Blár með hvítum toppi. í stað hvors bílsins sem er, getur vinningshafi fengið FARMAL-dráttarvél með sláttuvél, ámoksturs- tækjum og öðrum tækjum eftir vali fyrir samtals 180.000,00 krónur. SKRIFSTOFAN er í Tjarnargötu 26, Sími 12942. Álftamýri — Safamýri — Háaleifisbraut Fyrirtæki hér í borginni, sem rekur um- svifamikla þjónustu óskar eftir að komast í samband við mann sem bú- settur er við einhverja af ofantöldum götum. Viðkomandi þarf að taka að sér umboðsmennsku í þessu ört vaxandi íbúðarhverfi. Hann þyrfti að hafa um- ráð yfir geymslu eða bílskúr, til af- greiðslustarfa. Þeir er hefðu hug á þessu og vilja fá nánari upplýsingar, en starfið mætti a. m. k. fyrst í stað vinna í eiginn tíma, — sendi svar til afgreiðslu Morgun- blaðsins merkt: „Þjónustufyrirtæki — 1960“. Jasaðist við vinnu í skurði KVEÐINN hefur verið upp í Hæstarétti dómur í máli, er Guð brandur Guðmundsson, Stóru Drageyri, Skorradalshreppi, höf, aði gegn Sameinuðum verktök- um h.f. til greiðslu skaðabóta að fjárhæð kr. 189.163.17, ásamt vöxtum og málskostnaði. Mái þetta höfðaði stefnandi vegna slyss, er hann varð fyrir við vinnu í þágu stefnda. Málavextir eru sem hér seg- ir: Þ. 15. janúar 1954 vann stefn andi að skurðgrefti á Keflavík- urflugvelli á vegura Sameinaðra verktaka. Var skurður þessi ætl- aður fyrir skolpleiðslur og var hann yfirleitt um mannhæðar djúpur, en í honum voru með vissu millibili grafnir eins kon- ar brunnar, er. voru mun dýpri en aðalskurðurinn. Vinnutilhögun var þannig hátt að, að fyrst var skurðurinn graf- inn með vélskóflu niður á klöpp ina, en þar sem sú dýpt nægði ekki, var klöppin sprengd. Að sprengingu lokinm fóru nokkrir verkamenn niður í skurðinn og brugðu vírlykkjum á grjót það, er Iosnað hafði, eða settu það í net. Síðan var grjótið dregið upp úr skurðinum af bifreið með þar til gerðum gálgaútbún- aði að framan og var hún stað- sett á skurðbarminum. Stefnandi skýrði svo frá fyrir dómi, að er hann var við vinnu þá í skurðinum, sem lýst er að ofan, hafi kranabílnum verið ek- fremsta köggul fingursins og fjórða hluta næsta kögguls. Ekki kvaðst stefnandi hafa vit- að, að steinninn væri laus í skurðbakkanum og enginn hefði aðvarað sig um það. Eitt vitni, sem hafði þann starfa að standa á bakkanum o>g hafa gætur á hífingu grjótsins ið fram á skurðbarminn, en við þunga bifreiðarinnar hafi þá fallið steinn úr skui'ðbakkan- um og lent á vinstri hönd hon- um með þeim afleiðingum, að þumalfingur hans varð á milli steins þess, sem hann var að lyfta og þess steins, er féll ofan i skurðinn. Varð að taka burtu Rýmingarsala Kvenkápur áður 960.— nú 495.— Telpukápur — 475,— — 225.— Sportskyrtur — 246.— — 125.— Karlmannablússur — 363,— — 195.— (molskinn) Drengjabuxur — 314,— — 195,— molskinn á 12—14 ára Mf&m§§ákM Smásala — Laugvegi 81. Balletskóli Sigríöar Ármann KENNSLA hefst aftur mánudaginn 7. janúar. Uppl. í síma 32153. GABOON — FYRIRLIGGJANDI — Stærðir: 4x8 fet. — Þykktir: 16, 19 og 22 mm. Sendum gegn póstkröfu um allt land. KRISTÁN SIGGEIRSSON H.F. Laugavegi 13. — Sími 13879. Skrifstofustúlka Viljum ráða skrifstofustúlku helzt vana bókhaldsstörfum. Vélritunarkunnátta nauðsynleg. Eggsrt Kristjánsson & Co. hf. Viðjum ráða duglegan Sendisveinn nú þegar LAUGAVEG 178 - SÍMI 36570 upp úr skurðinum kvaðst hafa kallað til mannanna í skurðin- um, er steinninn var að falla og sagt þeim að fara frá. Hefðu allir gegnt því nema stefnandi. Önnur vitni sögðu, að engin að- vörun hefði verið gefin. Við mat á örorku stefnanda var varanleg örorka hans af völd um slyssins talin vera 15%. Stefnandi byggði kröfur sínar á því, að stefndi hefði eigi gætt þeirrar varúðarráðstöfun- ar að hafa hlífðarnet á skurð- bökkunum, er menn voru að vinnu niðri í skurðinum. Ósann- að væri, að aðvörunarmerki hefði verið gefið um, að steinn- inn væri að iosna í skurðbakk- anum. Þá benti stefnandi á það, að stefndi hefði ekki hlutazt til um rannsókn á atvikum að slysinu, eins og honum hefði bor ið skylda til skv. 26. gr. 1. 23. 1952 og bæri því sem atvinnu- rekandi fulla ábyrgð á slysinu, enda yrði stefnanda á engan hátt um það kennt. Stefndi reisti sýknukröfur sín- ar á því, að slysið hefði orðið fyrir óhappatilviljun eða óað- gæzlu stefnanda sjálfs, enda hefði hann haft nægan tíma til að gaumgæfa allar aðstæður fyr- ir slysið og þar með forða því. Andmælti stefndi því eindregið að á hafi skort af hans hálfu um öryggi og eftirlit á slysstað. Þá taldi stefndi, að L 23. 1952 hefði verið svo nýlega gengin í gildi, er slysið varð og því ekki verið farin að verka fullkom- lega, að tilkynning hans til Tryggingarstofnunar ríkisins hefði nægt í þessu tilfelli. >á taldi hann kröfuna of seint fram komna. Niðurstöður að því er bóta- ábyrgðina snertir, urðu þær söirni í héraði og fyrir Hæstarétti. Seg- ir svo í forsendum héraðsdóms- ins: „Skurður sá, er hér um ræðir, var það djúpur, að verkamönn- um þeim, er niðri í honum unnu var mikil hætta búin, ef grjót fólii úr bökkum hans. Það hefði því verið sjálfsögð öryggisráð- stöfun af hálfu stefnda að koma fyrir neti í skurðbakkana tii að fyrirbyggja þessa hættu. Stefndi vanrækti að tilkynna slysið til Öryggiseftirlits ríkis- ins .... og verður því að bera hallann af vafa um sönnunar- atriði, enda voru greind lög löngu gengin í gildi, er slysið varð. Osannað er að stefnandi hafi verið aðvaraður áður en slysið vildi til. Verður því ekki talið, að honum verði á nokkurn hátt kennt um síys það, er hann varð fyrir. Að þessu athuguðu þykir stefndi eiga fulla sök á slysinu og ber honum að bæta stefn- anda að fuliu tjón það, er hann hefur beðið af völdum þess, enda verður ekki talið, að bóta- réttur stefnanda sé niður falunu sökum tómlætis.“ , Að því er bótaupphæðina snertir, varð niðurstaðan sú i Hæstarétti, að Sameinaðir verk- takar h.f, voru dæmdir til að greiða Guðbrandi Guðmunds- syni kr. 120.600.00 ásamt vöxtum frá útgáfudegi stefnu og máls- kostnað fyrir báðum réttum kr. 24.000.00.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.