Morgunblaðið - 04.01.1963, Síða 20

Morgunblaðið - 04.01.1963, Síða 20
20 MORGVNBLAÐIÐ Fostudagur 4. janúar 1983 PATRICIA IV E NTWOk f H: MAUD KEMUR I HEIMSOKN Hann gekk svo leiðar sinnar og Carr horfði á eftir honum. Hanr hafði breytzt í skapinu við þennan fund þeirra. Hann hugs- aði til tímans áður en allt fór á ringulreið og út um þúfu-r. Hold- erness gamli tilheyrði þeim tíma — var beinlínis táknrænn fyrir hann. Þá va-r tilveran örugg og nóg fyrir sig að leggja. Þ-á átti maður kunningja. sem höfðu alizt upp með manni, eða höfðu kynnzt manni í skólanum......... Allt í einu tók hann það í sig að ganga niður eftir götunni, síðan beygði hann til vinstri og stanzaði við búðargluggann hjá Jónatan Moore. Þarna var í glugganum skáktafl úr fílabeini, og mennirnir skornir út á kín- verska visu — mikið listaverk. Hann opnaði dyxnar og gekk inn. Bjalla hrindi um leið, og Elísabet kom fram. — Carr! sagði hún og þau námu staðar og horfðu hvort á annað. Það var ekki nema andartak, sem hann horfði á hana, eins og ókunnuga, því að enda þótt fimm ár væru liðin síðan þau höfðu sézt. hafði hann þekkt hana alla sína ævi. En einmitt í þessu and- artaki sá hann hana, rétt eins og í fyrsta sinn — hávaxna, létt- vaxna, björtu augun og snöggt, skjálfandi bros. — Carr .... en hvað það var gaman að sjá þig. Það er orðið langt siðan við höfðum sézt, er það ekki? — Jú, milljón ár .... og svo fór hann að brjóta heilann um, hvers vegna hann hefði sagt þetta. En annars gerði ekkert til hvað sagt var við Elísabetu. Hún rétti fram hönd, en ekki til þess að snerta hann. Þetta var hreyfing, sem hann kannaðist svo vel við — SvO langt? Almáttugur minn! Komdu inn fyrir og við skulum tala saman. Jónatan frændi er á uppboði. Hann fór með henni inn í litlu setustofuna inn af búðinni, þar sem voru fornleg húsgögn og svo skrifborð Jónatans frænda, þakið a-llskonar drasli. Elísabet lokaði dyrunum. Þau hefðu getað verið komin inn í heiminn eins og hann var í gamla daga. Hún opnaði skáp, og leitaði þangað til hún fann poka af brjóstsykri. — Þykir þér hann ennþá góð- ur? Ég býst við því. Smekkur- inn breytist ekki svo mjög þó tíminn líði. — Ekki veit ég nú það. — En ég veit það, og er alveg viss um það. Hún hló ofurlítið. — Hvað sem fyrir kemur, skal mér alltaf þykja brjóstsykur góður. Ég er alltaf þakklát fyrir að mega éta eins mikið af hon- um og ég vil, án þess að fitna. En það er ekki ofsnemmt að fá sér tebolla. Ég ætla að hita það. Hann hleypti brúnum aftur. — Nei, þakka þér fyrir ég get það ekki. Ég er með Fancy með mér — Frances Bell. Við erum hjá Riettu frænku. Hún fór að láta laga á sér hárið og svo ætluðum við að fá okkur te á eftir. Elísabet horfði á hann hugs- andi. — Gætirðu þá ekki eins vel komið með hann hingað? Ég á alveg nýja köku. — Jú, það vildi ég gjarna. — Það var ágætt. Þá getum við setið hérna og skrafað sam- an. En segðu mér eitthvað um hana. Er hún vinstúlka þín? — Nei. Hann hafði ekki ætlað sér að segja þetta, en orðin voru ekki fyrr komin yfir varirnar en hann fann, að þetta var ekki nema satt. En hvaða vandræði hafði hann komið sér í! Þetta var rétt eins og að ganga í svefni og vakna við það, að vera kominn fram á hengiflug. — Segðu mér eitthvað um hana, Carr. Hvernig lítur hún út. Aftur kom kvalasvipurinn á andlit hans, er hann leit á hana. — Hún er lík Marjorie. — Ég sá -hana nú ekki nema einu sinni, en hún var mjög falleg. Þetta var sagt án allrar gremju, en samt mundu bæði þennan fund því að á eftir hafði Elísa- bet spurt: — Ertu ástfanginn af henni, C-arr? Þá voru þau ein hérna í þessari stofu, og þegar hann leit undan og gat engu svarað, hafði hún tekið af sér trúlofunarhringinn og lagt hann á stólbríkina milli þeirra, og þegar hann sagði enn ekki neitt, hafði hún gengið út og upp á loft í herbergið sitt. O'g hann hafði látið hana fara. — Já, fyrir fimm árum, en það var eins og það hefði gerzt í gær. Hann sagði: — Hversvegna slepptirðu mér? — Hvernig átti ég að - geta haldið í þig? — Þú reyndir ekkert til þess. Nei, það gerði ég ekki. Ég vildi ekki halda aftur af þér, ef þú vildir fara. Hann þagði, af því að hann gat ekki sagt: „Ég vildi alls ekki fara“. Hann hafði þekkt Elísa- betu alla sevi en Marjorie í þrjár vikur. En þegar maður er tuttugu og þriggja ár, er það hið óþekkta og óvænta, sem er rómantískast. Hann fann, að hann laut fram með hendur milli hnjáa, og svo komu orðin, fyrst dræmt en síðan í einni roku: — Þú, veizt, að það var alls ekki henni að kenna. Ég var óþolandi í sambúð og barnið dó — og hún átti ekkert eftir. Við höfðum lítið að lifa á. Hún hafði verið vön að skemmta sér — marga kunningja til að fara út með, og ég gat ekkert gefið henni í staðinn. íbúðin var svo þröng og hún hafði óbeit á henni. Ég var alltaf burtu og engir pen- ingar til, og þegar ég var heima, var ég alltaf í fjandalegu skapi. Það er ekki hægt að áfellast hana fyrir neitt. — Hvað kom svo fyrir, Carr? — Ég var sendur til Þýzka- lands, og slapp ekki úr herþjón- ustunni fyrr en í árslok. Hún hafði skrifað en ekki oft og þegar fram liðu stundir, hætti hún alveg að skrifa. Ég fékk sv-o frí og kom heim, og fann þá fyrir ókunnugt fólk í íbúðinni. Hún hafði 1-eigt hana. Enginn vissi, hvað af henni var orðið. Þegar ég svo kom alkominn heim, reyndi ég að finna hana. Ég náði í íbúðina aftur, því að einhversstaðar varð ég að vera og ég hafði þessa atvinnu hjá bókaútgáfufyrirtæki. Það var vin ur minn, Jack Smithers, sem hafði stofnað það. . . Mér datt hálft um hálft í hug, að hún myndi koma aftur. Og það gerði hún líka. Það var eitt ískalt janúarkvöld. Ég kom heim rétt fyrir miðnætti og þá lá hún þar í hnipri á legubekk. Hún hlýtur að hafa verið orðin býsna köld, því að hún var í engri yfir- höfn, heldur bara í þunnum kjól. Hún hafði náð í dúnteppi úr svefnherberginu og sett rafmagns ofninn á, en þegar ég kom heim, var hún komin með ofsalegan hita. Ég náði í lækni, en það var alveg vonlaust. Svínið, sem hún strauk með, hafði skilið hana eftir allslausa í Frakklandi. Hún hafði selt allt, sem hún gat við sig losað, til þess að komast heim. Það sagði hún mér, en hún vildi ekki segja mér nafnið á honum. Hún sagði, að hún vildi ekki að ég myrti hann. Og eftir allt, sem hann hafði gert henni, — ég veit það vegna þess, að hún talaði um það í óráðinu — eftir þetta allt var hún ennþá vitlaus í honum! Rödd Elísabetar rauf þögnina: — Hún getur hafa átt við þig! Hann hló reiðilega. — O, ekki alveg. Hún geymdi mynd af honum, Og þannig get ég fundið hann, þótt síðar verði. Hún var í lokinu á púðurdós, und ir léreftspjötlunni, se-m er ætluð til þess að halda púðrinu í dós- inni. Hún bjóst víst ekki við, að neinn myndi finna hana þar, enda vissi hún ekki, að hún var að dauða komin. Röddin varð hörð. — Hún he-fði víst ekki trú- að því, ef einhver he-fði sagt henni það. Elísabet sagði: — Veslings Marjorie. Hann kinkaði kolli. — Eg hef geymt þessa mynd. Eg skal finna hann áður en lýkur. Þetta er bara andlitið og axlirnar og bak- Hvernig var kakan? ið á myndinni var skafið, svo að nafnið á Ijósmyndaranum sést ekki, en ég veit, að ég þekki hann ef ég sé hann. — Fólk sleppur ekki við refs- ingu, Carr. Farðu ekki að ger- ast böðull. Það á ekki við þig. — Er það e-kki? Eg veit ekki Nú varð þögn og Elísabet rauf hana ekki. Hún hallaði sér aftur og horfði á hann, með hendurn- ar í kjöltunni. Allt í einu tók Carr aftur til máls. — Fancy er dálítið lík henni, skilurðu. Hún hefur verið sýningarstúlka. en nú er hún atvinnulaus Hún hefur unnið mjög mikið og vill koma sér áfram. Hún er að vona að fá hlutverk í því, sem hún kallar almennilegan leik. Eg held nú ekki, að hún hafi nokkra mögu- leika til að geta leikið. Svo verð- ur hún að gæta sín vel með fram- burðinn, af því að hann var öðruvísi í Stepney, þar sem hún ólst upp. Eg held, að foreldrar hennar eigi þar heima enn, og henni mundi ekki detta í hug að slíta öllu sambandi við þau, af því að hún er góð stúlka Og henni þykir vænt um fólkið sitt. — Og hvað kemur þú þessu máli við? sagði Elísa-bet. Hann leit upp með gremju- svip í brosinu. — Hún vill köma sér áfram og ég á víst að hjálpa til þess. — Eruð þið trúlofuð? ' — Líklega ekki. — Hefurðu beðið hennar? — Eg veit ekki. — Það verðurðu að vita. Carr. — Jæja, ég veit það nú ekki og þér er óhætt að trúa því. Hún rétti úr sér snögglega og horfði á hann. — Þú hefur látið berast með straumnum og veizt ekkert hvert þig er að reka. — Það er víst hér um bil rétt lýsing á því. — Þetta er hreinasta sjálfs- morð, Carr! Þú þarft ekki að fara að giftast stúlku, sem þú kærir þig ekkert um. — Nei, ságði hann og bætti svo við: — Það er svo hægt að láta sig reka þannig, þegar maður veit ekki einusinni, hvað er að gerast, og kærir sig ekki um að vita. Maður verður einmana. Elísabet svaraði fljótt: — Það er betra að vera einmana einn síns liðs heldur en með öðrum. Henni fannst sorgarsvipurinn í augnaráði hans óhugnanlegur. — Já. það er því miður óþarf- KALLI KUREKI * Teiknari: Fred Harman lega satt. Eg hef reynt hvort tveggja, svo að ég ætti að þekkja það. Én það á bara ekki við hér, spakmælið um brennda barnið, sem forðast eldinn — maður held ur alltaf að það muni ganga bet- ur næst. Elísabet sagði ,neð ákafa: — Mig langar mest til að hrista þig, Carr! Þú ert að fara með vitleysu og þú veizt það sjálfur. Þú sle-ppt ir þér víst raunverulega í sam- bandi við Marjorie, en nú læt- urðu eins og þú kærir þig ekki nokkurn skaþaðan hlut um þessa veslings stúlku. Hann setti upp gamla ögrun- arbrosið. — Góða mín, hún etr enginn veslingur. Þvert á móti ágætis stúlka, og bráðfalleg. — Bíddu bara þangað til þú sérð hana. V. Tesamkvæmið fór fram eftir öllum vonum. Fancy hafði verið eitt hvað treg fyrst. — En hver er þe-ssi Elísabet Moore? Eg er viss um, að þú hef- ur aldrei nefnt hana á nafn við mig fyrr. Hefur hún einhverja verzlun? — Það er frændi hennar, se-m hefur hana. Hann er annars tals- vert þekktur. Moore-fjölskyldan átti einusinni stóra jörð hérna I nágrenninu við Meling. Svo féllu þrír bræðurnir í stríðinu og erfðaskatturinn gerði alveg út af við fjölskylduna, efnalega. Jóna- tan var fjórði bróðirinn. Jafnvel afvopnaður er Ási staðráð nn í því að berjast. SHtltvarpiö Föstudagur 4. JamiP’*. 8.00 Morgunútvarp. 12.00 Hádegisútvarp. 13.15 Lesin dagskrá næstu viku. 13.25 ,,Við vinnuna“: Tónleikar. 13.25 „Við, sem iieima sitjum“: Hólm fríður Gunnarsdóttir les úr ævi sögu Grétu Garbo (2). 15».00 Síðdegisútvarp. 18.00 „í>eir gerðu garðinn frægan": Guðmundur M. Þorláksson talar um Jón biskup Arason. 18.20 Veðurfregnir. 18.50 Tilkynningar. 19.30 Fréttir. 20.00 Erindi: Framtíð landbúnaðar á Íslandi / eftir Pál Zóphóníasson fráfarandi búnaðarmálastjóra (Páll H. Jónsson flytur). 20.25 Píanómúsik: José Iturbi leikur tvö verk eftir Ravel. a) „Jeux d’ea-u“. b) „Pavane pour une infante défunte". 20.35 í ljóði: Örlagaþræðir (Baldur Pálmason sér um þáttinn. Les- arar: Hulda Rundólfsdóttir og Baldvin Halldórsson). 20.55 „Lohengrin4*, forleikur eftir Wagner (Filharmoníusveit Ber- línar leikur; Herbert von Karaj* an stjórnar.) 21.05 Úr fórum útvarpsins: Björn Th. Bj-örnsison listfræðingur vetur efnið. 21.30 Útvarpssagan: „Felix Krull“ eftir Thomas Mann; XVIII;. (Kristján Árnason). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Efst á baugi (Tómas Karlsson og Björgvin Guðmundsson). 22.40 Á síðkvöldi: Létt-klassísk tón- list. a) Feðginin Rina og Beniamino Gigli syngja óperudúetta. b) Annerose Schmidt píanóleik- ari og Sinfóníuhljómsveit Var- sjárborgar leika píanókonsert nr. 2 í f-moll op. 21 eftir Chop- in; Zdzislav Gorzynski stjórnar 23.30 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.