Morgunblaðið - 04.01.1963, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 04.01.1963, Blaðsíða 24
JM0rg!tí#!s#iiíí> 2. tbl. — Föstudagur 4. janúar 1963 Búpeningi fækkað vegna heyskorts BÆNDUR víða um land hafa fækkað búpeningi sínum í haust og vetur vegna heyskorts. Vont árferði var sJ» surrar svo að segja um land allt og hvatti Búnaðarfélag fslands bændur til þess að gæta hófs í ásetningi, þar sem litlar sem engar líkur j væru til að hægt yrði að útvega ' hey. Samkvæmt upplýsingum hins nýja búnaðarmálastjóra, Hall- dórs Pálssonar, virðist þessi hvatn ing Búnaðarfélagsins hafa haft þau áhrif, að bústofn landsmanna hefur dregizt saman. Hann sagði að t. d. sunnan 4LITI.I ökumaðurinn á jeppan-l um heitir Kristján Elíasson og sr aðeins 4ra ára. Hann fékk jeppann i jóla gjöf frá pabba sínum og í gær dag var hann að aka um ál gangstéttinni á gatnamótum Hverfisgötu og Klapparstígs, Jjegar Ijósmyndara Mbl., Svein Þormóðsson, bar þar að. Kristján litli sagðist eiga heima við Laugaveg, en mundi ekki húsnúmerið. Hann sagð- ist þó alveg vita hvar hann ætti heima. Ekið á f jöguira ára telpu EKIÐ var á 4. ára telpu kl. 14.06 í gærdag á móts við hús nr. 6 við Teigagerði. Telpan heitir Björk Jónsdótt- ir og á heima að Grundargerði 13. Hún var flutt á Slysavarð- stofuna. Meiðsli munu ekki vera alvarlag. Skipastóll landsmanna tæplega 140 þús. lestir Hefur aukizt um á sjötta þús. rúmL frá 1961 í ÁRSLOK 1962 nam samanlagð- ur skipastóll íslendinga 139,918 rúmlestum og hefur orðið all- veruleg aukning á frá árinu áður, cr skipastóllinn nam 134,260 rúm lestum. Hér fer á eftir sundurgreint yf irlit um skipastólinn (tölur frá 1961 í svigum): 33 farþega- og flutningskip sam tals 47,536 lestir (30 — 44,056), 47 togarar samtals 32,816 (48 — Heildaraflinn 462 820 þús. lestir MBL. ÁTTI í gær tal við Davíð Ólafsson, fiskimálastjóra og spurðist fyrir um heildarafla landsmanna á sl. ári. Sagði Davíð að áætlað væri að að heildarfisk aflinn á árinu 1962 muni nema um 820 þús. lestum, miðað við fisk veginn upp úr sjó. Á fyrra ári var heildaraflinn 710 þús. lest ir. Meira en helmingijr aflans á Tilkynnt um Færeyjaflug i 15. janúar nk. Þórshöfn, Færeyjum, — 3. janúar. Talsmaður Flugfélags Færeyja segir, að áætlanir Flugfélags íslands varðandi flug til Fær- eyja séu óbreyttar og að hinn 15. janúar verði tilkynnt um hinar fyrirhuguðu tvær viku- legu ferðir þangað. Að sögn færeyska flugfélags ins hafa Danir ekki reynt að stöðva hið fyrirhugaða flug, heldur hafa þeir þvert á móti reynt að veita sína aðstoð. — Arge. í árinu var síld, eða alls 473 þús. lestir og var 147 þús. lestum meira en á fyrra ári. Hinsvegar var afli á öðrum veiðum minni en á fyrra ári og nam nú 346 þús. lestum en var 381 þús. lestir á fyrra ári. Ástæðan fyrir minni afla nú var að sjálfsögðu einkum hin langa stöðvun togaranna vegna verkfalls. Krabbadýraafli, þ.e. humar og rækja, var um 2900 lestir og var það svipað og á fyrra ári. 33,470), 111 fiskiskip og hvalveiði skip yfir 100 rúmlestir samtals 18,206 rúmlestir (100 — 16,246), 676 fiskiskip með þilfari undir 100 rúmlestum samtals 23,591 rúm lest (657 — 23,539), 5 varðskip samtals 2,421 rúmlest, 3 björgun arskip samtals 201 rúmlest, (í fyrra samtals 7 björgunar- og varðskip, samtals 2,607 lestir), 5 olíuskip samtals 13,987 rúmlestir (4 — 13,839 lestir), 2 dráttar- skip samtals 283 lestir (1 — 184), 2 dýpkunar- og sanddæluskip samtals 785 lestir (1 — 286), 1 mælingaskip 33 lestir (1 í fyrra) og 6 lóðs- og tollbátar samtals 59 rúmlestir. Ágætur línuafli Patreksfjarðar- báta Patreksfirði, 3. janúar. PATREKSFJARÐARBÁTAR fóru allir út 1. janúar með línu og öfluðu ágætlega. Þeir fengu frá 8 tonnum og upp í 12 tonn. Samningar eru klárir hér milli sjómanna og útvegsmanna fyrir þessa vertíð. — Trausti. Löndunarstöðvun á Akranesi í gær Akranesi, 3. janúar. SVO óhemju mikil síld berst hingað á nýja árinu — í dag er það hvorki meira né minna en 14 þúsund tunnur af 16 bátum — að nú þriðja dag ársins er löndunarstöðvun. Nokkrir bátanna verða að bíða löndunar í síldarverksmiðjuna til hádegis á morgun. Aflahæstur var Skírnir með 1800 tunnur, Sigurður 1300, Ólafur Magnússon 1100, Haraldur og Fiskaskagi 1000 hvor, Anna og Keilir 950 hvor, Sæfari 900, Náttfari 900 (landar í Reykjavík), Sigrún 850, Höfrungur I 800, Sveinn Guð- mundsson 750, Reynir og Heima- skagi 600 hvor, Ver 400, Sigur- von 100. Sumir bátanna voru suður í Miðnessjó, en sumir 2 stunda siglingu norð-vestur af Garð- skaga PrýðisVeður var á mið- unum. Síldin var sæmilega góð hjá þeim bátum, sem voru norð- vestur af Garðskaga, en milli- síld og nokkuð af smásíld úr Miðnessjó. — Oddur Útaf skipasikrá voru strikuð á árinu 26 skip samtals 1658 rúm- lestir. Eru það bæði skip, sem farizt hafa, strandað eða rekið á land, svo og nokkrir bátar, sem taldir voru ónýtir vegna fúa og fleira. Fálkanum sieppt AKRANESI, 3. janúar: — Fálk- anum í Sementsverksmiðjunni var sleppt í morgun. Þótt hann væri vel mettur og fullsaddur, náði hann glæsilegu flugtaki og hvarf starfsmönnum verksmiðjunnar sjónum að vörmu spori. — Oddur. lands hafi verið slátrað allt fram í nóvember og bændur hefði tak- markað nokkuð ásetningu. Búnaðarmálastjóri sagði, að ekki væri enn vitað hve mikill bústofninn væri ennþá, það kæmi í ljós síðar í vetur. Hann. þrýndi fyrir bændum, að taka upp snemma kjarnfóðursgjöf með heyinu, ef þeir óttuðust hey- leysi með vorinu. Rósemdar |ól ■ Vestmanna- eyjum Tilhæfulausum fréttaflutningi hnekkí Vestmannaeyjum, 3. janúar. 1 í TILEFNI af frétt, sem birtist í Alþýðublaðinu í gær, að skemmdarverk hafi verið unnin í kirkjugarðinum hér um ára- mótin, sneri fréttaritari blaðsins hér sér til hlutaðeigandi aðila og spurðist fyrir um, h/að hæft væri í frétt þessari. Upplýsti kirkjugarðsvörður og lögreglan, að fréttin væri með öllu tilhæfulaus. í sambandi við þetta er rétt að geta þess, að mjög rólegt var hér um hátíð- irnar og fóru samkomur og skemmtanir mjög vel fram. Eyjabúar eru furðu lostnir yfir þessum fréttaflutningi og skilja tæplega tilgang fréttaritara, jafn- vel þótt hann væri á hrakhólum með fréttaefni. — Bj. Guðm. 25 stiga heitt vatn á botni llrr- iðavatns á Héraði Egilsstöðum, 3. janúar: — Gamlir menn kannast við það, að vakir hafa verið á Urriða- vatni á Fljótsdalshéraði og hefur lengi verið grunur um, að jarðhiti væri í botni vatns- ins. Á nýársdagsmorgun fór Jón- as Pétursson, alþingismaður að athuga vakir á vatninu og stigu jafnt og þétt upp loft bólur á yfirborðið. Jónas hringdi strax til Jóns Jónssonar, jarðfræðings, í jarð hitadeild Raforkumálaskrif- stofunnar. Hann kom austur með flugvél í kvöld og skrapp Jónas með honum að Urriða- vatni og athuguðu þeir 3 vak- ir, sem opnar voru. Jarðfræðingurinn hafði með sér hitamæli og sýndi hann á botni einnar vakarinnar 25 stiga hita. Jafnframt tók hann sýnishorn af vatninu í flösku, sem hann fór með til Reykja- víkur til rannsóknar. Þessi hiti getur ekki stafað af öðru en jarðyl, segir Jónas Pétursson. Fyrirhugað er að gera jarð- hitarannsóknir á Austurlandi næsta sumar, en þar sem lang auðveldast er að gera athugan ir á Urriðavatni á vetrum, þeg ar það er ísi lagt, fannst Jón- asi sjálfsagt að grípa tækifær ið og láta athuga þetta á með an nokkrar vakir voru opnar. Þetta gefur tilefni til að ítar legar rannsóknir verði gerðar á Urriðavatni og umhverfi þess næsta sumar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.