Morgunblaðið - 16.01.1963, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.01.1963, Blaðsíða 1
24 sfður 50 árgangur 12. tbl. — Miðvikudagur 16. janúar 1963 Frentsmíðja Morgnnblaðsíns Ulbricht skýrir frá íeynisamkomu- lagi um Beriín BerZín, 15. jan. (NTB-AP) SJÖTTA ársþing austur-þýzka kommúnistaflokksins hófst 'í A- Berlín í dag. Setningarræðuna flutti Walter Ulbricht, og talaði í tæpar sex klukkustundír. — t ræðunni fordæmdi hann stefnu Kínverja og Albana, en lýsti fullum stuðningi við Krúsjeff og stefnu hans varðandi frið- samlega sambúð. Hann sagði að landamærastyrjöld Kína og Ind- lands hafi verið ónauðsynleg, og sagði að Austur-Þjóðverjar hafi hvorki verið spurðir ráða, né látnir vita fyrirfram hvað Kín- verjar höfðu í huga. Ulbricht gaf i skyn að gagn- kvæmur skilningur Bandarikj- anna og Sovétríkjanna á Berlín- ar- og Þýzkalandsmálunum færi vaxandi, og sagði að þau mál yrði að leysa, og þau væri unnt að leysa. Ársþingið sitja um 4.500 full- trúar frá 70 löndum. Ulbricht sagði að Kúbudeilan væri gott dæmi þess að alþjóða deilumál má leysa með samning- um, ef velvilji deiluaðila er fyr- ir hendi, og að af þessu ætti að læra að því er varðar Þýzkaland. Sagði hann að nú þegar hefði náðst samkomulag um ýmis at- riði Þýzkalandsmálsins í leyni- viðræðum Bandaríkjanna og Sovétrikjanna, og að Krúsjeff forsætisráðherra mundi staðfesta það í ræðu sinni á þinginu á morgun. Varðandi styrjöld Kína og Ind lands sagði Ulbricht að það væri ósk Austur-Þjóðverja að déilan yrði leyst ó friðsamlegan hátt og fljótt. Við höfum alltaf átt góða samvinnu við Indland, sagði hann, og þeirri samvinnu viljum við einnig halda áfram í fram- tíðinni. Það vakti mikila atihygli á þing Framhald á bl.s. 2 Bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins, Jón Pálmason, lýsir því yfir að samstarfinu sé slitið. Aðrir á myndinni eru, frá vinstri: Eggert ísaksson, Elín Jósefsdóttir og Páll Daníelsson. Ljósm. Sv. Þ. Framsdkn rýfur samstarf við Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði Astæðan sú ein, að frkv.stj. Bæjarútgerðarinnar sagðv upp einum þriggja verkstjóra. Og „fulltrú- aráð Framsóknarflokksins hafnaði málamiðlun4* ÞAU furðulegu tíðindi gerð- ust í gær á fundi bæjarstjórn- ar Hafnarfjarðar, að bæjar- fulltrúi Framsóknarflokksins lýsti því yfir, að samstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn væri lokið og tilgreindi þá ástæðu eina, að framkvæmdastjóri I kvæmdastjórinn yrði rekinn, Bæjarútgerðar Hafnarfjarð- ar, Othar Hansson, hefði sagt upp einum af þremur verkstjórum hjá fyrirtækinu. — Áður höfðu Framsóknar- menn krafizt þess, að fram- vegna þessarar uppsagnar, en verkstjórinn ráðinn aftur. Að sjálfsögðu neituðu Sjálf- stæðismenn svo fráleitri kröfu, enda allra mat, að stjóm Othars á fyrirtækinu Islenzkar mafargjafir í Alsír hafi verið með prýði og ó- hjákvæmilegt, að forstjórinn réði, hvaða fólk hann hefði í þjónustu fyrirtækisins. Vegna þessara samstarfs- slita, er nú allt í óvissu um stjórn bæjarmála Hafnar- fjarðar, og er það alvarlegt með hliðsjón af miklum fjár- hagserfiðleikum bæjarins og bæjarfyrirtækja. Að sjálf- sögðu starfa þó bæjarstjór- inn, Hafsteinn Baldvinsson, og framkvæmdastjóri bæjar- útgerðarinnar áfram, en óvíst er um afgreiðslur mála í bæj- arstjórn og útgerðarráði, þar sem Sjálfstæðismenn hafa aðeins 4 af 9 bæjarfulltrúum. Fundur hófst í bæjarstjóm Hafnarfjarðar kl. 5 síðdegis í gær, • og lá fyrir fundinum á- kvörðun um afgreiðslu á frum- varpi að fjárhagsáætlun bæjar- sjóðs fyrir árið 1963. í upphafi fundarins var lögð fram tillaga frá bæjarráði í tveimur svo- hljóðandi liðum: I. Með hliðsjón af þeirri ó- vissu, sem nú er um afgreiðslu á frumvarpi um fjárhagsáætlun fyrir bæjarsjóð 1963 samþykkir bæjarráð að leggja til við bæj- arstjórn, að þess verði farið á Framhald á bls. 22. EINS og skýrt hefur verið frá í Mbl. hefur verið komið upp matargjafarstöðvum í Alsír, þar sem matargjöfum frá íslendingum, mjólk og brauði, er útdeilt til hungr- aðra bama þar í Iandi. AIIs eru íslenzku stöðvarnar 35 talsins, allar I Oranhéraði. Mbl. fékk í gær sendar mynd- ir frá gjafastöðvunum í Alsír, og sýnir myndin hér t. v. alsírsk börn þyrpast á stöð í Valmy í Oranhéraði, og þiggja mjólk og brauð. Á spjaldinu á veggnum stendur á frönsku og máli innfæddra „Gjöf frá Rauða Krossi ís- lands.“ Sjá ennfremur bls. 3.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.