Morgunblaðið - 16.01.1963, Blaðsíða 23
Miðvikudagur 16. ianúar 1963
MORGVNBL4Ð1Ð
23
Tshombe fellst á
sameinlngu Kat-
anga og Kongó
Elisa'bethville og
Leopoldville, lö.
janúar (NTB-AP)
MOISE Tshombe íorseti Katanga
boðaði í dag nokkra fréttamenn
á sinn fund í borginni Kolwesi.
Tilkynnti bann þeim að hann
væri fallinn frá öUum kröfum
sínum um aðskilnað Katanga frá
Kongó, svo frairarlega sem
Kongóstjórn staðfesti að öllum
starfsmönnnm Katangastjórnar
væru gefnar upp sakir ,eins og
Erlendar
fréttir
í STUTTU MÁLI
London, 15. jan. (NTB) —
Morgan Phillips, fyrrverandi aðal
ritari brezka Verkamannaflokks-
ins, lézt í sjúkrahúsi í kvöld. —
Phillips fékk slag í ágúst 1960.
Hann lét af ritaraembætti í des-
ember 1961 eftir 17 ára starf.
Moskvu, 16. jan (NTB) —
Moskvublöðin skýra frá því í
dag að tveir opinberir starfs-
menn hafi verið dæmdir til
dauða fyrir svik. Annar var
dæmdur fyrir að falsa fram-
leiðsluskýrslur og þegið mútur,
hinn fyrir óleyfilega sölu ýmissa
muna, sem smíðaðir voru í vinnu
hæli fyrir geðveika.
Tel Aviv, 15. jan. (NTB) —
Stjórnin í ísrael mun fara þess á
leit við Alþjóða heilbrigðismála-
etofnunina (W. H. O.), að hún
veiti aðstoð ísraelskum vísinda-
mönnum, sem vinna að rannsókn
um á áhrifum svenflyfsins thali-
domide á krabbámein.
Washington, 15. jan (NTB)
Kennedy forseti mun fara fram á
um 54 þúsund milljón dollara
fjárveitingu Bandaríkjaþings til
landvama á næsta fjárhagsári,
sem hefst 1. júlí n.k. (um krónur
2.325.000.000.000.—)
Túnis, 15. j’an. (NTB)
Herréttur í Túnis kvað í
dag upp dauðadóm yfir 25
mönnun^ sem sakaðir voru
um þátttöku í samsæri um að
myrða Habib Bourguiba for-
seta.
Key West, Florida, 15. jan. —
(NTB) —
Kuznetsov, aðstoðar utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna, er kom-
inn til Havana á Kúbu. Að lokn-
um viðræðum við fulltrúa Banda
ríkjastjómar um lausn Kúbu-
málsins, fór Kuznetsov um Mexí
kó til Havana.
Beirut, 5. janúar (NTB) —
Dagblöð í Líbanon segja að stjóm
Býrlands hafi tekizt að koma í
veg fyrir nýja byltingartilraun í
landinu. Að tilrauninni stóðu
nokkrir foringjar í hernum.
tekið er fram í áætlun U Thants
framkvæmdastjóra SÞ um sam
einingu Kongó.
Kongóstjórn kom saman til 1
fundar síðdegis í dag og stað- ,
festi síðan í símskeyti til U ’
Thants, sem undirritað er af
Cyrille Adoula forsætisráðherra
og Kasavubu forseta, að stjóm-
in stæði að fullu við ákvörðun- .
ina um sakamppgjöf.
Nobkrar óeirðir urðu í dag í
Leopoldville, höfuðborg Kongó. j
Um 890 manna hópur safnaðist {
saman fyrir framan brezika sendi
ráðið þar í borg til að mótmæla
framkomu Breta í Katangadeil-
unni. Um tuttugu manns réðust
inn í sendiráðið, brutu rúður og
eyðilögðu skjöl, ljósmyndir og
filmur, sem þeir fleygðu út á
götuna. Ekki tókst lögrc-glunni að
hafa hemil á mannfjaldanum,
sem hvarf ekki frá sendiráðinu
fyrr en Robert Gardiner, full-
trúi Sþ, kom á vettvang .Hefur
brezki sendiherrann sent Kongó
stjórn mótmæli vegna atburðar
ins.
Happdrætti
Háskólans
ÞRIÐJUDAGINN 15. janúar var
dregið í 1. flokki Happdrættis
Háskóla íslands. Dregnir voru
700 vinningar að fjárhæð 1.700.000
krónur.
Hæsti vinningurinn, hálf millj.
kr., kom á heilmiða nr. 42.365,
sem seldur var í Vestmannaeyj-
um.
100.000 krónur komu á hálf-
miða, nr. 22.409, sem seldir voru
á Akureyri og á SiglufirðL
10.000 krónur komu á númer:
187 5519 5859 8309 16287
16659 23131 29824 30575 35093
39265 43410 46313 47025 57438
59797
(Birt án ábyrgðar).
- TOGO
Framhald af bls. 14
um öðrum tóninn, og urðu við
ferðalangamir mjög varir við
þessa óvild af blöðum. í blöðum
sínum ásakaði Nkrumah Togo
um að þaðan kæmu morðingj-
banatilræði, sagði að Togostjórn
arnir, sem væru að sýna sér
veitti þeim skjól, og hótaði
Ghanastjórn að taka til sinna
ráða. Togostjórn harðneitaði,
heimtaði nánari tilgreiningu á
þessum ásökunum og sagði að
flóttamenn frá Ghana fengju að-
eins landvistarleyfi í Togo, ef
þeir hétu að skipta sér ekki af
stjórnmálum.
Okkur gekk ágætlega fram og
aftur yfir landamærin milli
ríkjanna, enda höfðum við Nig-
eríunúmer á bílnum. En mér
var sagt að oft gengi eigendum
bíla með Ghananúmer erfiðlega
að fá leyti til að fara inn í Togo
og öfugt. — E. Pá.
★
Mikið af sögulegum upplýs-
ingum hef ég tekið úr bókinni
„líie New Africa“ eftir Smith
Heystone. — E. Pá.
Heimsmeistnrakeppni í svii-
flugi í Argentínu í febrúnr
Buenos Aires, 12. jan. — AP
HeimsmeistaréLkeppnin í svif-
flugi mun fara fram í Junin í
Argentínu dagana 10.—24. febrú
«r n.k. 67 svifflugmenn frá 24
löndum hafa tilkynnt þátttöku
síua, en þetta er í fyrsta sinn, sem
slík keppni er haldin vestan hafs.
Þátttökuþjóðirnar eru m.a. V-
Þýzkaland, Austurríki, Ástralía,
Belgía, Danmörk, Noregur, Sví-
þjóð, Finnland, Brasilía, Bandarík
in, Kanada, Holland, ísrael, ítal-
ía, Rhodesia, Sviss, Pólland, Chile
Spánn, Frakkland og Júgóslavía.
í GÆRMORGUN lá við að
stórbruni yrði á Reykja-
víkurflugvelli er Skymast-
erflugvél Landhelgisgæzl-
unnar varð fyrir skemmd-
um og á annað þúsund
lítrar af flugvélabenzíni
flóðu umhverfis hana. —
Kranabifreið stórskemmdi
væng vélarinnar og olli
hundruð þúsunda króna
tjóni.
Um þessar mundir er ver-
ið að breyta flugskýli Land-
helgisg.æzlunnar á Reykjavílk-
urflugvelli tU þess að hsegt
sé að koma þar inn hinni
nýju Skymasterflugvéd gæzl-
unnar. Þarf að hækka dyra-
búnað skýlisins á vestur-
gafli þess.
í fyrradag var vél gæzl-
unnar tekin út úr skýlinu,
enda ráðgert að starfsmenn
Landssmiðjunnar hæfu starf
snemma í gærmortgun. Vélin
var sett út á stæðið vestan
skýlisins.
Kl. tæplega 9 í gænmorg-
un kom vörubíll frá Lands-
amiðjunni akandi með raf-
suðutæki, sem nota skyldi við
breytingu skýlisins. Á bíln-
um var krani og var suðu
tækið tengt í arm hans og
látið hanga þar til stuðnings.
Er bíllinn kom suður á völl
ók hann undir vinstri væng
landhelgisvélarinnar.
Armurinn var það hátt stil/lt
......
Skemmdirnar á SIF. — Hallastýrið er sundurskorið og göt á
benzíntank.
Miklar skemmdir á land-
helgisvélinni í gær
ur, að hann rakst upp í væng-
inn, er bíllinn ók undir. Skall
hann á hallastýri vélarinnar
og klippti það nærfellt í sund
ur, risti síðan sundur einn
benzíntank vélarinnar, svo
benzínið flóði kringum hana.
Fyrir norðan flugskýli II
á Reykjavíkurflugveilli er
greinilega merkt bílastæði, og
er bifreiðum ekki ætlað að
aka út á plan það, sem flug-
vélum er ætlað. Á bílastæð-
inu vom nokkrar bifreiðir
starfsmanna.
Fréttamaður Mbl. spurði
Gunnar Loftsson yfirflug-
virkja La n dhe lgisgæ zlu nnar,
um skemmdirnar á SIF.
— Þetta er»miki.l og afdrifa-
rik skemmd, sagði Gunnar. —
Það, sem við getum gert hér
á staðnum, er að taka vélina
inn í skýli, skipta um halla-
stýri og fiá síðan athugun
brezka vélaeftirlitsmannsins
hér fyrir flughæfni vélarinn-
ar, og gefur hann lokasvar
um, hvort hægt sé að fljúga
vélinni utan til viðgerðar.
Hægt mun að fá nýjan
væng á vélina og láta þennan
í skiptum hjá fyrirtæki í
Bretlandi, sem annast slíka
fyrirgreiðslu. Gangi þetta að
óskum, getur vélin verið kom
in til starfa eftir mánaðar-
tíma.
Eldur í hlöðu
Verða metsöEur togara
í Þýzkalandi og Bretlandi í dag?
f GÆR og í dag selur togarinn
Sigurður afla sinn og síld, er
'hann tók til flutnings, í Cuxhaven
í Þýzkalandi. Talið er líklegt
vegna þess hve farmur togarans
er stór, að um metsölu verði að
ræða. í dag selur togarinn Marz
afla sinn í Hull og gæti þar einn
ig verið um metsölu að ræða,
því skipið hefir um 250 tonn af
góðfiski til sölu.
í gær seldi Jón Þorláksson
253,7 tonn af síld í Cuxhaven fyr
ir 110.400 DM og Askur í Brem
erhaven 229,8 tonn af síld fyrir
110.000 DM.
Sigurður hafði í gær selt 150
tonn af fiski fyrir 64,335 DM og
á eftir að selja 90 tonn af fiski!
og 150—160 tonn af síld. i
Moskvu, 12. janúar — AP.
Dagblaðið Bakinski Rabotchy
skýrði frá því í gær, að þrir
menn hafi verið dæmdir til dauða
í Azerbajan fyrir innbrot. Höfðu
þeir brotizt inn í íbúðarhús —
en ekki er þess getið hverju stol
ið var.
Malmö, 14. jan. (NTB)
Rannsóknir við Almenna Sjuk-
huset í Malrnö hafa leitt í ljós, að
blint fólk á auðvelt með að
vinna að framköllun röntgen-
mynda. Myrkrið, sem hefur slæm
áhrif á sjáandi, truflar á engan
| hátt þá blindu. Sendinefndir
víða að hafa heimsótt sjúkrahús-
; ið í Malmö til að kynna sér
I rannsóknir þessar.
UM KL. 10 í gærmorgun va.5
þess vart að eldur var laus í
stórri braggahlöðu að Vestra
Garðsauka í Hvolshreppi, en 1
hlöðunni eru allt að 1500 hestar
af heyi. 30—40 menn úr Hvols-
hreppi og V-Landeyjum urniu
að því í allan gærdag að rífa upp
heyið, flytja það út og færa til
í hlöðunni. Munu um 300 hestar
hafa verið bornir út.
Eldurinn var aðallega í timbri i
súgþurrkunarstokki og varð að
rífa upp stokkinn. Tókst að
slökkva eldinn í gærkvöldi.
Skemmdir urðu furðu litlar á
heyi, þ.e.a.s. takist að ná því inn
Óskemmdu, sem út var borið. Er
það undir ábreiðum, sem fengn
ar voru frá Kaupfélagi Árnes-
inga.
Bóndi að Vestra Garðsauka er
Jón Einaissun.