Morgunblaðið - 26.01.1963, Blaðsíða 17
I
Laugardagur 26. Janflar 1968
MORCVNBLAÐ1Ð
17
JqdS
BIXSTJÓBAH: BIRGIR ÍSL. GUNNARSSON OG ÓLAFUR EGILSSON
Aðalfundur F.U.S.
í Árnessýslu
AÐALFUNDUR Félags ungra
Sjálfstæðismanna í Árnes-
sýslu var haldinn á Selfossi
sunnudaginn 13. janúar sl.
Var fundurinn vel sóttur. —
Fráfarandi formaður félags-
ins, Matthías Sveinsson,
sveitarstjóri, gaf skýrslu um
félagsstarfið á liðnu ári, en
einnig tóku til máls á fund-
inum ýmsir félagsmenn aðrir.
— Varaformaður Sambands
ungra Sjálfstæðismanna, Jó-
hann J. Ragnarsson, hdl., sat
fundinn á vegum sambands-
ins og flutti ávarp.
Aðalfundurinn hófst kl. 14,30
og var fundarstjóri Helgi Jóns-
son, bankafulltrúi, en fundar-
ritari Óskar Magnússon, kennari
á Eyrarbakka. Fundarstörf hóf-
ust með því að Matthías Sveins-
Matthías
son, sem verið hefur formaður
félagsins undanfarin 4 ár, flutti
skýrslu um starfsemina á liðnu
ári. Kom þar m.a. fram, að ferða
starfsemi félagsins hafði einkum
verið með blóma á árinu. Farin
var hópferð í Þórsmörk síðla í
ágúst og tóku þátt í henni nær
50 manns. Var ferðin vel undir-
búin og efnt til fjölbreyttrar
skemmtidagskrár í Þórsmörk,
haldin þar kvöldvaka o.fl., sem
mæltist mjög vel fyrir og var
það einróma álit þátttakenda, að
förin öll hefði tekizt hið bezta
í hvívetna. Þá tók félagið á móti
fjölmennum hóp ungra Sjálf-
Stæðismanna úr Reykjavík, sem
kom í heimsókn í héraðið um
mánaðamótin júní/júlí, skoðuðu
m. a. gróðurhús í Hveragerði,
kynntu sér starfsemi Mjólkurbús
flóamanna á Selfossi o. fl. Var
efnt til sameiginlegrar kaffi-
drykkju í tilefni af heimsókn
þessari og þar haldnar nokkrar
ræður.
Stjórnmálastarfsemi félagsins
& árinu var með svipuðum hætti
og áður. Fulltrúar frá félaginu
áttu hlut að stofnun kjördæm-
isþings ungra Sjálfstæðismanna
f Suðurlandskjördæmi, en hún
fór fram í Vestmannaeyjum á sl.
hausti. Sátu 5 fulltrúar frá fé-
laginu stofnþingið- — Unnið var
að endurskoðun félagaskrár og
ný og vönduð spjaldskrá gerð.
Sérstök skemmtinefnd starfaði
á vegum félagsins sl. ár.
Að skýrslu formanns lokinni
voru lögð fram drög að nýjum
lögum fyrir félagið, þar sem gert
var ráð fyrir nauðsynlegum
breytingum vegna nýrrar kjör-
dæmaskipunar og breyttra skipu
lagsreglna Sjálfstæðisflokksins,
sem af henni hafa leitt. Voru
hin nýju lög samþykkt ein-
róma.
Allmargir nýir meðlimir fengu
inngöngu í félagið á fundinum.
Stjórnarkjör —
formannaskipti
Þessu næst fór fram stjórnar-
kjör. Matthías Sveinsson var
ekki í kjöri, enda fyrir skömmu |
fluttur búferlum úr héraðinu.
í hans stað var kjörinn til for-
mennsku Óli Þ. Guðbjartsson,
kennari á Selfossi. Aðrir stjórn-
armenn voru kjörnir þau Elín
Arnoldsdóttir, Selfossi, Óskar
Magnússon, Eyrarbakka, Ásgeir
Guðnason, Selfossi, Valgarð
Runólfsson, Hveragerði, Sigurð-
ur Guðmundsson, Selfossi, og
Sverrir Steindórsson, Selfossi.
Varastjórn skipa þessir: Jón
Helgi Hálfdánarson, Garðar
Einarsson, Björn Arnoldsson,
Tryggvi Gestsson, Benedikt Boga
son, Valdemar Þorsteinsson og
Guðleif Guðlaugsdóttir.
Endurskoðendur voru kjörn-
ir Gunnar EinarSson og Helgi
Jónsson.
í fulltrúaráð Sjálfstæðisfélag-
anna í Árnessýslu hlutu kosn-
ingu þeir Ásgeir Guðnason og
Jón Helgi Hálfdánarson og til
vara Skúli B. Ágústsson.
Fráfarandi formaður bauð
hina nýju stjórnendur félagsins
velkomna til starfa. Nýkjörinn
formaður, Óli Þ. Guðbjartsson,
þakkaði það traust, sem sér og
meðstjórnarmönnum sínum hefði
verið sýnt með kjörinu. Enn-
fremur þakkaði hann Matthíasi
Sveinssyni vel unnin störf í
þágu félagsins og kvað hann
hafa skilið eftir sig þau spor,
sem seint mundi yfir skefla.
Að stjórnarkjöri loknu flutti
varaformaður SUS, Jóhann J.
Ragnarsson, hdl., stutta ræðu og
gerði fundarmönnum grein fyr-
ir helztu viðfangsefnum stjórn-
ar SUS um þessar mundir. Vék
hann m.a. að undirbúningi
næstu Alþingiskosninga, benti á
að málefnaleg aðstaða stuðnings
manna núverandi ríkisstjórnar
væri góð og mætti því vænta
góðs árangurs í kosningunum, ef
allir Sjálfstæðismenn legðu sitt
af mörkum í kosningabaráttunni.
Hvatti hann unga Sjálfstæðis-
menn til dáða.
Miklar umræður
Miklar umræður urðu á fund-
inum um ýmis félagsmál og mál-
efni kjördæmisins. I þeim tóku
þátt, auk þeirra, sem þegar hafa
verið nefndir, þeir Skúli B.
Ágústsson, Jón Helgi Hálfdánar-
son, Valgarð Runólfsson og
Helgi Jónsson. — Samþykkt var
einróma tillaga varðandi fram-
boð flokksins í kjördæminu við
væntanlegar Alþingiskosningar,
en mikill áhugi ríkti meðal
fundarmanna á því að gera hlut
Sjálfstæðisflokksins í þeim sem
allra beztan.
Undir lok fundarins flutti
Matthías Sveinsson nokkur
kveðjuorð til félagsmanna, jafn
framt því sem hann þakkaði
þeim samstarfið. Minnti hann á
þá skyldu yngri kynslóðarinn-
ar, sem brátt ætti að erfa
landvð, að skila því gæðaríkara
Framh. á bls. 10
Hdskóli íslands
„Vaka“ heldur ráðstefnu
um hagsmunamái stúdenta
— Rætt við formann félagsins,
Sigurð Hafstein, stud. jur.
UM ÞESSA HELGI efnir
„VAKA'1, félag lýðræðis-
sinnaðra stúdenta, til ráð-
stefnu um hagsmunamál
háskólastúdenta. Verða þar'
tekin til meðferðar öll
veigamestu mál, sem nú
eru ofarlega á baugi hjá
stúdentum. Þar sem slík
ráðstefna hefur ekki verið
haldin áður og hér er um
að ræða merkan atburð í
félagsmálum háskólans,
hefur tíðindamaður síðunn
ar snúið sér til formanns
„VÖKU“, Sigurðar Haf-
stein, stud. jur., og innt
hann fregna af ráðstefnu
þessari v og starfsemi
„VÖKU“ almennt um þess
ar mundir, en félagið er
sem kunnugt er lang-
stærsta stjónmálafélagið í
háskólanum.
Mikilvæg mál
til lykta leidd.
— „Vaka“ var stöfnuð fyr-
ir 27 árum, rifjaði Sigurður
upp, þegar við hittum hann
að máli — og hefur lengst
af verið í fararbroddi í fé-
lagsmálum stúdenta. Segja
má að öll þýðingarmestu hags
munamál háskólastúdenta
fram til þessa dags hafi verið
leidd til lykta af „Vöku“ og
fulltrúum félagsins í Stúd-
entaráði. Má í því sambandi
frá síðustu árum minnast
stórfelldrar eflingar Lána-
sjóðs stúdenta, hótelreksturs-
ins á Stúdentagörðunum,
rekturs Bóksölu stúdenta og
síaukinnar starfsemi Ferða-
þjónustu stúdenta, svo að
eitthvað sé nefnt.
Nú, þegar mörg af þeim
málum, sem hvað harðast
hefur verið barizt fyrir á und
anförnum árum eru til lykta
leidd, þótti stjórn „Vöku“ til
hlýða, að .kveðja samati ráð-
stefnu „Vökumanna" til þess
að leggja á ráðin um happa-
drýgstu leiðir, til að hrinda
í framkvæmd þeim hagsmuna
málum stúdenta, sem brýnust
eru í dag.
Tveggja daga
ráðstefna.
— Og hvað er svo helzt um
ráðstefnuna að segja?
— Ráðstefnunni er ætlað að
standa í 2 daga. Hún verður
sett í 1. kennslustofu háskól-
ans kl. 2 e.h. á laugardag. í
upphafi hennar mun formað-
ur Stúdentaráðs, Jón E, Ragn
arsson, flytja yfirlitserindi
um alla helztu þættina í
málefnum stúdenta. Að því
búnu verða kjörnar 5 nefndir,
sem vinna eiga að undirbún-
Siguröur Hafstein
ingi tillagna um eftirfarandi
málaflokka:
1. Utanríkismál,
2. Félagsheimili stúdenta,
3. Stúdentagarðana, hótel
rekstur og ferðamál,
4. Könnun á högum
stúdenta og lánasjóðsmál, óg
5. Umbætur á starfshátt-
um Stúdentaráðs.
Gera má ráð fyrir, að störf
nefndanna standi fram til
kvölds og máske einnig fyrri-
hluta sunnudags. Þegar álit
nefndanna verða fullbúin, feir
endanleg afgreiðsla þeirra
fram á almennum fundum
ráðstefnunnar. Má ætla, að
þar verði jafnvel enn fleiri
mál tekin til meðferðar.
Óhætt mun að fullyrða, að
hagsmunamál stúdenta hafi
aldrei áður verið tekin til svo
ýtarlegrar meðferðar á jafn
breiðum grundvelli.
Margir þátttakendur
úr öllum
háskóladeildum.
— Hvað er gert ráð fyrir
að margir taki þátt í störfum
ráðstefnunnar?
— Þátttakendur munu
verða um 50 talsins úr öllum
sex deildum háskólans,- Það
er von okkar,' að þessi ráð-
stefna eigi eftir að marka
tímamót í félags- og hags-
munamálum stúdenta og að
áhrifa hennar eigi eftir að
gæta svo um munar á fram-
vindu þessara mála næstu
árin.
— Hvað vilt þú helzt regja,
Sigurður, um hagsmunamál
stúdenta um þessar mundir?
Félagsheimili — brýnasta
hagsmunamálið.
— Brýnasta hagsmunamál
stúdenta í dag tel ég tvímæla
laust vera byggingu f "ags-
heimilis stúdenta. Það er
óskemmtilegt frá að segja, að
húsnæðisskortur skuli standa
félagslífi háskólastúdenta svo
tilfinnanlega fyrir þrifum sem
raun ber vitni. Eg tel því,
að það megi undir engum
kringumstæðum dragast öllu
lengur, að hafizt verði handa
til úrbóta í þessu efni og í
því sambandi er mikilsvert að
háskólinn láti ekki sinn
hlut eftir liggja. Meðal „Vöku
manna“ hefur upp á síðkastið
ríkt mjög vaxandi áhugi á
því, að þetta mál komizt á
öruggan rekspöl sem allra
fyrst.
Mikill áhugi meðal
Vökumanna.
— Og að lökum: Hvað er
frekast að segja um starfsemi
„Vöku“ almennt?
— Enn sem fyrr er það
meginstefnumál félagsins, að
vinna að eflingu lýðræðis og
lýðræðishugsjóna en gegn
hvers konar áhrifum ofbeldis-
og öfgastefna, jafnframt því
að efla samtök stúdenta til
sameiginlegra átaka í þeim
málum, er stúdentum horfa
til heilla. Fundarhöld og
blaðaútgáfu hafa jafnan verið
Framh. á bls. 10