Morgunblaðið - 02.02.1963, Page 8
8
MORCUNBLAÐ1Ð
taugardagur 2. febrúar 1909
L.T
au'ta*
Áfanginn, sem nú er verið að ljúka við. í framtíðinni er gert ráð fyrir viðbyggingum, m. a. bremur viðbótarhæðum ofan
á Laugavegsálmuna. Reitirnir milli akreina og umhverfis bílastæði, sem öll eru úr járnbentri steinsteypu, eru gróðurreitir.
(Teikn. Halldór Pétursson).
Bylting á sviöi bílaviðgerða
Hekla hf. flytur ■ ný husákynni
H E K L A h.f. tekur í dag í notkun nýbyggingu sína við Lauga-
veg 170—172, og opnar þar glæsilegasta bílaverkstæði, sem þekkzt
hefur hér á landi. Er verkstæði þetta á allan hátt útbúið eins og
bezt gerist erlendis, með mælitæki og rannsóknartæki, sem kanna
ástand bifreiðar og hreyfils áður en viðgerð hefst og eftir að henni
er lokið. Þarna er þvottastöð með úðunarækjum til að þvo bifreið-
ir, stöð til að kvoða undirvagn til varnar ryði og sérstök verkstæði
iyrir mælingar, skyndiviðgerðir, aðalviðgerðir, vélaviðgerðir og
réttingar. Þá er í nýbyggingunni stærðar verzlun fyrir varahluti í
Volkswagen og Land Rover bifreiðir auk varahluta í Caterpillar
iæki. Sú hlið verzlunarinnar ,sem snýr að Laugaveginum, er 27
metra löng og samfellt gler í stálrömmum. Alls er þetta nýja hús-
næði um 4.200 fermetrar eða um 18.400 rúmmetrar.
Fara hér. 6 eftir nobkrar upp-
lýsingar um húsnæðið frá >ór
Sandiholt arkitekt, en hann hefur
haft yfirumsjón með teikning-
um að húsinu, gerð þess og inn-
réttingu.
Húsið er byggt fyrir Heild-
verzluninan Heklu h.f. og önnur
þau fyrir tæki, er Sigfús Bjarna-
son forstjóri veitir forstöðu. Sjálf
ur hefur hann, ásamt bróður
sínum Svaivari, haft yfirumsjón
með framlkvæandum allt frá því
að bygging þess í núverandi
mynd hófst 1959. Áður hafði ver
ið byggð um 830 fermetra verk-
stæðisbygging eftir teikningum
Sigmundar Halldórssonar arki-
tekts.
Það, sem byggt hefur verið, er
ekki nema hluti þess, sem vonir
standa til að síðar verði, því ætl-
unin er að byggja þrjár hæðir
ofan á álmuna, er liggur við
Laugaveg, nýja álrnu austast á
lóðinni og hækka elztu bygging
una.
Nú er gólfflötur alls um 4.200
fermetrar í um 18.400 rúmmetra
byggingum. En með þeim viðbót
um, sem að ofan greinir, bættust
Framhald á bls. 17.
Breytingar á starfs-
tilhögun
í sambandi við flutninga Heklu
h.f., ræddi Sigfús Bjarnason for-
stjóri við, fréttamenn blaða og
útvarps s.l. fimmtudag, og gaf
þeim kost á að skoða hin glæsi-
legu húsakynni við Laugaveginn.
Tilgangurinn með þessu stór-
hýsi er að koma upp höfuðstöðv-
um allra fyrirtækja, sem Sigtfús
Bjarnason stjórnar. Gerir húsið
það kleitft að breyta algjörlega
allri starfstilhögun. Þótt húsið
við Hverfisgötu 103 hatfi verið
atfar rúmgott fyrir tíu árum, hef-
ur starfsemin aukizt svo gífur-
lega, að undanfarin tvö til þrjú
Hver bílvirki fær sína verkfærakistu, sem er á hjólum til að
auðvelda flutning. Kisturnar eru með læstu loki, sem er jafn-
framt sæti fyrir viðgerðarmanninn, og með skúffu fyrir bolta
og rær. Verkfærakisturnar eru smíðaðar hjá einu af dóttur-
fyrirtækjum Heklu. Myndirnar hér á síðunni tók Kristján
Magnússon.
ár hefur hver starfsmaður orðið
að skila tvöföldu dagsverki við
hin erfiðustu skilyrði. Óskar Sig-
fús sérstaklega að láta í ljósi inni
lega þakkarskuld sína við starfs
fólkið allt fyrir ósérhlífni þess/
Nú fást starfsskilyrði, sem sam
bærileg eru því bezta erlendis.
Samt er Ijóst að innan s'kamms
verður verkstæðisrými ekki leng
ur fullnægjandi, og hatfa verið
gerðar ráðstafanir til þess að
tryggja fyrirtækinu lóð undir
frekari verkstæðisbyggingar.
Fyrirtækjum Sigfúsar Bjarna-
sonar verður nú skipt niður í
deildir. Er þar fyrst að nefna
bitfreiðadeild Vol'kswagen og
Land-Rover. Framkvæmdastjóri
þessarar deildar verður Árni
Bjarnason, sem um tuttugu ára
skeið hefur starfað hjá Heklu
h.f. Hjá honum munu starfa Finn
bogi Eyjóltfsson verzlunarstjóri,
Jón Ármann Jónsson, fram-
kvæmdastjóri verkstæðisins, Óli
M. ísaksson sölustjóri Land-Rov
er, örn Egilsson sölustjóri Volks
wagen, og Gunnar Pedersen sölu
maður á Keflavíkurflugvelli.
Finnbogi hefur séð um verzlun
og varahluti bifreiðadeildarinn-
ar, og starfað hjá fyrirtækjuim
Sigfúsar í um 20 ár. Einnig hef-
ur hann verið yfirmaður verk-
stæðisins. Þessi störf hafa aukizt
svo mjög að Finnbogi hefur
neyðzt til að leggja nótt við dag,
og var þess vegna nauðsynlegt
að skipta starfinu.
Jón Ármann Jónsson var áður
kennari við Vélskólann. Hann
fór á síðasta ári i kynningardvöl
til Skandinavisk Motor A/S í
Kaupmannaihöfn og víðar í Dan-
mörku, en fyrirtæki þetta hefur
umiboð fyrir Volkswagen og
Land-Rover í Danmörku. Kynnti
Jón sér sérstaklega tilihögun og
fyrirkomulag ákvæðisvinnu, sem
tíðkast um allan heim hjá Volks-
wagen. Er það tilgangur Sigfús-
ar að bjóða bílvirkjum ákvæðis-
vinnu í nýja verkstæðinu, en að
sjálfsögðu tekur það nokkurn
trma að koma á slíkri vinnutil-
högun.
Óli M. fsaksson hefur starfað
hjá fyrirtækjum Sigfúsar síðan
1945, og er auk þess elzti starfs-
rnaður bílaiðnaðarins hér á landi.
Hann er formaður Samibands
bifreiðaverkstæða á íslandi.
Caterpillerumboðið verður sér
stök deild í nýju húsakynnunum,
og Verður Sverrir Sigfússon fram
kvæmdastjóri hennar. Sölustjór-
ar verða Kjartan Kjartansson
fyrir bátavélar og Davíð Erlends
son fyrir landvélar. Verzlunar-
stjóri varahlutadeildarinnar verð
ur Karl Karlsson.
Framkvæmdastjóri Rafmagns-
deildar Heklu er Árni Ragnars-
son, og framkvæmdastjóri Raf-
tækjavinnustofu Heklu Svavar
Bjarnason, bróðir Sigfúsar. Á
Svavari hefur hvílt meginþungi
við framkvæmidir nýbygginganna
við Laugaveg 170—172.
Enn eru ekki talin öll umboð
Heklu, en ætlunin er að sameina,
öll önnur umboð í eina deild.
Af öðrum umboðum má t.d.
nefna Goodyear, stærsta gúmmí-
fyrirtæki heims, Solex, sem
smíðar blöndunga í flestar bitf-
reiðir Evrópu og The Benedix
Corporation, sem smíðar bifreiða
hluti fyrir margar bílasmiðjur
bæði í Evrópu og Ameríku.
Þá er ótalin fjárhags- og bók-
haldsdeild, sem Sigfús mun sjálf
ur veita forstöðu, auk þess sem
hann hefur að sjálfsögðu ytfir-
umsjón með öðrum deildum og
er tengiliður milli þeirra. Þar
verður Lýður Björnsson skritf-
stotfustjóri, en hann hefur startf-
að hjá Heklu í rúm 20 ár, og
gjaldkeri verður Jóhanna
Tryggvadóttir, sem sinnt hefur
því starfi í um tíu ár.
Á fyrstu hæð álmunnar við
Laugaveg verður afmarkað
svæði fyrir sýningarbíla, en aust
asta hlut álmunnar hefur Siig-
fús leigt út. Leigutakar eru Ge-
org Ámundason & Co., Verzlun-
arbankinn og rakarastotfa Skúla
Nielsen. Georg Ámundason ann-
ast m.a. sölu og viðgerðir útvarps
tækja í bifreiðir, og getur verið
þægiiegt fyrir eigendiur Volks-
wagen og Land-Rover bifreiða
að eiga þar innangengt. Einnig
getur 'verið þægilegt fyrir við-
skiptamenn að geta brugðið sér
á rakarastofu meðan beðið er
eftir smá viðgerðum.
Sigfús Bjarnason vill vara við
skiptavini gegn því að búast við
of skjótum breyiingum til batn-
aðar á afköstum á nýja verkstæð
inu. Það tekur einn til þrjá mán-
uði fyrir bílvirkjana að aðlag-
ast hinum nýjú starfsháttum og
kynnast meðferð og hagnýtingu
hinna nýju tækja.
— ___ | *
Varðandi sölu bifreiða reiknar
Sigfús með, að hún verði í líku
formi og undanfarið, þ.e. að mið
að verði við staðgreiðslu, þar
sem bankarnir eru ófúsir að lána
út á bíla. Hins vegar geta orðið
frávik frá þessu í þeim tilfell-
um, þegar innflytjendur eiga ó-
Framhald á bls. 17.
Sigfús Bjarnason forstjóri.
Þetta kom allt af
sjálfu sér
segir Sigfús Bjarnason
AÐSPURÐUR um sjálfan sig
svarar Sigfús Bjarnason:
— Ég er bóndasonur úr
Vestur-Húnavatnssýslu, og
fluttist til Reykjavíkur haust-
ið 1932, þá 19 ára að aldri.
Áður hafði ég hlotið alla þá
skólamenntun, sem mér tókst
að afla mér, en það voru 12
vikur í farskóla og háltfur ann-
ar vetur í Reýkjavík. Annað
sem ég hef lært, hefur starfið
kennt mér. Þegar til Reykja-
víkur koim vann ég fyrst í
nokkra mánuði sem mjólkur-
póstur hjá Mjólkurfélagi
Reykjavíkur og seinna við
fiskverkun hjá Kveldúlfi.
Fljótlega eftir það réðist ég
til Vátryggingarskrifstofu Sig
fúsar Sighvatssonar.
— Heklu stofnaði ég 20.
desember 1933 ásamt fleirum,
en þegar félagið var gert að
hlutafélagi 1940, varð það
jatfnframt einkaeign fjöl-
skylóu minnar.
— Fljótlega eftir komuna
til Reykjavíkur kynntist ég
hinum kunna æskulýðsleið-
toga Kristjáni L. Gestssyni
framkvæmdastjóra, og rná
segja að verzlunarroenntun
mín sé fengin gegnum sarotöl
við hann. Studdi hann mig atf
ráðum og dáð þegar ég stotfn-
aði fyrirtækið og alltaf síðan.
— Framgang fyrirtækisins
vii ég helzt þakka góðu startfs
fóllki, sem lagt hefur mikið
að sér og ég er mjög þakk-
látur, ekki sízt þeim, sem mest
hefur á reynt, en þeir eru
Árni Bjarnason, Lýður Björns
son, Óli H. ísaksson og Finn-
bogi Eyjólfsson. Einnig tel ég
það mikils virði að ég hef á-
sett mér að lofa aldrei meiru
í peningamálum en ég get ör-
uigglega staðið við.
— Ég hef verið svo hepp-
inn að ná í umboð fyrir fjölda
heimsþekktra fyrirtækja.
Þetta kom alit af sjálfu sér.
Ég bef ekki tékið umboð af
neinum manni, heldur verið
boðin þau öll, nema Land-Rov
er. Ég var einn margra uro-
sækjanda um það uroboð og
varð hlutskarpastur.
— Það er rétt að í þessum
önn-um hefur efcki verið miki'1-1
tími fyrir fjölskyl-duna. En
áilt hefur þetta blessazt. Ég
var svo lánsamur að kvænast
góðri konu, Rannveigu Ingi-
mundardóttur, sem ég kynnt-
ist í Reykjaskóla. Hún hefur
að mestu annast Uppeldi barn
anna, en þau eru: Ingimund-
ur, lögfræðinemi, sem vinnur
a-llar frístundir hjá fyrirtæk-
inu, Sverrir, sem hefur starf-
að hjá fyrirtækinu í þrjú ár,
og tekur við Caterpillar deild-
inni, Sigfús, nú við verzlun-
arnám í Sviss og Margrét,
sem er aðeins 15 ára og nem-
andi í Verzlunarskólanum bér.