Morgunblaðið - 05.03.1963, Síða 1
24 síður
50. árgangur
Kvefið
er dýrf
- Kostar 250
Jbiís. millj. kr._
árlega i USA
STÓRBLAÐIÐ New York
Herald Tribune skýrði írá því
’ íyrir helgina að ef- til vill
verði uant innan fárra ára að
sigrast á einum elzta og út-
breididasta sj úkdómi, seim
1 þjáð hefur manninn — kvef-
I inu-
Blaðið segir að í Bandaríkj
t unum komi fyrir 250 milljón
kvef-tilfelli á ári. Hefur það
eftir tímariti læknasamtak-
anna þar í landi að kvef kosti
bandarískan iðnað um 6 þús-
und milljónir dollara árlega
í vinnutapi. Að minnsta kosti
I sex bandarísk lyfjafélög og
| þrjú brezk vinna að rannsókn-
um á bóluefni gegn kvefi, og
má búast við að þær geti stór
lega dregið úr kveftilfellum.
Fyrir rúmu ári spáði dr.
Justin M. Andrews, forstöðu-
maður rEinnsókna á ofnæmis
og smitsjúkdómum í Banda-
ríkjunum, því að innan fimm
ára tækist að finna bóluefni
gegn algengustu tegundum
kvefs. Hann sagði einnig að
tíu árum eftir að bóluefni
i þessi hafi verið tekin í notk-
un, mætti búast við að kvef-
tilfelli væru orðin sjaldgæd,
jafnvel svo til horfin með
öllu.
Fyrstu kvefbó'luefnin verða
sennilega gefm mejí innspraut
ingum, en seinna má búast
við að bóluefni úr lifandi veir-
um verði tekið inn í töflum.
í>að er ekkert einfalt við
venjulegt kvef. í>etta er flók-
inn sjúkdómur, sem orsakast
af um 120 eða fleiri veiru af-
brigðum, eða af Eaton sjúk-
dómsvaldi, smálífveru, sem er
hvorki sóttkveikja né veira.
Hinsvegar var skýrt frá því
i tímaritinu „Medical World
I News“ í október að vandinn
að gera fólk ónæmt við kvefi
„sé ef til vill ekiki eins flók-
inn og veirufjöldinn gæti gef-
I ið til kynna.“ Segir tímaritið
að í ljós hafi komið að í sjúk-
lingum, sem tekið höfðu Asíu
inflúenzu, hafi myndaat mót-
1 eitur, ekki aðeins gegn þeim
sjúkdómi, heldur einnig gegn
öðrum afbrigðum inflúenzu,
sem ekki gengu á þeim tíma.
En það eru svipaðar veirugerð
| ir sem valda inflúenzu og
venjulegu kvefi. „Hagkvæm
hagnýting slíkrar þekkingar
1 gæti leitt til þess að bóiuefni,
sem inniheldur móteitur við
tiltölulega fláum veirutegund-
um, gæti haft áhrif á aðrar
veirur,“ segir tímaritið. Abb-
I ott rannsóknarstöðvarnar í
Ohicago hafa reynt kvefbólu-
efni undanfarin fjögur ár á
starfsmenn verksmiðju einn-
ar í Louisiana og á sjóliða í
I Great Laikes flotastöðinni,
með góðum árangrL Einnig
hefur verið reynt bóluefni
I gegn adenovirus með góðum
árangri, en veirur þessar hafa
I valdið ýmsum sjúkdómum,
allt frá kvefi í krabbamein í
' hömstrum.
Myndin hér að ofan er af sovézkri fjögnrra hreyfla skrúfuþotu, sem notuð er til
njósna. Myndina tók handaríski flotinn. Flugvélin er ein af fjórum, sem þotur varn-
arliðsins komu auga á fyrir austan land fyrir nokkrum dögum — sjá nánar á síðu 10.
Engin skýrgreining
er til á aukaaöild,
— segir Hallstein
— Rœðir við Kennedy
um viðskipti USA
og Evrópu
XVashington, k- marz — (AP)
WALTER Hallstein prófess-
or, framkvæmdastjóri. Efna-
hagsbandalags Evrópu, er nú
í Washington og átti í dag
fund með Kennedy forseta.Að
fundinum loknum sagði hann
við fréttamenn að hann væri
sannfærður um að Bretar
gerðust aðilar að EBE. —
„Hvenær? — Það veit eng-
inn.“
Hallstein sagði að allar á-
ætlanir byggðust á því að
Bretar yrðu aðilar, en spurn-
ingin væri hvað gera bæri
þangað til, þ. e. hvort um
nokkra bráðabirgðalausn gæti
verið að ræða. „Aukaaðild
fyrir Breta gæti verið lausn-
in,“ sagði hann, en henti jafn-
framt á að hvorki Bretar né
stjórnir aðildarríkjanna sex
hafi samþykkt þá lausn. Varð
andi aukaaðild sagði Hall-
stein ennfremur að „enginn
veit hvað aukaaðild þýðir,
þar sem engin skýrgreining
er á henni í (Rómar) sátt-
málanum.“
Hallstein, sem er 61 árs, var
mjög ánægður með viðræðurnar
við Kennedy. Sagði hann að um-
ræðurnar hafi snúizt aðallega um
viðskipti Bandaríkjanna og Ev-
rópu. Kvaðst hann vera „bjart-
sýnn“ á að Efnahagsbandalagið
dragi ekki úr innflutningi Banda
rikjanna á landbúnaðarafurðum
Framhald á bls. 2.
Bidault |
hyggst
steypa
ide Gaulle
[ — Viðtal bans
við BBC
S vekur gremju
| í Frakklandi
London, 4. marz (AP-NTB)
FYRIR skömmu var Georges Bid
ault, fyrrverandi forsætisráð-
herra Frakklands og stjórnmála
andstæðingur ðe Gaulle forseta,
staddur í London, og var þá tek
ið upp sjónvarpsviðtal við hann
á vegum BBC. Var viðtal þetta
sent út um brezkar sjónvarps-
stöðvar í kvöld. Sagði Bidault
þar meðal annars, að hann ætti
kost á nægum stuðningi til að
steypa de Gaulle af stóli.
Frönsk yfirvöld hafa látið í
ljós undrun sína yfir því að Bret
ar skuli sjónvarpa viðtali við
mann, sem franska stjórnin hafi
fyrirskipað að láta handtaka
vegna þátttöku hans í OAS hreyf
ingunni og vegna þess að hann
er leiðtogi samtaka, sem hafa
það á stefnuskrá sinni að myrða
de Gaulle forseta. Er talið að
þessi ráðstöfun BBC verði sízt
til þess að bæta sambúð Breta
og Frakka.
Dagskrárstjóri BBC sagði að
sjónvarpsviðtalið ' hafi verið
„kvikmyndað nýlega — mjög ný
lega“ í London, en síðan hafi
Bidault horfið. Fulltrúar ScOt-
land Yard lögreglunnar neita
allri vitneskju um komu Bid-
aults til Bretlands.
Bidault er nú 62 ára. Hann var
um skeið einn helzti stuðnings-
maður de Gaulle, en leiðir þeirra
skildu þegar forsetinn ákvað a®
veita Alsír sjálfstæði. Bidault er
nú leiðtogi Þjóðemislegu and-
stöðuhreyfingarinnar (CNR), en
félagsskapur þessi er nokkurs-
konar stjórnmáladeild OAS-sam
takanna. Hann kom fram hjá
BBC í dagskrá, sem nefnist
Framhald á bls. 2.
Lýðræðissinnar sigruðu giæsilega í Iðju
aðeíns 22%
Kommúntstar hafa nú
atkvæða í félaginu
Framsóknarmenn urðu fyrir
miklum vonbrigðum
IJRSLIT stjórnarkosninganna
í Iðju, félagi verksmiðjufólks
í Reykjavík, sem fóru fram
um síðustu helgi, urðu mikill
sigur fyrir B-listann, lista lýð
ræðissinna í félaginu. Hlaut
hann 851 atkvæði eða tæp
62% gildra atkvæða.
A-listi kommúnista hlaut
307 atkvæði og C-listi Fram-
sóknarmanna, er kölluðu sig
„lýðræðissinnaða vinstri
menn“, 218 atkvæði. 27 at-
kvæði voru auð og 5 ógild.
Samtals greiddu atkvæði 1408
af 1727, er á kjörskrá voru.
í fyrra voru 1661 á kjör-
skrá Iðju, er stjórnarkjör fór
fram. Greiddu þá 1384 at-
kvæði. Kosningaþátttaka var
því hlutfallslega aðeins minni
Framhald á bls. 23
Guðjón Sv. Sigurðsson