Morgunblaðið - 05.03.1963, Blaðsíða 12
12
MORCVNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 5. marz 1963
JMwiptiMaMli
Útgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson,
Sigurður Bjarnason frá Vigur
# Matthías Johannessen,
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritsijórn: Að^lstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 4.00 eintakió.
HVAÐ SYNIR IÐJU-
KOSNINGIN?
¥¥vaða vísbendingu gefa úr-
slit stjómarkosningarinn-
ar í Iðju, félagi verksmiðju-
fólks í Reykjavílc, um póli-
tískt ástand og horfur meðal
almennings í borginni?
Lýðræðisöflin meðal verk-
smiðjufólks unnu mikinn
sigur í þessari kosningu. —
Kommúnistar, sem stjórnuðu
félaginu árum saman og
höfðu þar verulegan meiri-
hluta, fá nú aðeins 307 at-
kvæði af 1408, sem greidd
voru. I>að þýðir, að þeir hafa
aðeins fengið rúm 20% at-
kvæða.
Svona hrikalegt er fylgis-
tap kommúnista í félagi
verksmiðjufólks í höfuð-
borginni.
Framsóknarmenn buðu nú
í fyrsta skipti fram sjálfstætt
í Iðju. Áður hefur flokksfor-
ysta þeirra í félaginu stutt
framboðslista kommúnista,
en vitað er að nokkrir Fram-
sóknarmenn í Iðju, sem fyrir-
líta kommúnistadekur flokks-
ins, hafa undanfarin ár stutt
framboðslista lýðræðissinna.
Framsóknarleiðtogamir
reiddu hátt til höggs í þess-
um kosningum. I áróðri sín-
um fullyrtu þeir, að þeir
myndu verða „stærsti and-
stöðuflokkur“ stjómar lýð-
ræðissinna í félaginu. En
niðurstaðan varð sú, að þeir
fengu aðeins 218 atkvæði.
Samanlagt hafa framboðs-
listar kommúnista og Fram-
sóknarmanna í þessum Iðju-
kosningum fengið 525 at-
kvæði. Framboðslisti lýðræð-
issinna hlaut hinsvegar 851
atkvæði, eða 326 atkv. fleira
en kommúnistar og Fram-
sóknarmenn samanlagt.
-k
Þetta er vissulega mikill og
glæsilegur sigur lýðræðis-
aflanna, ekki sízt þegar á það
er litið að Framsóknarmenn
og kommúnistar lögðu ofur-
kapp á að efla fylgi sitt sem
mest í þessum kosningum.
Leiðtogar þjóðfylkingarflokk-
anna sögðu fólkinu, að nú
riði á að efla stjómarand-
stöðuflokkana. Úrslit kosn-
ingarinnar í Iðju yrðu próf-
steinn á fylgi Viðreisnar-
stjórnarinnar og uppbygg-
ingarstefnu hennar.
Þetta sögðu Framsóknar-
menn og kommúnistar fyrir
kosningarnar í Iðju. En verk-
smiðjuíólkið tók af öll tví-
mæli um afstöðu sína. Það
hafnaði forystu Framsóknar-
manna og kommúnista eins
rækilega og frekast varð á
kosið. Það afneitaði verð-
bólgustefnu þjóðfylkingar-
manna en skipaði sér imdir
merki lýðræðisaflanna, sem
berjast fyrir bættum lífs-
kjörum verksmiðjufólks af
festu og ábyrgðartilfinningu.
Úrslitin í Iðju em þess vegna
stórkostlegt áfall fyrir þjóð-
fylkingarflokkana, hvom í
sínu lagi og sameiginlega.
Þau sýna, að verksmiðjufólk-
ið í Reykjavík, sem kemur
frá miklum fjölda heimila í
borginni, fordæmir hina á-
byrgðarlausu niðurrifsstefnu
þjóðfylkingarmanna. Það kýs
áframhaldandi framfarir og
uppbyggingu í landinu á
grundvelli raunsærrar og á-
byrgrar efnahagsmálastefnu.
Stjórn Iðju, undir forystu
Guðjóns Sigurðssonar og fé-
laga hans, hefur unnið merki-
legt starf í baráttunni fyrir
bættum kjömm iðnverka-
fólks. Hún hefur í staðinn
hlotið traust þess og fylgi.
Lýðræðisöflin í Iðju em sterk
og hrinda hverju áhlaupi
kommúnista og Framsóknar-
manna á fætur öðru. Þessi
kosningaúrslit eru greinileg
vísbending um það, að komm-
únistar em að tapa innan
verkalýðshreyfingarinnar, en
lýðræðissinnar eru í sókn.
Þess vegna er ástæða til þess
að óska lýðræðissinnum til
hamingju með þau. Þau eri
gleðilegt tímanna tákn.
FRAMLÁGIR
MENN
eir vom framlágir leiðtog-
ar Framsóknarmanna, eft
ir að atkvæðatalningunni í
Iðju var lokið á sunnudags-
kvöldið. Peningafurstar SÍS
höfðu farið hamförum í kosn-
ingabaráttunni um daginn.
Nú átti að sýna og sanna hið
mikla veldi SÍS-klíkunnar
meðal iðnverkafólks í Reykja
vík. Og umfram allt ætluðu
Framsóknarmenn sér að sýna
með kosningaúrslitunum í
Iðju, að þeir væru orðnir
stærri flokkur en kommún-
istar innan Iðju.
En reiturnar ruglast stund-
um í hinu pólitíska fótabaði
kommúnista og Framsóknar-
manna. Þess vegna urðu
Framsóknarmenn fyrir mikl-
um vonbrigðum. Og enda
þótt kommúnistar færu mikl-
ar ófarir í þessum stjómar-
kosningum í Iðju og fengu
aðeins rúm 20% atkvæða,
glöddust þeir þó innilega yfir
því, að þeir skyldu þó halda
yfirtökum yfir Framsókn.
En sameiginlega harma
þjóðfylkingarmenn þá stað-
i reynd, að lýðræðisöflin í Iðju
• Kúrdar í herklæðum.
Slitnaö upp úr viðræðum
Kúrda og íraksstjdmar
EFTIR stjómarbyltingruna í
írak í febr. s.l. gerðu Kúrdar
vopnahléssamninff við hina
nýju stjórn og: sendu nefnd
Bagpdad til þess að ræða við
hana um sjálfsstjórn Kúrdum
til handa. Eins og kunnugft er
hófu Kúrdar, • sem bygrgja
nyrztu héruð íraks, uppreisn
gegn stjórn Kassems fyrir rúm
um 18 mánuðum. Skömmu
áður en byltingin var gerð,
hermdu fregnir, að þeim hefði
orðið nokkuð mikið ágengt í
baráttunni við stjórnarherinn.
Þegar Kassem, forsætisráð-
herra og stjórn hans hafði ver
ið steypt af stóli, komu full-
trúar hinnar nýju stjórnar
íraks og fulltrúar Kúrda sam-
an til viðræðna í Bagdad, en
s.l. laugardag slitnaði upp úr
viðræðunum. Formaður sendi
nefndar Kúrda í Bagdad Jel-
al Talibani sagði fréttamönn-
Mustafa Barzani, foringi
Kúrda. — Við munum
berjast til siðasta manns.
um við brottför sína frá borg"
inni, að fulltrúar stjórnarinn-
ar hefðu viðurkennt þá sögu-
legu staðreynd, • að Kúrdar
værú sérstök þjóð, sem hefði
rétt til þess að ráða sjálf mál-
um sínum. Hins vegar sagði
Talibani, að fulltrúar stjórn-
arinnar hefðu ekki viljað gefa
Kúrdum ákveðið svar um það
hvort stjórnin hyiggðist virða
þennan rétt Kúrda og veita
þeim sjálfsstjórn. Talibani
sagðist því ætla að halda aftur
til aðalstöðva Kúrda í fjöll-
unum í norðurhluta íraks og
ræða við foringja þeirra Must-
afa Barzani. Hann sagðist
vona, að íraksstjórn veitti
Kúrdum sjáifsstjórn áður
en þeir neyddust til þess að
grípa til vopna á ný.
Nokkrum dögum áður en
slitnaði upp úr viðræðunum
í Bagdad ræddi Mustafa Bar-
zani við fréttamenn í aðal-
stöðvum sínum. Sagði hann,
að Kúrdar myndu halda áfram
að berjast ef þeim yrði ekki
veitt sjálfsstjórn innan ír-
anska ríkisins og berjast til
síðasta manns.
fengu 326 atkvæðum fleiri í
þessum kosningum en Fram-
sóknarmenn og kommúnistar
samanlagt. Það gefur þjóð-
fylkingarmönnum ekki góðar
vonir um framtíðina, allra
sízt í alþingiskosningunum í
vor.
SJÁVARÚT-
VEGURINN OG
STARFS-
FRÆÐSLAN
Ctarfsfræðsludagur sjávarút-
^ vegsins, sem nýlega var
haldinn, tókst ágætlega. —
Fjoldi ungs fólks kom þangað
og kynnti sér þær starfs-
greinar, sem veittar voru
greinargóðar og fræðandi
upplýsingar um. 'Samtök sjáv-
arútvegsins veittu þessum
starfsfræðsludegi þróttmik-
inn og ágætan stuðning.
Sjávarútvegurinn er lífæð
íslenzks efnahagslífs. Hann
stendur undir meginhluta
þeirra útflutningsverðmæta,
sem eru aðalgjaldeyrisupp-
spretta þjóðarinnar. Fram-
leiðsla sjávarafurða er stöð-
ugt að aukast og verða fjöl-
breyttari og fjölþættari. Það
er ákaflega þýðingarmikið að
unga fólkið hafi sem gleggst-
ar upplýsingar um þennan
aðalbjargræðisveg þjóðarinn-
ar. —
Starfsfræðslan stefnir a8
því að auðvelda æskunni að
velja sér lífsstarf við sitt hæfi
og tryggja þjóðfélaginu jafn-
framt að starfskraftar henn-
ar nýtist sem bezt. Þess vegna
er ákaflega þýðingarmikið að
henni sé fullur sómi sýndur,
Á því hafa ráðamenn Reykja-
víkurborgar og forystumenn
atvinnuveganna áreiðanlega
fullan skilning. Þess vegna
verður að vænta þess, að lögð
verði áherzla á að efla starfs-
fræðslima og gera hana sem
allra fyrst skyldunámsgrein í
öllum barna- og framhalds-
skólum, eins og tíðkast í flest-
um nágrannalöndum okkar.