Morgunblaðið - 05.03.1963, Blaðsíða 2
2
MORGV TS BL AÐIÐ
Þriðjudagur 5. marz 1963
Hér er Óskar Ólason varð-
stjóri að virða fyrir sér þýf-
ið, sem náðist af innbrots-
þjófunum er brutust inn í
Sveinsbakarí. Við símann á
borðinu stendur vínflaska,
sem tekin var af ölvuðum
ökumanni. — Ljósm. Sv. Þ.
Innbrot, þ|ófnaðir
og bílfundur
INTVBROT og Þjófnaðir voru
framdir um helgina, bæði á áhöld
um, munum og peningum.
Aðfaranótt laugardagsins var
innbrot framið I Bátanaust við
Elliðaárvog. Þar var stolið
Harris-mælum af gas- og súrkút
um ásamt slöngum og öðru því
er fylgir. Einnig var stolið þar
tveimur borvélum af Black &
Decker-gerð Vz“ og Vi“, svo og
Féll ofan
í lest og
slasaðist
■nkranesi, 4. marz.
UM kl. 5 s.l. laugardagsmorgun
var Hermann Torfason, 41 árs
til heimilis á Vesturgötu 129, að
vinna um borð í vélbátnum Nátt-
fara. Datt hann þá ofan af þil-
fari og kom niður á höfuðið á
botn tómrar lestarinnar.
Hermann, sem er einn háset-
anna, hlaut stóran skurð á höfuð
og marðist í baki.
Páll Gíslason kom fljótt á vett-
vang og varð Hermann samferða
honum á sjúkrahúsið þar sem
gert var að sárum hans. — Oddur.
topplyklasetti af gerðinni Will-
ard í bláum kassa og nokkru af
snitttöppum Og pökkum. Talið
er að þýfi þetta sé að verðmæti
15—20 þús króna.
Sömu nótt var stölið úr bif-
reiðinni R-7879 við Kvisthaga
tösku með 16 stökum skóm karla
og kvenna. Var hér um að ræða
sýnishorn framleiddum af skó-
verksmiðjunni Iðunni. Auk tösk
unnar var stolið 22 peysum karla
og kvenna frá prjónastofunni
Heklu.
Aðfaranótt sunnudagsins var
brotizt inn í Sveinsbakarí við
Bræðraborgarstíg. Var þar
tekið innan við 100 kr. í skipti-
mynt og tómur peningakassi.
Þjófarnir náðust strax um nótt-
ina skömmu eftir að hafa fram-
ið verknaðinn.
Sömu nótt var brotizt inn í
hárgreiðslustofuna Greiðuna á
Grettisgötu 62. Þar var stolið um
200 kr. Sá þjófnaður er enn óupp
lýstur.
Þá voru tveir menn slegnir í
rot aðfaranótt sunnudagsins í
undirganginum milli Röðuls og
Þórscafés. Var annar þeirra
auk þess barinn hér og
hvar og fluttur á Slysavarðstof
ur.a og var þar um nóttina.
Á sunnudag fannst fólksvagn-
inn R-4806, sem auglýst var eft
ir á laugardag og sunnudag,
suður í Hafnarfirði og var ó-
skemmdur.
í GÆR var SA og S átt um
allt land og sömu hlýindi og
undanfarið, allt upp í 9 stig.
I París og London var hitinn
svipaður og hér eins og sjá
má af kortinu, en er ekki
nema hálfsögð sagan því þar
fer hitinn niður fyrir eða
niður undir frostm. á hverri /
nóttu þessa dagana en upp 1
undir 10 stig um hádaginn. í
Stavangri var 14 stiga frosÆ
kl. 5 en aðeins 3 stiga frost kl.
11. í New York hefur hitinn
undanfarna daga verið 0—5
stig.
Einbeitni bjargar ís-
lenzkri sfúlku
Hfaður handtekinn í IMoregi
fyrir fjölda kynferðisárása
UNG telpa frá Mathopen við
Laksvág hjá Bergen hvarf í
nóvemberlok sL Fyrir tveim
vikum fannst lik hennar í
skolpleiðslubrunni skammt frá
Sandviken, sem er norðaustan
við Bergen. Telpan hafði verið
svívirt og síðar kyrkt.
Sama kvöldið og þessri glæp-
nr var framinn, þ. e. 29. nóv.
sL stöðvaði maður í ljósum
fólksbíl tvær stúlkur á götu
í Mathopen. önnur stúlkan
heitir Agnes Ravn og er móðir
hennar íslenzk. Hin stúlkan er
norsk.
Vildi maðurinn fá aðra stúlk
una til að koma inn í bílinn og
vísa honum til vegar á stað,
sem hann nefndi.
Stúlkurnar vildu þetta ekki,
nema því aðeins að þær kæmu
báðar upp í bílinn. Maðurinn
hafði ckki áhuga á því og ók
á brott.
Talið er öruggt, að hér hafi
verið á ferðinni sami maður-
inn og myrti telpuna frá Mat-
hopen þetta kvöld. Einbeitni
Agnesar Ravn og hinnar
norsku stöliu hennar hefur
því bjargað lífi þeirra.
Fyrir nokkrum dögum var
handtekinn maður, sem lög-
reglan hefur lengi grunað um
glæpinn. Hann heitir Carl
Jacob Schnitler og hefur játað
að hafa myrt telpuna, en hefur
ekki enn játað kynferðisglæp-
inn.
Þessi sami maður sló í rot
með gúmmíkylfu fyrir hálfu
öðru ári 17 ára stúlku. Hann
náðist fljótlega og viðurkenndi
að hafa ætlað að svívirða stúlk
una. Hann var dæmdur í 90
daga fangelsi.
Grunur leikur nú á, að Carl
Jacob Schnitler hafi framið
fleiri kynferðisglæpi. f haust
hvarf telpa í Haugasundi und-
ir líkum kringumstæðum og
telpan i Mathopen. í fyr\-a-
sumar var ráðizt tvívegis að
telpum af kynglæpamanni.
Þykir ekki ólíklegt, að Schnitl
er hafi verið að verki í öll
skiptin.
Launaflokkarnir verði 28
Ellert B. Schram.
Nýtt Stúdenta-
ráð tekur til
starfa
LAUGARDAGINN 23. febrúar
kom nýkjörið Stúdentaráð sam-
an á fund til þess að kjósa stjórn
fyrir næsta starfsár, sem hófst
1. marz. Stjórn ráðsins er
nú þannig skipuð: — Formaður,
Ellert B. Schram, stud jur.; gjald
keri, Þorvaldur Elíasson, stud.
oecon.; ritari, Sveinn Valfells,
stud. polyL
GEFI SIG
FRAM!
f GÆR um kl. 17.40 varð lítill
drengur fyrir sendisveinsreið-
hjóli, sem ekið var norður Tjarn-
argötu. Var hann á gangstéttinni
vestan götunnar og steig út á göt-
una í sama mund og sendisvein-
inn bar að. Féllu báðir drengirnir
í götuna. Vegfarandi, sem þarna
átti leið hjá, fór að stumra yfir
drengnum, sem fyrir hjólinu
varð, en á meðan hélt sendisveinn
inn í grandaleysi á brott
Litli drengurinn, er vegfarand-
inn stumraði yfir, hlaut meiðslí
á höfði og var fyrst fluttur á
slökkvistöðina en þaðan á slysa-
varðstofuna.
Sendisveinn sem reiðbjólinu
ók er beðinn að hafa samband
við rannsóknarlögregluna, enn-
fremur sjónarvotta, er kynnu að
hafa séð atburð þennan.
Á FUNDI í Starfsmannafélagi
ríkisstofnana í gærkvöldi skýrði
Kristján Thorlacius, formaður
BSRB frá því, að í gær hefði ver-
ið haldinn samningafundur hjá
sáttasemjara um kjör opinberra
starfsmanna ríkisins. Sagði
Kristján að þar hefði tekizt end-
anlegt samkomulag um að launa-
flokkar starfsmanna ríkisins
yrðu 28. Flokkarnir eru nú 14.
í tillögum B.S.R.B. var gert
ráð fyrir 31 flokki, en í tilboði
ríkisstjórnarinnar 25 flokkum.
Þá skýrði Kristján frá því að
áfram yrði haldið tilraunum til
að ná samkomulagi um röðun í
flokkana. Einnig skýrði Kristján
Thorlacius nokkuð frá breyting-
artillögum, sem lagðar hafa ver-
ið fram af hálfu ríkisstjórnar-
innar við fyrra tilboð hennar,
Víkinp;smótið
INNANFÉLAGSMÓT Víkings í
knattspyrnu heldur áfram kl.
20.15 í kvöld. Dregið hefir verið
um annan riðil mótsins. Þá keppa
Víkingur B og Keflavík A, KR B
og Valur A, Keflavík B og
Fram A. Þróttur situr yfir.
Úrslit mótsins í gærkvöldi urðu
sem hér segir:
Haukar A — Víkingur B 4—5
Keflavík A — Valur B 5—4
KR A —• KR B 3—4
Valur A — Fram B 5—2
Keflavík B — Haukar B 6—4
Þróttur A — Þróttur B 7—6
Víkingur A — Fram A 4—5
Keppnin í gærkvöldi var geysi
spennandi og ekki verður hún
það síður í kvöld.
— Hallstein
Framhald af bls. 1.
til Vestur-Evrópu. Aðspurður
sagðist hann vona að Kennedy
forseti væri einnig bjartsýnn.
„Við ræddum um allt mögu-
legt, allt frá útflutningi á fiður-
fé og landbúnaðarafurðum til
ástandsins í heiminum í heild.“
Að loknum fundi þeirra Hall-
steins og Kennedys fór prófessor-
inn á fund Orville Freemans
landbúnaðarráðherra og ræddust
þeir við í 40 mínútur. Sagði Hall-
stein að þeir hafi aðallega rætt
vandamál alifuglaræktenda í
Bandaríkj unum, sem kvarta sár-
an yfir því að útflutningur
þeirra til Evrópu sé nú svo til
enginn eftir að Efnahagsbanda-
lagsríkin hækkuðu tolla á fugla-
kjöti frá þeim ríkjum, sem ekki
eru aðilar að EBE. Aðspurður
sagði Hallstein að það væri vægt
til orða tekið að segja að Free-
man hafi hvatt til þess að inn-
flutningstollar á alifuglum yrðu
lækkaðir.
m.a. er í þessum nýju tillögum
gert ráð fyrir því að kennarar
hækki yfirleitt um einn launa-
flokk frá því sem var í tilboð-
inu.
DAS
f gær var dregið í 11. fl. Happ-
drættis DAS um 100 vinninga og
féllu vinningar þannig: (Þeir
efstu).
2ja herb. ÍBÚÐ Ljósheimum
22, 1. hæð (D) tilbúin undir tré-
verk kom á nr. 61823. Umboð
Aðalumboð.
2ja herb. ÍBÚÐ Ljósíheimum
22, 1. hæð (E) tilbúin undir tré-
verk kom á nr. 6702. Umboð Akur
eyrL
TAUNUS 17M fólksbifreið kom
á nr. 1351. Umboð Kópasker.
RENAULT DAUPHINE fólks-
bifreið kom á nr. 13669. Urrxboð
Aðalumboð.
VOLKSW AGEN fólksbifreið
kom á nr. 48003. Umboð Aðalum-
boð. (Birt án ábyrgðar).
Fékk 40 toiin
Akranesi, 4. marz.
SÍÐASTLIÐIi'iN sunnudag bárust
hingað 145,5 lestir af fiski af 9
bátum. Aflahæstur í þorskanót
var Skírnir með 40 lestir, Höfr-
ungur II. fékk 12 lestir, Sæfari
10 og Haraldur 8 lestir. Aflahæst-
ur netabáta var Anna með 26,7
— Bidault
Framhald af bls. 1.
„Panorama", og var það Richaríl
Dimbleby, einn þekktasti frétta
maður BBC, sem kynnti hann.
Dimbleby, lýsti Bidault sam fyrr
verandi leiðtoga andspyrnuhreyf
ingarinnar gegn nazistum I
Frakklandi, „maðurinn sem á 18
árum hefur breytzt úr þjóðar-
hetju í mann, sem Frakkar
skammast sín fyrir.“ Einnig sagði
Dimbleby að Bidault væri einn
af uppbyggjendum V.-Evrópu
Aðspurður hvert væri erindi
hans í London, svaraði Bidault
að hann væri kominn til við-
ræðna við ákveðna menn.... ea
erindið væri leyndarmál. Kvaðst
hann sannfærður um að and-
stöðuflokkur hans ætti nægilegt
fylgi til að velta de Gaulle úr
sessi. Sagði Bidault að CNR
muni safna saman liði sínu eft-
ir þeim leiðum, sem einræðis-
stjórn de Gaulle hefði skilið eft
ir opnar, en færðist undan að
svara því hvort samtökin mundu
samþykkja að gripið yrði til
hryðjuverka.
— Ómögulegt er að segja til
hvaða örþrifaráða menn geta
gripið í örvæntingu, sagði hann.