Morgunblaðið - 05.03.1963, Blaðsíða 10
10
MORGVISBLAÐIÐ
Þriðjudagur 5. man 1963
Varnarliðið sá sovézkar njösnaflug-
vélar yfir hafinu fyrir austan land
'i
S 1Ð A S T L. fimmtudag
kvaddi Robert S. McNám-
ara, landvamaráðherra
Bandaríkjanna, frétta-
menn á smn fund í Penta-
gon-byggingunni í Was-
hington. Er þetta fyrsti
fundur, sem ráðherrann
hefur efnt þar til með
fréttamönnum um 8 mán-
aða skeið.
Tilefnið var, að undan-
farið hefur orðið vart lang-
fleygra sovézkra njósna-
flugvéla yfir bandarískum
herskipum við æfingar,
bæði á Kyrrahafi og At-
lantshafi.
Nú síðast átti þetta sér
stað fyrir nokkrum dögum,
er fjórar fjögurra hreyfla
þotur af gerðinni TU-95
(Bjöminn), flugu yfir
bandaríska flugvélamóð-
urskipið „Forestal11, er það
var statt skammt suðaust-
ur af Azoreyjum.
Líklegast má telja, að
sovézku þoturnar kömi frá
flugvelli nærri Murmansk,
en þaðan er haldið uppi
áætlunarflugi til Havana.
Landvarnaráðherrann
skýrði frá því, að njósna-
flugvélanna hefði orðið
vart löngu áður en þær
nálguðust „Forestal“, eða
um það leyti, er þær voru
á flugi austur af íslandi.
Vom það omstuþotur af
gerðinni F-102 frá Kefla-
víkurflugvelli, er urðu var
ar við ferðir sovézku þot-
anna, og var því hægt að
fylgjast með ferðum
þeirra, er nær dró Azor-
eyjum.
Breyting um áramót
McNamara var að því
spurður á blaðamannafundin-
um, hverja hernaðarþýðingu
það hefði, að vart hefði orðið
njósnaflugvéla af þessu tagi.
Ráðherrann svaraði því til,
að fram til þessa hefðu Sovét-
ríkin beitt meðallangfleygum
njósnaflugvélum, eða allt
fram undir síðustu áramót.
Eftir það hefði hins vegar svo
brugðið við, að skrúfuþotur af
langfleygustu gerð hefði ver-
ið teknar í notkun.
Lýsti ráðherrann því, að í
janúar sl. hefði flugmóður-
móðurskipið „Kitty Hawk“
orðið vart slíkra flugvéla, er
það var að æfingum á Kyrra-
hafi. Þá hefði áhöfn flugmóð-
urskipsins „Enterprise", sem
er kjarnorkuknúið skip, orðið
vör við njósnaferðir sömu
flugvéla nýverið. Fleiri flug-
móðurskip hafa orðið fyrir
sömu reynslu síðustu vikur.
Frá því hefur áður verið
skýrt, að sovézkar njósnaflug-
vélar af skammfleygari gerð
hafi flogið yfir bandarísk her-
skip, er þau hafa komið nærri
ströndum yfirráðasvæðiS
Sovétríkjanna, bæði á Mið-
jarðarhafi og KyrrahafL
Skipulagt njósnaflug
um langa vegu
Drap McNamara á þetta, og
bætti því við, að „gert hefði
verið ráð fyrir því, að Sovét-
ríkin gætu sent njósnaflug-
vélar jafn langa leið, og raun
bæri nú vitni“. Sagði ráðherr-
ann, að er TU-95 hefði fyrst
orðið vart, hefði verið talið,
að aðeins væri um einstök
njósnaflug að ræða. Er ljóst
hefði orðið, hins vegar, að um
skipulagt njósnaflug væri að
ræða, sem beint væri sérstak-
lega gegn flugmóðurskipum,
hefði hann talið rétt að gefa
út sérstaka fréttatilkynningu.
Þrjú afbrigði sömu
tegundar
Skrúfuþotur þær, sem vart
varð yfir flugmóðurskipun-
um, eru af gerðinni TU-95,
eins og áður segir. Talið er,
að þær séu sérstaklega gerð-
ar til njósnaflugs, en beri ekki
kjarnorkuspregjur, þótt það
sé reyndar ekki hægt að full-
yrða. Venjulegar skrúfuþotur
af gerðinni TU-95 eru hins.
vegar sérstaklega gerðar til
þess að bera kjarnorku-
sprengjur, og eru mjög lang-
fleygar.
Þriðja afbrigðið af sömu
flugvélategundinni er TU-
114, farþegaflugvélar þær,
sam „Aeroflot" notar í milli-
landaflugi. Þeim hefur verið
flogið í einum áfanga frá
Moskvu til New York.
Óhemju flug- og burðarþol
Fullhlaðnar, þ. e. með 170
—220 farþega, eiga þær að
geta flogið a.m.k. 9.600 km
leið í 30.000 feta hæð með um
700 km. hraða. Þessar flugvél-
ar munu nú notaðar í beinum
ferðum frá Sovétríkjunum til
Havana á Kúbu. Er flogið fyr
ir norðan ísland.
Talið er fullvíst að sprengju
flugvélin TU-95 geti flogið
mun lengra en afbrigðið, sem
að ofan er getið (TU-114) og
njósnaflugvélin TU-95 a.m.k.
jafnlangt.
Sennilegt þykir, og kannski
nær fullvíst, að flugvélar
þær,' fjórar talsins, sem vart
varð fyrst fyrir austan ís-
land á leið sinni til Azoreyja,
hafi komið frá herstöð við
Murmansk.
í fyrsta skipti við ísland
Þetta er í fyrsta skipti, sem
skýrt hefur verið frá því, að
eftirlitsflugvélar bandaríska
varriarliðsins á Keflavíkur-
flugvelli hafi orðið varar við
ferðir sovézkra flugvéla hér
við land.
Bandarísku þoturnar, af
gerðinni F-102, urðu fyrst
varar við tvær flugvélar af
gerðinni TU-95. Var það
snemma morguns. Umtveimur
tímum síðar komu aðrar tvær
flugvélar af sömu gerð.
Flugvélar frá „ForestaT'
voru þegar komnar á loft, er
sóvézku flugvélarnar bar að,
enda kunnugt um ferðir
þeirra, eftir að þeirra varð
vart hér við land.
Báru sig að á sérstakan hátt
Virtust njósnaflugvélarnar
skipta með sér verkum. Flaug
önnur tiltölulega lágt, undir
skýjum, í um 2000 feta hæð,
en hin hélt sig hærra, eða í
um 30.000 feta hæð. Endurtók
sagan sig, er seinni njósna-
flugvélarnar tvær bar að.
Fylgzt var með ferðum
þeirra í nágrenni við flug-
móðurskipið, og einnig urðu
bandarísku þoturnar frá
Keflavíkurvelli varar við
ferðir þeirra, er þær voru á
bakaleið, norður á bóginn.
Aldrei báru sovézku flugvél-
arnar sig þannig á, að ástæða
þætti til að hindra flug þeirra,
enda raunverulega um „lög-
legt athæfi“ að ræða, þar sem
bæði skip og flugvélar voru
stödd langt utan lögsögu
nokkurs lands.
Hlutverk varnarliðsins
tvöfalt
„Interspectors", eða orustu-
þotur af gerðinni F-102 og
svipuðum gerðum, eru venju-
lega búnar radartækjum, og
geta greint ókunnar flugvélar
í myrkri og vondum veðrum.
Þær eru því þýðingarmikill
þáttur í eftirlits- og varnar-
kerfi hvers lands þar sem þær
eru.
Þáttur þeirra hér á landi og
víðast annars staðar, er að
fylgjast með ferðum allra
þeirra flugvéla, sem ekki gera
boð á undan sér. Á það vdð
um flugvélar eins og sovézku
vélarnar, en einnig um flug-
vélar í venjulegu farþega-
flugi, sem ekki halda áætlun,
Og þær og aðrar farþegaflug-
vélar, sem villast kunna a£
leið.
Bandarísku F-102 þoturnar
Radartæki, bæði á landi og
í orrustuþotunum, gera eftir-
litsstarfið miklum mun auð-
veldara en annars myndi
vera.
Dæmi það, sem McNamara
nefndi á blaðamannafundin-
um, um eftirlitsferðir varnar-
liðsins við ísland, mun það
fyrsta, sem um getur um ferð-
ir sovézkra flugvéla við ís-
land, eins og áður segir.
Hins vegar hefur það mjög
oft komið fyrir, að þotur varn
arliðsins hafi leiðbeint erlend
um farþegaflugvélum, þá oft
leiguflugvélum og flugvélum,
sem verið er að ferja yfir At-
lantshafið. Koma radartækin 1
Framhald á bls. 22.
I
I