Morgunblaðið - 05.03.1963, Síða 11
Þriðjudagur 5. marz 1963
MORCVISBLAÐIÐ
11
Samdi kantötu
við Þrymskviðu
Örstutt spjall við ungan tónsmið
IJM ÞISSAR mundir er
staddur hér heima ungur
námsmaður, sem vakið hefur
mikla athygli fyrir námsafrek
og hæfileika í sinni grein,
tónfræði og tónsmíðum.
Maðurinn er Jón S. Jónsson
ættaður vestan af fjörðum.
Hann hóf tónlistarnám heima
á ísafirði árið 1948, er Ragnar
H. Ragnar tók að að byggja
upp músiklíf, en sem kunnugt
er, hefur Ragnar unnið á
ísafirði mikið starf og merki-
legt í þágu tónlistarmála, þ-au
14—15 ár, sem liðin eru frá
því hann settist þar að.
Til Reykjavíkur kom Jón
fyrst árið 1951 og hóf þá nám
í Tónlistarskólanum hjá þeim
Árna Kristjánssyni, píanóleik-
Jón S. Jónsson
ara og Jóni I»órarinssyni, tón-
skáldL Hafa því mætir músik-
menn frá upphafi mótað feril
Jóns. Til Bandaríkjanna hélt
hann árið 1958, tók þar meist-
aragráðu (varð Master of
Music) eftir eitt ár og er raú
senn að Ijúka doktorsprófL
Við hittum Jón að máli
fyrir nokkrum dögum og
spjölluðum smávegis við hann
um dvöl hans við Northwest-
ern háskólann, þar sem hann
sturadaði nám, en sá skóli er
í háskólabæ skammt frá Chi-
cago. Þar hóf Jón dvöl sína
með því að þreyta inntöku-
próf, sem veitti honum náms-
gráðuna „Baohelor of Music“.
— Ég hafði skrifað til há-
skólaras, sagði Jón, og fengið
ieyfi til að þreyta þetta próf.
Áður hafði ég að sjálfsögðu
kynnt mér vel allar kröfur og
undirbúið mig eiras og mér
var unnt.
— f hverju hefur nám þitt
verið fólgið, Jón?
— Þarna er kennt allt sem
varðar tónfræði; hljómfræðL
formfræðL kórstjórn, hljóm-
sveitarstjórn, og svo allt sem
að tónsmiðum lýtur. Er raá-
kvæmlega farið gegnum allar
stíltegundir alveg frá upp-
hafi tU vorra daga.
— Eru nemendur einnig
búnir undir að semja elektrón
íska músik?
— NeL ekki í Northwest-
ern-skólanum. I Bandaríkjun-
um öllum eru aðeins tveir
eða þrír háskólar, sem hafa
tæki til þess að kenna elektr-
óniska tónsmíðatæknL
— Er þetta ekki hálfgert
eðlisfræðinám?
— í>að má svo sem segja,
því nauðsynlegt er að hafa
staðgóða þekkingu á rafmagns
fræði og all't varðandi þau
tæki, sem notuð eru.
— Hefur þú samið elektr-
óniska músik?
— Nei, því miður, ég hef
ekki haft neitt tækifæri til
þess.
— En hefðir hug á því?
— Já, vissulega, það kemur
að því eirahvern tíma að mað-
ur reynir þetta. Elektróniska
músikin á fullan rétt á sér og
á áreiðanlega eftir að ryðja
sér mjög til rúms.
— Er mikill áhugi á þessari
tegund tónlistar með ungu
fólki vestra?
— Já, afar mikill og á allri
nútímamúsik yfirleitt, eink-
um meðal skólafólks.
— Hvernig er námstíminn
í bandarískum háskólum, er
hugsanlegt að vinna með
námi?
— Það ex algengt að menn
vinni eitthvað með námi,
nokkuð misjafnt þó, eftir því
hver greinin er. Sjálfur vann
ég allan tímann, kenndi tón-
listarsögu við háskólann einn
vetur, vann um hríð hjá fyrir
tæki, sem gefur út nótur, og
hafði jafnframt oftast nem-
endur í píanóleik. Námsárinu
er nokkuð mismunandi skipt,
ýmist eru tvö kennslutimabil,
þá 414 mán. hvort, eða þrjú
tímabil, 214 mán. hvert
— Við höfum heyrt, Jón, að
þú hafir samið allmargar tón-
smiðar á þessum árum, það
mun mikils hafa verið krafizt
fyrir lokaprófið?
— Já, aðalgreinar mínar
voru tónsrraíðar og tónfræði,
svo að mér var áskilið að
semja heilt „program" af
kammertónlist og eitt stórt
verk fyrix hljómsveit, með
eða án kórs. Auk þess varð
ég að skrifa allmargar rit-
gerðir og ítarlegar skýringar
með verkunum. Kammerverk
samdi ég þrjú, eitt fyrir blás-
arakvartett, annað fyrir 12
hljóðfæraleikara, dimensions,
(Víddir), og hið þriðja fyrir
7 hljóðfæraleikara og kalla
ég það „Traynour“.
— Traynour?
— Já, það er franskt tón-
fræðiorð frá 13. öld, sem er
dálítið erfitt að skýra. Það
nær yfir ýmislegt, sem raú
ex kallað „polyrythm" — og
er merking þess nátengd þeim
vinnuaðferðum, sem notaðar
voru við samningu þessarar
tónsmíðar.
— En tónsmíðin þín, sem
byggist á Þrymskviðu — var
það ekki skemmtilegt verk-
efni?
— Jú, mjög svo, Þryms-
kviða er skemmtileg. Hún er
til í prýðilegri enskri þýð-
iragu, er kanadíski prófessor-
inn Watson Kirkconnell gerði
þegar fyrir meira en þrjátíu
árum. Hann hefur þýtt mikið
af íslenzkum ljóðum. Tónverk
ið er kantata fyrir sex ein-
söngvara, blandaðan kór og
kammerhl j ómsveit í einum
Efni
Til ISIotkunar Vörunafn
Silicone Vatnshrindir
Silcone Grunnur
Silcone Grunnur
Silicone Fráhrindir
Silicone Fráhrindir
Silicone Fráhrindir
Silicone Vatnshrindir
Silicone Smurolía
Silicone Smurolía
Silicone Snyrtiolía
Silicone Feiti
Alls konar steinsteypu.
Undir málningu, utanhúss.
Undir málningu, innanhúss.
Á valsinn í prentsmiðju og
eins sem rafmagnseyðir.
Járnsteypu, Shell Molding'*
Steypmót.
Leður, tau, svefnpoka, tjöld.
Fyrir háan og lágan hita.
Skera frauð, plast og gúmmL
Snyrtivöruiðni.
Ver og einangrar elektronisk
og radartæki; kveikju í blí-
um, bátum og flugvélum; há
spennupostulín.
Ver gegn skammhlaupi,
spansgrænu, ryðbruna, málm
tæringu, smurning við háan
og lágan hita, þvæst ekki af.
Sama og fyrir KÍSILUBE
Við smurningu við háan og
lágan hita.
Gegn geislun (330 megaro-
entgen.)
Há Vacum smurning
1x10—12 mm Hg, og líka
fyrir glerhana.
Smurolía fyrir gúmmí/frauð
plast og þéttilista í bílum.
Fyrir pappír.
Gúmmihúð á alls konar efni,
eins og málm, plast, gler,
o. fl.
Loft þurrkandi: fyrir alls-
konar iðnaðarbyggingar.
VATNVERJA
KÍSILCONE
FERNISIL
FRÁHRINDIR “G”
FRÁHRINDIR “E”
FRÁHRINDIR “E—S”
KÍSILÞURRT
VERSILOLÍA “F”
SKERSILOLÍA
VELVASIL
INSULGREASE
KISILUBE 4000
INSLULJEL
VERSILUBE “G—300"
RADSIL
Silicone „Spray'* feiti
Silicone Feiti
Silicone Geisla-Feiti
Silicone Vacum-Feiti
Silicone Emulsion
Silicone Vatnshrindir
Silicone-Gúmmivökvi
Silicone - Málning
Silicone Gúmmí
(í föstuformi).
Okkar framleiðsla
er úr efnum frá
SltlCONE PRODUCTS
sem eru stærstu frumframleiðendur SILICONE efna í heimi.
VACSIL
GÚMMÍSIL
PAFPÍRSIL
RTV — LTV
SICON
ALUMISIL
VERÐTILBOÐ AÐEINS HÆGT AÐ GERA SAMKVÆMT
TEIKNINGU EÐA NÁKVÆMRI VERKLÝSINGU.
GENERAL $H ELECTRIC
Gætið að hvort þetta
33=» 35^
merki er á umbúðum.
I»að tryggið yður gæðin.
4; 4 * * * <
!*» ** *
Verksmiðian
K í S I L L
Lækjargötu 6b
sími 1 5 9 6 0.
FYRSTIR MEÐ SILICONE Á ÍSLANDI.
IJTSALA
IJTSALA
Seljum í dag og næstu daga nýtt úrva! af vetrarkápum með og
án skinna. — Mikill afsláttur. Verð frá kr. 985,00. —
Einnig mikið úrval af jerseykjólum. — Verð frá kr. 595,00.
Eygló Laugavegi 116
þætti og tekur flutningurinn
um það bil 45 mínútur. Það
var upphaflega samið við
enska textann,, því það var
skilyrði af hálfu skólans, en
ég hef nú nýlokið við að sam-
ræma það íslenzka textanum.
— Hefurðu von um að fá
þetta flutt hér innan tíðar?
— Nei, það held ég ekki,
það væri fremur eitthvert af
kammerverkunum.
— En þú hefur fengið eitt-
hvað fhitt vestra?
— Já, „Traynour" var frum
flutt á Tónlistarmóti 1961 og
stjórnaði ég því sjálfur. Þá
vax ég svo lánsamux, að tón-
listarstjóri eins stærsta sláttu-
hljóðfæraframleiðenda í
Bandaríkjunum, Deagan Inc,
var meðal áheyrenda og ósk-
aði hann eftir að fá eintök af
„Traynour" og fleiri verkum
mínum til þess að koma þeim
á framfæri við aðra skóla.
— Hvað hyggstu fyrir að
loknu doktorsprófinu — koma
heim, eða halda áfram starfi
vestan hafs?
— Það er með öllu óráðið.
f vetur verð ég stjórnandi
Karlakórs Reykjavíkur og
hugsa málið jafnframt. Éig
hefi samt von um að fá að
ljúka því, sem eftir er prófs-
ins hér heima, en hefi ekki
endanlega fengið úr því skor-
ið. Ef til vill fer óg aftur utan
þvi að hér heima eru að sjálf-
sögðu takmörkuð verkefni,
enn sem komið er.