Morgunblaðið - 05.03.1963, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 5. marz 1963
Jériismiður, vélvirki
og rennismiður
óskast strax.
Jám hf.
Síðumúla 15.
Móðursystir mín
METTA TEITSDÓTTIR,
Sigiuvogi 10
andaðist í Bæjarspítaianum 2. þ. m.
Helga Sveinsdóttir, Vesturvaliagötu 2.
Eiginkona mín og móðir okkar
MARGRÉT BJARNADÓTTIR
vcfnaðarkennari frá Akureyri
andaðist að Fjóðrungssjúkrahúsinu, ísafirði 3. marz.
Guðmundur Bárðarson,
Hlíðarvegi 3, ísafirði.
Hólmfríður, Snjólaug og
og Bárður Guðmundsson.
Móðir okkar
GUÐFINNA ÞÓRÐARDÓTTIR
frá Vatnagarði
lézt í Landsspitalanum sunnudaginn 3. þ. m.
Börn hinnar látnu.
MAGNÚS HANNIBALSSON
lézt 3. marz að heimili sínu að Djúpuvík.
Guðfinna Guðmundsdóttir
og börn hins látna.
Stjúpfaðir minn
ÁRNl EINARSSON
frá Múlakoti
andaðist að Elliheimilinu Grund sunnudaginn 3. þ. m.
Jarðarförin ákveðin síðar. Fyrir hönd vandamanna.
Guðmundur Guðmundsson.
Faðir okkar
GUÐLAUGUR BJARNASON,
bólstrari
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn
6. marz kl. 1:30 e.h. — Blóm og kransar vinsamlegast
afbeðið.
Synir hins látna.
Kveðjuathöfn um
BRYNJÚLF DAGSSON
héraðslækni
fer fram í Dómkirkjunni miðvikudaginn 6. marz kl.
10,30. — Athöfninni verður útvarpað. — Jarðsett
verður að Gaulverjabæ. — Bifreiðaferð þangað frá Dóm-
kirkjunni. — Blóm afþökkuð.
Eiginkona, börn, foreldrar og systkini.
Kveðjuathöfn um
JÓN G. ÓLAFSSON,
Gemlufalli, Dýrafirði
er andaðist í Reykjavík 26. febrúar sl., fer fram frá
Fossvogskirkju 7. marz n. k. kl. 13,30. — Jarðsett
verður á Þingeyri 10. marz.
Agústa Guðmundsdóttir og börn.
Þökkum af alhug samúð, er sýnd var við andlát og
jarðarför
JÓNS KRISTÓFERSSONAR
frá Köldukinn,
og virðingu við minningu hans.
Þórir Jónsson, Sigríður Guðmundsdóttir.
Hjartanlega þakka ég öllum sem glöddu mig á 90 ára
afmæli mínu 4 febrúar sl. með heimsóknum, göfum,
heillaskeytum og blómum. — Guð blessi ykkur.
Jórunn Þórðardóttir.
Akstur er erfiffur
fyrir hjartaff
ÞÝZKUR læknir, prófessor
Hermann Hoffmann í Bonn,
hefur sýnt fram á, að akstur
bifreiða getur framkaliað um
stundarsakir sjúklegar breyt-
ingar á starfsemi hjartans.
Rannsóknir þéssar fóru fram
í rannsóknarstofu í „um-
ferðalæknisfræði“, sem nýbú-
ið er að koma á fót við há-
skólann í Bonn. Þeir, sem
rannsakaðir voru, báru á sér
hjartaritara og tæki til að
mæla blóðþrýsting og púls-
hraða. Mælingarnar voru firð-
sendar til rannsóknarstofu
meðan á tilrauninni stóð.
Aksturslengdin var 70—100
km.
Þegar prófessor Hoffmann
birti niðurstöður sínar í
Medical Tribune hafði hann
rannsakað 400 heilbrigða
menn og 60 með hjartasjúk-
dóma á þennan hátt.
Af hinum síðarnefndu sýndu
% sjúklegar breytingar á
hjartariti í erfiðri umferð, og
tæplega % hluti þeirra sýndi
samskonar breytingar í venju
legri börgarumferð.
Blóðþrýstingur í 17 af 20
mönnum með hækkaðan blóð-
þrýsting hækkaði um 20-30%
í vondri umferð eða umferð-
arstíflum. Sama gilti um 12
þeirra. hvernig sem umferðin
var. Púlshraði manna með
kransæðasjúkdóma jókst um
40-80% miðað við hvíld í erf-
iðri umferð. Jafnvel í rólegri
umferð voru 70% þessara
manna með hraðari hjartslátt
en ella. Þetta þarf ekki að
koma mönnum á óvart, en
auk þess gilti sama um nokk-
urn hluta heilbrigðra manna,
þótt í minna mæli væri. Við
hættulegar aðstæður í um-
ferðinni sáust í Vi þeirra
manna, sem virtust annars
heilbrigðir, hjartaritsbreyting-
ar, sem hjartasérfræðingar
telja óeðlilegar. Ennfremur
kom í ljós, sem vænta mátti,
að vanir bílstjórar stóðu sig
miklum mun betur að þessu
leyti en byrjendur.
Hoffmann gagnrýnir skýrsl-
ur um umferðarslys. Hann
segir, að afar sjaldan sé sjúk-
leika ökumanns kennt um
slys, en prófessorinn álítur.
að sjúkdómar ökumanna eigi
Somkomur
K.F.U.K.
AD fundir í kvöld kl. 8.30.
Frásöguþáttur. „Skipstjórinn
á Morgunstjörnunni“. Ást-
ráður Sigursteindórsson skóla
stjóri flytur og hefur hug-
leiðingu. Söngur.
Allt kvenfólk velkomið.
Fíladelfía
Safnaðarsamkoma (mánaða
mótasamkoma) í kvöld kl.
8.30. — Fórn tekin vegna
Stykkishólms.
HILMAR FOSS
lögg. skjaiþ. og dómt.
Hafnarstræti 11 — Sími 14824
Lynghaga 4. Sími 19333.
örn Clauscn
Guffrún ErlendsdóttU
héraðsdómslögmenn
Málflutningsskrifstofa
Bankastræti 12. Sími 18499.
sök á mörgum slysum. Hann
dregur í efa, að rétt sé að
leyfa hjartasjúkum mönnum,
er sýna breytingar á hjarta-
riti í rólegri umferð, að aka
bifreiðum
Fljúgandi flær
Skordýrafræðingar eru n<ú
þeirrar skoðunar, að skordýr
hafi lært að fljúga með því
að berast með loftstraumum
og vindum. Að minnsta kostá
komast vængjalaus skordýr
nútíinans langar leiðir á
vængjum vindanna. Þetta
fyrirbrigði á mikinn þátt í út-
breiðslu ýmissa skaðvalda,
t. d. blaðalúsa. Og manna-
flær hafa fundist í góðu
gengi í 200 feta hæð. Menn
skyldu því ekki verða alltof
hissa þótt þeir íengju þessa
Flóin er ekki frumstætt
skordýr, þótt hún sé vængja
laus. Flestöll vængjalaus
skordýr sem nú eru til eru
háþróuff og hafa misst
vængi sína á ný. Flóin hef
nr veriff fræg fyrir stökk-
fimi sína, en svifflug lætur
henni vel líka.
óskemmtilegu gesti í óvænta
heimsókn.
Endurvarp frá Merkúr
Rússar hafa tilkynnt, að í
lok síðasta árs hafi þeim í
fyrsta sinn tekizt að fó radar
bergmál frá , reikistjörnunni
Merkúr, sem er innsta stjarna
sólkerfisins. Þetta er lengsta
vegalengd sem tekizt hefur að
nota radar á. Fyrra metið var
að láta útvarpsbylgjurnar end
urkastast frá Venus. Rússarn-
ir segjast meira að segja hafa
sent út orð og getað hilustað
á bergmólið aftur. Það þykir
talsvert afrek af Rússum að
hafa tekið á móti bergmáli
frá Merkúr, því hann er
tvisvar sinnum lengra í burtu
en Venus Og nærri helmingi
minni.
Þúsund bílar
Enska orðið homolgate þýð-
ir að samþykkja eða viður-
kenna. en nú til dags er orðið
notað um það fyrirbrigði, þeg-
ar framleiddir eru a.m.k. þús-
und bílar af einhverri ákveð-
inni gerð í því skyni að unnt
sé að nota þá í kappakstri
fyrir venjulega bíla, sem
framleiddir eru í fjöldafram-
leiðslu, án þess að brjóta sett-
ar reglur.
Til dæmis má nefna, að
hafi einhver gerð bíla venju-
legar borðabremsur og venju-
legan blöndung, er ekki leyft
að setja 1 hann diska-
bremsur né eldsneytisinn-
spýtingu í kappakstri. Þess
vegna hafa margar verk-
smiðjur þann sið að fram-
leiða rúmlega þúsund bíla af
venjulegri gerð með ýmsum
breytingum til þess að fó þá
viðurkénnda til kappaksturs.
Til dæmis hafa Jagúar-bíl-
ar oft tekið þátt í kappakstri
með Weber-blöndungum í
staðinn fyrir SU-blöndunga,
sem notaðir eru í þá að stað-
aldri. Og síðar meir jókst
kraftur þeirra að mun, þegar
farið var að spýta eldsneyt-
inu beint inn í strokkinn með
Lucas-spíssum.
Þegar átti að nota E-gerð-
ina í „Gran Turismo" kapp-
aksturinn, voru þeir með SU-
blöndungum. en nægilega
margir voru þá smíðaðir með
eldsneytisinnspýtingu (enda
þótt þess væri aldrei getið í
verðskrá verksmiðjunnar). —
Þess vegna tóku þessir bilar
allt í einu upp á því að tvö-
falda hraða sinn í haust! Nú
er verið að framleiða ýmsa
enska Fordbíla með svipuð-
um breytingum —. unz þús-
undinu er náð.
Börnin huggast viff hjartslátt
Menn hafa tekið eftir því,
að nýfæddir ungar fugla og
spendýra verða mjög háðir
því, sem er í nánasta um-
hverfi þeirra fyrstu daga
ævinnar, hvort sem þar er
um að ræða hönd gæzlu-
mannsins eða móður þeirra.
L. Salk í City Hospital í
Elmhurst í Bandaríkjunum
datt í hug að sama kynni að
gilda um skynjanir barna í
lok meðgöngutímans og fyrst
framan af ævinni. Ein slík
áhrif eru hjartslóttur móður-
innar. Hann athugaði nú
hvernig nýfædd börn brygð-
ust við hjartsilætti, sem tek-
inn hafði upp á segulband.
Hann komst að því að börn,
sem fengu að hlusta á hjart-
slátt í vöggunni, þyngdust
talsvert meira og skældu
minna en önnur börn á spít-
alanum.
Dr. Salk framkvæmdi einn-
ig athuganir á börnum 16—37
mánaða gömlum. Mælt var
hversu lengi þau væru að
sofna á kvöldin við a) þögn
b) eðlilegan hjartslátt c) tikk
með sama hraða og hjart-
slátturinn d) vögguljóð. Börn
in sem hlustuðu á hjartslátt-
inn voru helmingi fljótari að
sofna en börnin í hinum flokk
unum.
Ennfremur var tekið eftir
þvi, að 80% mæðra halda
börnum sínum vinstra megin
upp að brjósti sér, hvort sem
þær voru rétthentar eða örf-
hentar. Hjartsláttur virðist
því hafa mjög róandi áhrif á
börnin og draga úr hræðslu
hjá þeim.
Tectyl
er bezta ryðvarnarefni veraldar
Segulmagnaö — Vatnsfráhrindandi —
Saltverjandi — Forðist eftirlíkingar.
RYÐVÖRN
Grensásvegi 18. — Sími 19945.