Morgunblaðið - 05.03.1963, Side 22
22
MORCUHBLAfílÐ
Þriðjudagur 5. marz 1963
ÍR-KFR 90:60
KR vann Armann 1 öbrum flokki
í FYRRAKVÖLD voru leiknii
tveir leikir í körfuknattleiksmót*
iau, og er nú fyrri umferðinni í
meistaraflokki senn lokið. Eftir
er aðeins leikurinn KR — Ár-
mann, sem verður leikinn næsta
laugardagskvöld. ÍR liðið er orðið
öruggt með að fara með sigur úr
fyrri umferðinni, hefur hlotið 4
vinninga, og verður að minnsta
kosti einum vinning yfir liði Ár-
manns sem hefur hlotið tvo vinn-
inga og á eftir einn leik.
Ekki verður sagt með vissu um
seinni umferðina, en litlar likur
eru á stórvægilegum breytingum,
minnsta kosti ekki í efstu sætun-
um.
Fyrri leikurinn í fyrrakvöld
var milli KR og Ármanns í öðr-
um flokki. Unnu KR-ingar þar
sigur með talsverðum yfirburð-
um og sýndu miklu öruggari og
hxaðari leik. KR fékk strax í upp-
hafi mjög gott forskot, skoraði 12
fyrstu stigin, og síðan jókst bilið
hægt og sígandi. Leiknum lauk
með 26 stiga mun.
Það hefur alltaf ríkt eftirvænt-
ing fyrir leik KFR og ÍR, sem um
árabil hefur verið úrslitaleikur
Reykjavikur- og fslandsmóta.
Svo var einnig að þessu sinm,
því þótt ekki væri búizt við sigri
KFR bjuggust flestir við
skemmtilegum leik.
Vonir manna glæddust í fyrri
hálfleik því enda þótt einn bezta
leikmann KFR, Einar Matthías-
son, vantaði, var leikurinn jafn
og spennandi, og endaði hálfleik-
urinn 41—36 fyrir ÍR. í síðari
hálfleik varð þó önnur raunin á,
lið KFR varð fljótlega máttlaust
og leyfði ÍR-ingum að taka leik-
inn í sínar hendur. Lið ÍR skoraði
20 stig í röð, og þar með komið
meira forskot en KFR gat með
nokkru móti ráðið við. Leiknum
lauk með 30 stiga mun ÍR í vil,
90 stig gegn 60. •
Á fimmtudagskvöldið verða
leiknir þrír leikir í yngri flokk-
um, en fyrri umferð í meistara-
flokki lýkur sem fyrr segir á
laugardagskvöldið, en þá leika
KR og Ármann. Auk þess leika
svo Ármenningar við ungmenna
fáiagið Skallagrím úr Borgar-
nesi í fyrsta flokki.
Guðmundur Þorsteinsson (ÍR)
leggur boltann í körfuna.
— Njósnavélar
Framhald af bls. 10
landi-þá oft að góðum notum.
Einnig hafa varnarliðsvélar
oft séð rússneska kafbáta á
Flugvélamoðurskipið „Forestal“
höfunum umhverfis ísland.
Sé það rétt, að Sovétríkin
ætli -framvegis að halda uppi
njósnaflugi með langfleygum
flugvélum, þá eiga þotur
varnarliðsins vafalaust oftar
eftir að verða varar við ferðir
þeirra við landið, sérstak-
lega þeirra véla, sem kunna
að koma norðan frá Mur-
mansk eða ef svipuðum slóð-
um. —
Enska knattspyrnan •>
Úrslit leikja í ensku deildar-
keppninni s.l. laugardag urðu þessi:
1. deild.
Blacburn — Manchester U. 2—2
Blackpool — Leyton O. 3—2
Ipswich — Fulham 0—1
Liverpool — Leicester 0—2
Manchester G. — Brimingham 2—1
N. Forest — Sheffield W. 0—3
Sheffield U. Burnley 1—0
Tottenham — W.B.A. 2—1
Westham — Arsenal 0—4
2. deild.
Bury — Plymouth 1—2
Charlton — Norwich 0—2
Chelsea — Huddersfield 1—2
Leeds — XJerby 3—1
Southampton — Portsmouth 4—2
Stoke — Walsall 3—0
Sunderland — Newcastle 0—0
Swansea — Middiesbrough 1—1
f Skotlandi urðu úrslit m.a. þessi:
Raith — Dundee U. 2—7
St. Mirren — Partick 1—1
Staðan í Englandi er þá þessi:
1. deild (efstu og neðstu liðin) >
Tottenham 27 17-5-5 78:37 39 stig
Leicester 28 16-7-5 59:32 39 —
Everton 25 14-7-4 53:29 35 —
Bolton 22 8-3-11 31:40 19 —
Ipswich 26 6-6-14 34:52 18 —
Leyton O. 27 4-7-16 29:57 15 —
Bridge
ENSK bridgesveit var nýlega á
keppnisferðalagi í Suður-Afríku
og keppti m.a. við úrvalslið og
sigraði með 191 stigi gegn 111.
Spilið, sem hér fer á eftir er frá
þessum leik og er að mörgu
leyti óvenjulegt. Á því borði er
gestgjafarnir sátu l, N-S, gengu
sagnir þannig:
Vestur Norður Austur Suður
pass 1 * pass 1 A
pass 2 * pass 2 ♦
pass 3 ♦ allir pass
♦ D 4
V G 8
♦ 53
4> ÁKD 843 2
A K 10 32 A 9
V 105 42 y Á 9 7 6
♦ D 4 ♦ ÁK862
* 765 4» G 10 9
A ÁG87 6 5
V KD'3
♦ G 10 9 7
4> —
Austur lét út spaða 9 og sagn-
hafi gaf í borði og vestur fékk á
kónginn og lét aftur út spaða,
sem austur trompaði.A-V fengu
síðar tvo slagi á tigul og einn á
hjartá og spilið tapaðist. Spilið
á alltaf að tapast, jafnvel þótt
sagnhafi drepi í byrjun á spaða-
ás, því hann á ekki innkomu til
að taka trompin af andstæðingn-
um og þar af leiðandi getur vest-
ur komizt inn, tekið spaðakóng-
inn og enn látið spaða og fær þá
austur slag á tromp. A-V verða
þó að gæta þess að taka áður 2
slagi á tigul, því annars kastar
sagnhafi tigli í spaðann.
Á hinu borðinu, þar sem ensku
spilararnir sátu N-S, gengu sagn
irþannig:
Vestur Norður Austur Suður
pass 3 gr pass 4 4
pass pass pass
Þriggja granda sögn norðurs
sýnir eftir Acol-sagnkerfinu
sterkan láglit og drottningu (ef
til vill kóng) til viðbótar. í flest-
um tilfellum segði suður pass við
þessari sögn, en þar sem hann
átti ekkert lauf taldi hann rétt-
ara að segja 4 lauf og varð því
sagnhafi með eyðu í litnum. —
Spilið vannst auðveldlega, því
vestur lét út spaða 2. — Enska
sveitin græddi 5 stig á þessu
spili.
2. deild (efstu og neðstu liðin)
Chelsea 27 17-3-7 57:24 37 —
Sunderland 27 13-7-7 53:36 33 —
Plymouth 28 12-8-8 54:43 32 —.
Derby 25 4-8-13 28:43 16 —
Walsall 23 6-4-13 30:57 16 —
Luton 24 4-6-14 32:49 14 —
í Skotlandi er Rangers efst með
31 stig eftir 18 leiki og Partick
í öðru sæti einnig með 31 stig
eftir 19 leiki. St. Mirren hefur 17
stig eftir 23 leiki.
ÉfH r H
%%%%%%%%%%%%
EFTIRFARANDI skák var tefld
í annari umferð í úrslitakeppn-
inni á Skákþingi Reykjavíkur.
Hvítt; Björn Þorsteinsson.
Svart: Ingi R. Jóhannsson.
Sikileyj arleikur.
1. e4, c5, 2. Rf3, d6, 3. d4, cx4,
R. Rxd4, Rf6, 5. Rc3, a6, 6. Bg5,
6. — e6, 7. f4, Bd7.
Nú um nokkurra ára skeið hef
ur þetta afbrigði trauðla sést á
skákmótum. Á sínum tíma hafði
Larsen nokkurn framgang með
þessu afbrigði, en Tal tókst að fá
hann ofan af því að beita leikn-
um með því að sigra hann hér i
Reykjavík 1957.
8. Df3 Rc6
9. 0-0-0 Rxd4
10. Hxd4 Bc6
Uppistaðan í vörn svarts. Með
því að leppa e4 peðið hefur
svartur náð nokkurri fótfestu á
miðborðinu.
Heppilégra hefði verið að leika
11. Bc4, en b5 er hvít ekki sér-
lega óþægilegt, vegna 12. Bb3,
a5, 13. a4, b4, 14. Rd5f
11. — Be7
12. Hhdl Da5f
13. Bxf6
Réttara var 13. Kbl. Eftir þenn
an leik lendir hvítur í miklum
vanda.
13. — Bxf6t
Eftir 13. — gxf6, 14. Dh5 j hef-
ur hvítur góða stöðu.
ABCDEFGH
14. — 0-0t
Sterkur millileikur, sem Björi*
hefur e.t.v. ekki tekið með i
reikinnginn. Ef 14. — Bxc3, 15,
Dxc3, Dxc3 (Dxa2 Dxg7), 16,
bxe3, Bxe4, 17. Bf3, 18. gxf3 og
hvítur nær sjöundu línunni, og
þar með hefur hann fengið gagn-
sóknarmöguleika fyrir veiking-
una á peðstöðunni. Nú hótar
svartur einfaldlega Bxc3 og
Dxa2. T. d. 15. Kbl, Bxc3, 16,
Dxc3, Dxc3, 17. bxc3, Bxe4, 18.
tíxf3, Bxf3, 19. gxf3, Hac8 og nú
hefur svartur unnið mikilvægan
leik miðað við stöðuna fyrir 0-0,
15. Bc4 16. bxc3 Bxc3
Eftir 16. Dxc3, Dxc3, 17. bxc3.
Dxe4 og hvítur er glataður.
16. — Da3t
17. Kbl Hac8
18. Bb3 a5
19. f5 a4
20. Bc4 Bd5!
Hér fór hvítur yfir tímatátan
mörkin, en staða hans er vita-
skuld töpuð.