Morgunblaðið - 05.04.1963, Blaðsíða 3
Föstudagur 5. apríl 1963
M O R C V y B L A fí ! Ð
GUÐMUNDUR Helgason, ís-
lendingurinn sem komst lífs
af þegar norska skipið Höegh-
Aronde fórst undan strönd
Marokko í síðasta mánuði,
kom til landsins í gærkvöldi
með flugvél Loftleiða frá Osló.
Þegar fréttaimenn MW. komu
í afgreiðslu Loftleiða, beið
faðir Guðmundar, Helgi Krist
innsson, komu sonar síns þar,
en móðir hans Inger Nilsen
átti ekki heimangéngt. Við
tókum Helga tali meðan við
biðum eftir fluigvélinni og
spurðum hann meðal annars
hvernig honum hefði orðið við
er hann frétti um sjóslysið.
— Eg kom inn í búð í
Keflavik þar sem ég á heima
og afgreiðslumaðurinn var þá
rétt að ljúka við að'lesa Morg
unblaðið. Hann sagði mér að
Guðmundur hefði lent í sjö
slysi en bjargazt. Mér varð
eðlilega mikið um þetta, en
það lagaðist fljótlega, því öll
sagan var þarna í blaðinu.
— Þið hjónin hafið svo
fljótlega frétt um þetta Feðgarair við heimkomu Guðmundar í gaerkvöldi.
Frétti um björgun sonar
síns eftir Morgunbiaðinu
Gu£mundur Helgason kom hecm í gærkvöldi
frá honum sjálfum?
— Hann sendi okkur kort
með mynd, sem vár tekin af
honum og skipshöfninni á
gríska skipinu, sem bargaði
honum. Hann lét ákaflega vel
af að vera þar' um borð og
sagði, að það hefði verið stjan
að við sig á alla vegu. Það
hefur verið langur fcimi fyrir
hann að busla , sjónum í meira
en 12 tíma áður en honum var
bjargað. Hann skrifaði að
hann hefði heyrt í félögum sín
um í sjónum umhverfis sig,
en þá hefði svo rekið frá
sér. Hann hefur alltaf verið
svo rólegur, hann Guðmund-
ur.
Kvikmyndasýn-
ing Germaníu
Á MORGXIN, laugardag, verður
Þegar vélin var lent og Guð
mundur var búinn að heilsa
föður sínum, spjölluðum við
við hann stundar-korn
— Þetta gekk allt eins Og
í sögu eftir að ég bjargaðist.
í Barcelona tók ræðismaður-
inn mér ákaflega vel og bauð
mér meira að segja heim til
sín. Eg ætlaði að fljúga heim
beint þaðan, en við urðum all
ir að fara til Osló til að vera
viðstaddir sjóprófin.
— Hvað ætlast þú nú fyrir?
— Eg hef ekki ráðið þgð
við mig ennþá, en ég býzt
ekki við að ég kunni við mig,
nema að fara í siglingar aft-
ur. Útgerðarfélagið lét mig
vita, að ég gæti fengið skips-
rúm hjá þeim hvenaer sem ég
vildi, ég þyrfti bara að skrifa
þeim. Annars hefur útgerðin
komið alveg sérstaklega vel
fram gagnvart öllum, bæði
þeim sem komust af og eins
aðstandendum þeirra sem fór-
ust. Aðstandendunum var öll-
um greiddar 15 þúsund norsk
um krónum hærri bætur en
þeim bar, og við fengum bætt
allt tjón, sem við urðum fyr-
ir, þótt þeir þurfti ekki að
bæta nema sem svarar tvö
þúsund krónum. Eg fékk til
dæmis greidda ferðina hingað
heim og sömuleiðis allt uppi-
hald á leiðinni.
Flugfélagið innheimt-
ir eftirkröfur
Barizt
í Laos
Vientiane, 4. apríl. — NTB.
FORSÆTISRÁÐHERRA
Laos, Souvanna ’ Phouma,
prins, skýrði frá því í dag, að
barizt sé á Krukkusléttu. Hafi
bardagar staðið frá því á laug-
ardag. Sagðist ráðherrann hafa
gefið skipun um, að bardögum
skyldi hætt. Alls hafa um 20
manns týnt lífinu í bardögun-
um.
Slæmt ástand ríkir í land-
inu, vegna morðsins á utarf-
ríkisráðherransum, Quinim, sl.
þriðjudag.
Ánægjulegur af-
mælisfagnaður
Hvatar
MÁNUDAGINN 25. marz sl. hélt
sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt 26.
afmælisfagnað sinn í Sjálfstæðis
húsinu.
Formaður félagsins María
Maack setti.hófið csg stjórnaði því.
Hófst það með sameiginlegu borð
haldi kl. 7,30 e.h.
Á meðan setið var undir borð
um voru sungin og spiluð ætt-
jarðarljóð. Þá flutti frú Auður
Auðuns alþingismaður minni
Hvatar og Sjálfstæðisflokksins.
Einnig tóku til máls frú Kristín
Sigurðardóttii*, er flutti minni ís*
lands og frú Guðrún Magnúsdótt
ir skáldkona flutti félaginu
kvæði.
Eftir borðhald skemmti söngvar
inn Marcel Achille. Því næst var
stiginn dans af miklu fjöri til
kl. 1. Afmælisfagnaður þessi var
fjölmennur og þótti takast með
ágætum.
Síðasta sýning
Filmíu
Síðasta mynd ársins verður í
Filmíu í kvöld og morgun og
lýkur þar með tíunda starfsári
félagsins. Það er „The Savage
Aye“, bandarísk mynd frá 1959,
leikstjóri JoSheph Strick, sá sami
sem nýlega gerði myndina The
Balcony eftir Genet. Þykir hún
nýstárleg að gerð og efni og
hefur hlotið mikið lof.
lð þús. kr. norskar
gjöf frá Braathen
LUDVIG G. Braathen, skipaeig-
andi í Olsó, hefur enn einu sinni
sent Skógrækt ríkisins gjöf að
upphæð n.kr. 10.000.—, með hlýj-
um og góðum óskum um fram
gang skógræktar á íslandi.
á Akureyri, ísafirði, Egilsstöðum og Eyjum
kvikmyndasýning í Nýja bíó á
vegum félagsins Germanía, og
verða að venju sýndar frétta- og
fræðslumyndir.
Fréttamyndimar eru um helztu
viðbdrði í Vestur-Þýzkalandi
mánuðina október og nóvember,
þ.á.m. frá opnun mikillar iðn-
aðarsýningar í Berlin og knabt-
epyrnukiappleik í Hamtoorg, þar
sem Santos frá Braziiíu keppa
við Þjóðverja.
Fræðslumyndimar verða tvær,
önnuf þeirra er garoanmynd um
dýralhald á heimilum, en hin
kvikmyndin nefnist „Þar sem
þiðurinn gargar". Er hún í lit-
uro og sýnir ýmsa lifnaðarhætti
hinna villtu dýra, er lifa á sömu
slóðum og þiðurinn.
Kvikmyndasýningin hefst kl.
2 e.h., og er öllum heimill ó-
keypis aðg£ingur, bömum þó ein
ungis í fylgd með fullorðnum.
FLUGFÉLAG íslands hefir nú
ákveðið að taka upp nýja tegund
þjónustu við þá, sem senda vör-
ur innanlands með flugvélum fé-
lagsins. Skrifstofur Flugfélags
íslands á Akureyri, ísafirði, Egils
stöðum og Vestmannaeyjum,
munu framvegis taka að sér að
innheimta eftirkröfur fyrir send
endur vörunnar og hefir þetta
mikið hagræði í för með sér,
fyrir bæöi sendanda og viðtak-
anda.
Eins og kunnugt er, hafa þeir
sem senda vörur sínar flugleiðis
innanlands tryggt greiðslu vör-
unnar við afhendingu með því
að senda jafnframt eftirkröfu í
pósti.
Sendandi hefir þá fyrst orðið
að fara með vöruna til afgreiðslu
Flugfélagsims og síðan með
eftirkröfuna til pósthúsins. Við-
komandi skrifstofa Flugfélags ís
lands á ákvörðunarstað hefir
síðan ekki afhent vöruna, fyrr
en möttakandi hefir greitt and-
virði hennar í viðkomandi póst-
húsi og haft í höndum frumrit
flugfylgibrófsins.
Eins og sjá má af þessu er
þetta talsvert snumngasom af-
greiðsla. Enfremur getur það
valdið óþægindum, þegar varan
er komin á ákvörðunarstað, en
eftirkrafan hefir af einhverjum
ástæðum ekki komið í pósti með
sömu flugferð og þess vegna ekki
'hægt að greiða vöruna og fá hana
afhenta. Sérstaklega er þetta
bagalegt þegar um er að ræða
vörur sem mikið liggur á, svo
sem meðöl, varahlutir og ýmis-
legt fleira, og sem sendar eru
flugleiðis fyrst og fremst þess
vegna.
Fyrir því hefir Flugfélag fs-
lands ákveðið að bjóða viðskipta
vinum sinum að innheimta fram
vegis andivirði vörunnar fyrir
þeirra hönd á ákvörðunarstað.
Síðan mun aðalskrifstofa félags-
ins í Reykjavík senda sendanda
vörunnar greiðsluna þegar hún
hefir borizt.
Gjöld fyrir þessa þjónustu
verða þau sömu og eru nú í gildi
hjá Póststjórninni I Reykjavík.
Eftirkröfurnar eru aðeins gefn
ar út í Reykjavík og eru eins og
að framan greinir fyrst um sinn
sendanlegar til ísafjarðar, Akur
eyrar, Egilsstaða og Vestmanna-
eyja.
Við ofangreindar eftiúkröfur
verða notuð sérstök eftirkröfu-
bréf sem liggja frammi á vöru-
afgreiðslu félagsins í Reykjavik.
(Frétt frá F.Í.).
STAK8TEIIVAR
Tollal£3kkunin
um 100 milljónir
Þótt margupplýst sé, að tolla-
lækkun sú, sem Viðreisnarstjórn
in beitir sér ijtir, sé um 100
millj. kr., hel^w Tíminn áfram
að hamra á P^, að aðeins sé um
42 millj. kr W ræða. Segir blað-
ið að þetta wyggist á því, að nú
verði innheimtur einn tollur til
ríkisins og þar með falli niður
hluti sá, sem sveitarfélögin hafa
fengið í aðflutningsgjöldum. í
sjálfri greinargerðinni með tolla
lagafrumvarpinu.er það rækilega
tekið fram, að bæta eigi sveitar-
félögunum þessa tekjurýraun og
margyfirlýst er, að það verði
gert án þess að nýir tollar eða
gjöld verði á lögð. Það er því ó-
umdeilanleg staðreynd, sem
jafnvel kommúnistar viðurkenna
að tollar verða nú lækkaðir um
nálægt 100 millj. kr.
Reynslan varð sú, þegar tolla-
Iækkunin var gerð 1961, að toll-
tekjur ríkisins minnkuðu ekki
heldur uxu, vegna þess að mjög
dró úr smygli og innflutningur
jókst. Að undanförnu hefur vel-
megun almennings farið mjög
vaxandi og mun halda áfram að
vaxa eftir því sem viðreisnin
verður traustari. Þess vegna má
gera ráð fyrir auknum tolltekj-
um ríkisins og kynni svo að fara
eins og 1961, að ekki yrði um
raunverulega tekjurýmun að
ræða, heldur bætti vaxandi inn-
flutningur upp tollalækkunina.
Sirkusinn
í Sósíalistaflokknum
í flestum „menningarþjóðfé-
lögum“ gefst mönnum kostur á
að skemmta sér við sirkussýn-
ingar. Þann þátt hefur til
skamms tíma vantað i íslenzkt
þjóðlíf, hvort svo sem menn telja
það nú sérstaklega hryggilegt eða
ekki. Flokkur manna virðist nú
ætla að bæta úr þessu, þótt hug-
myndin hafi verið, að einskorða
sýningarnar við takmarkaðan
hóp manna. í kommúnistaflokkn
um fara nú fram kátbroslegustu
pólitiskar hundakúnstir, sem um
getur hér á landi og þótt víðar
væri leitað. Og í gær skýrði MbL
frá einum þætti þess nautaats,
sem þar er nú háð, svo að les-
endur blaðsins gætu fengið svip-
mynd af sálarástandi þeirra
manna, sem ætla að bjóða is-
lenzkri alþýðu forystu sína.
Hafa ekki rússnesku ráðin
Sem betur fer hafa kommún-
istar hér á landi ekki á taktein-
um þau ráð, sem bezt hafa gef-
izt fyrir austan tjald, þ.e.a.s. að
sá, sem duglegastur er að grafa
undan keppinautum sínum og
safna i kringum sig óaldarlýð,
kemur andstæðingunum fyrir
kattarnef, ýmist með því að gera
þá höfðinu styttri eða koma þeim
undir járn og slá. Hér verða
hinir kommúnísku valdastreitu-
menn þess vegna að beita öðr-
um ráðum, og hæst ber þar róg,
klíkuskap og svik. Þar treystir
enginn maður orðið öðrum. AU-
ir sitja á svikráðum við alla og
engum manni dettur í hug að
hugsa 'um neitt annað en per-
sónulega pólitíska upphefð. I
leiknum hefur að undanförau
verið samfelldur stígandi eins
og vera ber. Nú fer lokaþáttur-
inn að nálgast og ekki þarf að
efa að þar verði um hið full-
komna drama að ræða; þar sem
margir liggja í valnum. Óljóst er
þó enn hverjir það muni verða og
eykur það að sjálfsögðu á spenn-
inginn