Morgunblaðið - 05.04.1963, Blaðsíða 22
22
MORC. UNBLAÐIÐ
r
Föstudagur 5. apríl 1963
ÍMTTlWTTIR M(IH(iUHKLAÍISI\S
KR vann KFR 116:69
f FYRRAKVÖLD fóru enn fram
tveir leikir í körfuknattleiksmot-
inu, ÍR lék gregn b-liði Ármanns
í öðrtun flokki og KR gegn KFR
í meistaraflokki. Lauk fyrri
leiknum með sigri ÍR 56:28, en
þeim síðari með sigri KR 116:69.
Annars flokks leikurinn var
ójafn, en þó héldu Ármenningar
nokkuð í við ÍR í fyrri hálf-
leiik 21:16. Síðari háilfleiikurinn
var að heita má einsfcefnuakst-
ur, bæði varnar- og sóknarleik-
ur Árimanns var í molum. Lauk
leiknum 56:28.
Síðari leikurinn virtist ekki
ætla að verða efnilegur. Meðan
leikmenn voru að hita sig upp
íhitti ekki nokkur maður í körfu
og í uppihafi vantaði tvo leik-
menn, en annar þeirra kom þó
nokkuð eftir að leikurinn var
hafinn.
KR tók þeg>ar í upphafi leik-
inn í sínar hendur, vörn KFR
var gjörsamlega í molum og það
var eins og allir leiikmenn KR
hefðu farið í spariskóna. >eir
léku sér að andstæðingunum,
öll skot þeirra tókust vel þeir
bdökuðu boltanum í körfu jafnt
með hægri og vinstri hendi og
léku yfirleitt allar listir.
í fyrri hálfleik koruðu KR-
ingar 51 stig gegn 29 og er líða
tók á seinni hálfleik losaði KR
hundrað stig. Leiknum lauk
116:69, sem er nærri óþekkt skor-
un hér á landi. >ess ber þó að
geta, að pott ivR naii att guom
ieik á þessi háa stigataia beggja
liða að langmestu leyti ræcur
sínar að reutja til leiegtí varnar-
leiks.
I>essi leikur hefur betur en
nokkur annar fært- hetm sann-
inn fyrir því hversu mijtla þýð-
in-gu hæð leikmannanna haifa
fyrir liðin. 1 lið KFR vantaði
Sigurð Heigason, sem hefur ekki
verið talinn sérstaklega sterkur
leikmaður. Hann hefur þó sök-
um hæðar sinnar verið’ liði sinu
sá stólpi að án hans fellur það
gersamlega saman. Ekki kannski
vegna þess hvað hann gerir í
sínurn leikjum, heldur ef til vi 11
fullt eins mikið vegna þess hvað
hann gæti gert ef hans væri ekiki
gætt meir en annarra .
Síðasta leikkvöld mótsins verð
ur næsta þriðjudagskvöld og
leika KR-ingar gegn stúdentum
og ÍR gegn KFR, sem vonandi
verður búið að enduriheimta Sig
urð Helgason.
972 œtpu í fyrra
hjá Ármanní
Leiknenn KR áttu flestir prýðisgóðan leik. Hér er Guttormur
að búa sig undir skot. Ljósm. Sv. Þorm.
AÐALFUNDUR Glímufélagsins
Armans, var haldinn 18. desem-
ber 1962. Form. félagsins, Jens
Guðbjörnsson, setti fundinn og
minnist látinna félaga á starfs-
árinu. Starfsskýrsla félagsins lá
frammi fjölrituð og einnig reikn
ingar félagsins. Reikningar báru
með sér, að síðan félaginu var
skipt niður í sjálfstæðar deildir,
hefur fjárhagur félagsins stór-
lega batnað. Starfsskýrslan bar
það hinsvegar með sér að mikið
Oig ötult starf hefur verið hjá
félaginu og margir íþróttamenn
félagsins hafa staðið í fremstu
röð íþróttamanna hér á landi.
Hjá félaginu æfa nú 972 félagar
og mun það langhæsta tala fé-
laga er æfa hjá einu félagi.
Fastakennarar félagsins voru
15 talsins, en að auki voru marg-
ir af beztu íþróttamönnum fé-
lagsins þeim til aðstoðar. Á veg-
um félagsins voru haldnar 21
sýning á árinu og tókust þær
allar vel, og voru félaginu til
sóma. Glímudeild Ármanns sýndi
12 sinnum á árinu, bæði glímu
og hráskinnaleik. Hráskinnaleik-
ur er ný endurvakinn hér á
landi og mun hann hvergi vera
iðkaður nerna hjá Ármanni, leik
ur þessi var mikið iðkaður til
íorna.
Hin unga Júdó deild félagsins
hefur sýnt á nokkrum stöðum
og ávallt við mikla hrifningu,
enda er íþrótt þessi fögur og
hrein og krefst mikillar leikni.
Sunddeild Ármanns hefur tek-
ið þátt í öllum mótum hér í
Reykjavík og nágrenni og sund-
knattleiksflokkur deildarinnar
hefur verið íslandsmeistari óslit-
ið síðan 1941 og Reykjavíkur-
meistarar hafa þeir verið í tugi
ára. Auk þess hefur flokkurinn
unnið öll aukamót í sundknatt-
leik, sem halddn hafa verið.
Á vegum Ármanns koma hing-
að til landsins í vor handkatt-
leiksflokkur frá Hellas í Svíþjóð
og er það einn þátturinn í til-
efni 75 ára afmælis félagsins.
Handknattleiksflokkar félagsins
hafa tekið þátt í öllum hand-
knatleiksmótum hér í Reykja-
vík, en auk þess farið nokkrar
ferðir til keppni út á land.
Skíðamenn félagsins hafa stað
ið iðjög framarlega í íþrótt sinni
og hefur félagslíf hjá deildinni
staðið með miklurn blóma, enda
á skiðadeildin einn af beztu
skiðaskálum landsins.
Frjálsíþróttamenn félagsins
æfðu af sama kappi og áður og
er mikið félagslíf hjá deildinni.
Nokkrir af íþróttamönnum deild
arinnar hafa verið í fremstu röð
frjálsíþróttamanna og hafa m.a.
*nnar orðið bæði íslands og
Reykjavíkurmeistarar.
Á síðasta ári var mikið æft
og mangar sýningarferðir farnar
á vegum Fimleikadeildar, og
m. a. var farin ferð til Færeyja
Og þar sýnt nokkrum sinnum.
Með í för þessari var heiðurs-
forseti Í.S.Í., Benedikt G. Waage,
og rakti hann sögu ferðarinnar
á fundinum og s.m.a. að svo vin-
sælir hafi Ármenningar orðið,
að haida varð aukasýningar í
Færeyjum. Benedikt kvað Ár-
menninga hafa hrifið svo hugi
frænda vorra Færeyinga að
hvar sem þeir komu hafi þeir
verið aufúsugestir. Hann kvað
Ármenninga hafa verið íslend-
inigdrn til 'mikils sóma í för þess-
ari.
Körfuknattleiksmenn félags-
ins tóku þátt í öllum mótum hér
í Reykjavík og stóðu sig með
prýði, einkum yngrj mennirnir,
Jens Guðbjörnsson var ein-
róma endurkjörinn forrn.- félags-
ins en aðrir í stjórn eru: Gunnar
Eggertsson, Ingvar Sveinsson,
Haukur Bjarnason, Þorkell Magn
ússon, Svava Jörgensdóttir, Þór-
unn Erlendsdóttir, Guðjón Val-
geirsson, Eysteinn Þorvaldsson
og Þorsteinn Einarsson, sem
form. Félagsheimilis og hús-
nefndar. Ármeningar líta björt-
um augum á framtíðina og munu
vanda mjög til 75 ára afmælis
félagsins.
KR og Þróttur
berjast sunnudag
Handknattleiks-
mótinu að ljúka
ÍSLANDSMÓTINU í handknatt-
leik lýkur núna um helgina.
Fimrn leikir verða annað kvöld,
en þrír á sunnudagskvöldið.
Mótið hefst annað kvöld kl.
7,45 með úrslitaleik £ 1. floikki
kvenha milli Vals og Víkings.
Aðrir úrslitaleiikir eru í 2. flokki
kvenna milli FH og Ármanns,
í 2. flokki karla milli Fram og
Víkings í 1. flokki karla milli
Fram og Þróttar. Þá verður og
síðasti leikurinn í II deild karla
milli Ármanns og Hauka.
Á sunnudaginn hefst mótið
kl. 7.30 með úrslitaleik í 3.
flokki karla milli Fram og KR.
Þá verður aukaleikurinn í I.
í skíðalandi ísfirðinga
Þessi mynd er tekin í skíðalandi ísfirðinga um 15 mín. gang
frá kaupstaðnum. Þar verður án efa fólksfjöldi um páskana því
ákjósanleg skilyrði eru til skíðaiðkana.
deild um fallsætið í 1. deild
milli KR og Þróttar en þau fé-
lög urðu jöfn að stigum og
skal falla í 2. deild. Engu skal
neðst og verður með aukaleik
að skera úr um hvort þeirra
um það spáð hvernig þeim leik
lyktar. Þróttarar unnu ÍR-inga í
fyrrakivöld en IR-ingar höfðu
skömmu áður borið sigurorð af
KR. Þróttarar munu án efa
leggja sig alla fram, en KR-
ingar eru líka frægir fyrir að
bregðast ekki á úrslitastund.
.Loks er svo síðasti leikur
mótsins í 1. deild milli Fram og
42 heimsmet
staðfest
í SÍÐUSTU viku voru staðfest
42 heimsmet í frjálsum íþrótt-
um, sem sett voru á árunum
1961 og ’62. Meðal þeirra eru 3
heimsmet Valeri Brumel í há-
stökki, hæsta stökkið 2,27, og 3
met nýsjálenzka hlauparans Fet
er Snell, þar á meðal 3.54.4 á
enskri mílu.
FH. Fram hefur þegar unnið
mótið en Framarar vilja að sjálf
sögðu vinna þennan leik líka.
Hitt er og augljóst að sætur
yrði sigur FH éf íslandsmeist-
ararnir yrðu sigraðir.
Það vekur sérstaka athygli
að Fram er í úrslitum í öllum
flokkum karla.
Þeir markahæstu
í Englandi
i
Markahæstu leikmennirnir í
Englandi eru nú þessir:
1. deild.
M :k:
Greaves (Tottenham) ....... 30 —
Harley (Manchester City) .... 28 —
Baker (Arsenal) ........... 22 —
Hunt (Liverpool) .......... 22 —
Layne (Sheffield W.) ..... 21 —•
Pickering (Blackburn) .....21 —»
Key Worth (Leicester) ..... 20 —
2. deild
Allcock (Norwich) ....... 31 —
Clough (Sunderland) ....... 28 —
Tambling (Chelsea) ........ 28 —
Saunders (Portsmouth) ..... 24 —>
Peacock (Middlesbrough) „ 23 —
Calder (Bury) ........)... 20 —
O'Brien (Southampton) ..... 20 —
3. deild
Bly (Coventry) .......... 26 —
McSevenry (Hull) .......... 25 —
Ashwörth (Northampton) .... 24 —•
Bedford (Q.P.R.) .......... 24 —.
líudson (Peterborough) .... 24 —•
Rowley (Shrewsbury) ....... 24 —•
4. deild
Wagstaff (Mansfield) ..... 31 —
Chapman (Mansfield) ...... 27 —
Lister (Oldham) .......... 26 —
Handley (Torquay) ......„.... 25 —
Booth (Don Caster) ....... 25 —
Judo-kennari til Ármanns
MESTI judokappi, sem enn hefur
heimsótt Island, er væntanlegur
í kvöld, 4. apríl. Hann heitir
John Newman og er Englend-
ingur, aðeins 25 ára gamall.
John Newman hefur verið Ev-
rópumeistari bæði setm 1. dan. og
2. dan. í judo. Síðan hefur hann
dvaUð í 4 ár í Japan við að læra
japönsku jafnframt því sem hann
kenndi ensku við háskólann í
Tenri, einnig æfði hann judo þar
og náði mjög góðum árangri, var
gráðaður 4. dan áður en hann
varð 24. ára.
John Newman var ásamt jap-
anska meistaranum K. Watanabe,
kennari á sumarnámskeiði í judo
á vegum Budokwai í London s.L
sumar. Þjálfari judo-deildar Ár-
manns var á því námskeiði og
talaðist svo til milli hans og
John Newimans, að hann heim-
sækti ísland og kenndi á einu
námskeiði hjá judodeild Ár-
manns.
Það verður að kallást mikill
fengur fyrir hina ungu judo-deild
Ármanns að fá svona góðan
kennara, jafnvel þótt hann hafi
ekki tíma til að vera hér nema
eina viku, þá er miikið varið 1
að fá tilsögn hjá 4. dan, sem
hefur kennarapróf jafnvel í
Japan, í judo íþróttinni.
(Frá Árxxuinni),