Morgunblaðið - 05.04.1963, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 05.04.1963, Blaðsíða 17
FostUdagur 5. apríl 1963 Theodór Brynjólfsson tannlæknir - minning ÚTFÖR Theódórs Brynjólfs- sonar, tannlæknis er gerð í dag, en hann andaðist skyndilega hér i bæ„ laugardaginn, 30. marz. Hafði hann um nokkurt skeið kennt sjúkleika og verið frá störf uim af þeim sökum. Andlát hans kom samt vinum hans og öðrum, er hann þekktu að óvörum. Theódór var maður dulur um eigin hag og flíkaði lítt tilfinn- ingum sinum og er því sennilegt, að veikindi hans hafi átt lengri aðdraganda en fleste grunaði. Theódór var fæddur 5. sept. emiber 1906 að Litla Dal í Svána- dail í Húnavatnssýslu, fluttist síðar með foreldrum sínum að Skildinganesi við Reykjavík. Foreldrar hans voru Brynjólfur bóndi Gíslason, prests á Reyni- völlum Jóhannessonar og kona hans Guðný Jónsdóttir, prófasts á Auðkúlu. Eru ættir þær, er að Theodór stóðu ' hinar traustustu og átti hann til ýmsra merkra manna að telja. Var og margt í skapgerð hans og atgerfi, er bar þess vott, að hann var kvistur á sterkum og traustum stofni. I Theódór ólst upp í foreldra- hiúsum, ásamt stórum systkina- hóp. Hann var settur til mennta og varð stúdent frá Menntaskól- anum í Reykjavík vorið 1928. Huggðist hann í fyrstu leggja stund á lyfjafræði, en hvarf frá því námi og sigldi til Þýzka- lands 1930. Þar hóf hann nám í tannlæknafræðum við háskól- ann í Kiel og lauk þar prófi með góðri einkunn 1934. ! Er heim til fslands kom hóf hann tannlækningar hér í Reykja vík og stundaði þær til dauða- dags. Hann vax talinn farsæll í starfi og naut almenns trausts bæði hjá sjúklingum og sam- starfsmönnum. Þannig var hann lengi í stjórn Tannlæknafélags íslands og formaður þess um skeið. Eftir að kennsla hófst hér í háskólanum í tannlæknafræð- um var hann jafnan prófdómari. Hér hefur í stórum dráttum verið drepið á nokkur ytri atr- iði í lífi og starfsferli Theódórs. Sýna þau að víeu, að hann hefir skipað sess sinn -með sóma, en eegja þó fátt um það, sem okkur vinum hans er minnistæðast frá samvistum við hann. I Enda þótt við Theódór værum tim skeið samtímis í Menntaskól- anum, hófust kynni okkar ekki að ráði fyrr en í Kiel. Þar var þá við nám álitlegur hópur ís- lenzkra námsmanna. Meðal þessa íólks ríkti mikil samiheldni og félagsandi var þar með ágætum. Theódór féll vel í þennan sam- etillta hóp. Komu þá brátt í Ijós margir þéir eiginleikar hans, sem við jnátum því meir, sem kynnin uxu og urðu lengri. Hann var hinn ágætasti félagi, hjálp- fús og greiðvikinn. Nokkuð var hann dulur og fáskiptinn við ókunnuga, en hrókur alls fagn- aðar á gleðistundum og í vina- hóp. Theódór var prýðilega vel greindur maður og hugðarefni átti hann mörg. Hann var víð- lesinn í skáldskap og bókmennt- um og hafði sérstaklega mi'klar mætur á kveðskap. Skoðanir hans á þjóðmálum voru þegar á mámsárum hans ákveðnar og fast mótaðar. Ekki kom að sök, þótt Ihann í þeim efnum ætti ekki samleið með ýmsum okkar, enda hef.ði það ekki samrýmzt þeim góða félagsanda, er meðal okkar riikti. Vináttuiböndin, er tengd voru á námsárunum, rofnuðu ekiki eftir að heim til íslands kom. Má miklu fremur segja, að þau hafi eflzt við það, að nýir fé- ■lagar bættust í hópinn og hafa hin góðu kynni haldist allt fram á þennan dag. Árið 1948 gekk Theódór Brynjólfsson að eiga Ástu Jó- hannesdóttur úr Reykjavík, mik ilihæfa kionu. Þeim varð ekki barna auðið, en einn son, Þórð, hafði Theódór eignazt, áður en hann kvæntist. Stundar Þórður nú nám í Menntaskólanum í Reykjavík. Um leið og Theódór er nú kvaddur með þakklæti fyrir samverustundirnar fyrr og síð- ar, vottum við eiginkonu hans, frú Ástu, og ættingjum samúð okkar félaganna. Minningin um góðan dreng og félaga mun lifa í hugum okk ar. Oddur Guðjónsson t í DAG er Theódór Brynjólfs- son’, tannlæknir kvaddur hinztu kveðju, en með bonum hverfur af sjónarsviðinu fágætur mann- kosta og drengskaparmaður. Þeir munu vera orðnir æði margir er höfðu meiri eða minni kynni af Theódór Brynjólfssyni, bæði í starfi hans og utan þess, og allir sem við hann áttu skipti bera honum gott orð, sem traust um manni og vammlausum, en þó hygg ég fáum hafi verið ljóst, að þar fór maður sem að hæfi- leikum og alilri skapgerð bar mjög af öllum fjöldanum. fámennum hópi, nánustu vina hans, lék þetta hins vegar ekki á tveim tungum, enda var hann þar dáður og virtur öðrum frem- ur. Sá hópur sem ég hef hér í huga lagði grundvöllinn að kynningu sinni, þegar við vor- um á því aldurskeiði, er vaxtar- skilyrði eru hagkvæmust fyrir haldgóða vináttu, enda hefur ríkt þar mikil samiheldni um þrjátíu ára skeið, og verður svo vonandi enn, þótt hópurinn verði aldrei samur eftir fráfall Theó- dórs Brynjólfssonar. Theódór naut trausts og áUts í starfsgrein sinni, sem bezt sést á því að bann var prófdómari við tannlæknadeild Háskólans, allt frá þvd hún var stofnuð, enda var hann óvenjúlega vel menntaður á því sviði. Hann var alla tíð eftirsóttur tannlæknir enda hafði hann mikið að gera MORGUNRL 4 fíl Ð'' og hlífði sér hvergi. Hann hafði því öll skilýrði til efnalegrar vel sældar, en sú féhyggja er mjög hefur mótað athafnir undanfar- inna ára, átti aldrei í honum nein ítök og ekki er mér grun- laust um að í fleiri tilfellum hafi hjartalagið ráðið verðlagn- ingu á fyrirhöfn hans, en flókn- ar gjaldskrár. Hin ytri tákn alls nægta og velmegunar, sem all- ur þorri manna sækist eftir í sívaxandi mœli, voru í augum Theódórs næsta fánýt og ekkert markmið í sjálfu sér, en þekking in ein eftirscknarverðust allra gæða. Hann notaði hverja stund sem gafst til lesturs, var sílesandi, ef svo mætti að orði komast, og fylgdist flestum betur með því sem var að gerast í bókmemnt- um, innanlands og utan. Hann hafði mikla ánægju af ljóðum, skáldsögum og leikritum, en eink um var honum hugleikið allt er varðaði manninn og örlög hans á jörðinni. Þó- Theódór hafi jafn- an unað sér vel við leik hinnar léttu gígju, fannst mér alltaf hinir stórbrotnu mannlegu harm leikir snerta hann dýpst og draga að sér athygli hans öðru frem- ur. Hann var einnig 'einlægur unnandi æðri tónlistar og hafði aflað sér mikillar þekkingar á því sviði. Það var mikil ánægja að ræða við Theódór um þau efni er hon- um voru hugstæðust. Alveg sér- stakiega minnist ég þeirra stunda er við ræddum eftirlætisbók- menntir hans, ekki sízt ef við gripum þar niður, sem brugðið var upp sterkum myndum af mannliífi í sviðsljósi mikilla ör- laga. Þá varð manni bezt ljóst hve viðkvæmur Theódór var í lund, þótt hann hefði alltaf slíkt vald á tilfinningum sínum að ekki var öðrum unnt að ráða í þær, en þeim sem höfðu af hon- urrt nánust kynni. Honum gatzt Mka illa að því, er menn flíkuðu geðihrifum sínum um of eða báru hjörtu sín á torgin. Það hefði því ekki verið að skapi Theódórs vinar míns að ég eða aðrir hefðu farið að mæra hann lofi að hon- um látnum, enda hef ég aðeins dregið hér fram lítið brot þess ihróðurs er ég tel hann verð- skulda. Þessar fátæklegu línur áttu heldur aldrei að vera nein eftirmæli í þeim skilningi, held- ur hinzta kveðja til óvenju hug- þekks samferðamanns er var svo heilsteyptur í skapgerð og ÖM- um drengskap, að þeir sem öðluð ust vináttu hans, telja sér hana meiri ávinning en flest önnur hnoss er þeim hafa fallið i skauL G«3mundur SigurSsson t „Þótt þú langförull legðir sérhvert land undir fót“ ÞAÐ er bjartur sumarmorg- unn. Við erum nýlagðir af stað nokkrir vinir. Hestarnir eru vil; ugir, og við ríðum greitt eftir mjúkum moldargötun'um í yndis- legu kjarrivöxnu landslaginu. Lengi var búið að hlakka til þessa ferðalags, enda er fögn- uðrinn mikill. • Upp að hlið mér ríður vinur minn Theódór Brynjólfsson og biður mig blessaðan að fara hæg ar, „ekkert liggur á, og ekki má fara hratt yfir svona fallegt land. Heyrðu Friðrik, ég var að læra kvæði í fyrrinótt, það var svona“ og svo fór hann með voldugt kvæði eftir Jóhann Sigurjónsson, sem ég hafði þá ekki heyrt áður. Já, vissulega mátti ekki flýta sér um of og allra sízt þegar Theódór vinur minn var mér við hMð, klifandi á fögrum skáid skap eða nýjum hugðarefnum. Margar fórum við ferðirnar og auðvitað lentum við í roki og rigningu, en það gerði ekkert til, mér fannst ailtaf sól og sum 17 ar þegar Theódór var með. Þvi slíkur var Theódór. Ávallt þessi trausti, ljúfi og óvenjulega greindi félagi. Það er margs að minnast eftir öil þessi ár og þegar slíkt val- menni fellur frá er mikilil tregi í brjóstum þeirra, sem þekktu hann bezt. „Þótt þú langförull legðit sérhvert land undir fót“ var hans uppáhalds ljóð, enda oft og mikið sungið, þegar þess- ir gömlu vinir, sem í full þrjá- táú ár hafa haldið hópinn, komu saman. Nú er forsöngvarinn horf inn og hans uppörfandi rödd heyrum við ekki framar. Theódór varð sá fyrsti úr hópn, um, sem kvaddi þennan heim. Hann hefir iagt „land undir Friðrik Dunga> Framfíðarstarf Okkur vantar mann til starfa í verksmiðju okkar. Upplýsingar hjá verkstjóranum. Smjörlíkisgerðin LJÓMI H.F. Þverholti 19. Iðnnám Óskum eftir nemanda í húsgagnabólstrun. Upplýsingar á bólsturverkstæðinu. Trésmiðjan IVIeiður Hallarmúla, Reykjavík. Jörð í Húnavatnssýslu Til sölu er jörðin Breiðavað í Langadal. Hús á jörð- inni eru í góðu ásigkomulagi, tún allt véltækt, rækt- unarskilyrði góð, heimaland girt, silungsveiði og land að laxveiði, raflýsing. Búfénaður getur fylgt. Jörðin er laus til ábúðar í næstu fardögum. Nánari upplýsingar gefur: Sigfús Bjarnason Breiðavaði v/Blönduós eða Finnbogi Jónsson Lauga- teig 19 Reykjavík. SPEGLAR - SPEGLAR SPEGLAR í TEAK-römmum, margar stærðir og gerðir fyririiggjandi. BAÐHERBERGISSPEGLAR — FORSTOFU- SPEGLAR — SMÁSPEGLAR, margar gerðir nýkomnar. 8PEGLABIJÐIIM Laugavegi 15 — sími 1-9635. IJ T S A L A Nærföt, náttföt, skyrtur, poplínfrakkar, fermingarföt. Skíðaútbúnaður er tilvalin fermingargjöf 1.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.