Morgunblaðið - 11.05.1963, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 11.05.1963, Blaðsíða 19
Laugardagur II. maí 1963 MORGUNBLAÐ1B 19 Mikið skal til mikils vinna. Biðröð fyrir utan vinbúð í Stokkhólmi Afengisþurrð í Svíþjdö — færri ofbeldisverk SKRIFSTOFUMENN og verk- Btjórar hjá sænsku áfengisverzl- unínni hafa verið í verkfalli síð- ustu 7 vikurnar. Verkfallið er eð leysast um þessar mundir en allir aðilar eru þó ekki boimn- ir aftur til vinnu sinnar. Nokkr- ir starfshópar eru óánægðir ~bg bíóa eftir sérsamningum. Löng og erfið verkföll eru annars fá- tíðir viðburðir nú orðið í Svi- Iþjóð. Flestar vinnudeilur eru leystar af miðstjórnum stéttarfé- laganna og atvinnurekenda, áður en til tals kemur að leggja niður vinnu. Þetta verkfall hefur dreg- izt óvenju lengi og reynzit erf- itt að leysa. Deiluefnið snertir á- kvarðanir um almenn ráðninga- skilimála, þ.e. hvort miða skuii lengd sumaxfría við aldur einan saman eða bæði aldur og launa- flokk. Lengd sumarfría og auk- inn fritimi er fólki mikils virði í landi, þar sem lífskjör eru góð, en skattar háir, sem gjarnan gleypa talsverðan hluta launa- 'hækkana. Sænsku blöðin spá því, að almennir ráðningaskilmálar verði ræddir meir en launapró- sentan við samningaborðið næstu árin. Búðum lokað og fólki sagt upp Eins og geta má nærri hafði þetta verkfall fljótlega ýmsar afleiðingar í för með sér. Síð- ustu vikurnar má segja, að al- gjör þurrð hafi ríikt á áfengi í landinu. Fjölda mörgum áfeng- isútsölum var fljótlega lokað vegna birgðaskorts og afgreiðslu fólkinu sagt upp eða skipað að taka sumarfrí. Alls 1600 manns, verkafólki og afgreiðslufólki, var sagt upp hjá íyrirtækinu og svo að segja öll framleiðsla lá niðri. Nokkur spíritus var framleidd- ur til læknis- og lyfjafræðiiegra nota svo og til ýmissa rann- sóknastarfa. Flestir aðilar voru mjög illa undir það búnir, að verfeíailið stæði svona lengi og áttuðu sig ekki á að birgja sig upp í tíma. Iðnaðarfyrirtæki lentu í vand- ræðum vegna skorts á spíritusi, því að erfitt var að fá undan- þágur. Veitingahúsin áttu í erf- iðleikum vegna verkfallsins. Mörg þeirra gripu fljótlega til skömmtunar á ýmsum tegundum áfengis. Búizt var við, að einn- ig þar yrði að gripa til þess ör- þrifaráðs að segja upp fólki. Þurrð síðast árið 1909 Áfengi hafði ekki verið af svo skornum skammti í landinu, sið- an allsherj arbannið ríkti árið 1909, en það var rétt áður en skömmtun áfengis var komið á í Svíþjóð. Sú skömmtun hélzt til ársins 1955, en þá var áfeng- ið gefið frjálst aftur. í Stokkhólmi gengu birgðir fyrst upp. Sveitirnar fengu þó ekiki að lúra á sínum birgðum, því að birgðajöfnun var fram- kvæmd. Óvænt bílhlöss af áfengi úr sveitunum ollu feiknalegum biðröðum við vínbúðir í Stokk- hólmi, eins og sjá má af mynd- inni. Þegar al'lt áfengi var búið I landinu, var ekki um annað að ræða en snúa sér til nágranna- landanna. Ferðum til landamæra bæjanna í Noregi fjöigaði gifur- lega. Einnig var stríður straum- ur fólks með ferjunum yfir sund ið til Danmerkur. Reynt var að smygla eftir megni, en fcoll- verðir vor,u vel imdir það búnir. Alltaf öðru hverju komst upp um heimabrugg og sagt er, að leynivínsaltar hafi iítið íátið á sér bæra, þeir bjuggust ekki við svona löngu verkfalli. Hvað segja yfirvöldin um áhrif áfengisþurröarinnar? Að meðaltali drekkur hver Svíi 15 ára eða eldri yfir 5 Mtra af hreinum vínanda á ári og fer neyzlan vaxandi. Einkum veld- ur vaxandi neyzla áfengis með- al æskunnar áhyggjum manna og hefur mikið verið rætt um að- gerðir gegn þessurn vandamálum. Verkfallið hefur á ný komið af Framihald á bls. 20. 4 LESBÓK BARNANNA Sagan af Vellýgna - Bjarnc 9. Þær voru fjórar og uxi hið fimmta. Bjarni fór nú til sjóar að skipta lúðunni, og varð fjósamaður honum sam- ferða, því að hann langaði til að sjá flyðruna. Þegar þeir komu ofan að sjónum, sjá þeir að allar kýrnar hömuðu sig undir öðru rafabeltinu á henni, eu uxinn stóð uppi í henni. með kýrnar, en Bjarni fór að parta lúðuna, og er sagt, að riklingur sá, sem fékkst úr flökunum, kæmist varla á 5 hesta, þegar hanu var orð- iuu harður. 10. Bjarni heldur nú af stað norður. Hann ríður inn í Reykjavík og er þar um nótt- snemma á fótum og járnar þá jörpu með sexboruðum skaflaskeifum. Þegar hann er húinn að því og stiginn á hak kemur fram stúlka með kaffi handa Bjarna, en þá var kominn i hann ferðahugur, svo að hann sinnti ekki stúlk unni og slær í merina, en jafnframt gat stúlkan sett Fjósamaður íór nú heim ina. Um morguninn er hann hollann á hestlendina. 11. Það er frá Jörp að segja, að um leið og Bjarni sló í hana, tók hún svo snöggt viðbragð, að skeifurnar undan háðum aftuefótunum stóðu fastar í næsta húsþilft, en hún héftt sprettinum upp að Kal- manstungu. Þar fw Bjarni af baki og sér kaffibollann á lendinnft. Jörp var svo góð- geng, að ekki hafði einn ein- asti dropi farið úr bollanum og svo var kaffið ennþá heitt, að ekki var auðið að drekka það heitara. 11. Eftir litla viðdvöl ríður Bjami norður Tvídægru. Þeg ar hann er kominn skammt á leið, kemur húðarhrakveð- ur. Bjarna þótti leitt að ríða i regni, svo að hann sló í Jörp, þegar fyrstu regndrop- arnir komu á hann. Sú jarpa hrá snöggt við, og þaut af stað eins og örskot, og svo var hún fljót, að aldrei náði regnið lengra fram en á lend- ina á henni, og reið Bjarni þó undan veðrft. Þá sungu englarnir í loftinu: „Ó, góð er sú Jarpa**. „Herðið þið á skúrinni, ég skal herða á mer- inni“, svaraði Bjarni. 7. Umskiptingurinn Ég lét ekki segja mér það tvisvar. Svo ætlaði ég að stökkva beint heim, en Hans bað mig að bíða. „Af hverju ertu að flýta þér svona mikið?“ spurði hann. Mér datt engin af- sökun í hug og gat ekk- ert sagt. Hárið á honum var nú orðið svart aftur. „Ég verð að fara heim og borða,“ sagði ég. Ég verð að flýta mér.“ Svo pabba, að ég væri eitt- hvað undarlegur og hann tók mig afsíðis og spurði hvort ég hefði verið í áflogum við Hans. „Nei, pabbi“, svaraði ég, og svo sagði ég hon- um upp alla söguna. Ég sagði frá röddinni, sem hafði kallað „Hjáip“ og „Slepptu mér út,“ og frá því, hvernig hárið á Hans hefði stöðugt breytt um lit, og hvernig kanínurn- ar hefðu skipað mér að snáfa út. tók ég umsvifalaust til fótanna og reyndi að hrinda því rneti, sem Lappi hafði sett. Mamma var að spyrja mig um heimsóknina, en ég svaraði varla öðru en já og nei. Hún sagði held við ættum að skreppa yfir um til þeirra“, sagði pabbi, en rétt í því var barið að dyrum. Þegar pabbi opnaði stóð herra Sand og tveir drengir fyrir utan. Dreng i irnir voru eins kiæddir og nákvæm eftirmynd hvors annars, nema hvað annar hafði rautt hár en hinn svart. Á öxl þess rauðhærða sat stór, grænn páfagaukur. Pábbi bauð þeim inn. Þeir settust og hr. Sand sagði: „Drengirnir voru að segja mér, hvernig þeir léku á Óla í dag og ég kom hingað með þá, svo að þeir gætu beðið afsök- unar. Þér sáuð aðeins annan drenginn í gær, hr. Hansen. Ég athugaði ekki að segja yður, að ég á tvíbura, sem eru nauða líkir, nema á háralit. Þeir hafa áður . leikið svona bragð, en nú finnst mér nóg komið. Hans og Pétur báðu mig fyrirgefningar, en ég hló og sagði, að þetta gerði ekkert til. „En hvað var það, sem gerði Lappa svona hrædd an?“ spurði ég. „>að var páfagaukur- inn“, svaraði Pétur. „Hann verður óður, þeg- ar hann sér hunda. Hann flaug upp í gluggann. Svo földum við hann bak við

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.