Morgunblaðið - 19.05.1963, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 19.05.1963, Blaðsíða 13
Sunnudagur 19. maí 1963 MORGVNBLAÐ1Ð 13 Heimavistin „Unglingarnir ganga betur um ef vel er að þeim búið“ Heimsókn í heimavistina í Stykkishólmi „öll umgengni hér er til fyrirmyndar,“ sagði Sigurður Helgason, skólastjóri barna- og miðskóla Stykkisihóims. „Ég er þeirrar skoðunar, að unglingarnir gangi betur um, ef vel og smekklega er að þeim búið, og reynslan hefur ótvírætt sannað það hér.“ Við erum stödd í heimavist- inni í Stykkishólmi, sem er j dvalarstaður utanbæjarmanna \ meðan þeir stunda nám við j miðskóla Stykkishólms. Heima i vistin var tekin í notkun í fyrrahaust, og hafa dvalið i þar í vetur 28 nemendur, 16 stúlkur og 12 piltar. Sigurður Helgason sýndi okkur heimavistina, sem er á tveimur hæðum. Á efri hæð- inni er stúlknagangurinn, stór setustofa og íbúð hús- varðar. Við litum inn í eitt stúlknaherbergið, nr. 204. Þar sátu við lestur tvær stúlkur, Þuríður Gísladóttir, og Konný Breiðfjörð, báðar frá Hellis- sandi. Nú var um að gera að lesa af kappi, enda naumur tími til prófs. Þuríður var að lesa undir landspróf en Konný að búa sig undir að taka próf upp úr 2. bekk. Öll herbergin eru inrfréttuð á sama hátt, í þeim eru tvö skrifborð, tvær bókahillur, tveir skápar, tveir svefnbekk- ir, og vaskur í hverju her- bergi. Salerni og baðherbergi eru á hverri hæð. Við spurðum stúlkurnar 1 herbergi nr. 204 hvort þær sæu sjálfar um ræstingu á herbergjum sínum og kváðu þær já við. Einnig sögðust þær þvo og bóna ganginn til skiptis. Á neðri hæðinni er pilta- gangurinn, eldhús og borð- stofa og þvotta- og strauher- bergi. Það sást enginn á ferli á piltaganginum, sjálfsagt all- ir niðursokknir í námsbæk- urnar. f eldhúsinu var Unnur Breiðfjörð og aðstoðarstúlka hennar að ijúka við að ganga frá hádegismatnum og byrja að undirbúa miðdegiskaffið. Allt var í röð og reglu og hreinlæti í hávegum haft. Okkur var sagt, að heima- vistin gegndi nú tvíþættu hlutverki; hýsti námsmenn yfir vetrarmánuðina og ferða. Stykkishólms væru 130 tals- ins, þar af 82 í barnaskólan- um. Fjórtán nemendur væru að búa sig undir landspróf. Fastir kennarar við skólann eru sex, auk skólastjóra. „Skólabragurinn hefur ver- ið prýðisgóður í vetur,“ sagði Sigurður Helgason að lokum, „nemendur hafa yfirleitt stundað nám sitt vel, og fé- iegslífið verið með miklum blóma. Nemendurnir hafa haldið skemmtifund annan hvern laugardag, þar sem ým- islegt er gert sér til skemmt- unar; einnig höldum við árs- hátíð og förum í skólaferða* lag. Þá hefur íþróttalíf verið mikið í vetur og bekkja- keppnir haldnar af og til, öll- um til óblandinnar ánægju.“ — hg. Sigurður Helgason skólastjóri menn á sumrin. Eins og mönn um er í fersku minni brann hótelið í Stykkishólmi ekki alls fyrir löngu og síðan hafa ferðalangar átt erfitt með að fá gistingu í bænum. Nú hefur heimavistin bætt þetta á- stand og geta menn fengið þar húsaskjól og fæði yfir sumar- tímann, meðan þeir dvelja í bænum. Skólastjórinn sagði, að nem endur í barna- og miðskóla t eldhúsinu, CJnnur Breiðfjörð Landið okkar (t.h.) og aðstoðarstúlka hennar TtOYER BENZÍN EÐA IIIESEL Benzín - VÉL - Diesel BENZÍNVÉI,: 4 strokka með yfirlokum. Strokkvidd 90.49 mm., slaglengd 88.9 mm., rúmmál 2.286 rúm- centimetrar. Afl 77 hö. við 4.250 súninga á mínútu. Átak á öxli 17 m.kg. við 2500 snúninga á mínútu. Þrýstihlutfall 7:1. Strokkar. ísteyptir með vélarblokk, strokkalok úr steypujárni: Sveifarás hefur fullt jafnvægi og leikur í þrem höfuð legum, sem eru ástamt stimpilstangalegum úr kopar- blý samsetningu. Kambás leikur í fjórum hvítmálmslegum drifinn af töföldu, þöglu keðjudrifi. Stimplar úr alúmíníumblöndu, tinhúðaðir. Tveir þéttihringar, einn olíuhringur. Alfljótandi stimpil- bolti. DIESELVÉL: 4 strokka með yfirlokum. Strokkvídd 90.49 mm., slaglengd 88.9 mm., rúmmál 2286 rúm- centimetrar. Afl 62 hö. við 4000 súninga á mínútu. Átak á öxli 14 m.kg. við 1750 súninga á mínútu. — Þrýstihlutfall 23:1. Stimplar úr alúmíníumblöndu, tinhúðaðir með ísteyptri krúnu. Vélin að öðru leyti eins og benzínvél. Brennsluolíukerfi: Venjuleg kambássfæðudæla, tvær olíusíur, óbein innspýting með C.A.V. stjörnudeili (D.P.A-olíuverk). Glóðarkerti fyrir gangsetningu í kulda. HVOR HENTAR YÐUR? Leitið upplýsinga um fjölhæfasta farartækið á landi. LAND- ^ROVER Heildverzlunin Hekla hf, Laugavegi 170—172 — Sími 11275. Tannlækningastofa min verður lokuð vegna 1 árs dvalar erlendis. ENGILBERT GUÐMUNDSSON tannlæknir — Njálsgötu 16. Húsaviðgerðir sf. Tökum að okkur allskonar viðgerðir á húsum. — Járnklæðum þök og bikum, tvöföldum gler. Opið kl. 3—5, Laugarvegi 30, 2. hæð, sími 10260 á öðrum tíma, sími 15166. (Geymið auglýsinguna).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.