Morgunblaðið - 19.05.1963, Page 16

Morgunblaðið - 19.05.1963, Page 16
MORCUVnr 4ÐIB SurirtUdagur 19. maí 1963 1F Þóra Rósa Siguröardóttir ÞAÐ VAR ekki ætlun mín að fara að skrifa minningargrein um maddömu Þóru Rósu, enda er nú nærri hálf öld liðin frá and láti hennar, en eftir að hafa lesið bókina „í ljósi minninganna“ eft ir frú Sigríði Björnsdóttur, þar sem minnzt er á þessa gömlu konu á miður vingjarnlegan hátt, þá langar mig bæði til að leið- rétta missagnirnar og ennfremur að sýna hana í öðru ljósi en þar er gert. Maddama Þóra Rósa var fædd að Böggvistöðum í Svarfaðardal í tólftu viku sumars árið 1825. Foreldrar hennar voru Sigurður Sigurðsson bóndi þar (sonur séra Sigurðar á Auðkúlu) og Valgerð ur Björnsdóttir kona hans. Þau Sigurður og Valgerður voru vel efnuð á þeirra tíma vísu, þó hefur hún víst ekki verið sett til mennta, enda var ekki mikið um skólagöngur í þá daga, en að sjálfsögðu héfur hún heldur ekki þurft að fara burtu til að vinna fyrir sér hgá vandalausum. Árið 1846 flytur Þóra Rósa með foreldrum sínum að Silfrastöðum í Skagafirði, en þau bjuggu þar frá 1846 til 1851. Á þessum árum meðan hún er heimasæta þar kynnist hún og trúlofast séra Jóni Jónssyni, sem er þá þjónandi prestur í Mikla- bæjarprestakalli, en ábúandi og eigandi að Víðivöllum. Vorið 1850 flytur svo Þóra Rósa til séra Jóns að Víðivöllum og þá áreiðanlega heitbundin honum og 1. nóvember sama ár ganga þau í hjónaband. Hún er þá 25 ára gömul. Það er því missögn i bók- inni að hún hafi verið 16 eða 17 ára þjónustustúlka á prestssetr- inu. Þá er talað um séra Jón sem karlægan karl þegar Þóra Rósa giftist honum. Þetta er nú ekki sannleikanum samkvæmt, því hann fór aldrei í kör. Séra Jón Jónsson á Miklabæ missti fyrri konu sína Halldóru Þorsteinsdóttur árið 1846 og þrern ur árum seinna flytur hann að Víðivöilum. Aðstoðarprestur hjá séra Jóni varð séra Páll Jónsson tengdason ur hans, frá 1848 til 1853 er hann fékk Hvamm í Laxárdal. Séra Páll bjó þá á Miklabæ og tveir aðrir, því séra Jón leigði jörð- ina. Séra Jón lét af embætti ár- ið 1858, hann var því þjónandi prestur í 8 ár eftir að hann gift ist seinni konu sinni og síðustu 5 árin aðstoðarprestslaus, hann getur því ekki hafa verið karlæg ur. Þegar séra Jón hætti prest- skap flutti hann á eignarjörð sína Miðsitju, hann var þá búinn að selja Víðivelli. Á Miðsitju bjó svo séra Jón til æviloka 6. júní 1866, hann bjó þar góðu búi, var óvenju ern og hress gamall maður, og varð aldrei rúmliggjandi, nema kannski síðustu vikurnar fyrir andlát sitt. Þau séra Jón og maddama Nýjasti FORDINN CORTIIMA CORTIIMA CORTIIMA CORTINA er rúmgóður 5 manna bíll. CORTINA hefir farangursrými fyrir alla fjölskylduna. CORTINA hefir aflmikla miðstöð. CORTINA er 2ja dyra, 4ra dyra eða Station. CORTINA er enskur bíll. CORTINA kostar frá krónum 146.000,00. CORTINA er ryðvarinn. CORTINA ER MEST SELDI BÍLLINN í NOREGI. Leitið upplýsinga: UMBOÐIÐ Laugavegi 105. — Símar 22469 — 22470. Þóra voru því 16 ár í hjónabandi, en ekki varð þeim barna auðið. Þá er oftar en einu sinni talað um það í umræddri grein að maddama Þóra hafi verið þéruð. Allt fólk, sem er miðaldra og meira veit að þetta þótti alveg sjálfsagður hlutur í þá daga og þar af leiðandi ekkert sérkenni- legt við það. Það er áreiðanlegt að sóknar- prestarnir á Miklabæ og maddöm ur þeirra hafa látið sóknarbörnin. þéra sig, og kannske vinnufólkið sitt líka, löngu eftir að séra Jón Jónsson hætti prestskap þar, og af því að það hélzt við fram á tuttugustu öldina, þá fannst nú sumum að höf. hefði mátt sleppa þéringunum. Ennfremur segir í bókinni að maddama Þóra hafi komið í heim sókn að Miklabæ einu sinni á ári og höf. sér hana í anda „er hún birtist fram á Melnum, dökk þúst á gráum hesti sem aðeins fer fetið“ þessum ferðum sínum að Miklabæ var hún hætt nokkuð löngu áður en hún dó, og var það sannarlega vel farið. Aftur á móti fór hún á meðan hún gat nokkuð, árlega í Víðivelli en það an hef ég ekki frétt skriflega eða munnlega lýsingu á því, hvernig þessi gamla kona, sem var að koma í vinaheimsókn, hafi tekið sig út á hestbaki. Og aldrei hef ég heldur heyrt frá Víðivallaheimilinu, að það talaði öðruvísi en vel og virðu- lega um maddömu Þóru. Þá er lýsingin á maddömu Þóru þannig að hún hafi ekki borið neina fyrirmennsku í fari eða fasi, verið lítil á vöxt „alis ekkert lagleg og laus við allt, sem vakið gæti virðingu o. s. frv.“ Er nú hægt að segja öllu ljót- ara um nokkra manneskju, en að hún sé laus við allt sem vakið geti virðingu? Ekki get ég gizkað á, hvers vegna höf. skrifar svona um þessa látnu heiðurskonu, sem var stéttarsystir hennar og sókn arbarn föður hennar. Hún var lítil á vöxt, það er rétt en ekki getur manngildi fólks farið eftir líkamsstærð, heldur miklu fremur því, sem Hannes segir „Að andann gruni ennþá fleira en augað sér“. Mér er sagt að hún hafi á yngri árum verið fríð kona og það bar hún reyndar alltaf með sér, þrátt fyrir háa elli. „Því þá fatið fymist fellur það betur að limum og lætur skýrar í ljósi lögun hins innra“. Það er enn margt fólk á lífi, sem man eftir maddömu Þóru Rósu. Jónas Jónasson frá Hof- dölum minnist hennar í ævisögu sinni, en hann var henni samtíða, þegar hann var drengur, og for- eldrar hans í sambýli við hana. Jónas skrifar hlýlega og vingjarn lega um gömlu konuna og hnjóð ar hvergi í hana. Nýlega átti ég tal við Jónas og bað hann að segja mér eitthvað af maddömu Þóru, því það maa sjálfsagt enginn núlifandi maður betur eftir henni. Hann sagði, að hún hefði verið afbragðsmann- eskja. Það hefði verið gott að vera í sambýli við hana, hana sagði að hún hefði verið kát og skemmtileg og lagleg. Ennfremur að hún hefði verið næm og mmn- ug og fljót að læra vísur. Hann segir að hún hafi lesið töluvert og sagt skemmtilega frá, og svo bætti hann við „Eg mun ávait minnast hennar með þakklæti og virðingu“. Þetta segir nú Jónas Jónasson frá Hofdölum, en hann þekkja all ir Skagfirðingar og margir fleiri, og þykir mér vænt um að geta borið þennan sannorða og merka gáfumann fyrir þessum ummæl- um um maddömu Þóru. En það má nú segja að sínum augum líti hver á hlutina og enn segir höf. „Hún bar hvorki höfuð hátt, né sýndi mikla reisn“. Eins og hver önnur heiðarleg og virðingarverð manneskja hel Framhald á bls. 22.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.