Morgunblaðið - 19.05.1963, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 19.05.1963, Qupperneq 22
22 MORGVNBLAÐ1B Sunnudagur 19. maí 1963 Merkileg athugun — Misheppnuð skýring Til sjós eða lands ÞAÐ er margt skrifað og skrafað um sjávarútvegsmál manna á meðal og er ekki nema gott um það að segja að fólk er farið að gefa sjávarútveginum m e i r i gaum en gert hefur verið. En ég held nú að það sé fyrst og fremst af því, hvað vel hefur gengið á síldveiðunum á síðast- liðnu ári og vetur og gefið mörg- um góðan aur 1 vasa og því haldið óspart á lofti. En í sam- bandi við síld og í skugga henn- ar, hefur skeð atburður, sem vert væri að meiri gaumur væri gefinn. Að síðari heimsstyrjöld- inni lokinni varð gjörbylting hjá íslenzkum sjávarútvegi og á ár- unum 1946—’50 komu nýir bátar og togarar til landsins, er færðu þjóðinni auð, sem seint verður metið að fé. Með þeim gjaldeyri, Sem togararnir og bátarnir færðu landi og þjóð höfum við getað sent dætur og syni þessa lands til meiri mennta á erlendri grund, en þeir ella hefðu fengið hér heima. Þetta er eitt af mörg um dæmum, sem hægt er af að taka. En nú ætla ég að snúa blaðinu við og minnast á þann atburð, sem knýr mig til að skrifa þessar línur. Nú fyrir skömmu kvaddi hér Reykjavikurhöfn nýsköpun- artogari svokallaður með norsk- an fána að hún. Þar var að kveðja Ólafur Jóhannesson frá Patreksfirði, seldur til Noregs fyrir 2,8 milljónir, að ég heyrði sagt. (ég veit ekki hið rétta verð, enda skiptir það ekki máli). Ólafur Jóhannesson er byggður í -bberdeen 1951 úr stáli, 681 tn. Ég heyrði í haust að bátur, sem smíðaður var í Svíþjóð 1946 úr eik 52 tn. að stærð hafi verið seldur á 2,4 milljónir. Er ekki eitthvað athugavert, þegar verið er að selja til Noregs 11 ára tog- ara 4 sama tíma og við erum að láta hyggja nýja háta og þeir alltaf að stækka. Og hver er kominn til að segja að innan fárra ára verði ekki hægt að gera þessi skip út á síldveiðar. Það er fengin reynsla fyrir því, að það er hægt að veiða síld á togara, þó það hafi ekki gengið vel. En, það er ekki hægt að fullyrða að það sé ekki hægt. Það hefur heyrzt manna á meðal að útgerðarmenn láti smíða 300 tn. síldarskip og þá fer nú að minnka bilið á milli togara og þeirra. Nú er annað til í dæminu. Getur ekki verið að þeir tímar komi aftur að við verðum fegnir að eiga togara, og menn að fá pláss á þeim. Og eins er aftur að skapast jafnvægi á vinnumarkaðnum. Því hefur oft verið lýst í blöðum og útvarpi að vinnslustöðvar í landi er vinn úr hráefni, vinna með % afköst- um sökum manneklu. Og þar af leiðandi fara Biargir tugir þús- unda króna á glæ. Þar eð ekki er hægt að koma hráefninu í þá gæðaflokka, er við fáum mest fyrir þá á erlendum markaði. Og síðastliðið sumar sýndi það sig að togarar voru einu skipin, sem gátu flutt síld að norðan og suð- ur og björguðu þannig tugum þúsunda króna frá glæ. Það er von min að það láti fleiri álit sitt í ljós á þessum málum á opinberum vettvangi. Og að síðustu: Ekki að selja fleiri togara úr landi meðan við höfum nóg not fyrir þá, þó það sé ekki í dag. Skjöldur Þorgrímsson. í ÞJÓÐVILJANUM 27. jan. sl. (síðar í Mbl. og Vísi) er sagt frá stúlku í Sovétríkjunum, sem at- hugendum hefur virzt að gæti lesið og greint liti með fingrun- um, og lætur blaðið þess getið, að ef þetta ætti sér stað á ís- landi, þá yrði það sett í sam- band við dulræna hæfileika. Hvernig svo sem því viðvíkur þá er ég nokkurn veginn viss um að skýringartilraunir þær sem blað- ið segir þarna frá, eftir hinum rússnesku vísindamönnum, eru ekki hinar réttu. Mun annað fyrr koma á daginn en að menn reynist hafa sjón í fingurgómunum, og r.iun skiln- ings á þessu fyriibæri einungis vera að vænta með þvi að horfa út frá hinum náttúrufræðilegu kenningum dr. Helga Pjeturss um lífgeislan (sjá ritgerðina Lífgeislan og magnan, Nýali 1921). Mun þarna hafa verið um að ræða lífsambands- eða stilli- áhrif frá vísindamönnum þeim, sem með tilrauninni fylgdust, og er þar að vísu um að ræða sams- konar fyrirbæri og þau, sem menn hafa löngum viljað kenna við dulrænu eða dulspeki. Er þetta þannig að skilja, að fyrir samband, sem kemst á milli stúlkunnar og þeirra, sem eiga að fylgjast með því hvort hún lesi rétt, getur hún „séð“ það sem þeir hafa fyrir augum, eins og hún horfði á það sjúlf, og mætti nefna mörg dæmi þess að slíkt hefur átt sér stað, þó að ekki skuli það gert hér. Getur hún þannig lýst bæði letri og litum á þann hátt að furðulegt er, og er við því að búast að vefjist fyrir mönnum að skilja slíkt, þar sem hleypidómarnir og skilningsleys- ið á þessum efnum er eins ríkj- andi og á sér stað á þeim út- jaðri vitheims, sem mannlíf þess- arar jarðar telst til. Enda er naumast hægt að hugsa sér frá- leitari skýringu en þá, sem þarna var haldið fram, og vil ég biðja þá af samlöndum vorum, sem trúaðastir eru á þá skýringu að láta af því vita, hvernig geng- ur að koma þeirri ályktun heim við það sem annars er vitað um eðH sjáskynjunarinnar. En það fylgdi fréttinni að nú ætti að fara að athuga það, þegar menn þótt- ust vissir orðnir um hitt. Miklu skemmtilegra væri það að vísu ef hægt væri að ætlast til þess af íslenzkum mennta- mönnum og vísind nönnum að þeir neyttu aðstöðu sinnar til þess að koma þeirri skýringartil- raun, sem hér hefur verið haldið fram, á framfæri við hina rúss- nesku vísindamenn. En til þess að bera fram slíka leiðréttingu þyrfti ekki annað en eitthvað af þjóðlegu sjálfstrausti eða að vera ekki fyrirfram sannfærður um að íslenzk skýring geti ekki ver- — Sr. Benjamm Framhald af bls. 20. þvi ekki dáið (sbr. Pál: í hon- um lifum, erum og hrærumst vér..... en þetta er nú víst bráðhættuleg aigyðistrú). Enn- fremur bendir hann á, að upp- risa Krists sé hornsteinn krist- indómsins (en S.A.M. telur upp- risutrúna lítið koma kristindóm- inum við). Þannig prédika nú og skrifa ýmsir frægustu prestar stór- þjóðanna og þykir ekkert „við- undur“ þar. Að vísu geri ég ráð fyrir, að þar séu einnig til ein- hverjir kreddu-pokar, en enginn hlustar á þá þar fremur en hér. Hið eina, sem slíkir menn áorka er að fæla menn frá kirkjunum með stækri þröngsýni sinni. Skrifað á sumardaginn fyrsta. Benjamín Kristjánsson. ið hin rétta. Tilgátu þessa — sem ég að svo stöddu kalla ekki ann- að, þó að hún sé hinsvegar byggð á því, sem ekki er tilgáta, heldur staðreynd, að hugsam- band fyrir lífgeislann getur átt sér stað — væri auðvelt að sann- prófa, eins og hver sem vill getur gert sér ljóst, og það er prófunin á þessu, sem mér finnst að ís- lenzkir "ræðimenn ættu að fá rússneska til að gera. Mætti nefna sem vel til þess fallna ýmsa sem innanlands eru að starfi, en ég læt mér einnig koma í hug þá sem erlendis staría, eins og Lárus Einarsson í Árós- um eða Karl Strand í Lundún- um. Væri það ekki einungis vís- indalegur ávinningur að fá úr — Höfuðstaður Framhald af bls. 15 firzku síldarmiðunum. Því eins og öllum almenningi er kunnugt þá hefur óhemju magni af síld verið ausið upp úr Jökuldjúpinu, heimamiðum Hólmara og ann- arra Snæfellinga, án þess að breiðfirzku kauptúnin hafi haft aðstöðu til þess að hagnýta sér þessi miklu auðæfi hafsins að verulegu leyti. Sannleikurinn mun vera sá, að um nokkurt skeið hefur verið nokkuð dauft yfir. atvinnulífi Hólmara og þyrfti að breitast til batnaðar hið allra fyrsta, og þá helzt með út- gerð togara úr Hólminum. í því sambandi mætti vona, að útgerð togarans Þorsteins þorskabíts hefjist að nýju að lokinni við- gerð hans sem mun nú langt komið. Standa þá vonir til, að nýtt tímabil hagsældar og menn- ingar þróist og að lífskjör Hólm- ara verði sambærileg því sem bezt er í öðrum menningar- og framfarabæjum á íslandi. Að sjálfsögðu munu forráða- menn Stykkishólms vinna vel og drengilega að alhliða framförum á sviði' athafnalífsins, svo sem með byggingu nýrrar dráttar- Ibrautar ásamt skipasmíðastöð, endurheimt togarans Þorsteins Iþ'rskabíts, stækkun síldarverk- smiðjunnar og auknum iðnaði í kauptúninu. 1 því samWandi mætti benda á, að Islendingar hafa allt í einu uppgötvað að þeir eru langt á eftir öðrum þjóðum hvað iðnvæðingu snertir, og ekki nóg með það, því þessu er ekki svo auðvelt að kippa í lag fljótlega, þar sem sérmennt- að fólk vantar til þessara starfa og enginn tækniskóli til í land- inu sjálfu. En samsagt Alþingi íslendinga hefur nú rumskað við illan draum og hyggst nú kippa þessu í lag hið bráðasta. í þessu sambandi er áríðandi fyrir Stykkishólmsbúa að láta ekki komandi iðnvæðingu framhjá sér fara án þess að gerast virkir þátttakendur í slíkum alhliða framförum, og vel getum við treyst stjórnarflokkunum til þess að koma þessum málum í rétt horf sem og öðrum framfara og menningarmálum. Það er því blátt áfram skýlda allra hugs- andi íslendinga að standa vel og drengilega með stjórnarflokkun- um í komandi kosningum og gefa þeim áframhaldandi neiri- hlutavald næstu fjögur árin til hagsbóta fyrir land og lýð. Vestlendingar í Vesturlands- kjördæmi, og aðrir góðir íslend- ingar, berið nú saman kjörtíma- bil vinstri stjórnarinnar sálugu, illræmdustu ríkisstjórnar sem nokkru sinni hefur farið með völd á íslandi, og kjörtímabil núverandi ríkisstjórnar, sem auð kennzt hefur vegna alhliða fram- fara og stórbættra lífskjara alls almennings í landinu. Vinnum því vel og drengilega að stórsigri stjórnarflokkanna í k o m a n d i kosningum, með því tryggjum vi5 eigin lífshamingju og áfram- haldandi framfarir á íslandi. Árni Ketilbjarnar frá Stykkishólmi. þessu skorið, heldur einnig mann úðarverk gagnvart hinni rúss- nesku stúlku, sem sögð er vera mjög viðkvæm og næm fyrir. En alltaf er hætta á því að þeim næmleika verði á einhvern hátt misboðið, meðan enginn skiln- ingur er fyrir hendi á eðli hans og þeim hæfileikum, sem honum eru samfara. Þorsteinn Guðjónsson. Athugasemd birtist grein, sem nefnist „Léleg- ar póatsamgöngur". Þar segír svo: „Miki'l óánægja ríkir nú á Eskifirði með póstflutninga hing- að og héðan undanfarið. Það ber við að flugferðir séu til Egils- staða oft í viku og nú orðið dag- lega, en pósturinn kemur 5—1 daga gamall“. Málið hefur verið athugað e skal upplýst, að á tímabilinu 1. apríl til 10. maí s.l. hefir póstur verið sendur frá Reyðarfirði til Eskifjarðar sem hér segir: 2.4., 3.4., 4.4., 7.4., 9.4., 13.4., 16.4., 20.4., 21.4., 24.4., 26.4., 27.4., 29.4., 1.5., 3.5., 4.5., 6.5., 7.5., 8.5., 9.5., og 10.5. Jafnmargar póstferðir hafa verið milli Egilestaða og Reyðar- fjarðar á sama tímabiiU og hafa þær verið í sambandi við flug- ferðir milli Reykjavíkur og Egils- staða. Af framanskráðu er ljóst, að póstferðir hafa verið með tíðara móti miðað við árstíma og getur það því ekiki verið ástæða tii k'vörtunar um lélegar póstsam- göngur. Leiðrétting þessi óskast birt í blaði yðar. Póst- og símamálastj órnin Virðingarfyllst, Bragi Kristjánsson. — Minning ur hún auðvitað getað borið höf uð hátt. Ekki var hún að smækka sig eða sitt heimili með því að niðra náunganum, mér er sagt af þeim sem muna betur eftir henni en ég, að hún hafi verið grandvör í því sem öðru. Eg geri ráð fyrir að ellin geti lækkað ris ið á fleirum en henni, og vissu lega varð hún að lúta lögmáli elli og hnignunar eins og aðrir, en „andinn getur hafizt hátt þótt höfuð lotið verði“ segir eitt af skilningsríku skáldunum okkar. Þá segir í bókinni. „En það var orðin sterk venja, jafnvel skylda að allir umgengjust hana sem heldri konu“. Um þetta vil ég segja það, að maddama Þóra Rósa sómdi sér fyllilega, bæði að útliti og innræti í stöðu sinni sem prestmaddama og því hefur hún raunverulega verið heldri kona í þess orðs beztu merkingu, og ekkert síðri en aðrar stéttar systur hennar fyrr og síðar. Eftir lát manns síns bjó madd ama Þóra áfram í Miðsitju í mörg ár, ýmist á allri jörðinni eða parti og eftir að hún hætti búskap var hún þar enn áfram til æviloka 18. apríl 1914. Hún átti Miðsitju, hefur fengið þá jörð eftir mann sinn. Auk þess átti hún þrjár jarðir norður í Öxnadal, sem hún hefur erft eft ir sína efnuðu foreldra. Allar þessar jarðir, svo og allar aðrar eigur sínar, sem voru ekki svo litlar, gaf hún afkomendum mannsins síns, hún var óþreyt- andi í umönnun sinni fyrir þeim, og fjóra af þeim ól hún upp og það eftir að hún var orðin ein- stæðingsekkja. Til þess hefur hún þurft dugnað, manndóm og fórn arlund, en allt þetta átti hún í ríkum mæli, ásamt nógum ver aldlegum efnum. Við okkur krakkana heima var hún ætíð hlý og góð og umburðarlynd eins og bezta amma. Þess vegna er bjart yfir minn- ingunni um maddömu Þóru og við sem þekktum hana bezt og nutum ástúðar hennar munum á- valt minnast hennar með þakk- læti og dýpstu virðingu. Skrifað í marz, 1963. Þóra Rósa Jóhannsdóttir. — Minning Framihald af þls. 14. svo hraustlega til orða sem Guðm. Einarsson frá Miðdal, er hann leit Víðidal í sumarskrúða: „Að jafnvel dalir Alpafjalla bliknuðú*. Þarna inni í reginfjöllum höfðu bændurnir — Víðidalsmenn — svo voru þeir alltaf nefndir, byggt hlöðu við fjárhúsin með timburþaki, skarsúð. Hlöðuþakið var nær ófúið. Fluttum við það á klökkum bundið í klyfjar yfir Kollumúla til kofabyggingarinn- ar. í Ársriti Ferðafélagsins 1940 segir Pálmi Hannesson að þessi kofi á Stóra- Hnausnesi í Kollu- múla sé einn sá bezti, sem hann hafi séð hér á landi, þiljaður í hólf og gólf með ofni til upphit- unar og matargerðar. Þetta mun hafa verið eitt minnsta húsið, sem Jón J. Brunnan var yfirsmiður að. Því mörg voru þau myndarleg á mæli kvarða þess tíma, svo sem hús það, er nú er gistihús á Höfn, Hótelið, sem kallað er, byggt sem einnar fjölskyldu hús. Þá voru steypuhrærivélar ekki komnar til sögunnar, hvað þá önnur hjálpar tæki nútímans. Þær eru margar minningarnar, sem ég á frá samfylgd okkar um áratugi og allar á einn veg. Eitt af því, sem hreif mig mjög var bjartsýni hans og innsýni í ókominn tíma. Það var sem hann dreymdi fyrir daglátum, eins og kallað er í Skaftafellssýlu. Vissi fyrir hvernig lífið léki við hann og samstarfsmennina þann dag- inn. Þegar hann var formaður á Stafafellsbátunum við eyja- ferðir og fiskiróðra frá Papós var sjaldan farin ónýtisför. Ef Jón hvatti til sjóferðar tókst hún jafnan vel. Ég hélt að hann ætti draumkonu, sem segði óorðna hluti, en vera má að forspá hans hafi verið vökudraumur — hug- boð —. Ég man ekki eftir að hann segði okkur drauma sína. Um áratugi var Jón útgerðar- maður í félagi við mann systur sinnar, Bergþóru, sem var mikil ágætiskona. Það var hinn kunni sægarpur, Sigurður Ólafsson frá Bæ í Lóni — bújörð Úlfljóts lög- sögumanns sem fór með bát þeirra Björgvin og var um mörg ár aflahæstur á Hornafirði og hlekktist aldrei alvarlega á, þótt teflt væri oft á tæpasta vaðið. Þeir mágarnir bjuggu lengi 1 sama húsi, er öllum þurfandi stóð opið, við við sveitungar þeirra kölluðum „gistihúsið, sem enga borgun tekur“. Þótt Jón byggi við sjóinn öll hin síðari ár gleymdi hann ekki landinu. Talaði hann oft um frið- sæld og fegurð fjallanna og víð- sýnið, er hann sat yfir kvíám í Suðursveit, þar sem Vatnajökull teygir tungur sínar niður í dal- botnana og við augum blasti út- hafið endalaust og heillandi. Árið 1917 giftist Jón heitmey sinni Jónínu Guðbjörgu Jóhanns dóttur. Hún átti til Húnvetninga að telja í föðurætt, en móður- ætt hennar var af hinni kunnu Fjallsætt í Árnessýslu. Eftir eins árs sambúð andaðist Jónína, en eftir lifði dóttir, er hlaut nafn móður sinnar. Hún ólst upp hjá föður sínum og systrum hans við mikið ástríki. Varð heimili þeirra hin næstu ár í Höfn i Hornafirði og jafnan síðan. Nú er Jónína Brunnan húsfrú á Höfn gift Ársæli Guðjónssyni, útgerð- armanni, eiga þau 4 efnilega syni. HeimiUð hefur jafnan verið rómað fyrir myndarskap og gest. risni. Jón J. Brunnan byggði með tengdasyni sínum nýtt hús — Sólberg — stórt og vandað. Mun það hafa verið með síðustu húsum, sem hann vann við. Hann var félagslyndur maður og samvinnuþýður, enda fulltrúi Hafnarbúa um árabil á fundum Kf. A-Skaftfellinga. Vildi hann hag landbúnaðar og sjávarútvegs sem mestan og beztan. Hann var sívinnandi meðan heilsan leyfði og tók gestum sínum með mikilli hlýju. Fyrir allmörgum árum varð hann fyrir áfalU við vinnu, svo eftir það gekk hánn ekki að störf um utan húss, en hélt sjón og heyrn til síðustu stundar. Naut hann þá sem áður ástúðar og um hyggju dóttur sinnar og annarra vandamanna. Með honum er til moldar hniginn sannur Skaftfell. ingur, fastheldinn á fornar dyggð ir, en þó framfaramaður hins nýja tíma. Bjartsýnn, stórhuga og sterkur 1 raun. S. J„ StafafellL

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.