Morgunblaðið - 25.05.1963, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 25.05.1963, Blaðsíða 24
Hinir nýju málfytjendur „íslenzks66 málstaðar fJrittíss hava . aldrei Vihwirkennt 12 wæls/ Eíga oUö fa Undantháquv thó the/r w 5e3ja tfO/ VIÐREISN AÐ VERKI Löggjöf og lánveitingar til íbúðabygginga SJÁLFSTÆÐISMENN höfðu forgöugu um hað á Al- þingi á árunum eftir 1950 að létta af hinum ströngu fjárfestingarhömlum til íbúðabygginga og leggja grund- völl að heilsteyptu lánsfjárkerfi til íbúðabygginga. Fyrst var gefið frelsi til smáíbúðabygginga. Þegar mynd- uð v»r ný ríkisstjórn, undir forsæti Sjálfstæðismanna, 1953 hófot nýr þáttur í sögu fjáröflunar til húsnæðismála. Arið 1955 var sett ný húsnæðismálalöggjöf með almennu veð- lánakerfi, er húsnæðismálastjórn hafði forstöðu fyrir. f tíð vinstri stjórnarinnar hrakaði þessum málum vegna iélegrar forstöðu og áhugaleysis og óstjórnar á sviði peningamála, sem dró úr vaxandi sparifjár- aukningu og möguleikum til lánsfjáröflunar til íbúða- hygginga. f tíð viðreisnarstjómarinnar hefir farið fram raun- hæf endurskoðun á íbúðalöggjöfinni og tryggt stöðugt vaxandi lánsfé til íbúðabygginga. Jafnframt hefir löggjöfin um verkamannabústaði verið endurskoðuð frá granni, lánveitingar tvöfaldaðar með því að tryggja aukið fjármagn frá ríki og sveitarfélögum. Veitt bygg- ingarfrelsi með afnámi fjárfestingarhafta. f tíð vinstri stjóraar voru afgreidd íbúðalán hins almenna veðlánakerfis: 1957 = 45,7 millj. kr., 1958 = 48,8 millj. kr. f tíð viðreinsarstjómarinnar hafa afgreidd íbúða- lán hins almenna veðlánakerfis numið: Árið 1960 = 52,2 millj. kr., 1961 = 78,0 millj. kr. 1962 = 86,6 millj. kr. Hagstæð þróun peningamálannna, sívaxandi sparifjár- aukning, hefir verið forsenda vaxandi íbúðalána. Á þessu ári hefir húsnæðismálastjórn þegar veitt lán, sem nema meiru en 90 millj. kr. og er ráðgert, að lánveitingar hennar á þessu ári verði nokkuð á annað hundrað millj. kr. Kaupir Flugfélagiö þrjár Viscountvélar? FLUGFÉLAG fslands hefur nú sent nefnd manna vestur til Bandaríkjanna til þess að athuga Viscountvélar, sem hugsanlegt er að verði til sölu á næstunni. Að- faranótt fimmtudags fór Jóhann Gíslason, yfirmaður flugdeildar, ásamt manni úr véladeild og öðr- um úr skoðunardeild vestur með Loftleiðum. Frá New York fóru þeir til Boston, en þar eru Vis- countvélamar, sem eru í eigu North East Airlines. Félag þetta hefur í hyggju að selja vélarnar, en hefur þó ekki tekið endanlega ákvörðun. Ef úr verður og sérfræðingar Flugfé- lagsins telja kaupin ráðleg, er sennilegt, að Flugfélagið kaupi þrjár Viscountvélar af 10, sem North Eiast á. Mun ætlun Flug- félagsins þá að selja Cloudmast- er (DC-6b) flugvél þá, sem það á, svo og Viscountvélina Gull- faxa, því heppilegast væri fyrir félagið að eiga allar millilanda- vélar af sömu gerð. Þesar Vis- countvélar, sem hér ræðir um, eru af sömu stærð og Gullfaxi, en þó örlítið breyttar. Örn Ó. Johnson, framkvæmda- stjóri Flugfélagsins, sagði í við- tali við Mbl. í gær, að beðið yrði með frekari áKVarðanir þar til sendinefndin kæmi aftur heim og segði álit sitt á vélunum. — Sagði hann, að Flugfélagið héldi uppi athugun á því, sem á boð- stólum væri. Ennfremur sagði forstjórinn, að enda þótt Flugfé- laginu litist vel á Fokker Friend- ship til innanlandsflugs, þá hefði engin endanleg ákvörðun verið tekin í því efni. Engar not- aðar vélar af þessari gerð væru á markaðnum og afgreiðslufrest- ur frá verksmiðjunum væri um það bil eitt ár. Þess má að lokum geta, að Fokker Friendship er með hreyfla af sömu gerð og Viscount. — Að frátöldum Skymastervélunum verða verkstæði Flugfélagsins að annast viðgerðir og viðhald — og liggja með varahluti í þrjár gerðir hreyfla, sem eru á flug- vélum í innanlands- og milli- landaflugi:. Viscount, DC-6b og DC-3. Ljóst er, að reksturinn yrði mun hagkvæmari, ef hreyfl- ar allra vélanna yrðu af sömu gerð. bílar I Happdrœtti S jálfst.flokksins Kaupið miða í bílunum í Austur- strœti í dag Uppruni taugaveiki- bróðurins ófundinn MBL. hafði í gær tal af Ólafl P. Jónssyni, héraðslækni í Mosfellssveit, og spurðist fyr- ir um taugaveikibróðurtilfell- in í Miðdal í Kjós. Sagði hann að ekkert nýtt hefði komið upp og ekki væri fundinn upp runi veikinnar, en rannsókn væri haldið áfram. Yfirdýralæknir Páll A. Páls son hefur rannsakað sýnis- horn frá húsdýrunum á bæn- um, en ekki fundið neina sýk- ingu þar. Mun hann aftur taka og rannsaka sýnishorn frá skepnunum. Borgarlæknisembættið hef- ur verið að rannsaka matvæli þarna ofan að, vatn, mjólk, egg og þessháttar, en einskis orðið vísari. ðkipasmioir 1 verkfalli SKIPASMIÐIR hófu verkfall aðfaranótt sl. mánudags. Höfðu þá verið haldnir nokkrir sátta- fundir með fulltrúum skipasmiða og atvinnurekenda, en ekki náðst samkomulag. Krefjast skipasmið ir 20% kauphækkunar. Engir fundir hafa verið síðan verkfall- ið hófst. Verkfall flugmanna? FLUGMENN hafa boðað verkfall frá 4. júní nk. Fyrir nokkru hafa þeir sett fram kröfur sínar um kauphækkanir og ýmis fríðindi. Sl. miðvikudag var fundur með deiluaðilum, þar sem byrjað var að fara í gegnum kröfumar, en því ekki lokið, og ákveðið að hittast að nýju nk. þriðjudag og halda því áfram, svo að hægt væri að hefja raunverulegar Fjögurra ára telpa bíður bana á Akureyri AKUREYRI, 24. maí. — Það hönmulega slys varð hér í kvöld að fjögurra ára telpa varð und- ir steypuibíl og beið bana. Slysið varð uim kl. 18 á mót- uim Hamansstigs og Engiihlíðar. Steypubillinn var á leið vestur Hamansstíg, er telpan mun hafa blaupið á hlið bílsins og orðið undir aftunhjóli, sem er fjóríalit. Ba'lstjóriinn telur sig ekki hafa orðið telpunnar var og nam ekíki staðar fyrr en nakkru vestar í götunnL Þegar barn er sat í sætinu við hlið hans hafði orð á þvú að lítið bam hefði líklega hlaupið á bílinn. Telpan mun 'hafa beðið bana samstundis. Máil ið er í rannsókn enn. — Sv. P. samningatilraunir. En ráðamenn fyrir flugmenn biðu ekki þess fundar, heldur boðuðu verkfall í gær, eins og áður segir. Mbl. átti í gærkvöldi viðtal við Sveinbjörn Dagfinnsson lögfræð- ing flugmanna. Staðfesti hann, að verkfall hefði verið boðað, en kvaðst ekkert geta um kröfurnar sagt, því að samningar flug- manna væru mjög flóknir. Þá hafði blaðið samband við Sig- urð Haukdal formann Félags ís- lenzkra atvinnuflugmanna, og kvaðst hann heldur ekkert hafa um kröfur flugmanna að segja, en „lítið hefði verið um fundi“ deiluaðila. Björgvin Sigurðsson fram- kvæmdastjóri Vinnuveitenda- sambandsins sagði, þegar MbL spurði hann um þetta mál, að verkfallsboðun hefði komið sér algjörlega á óvart, þvi að enn væri ekki búið að skoða kröfur flugmanna, hvað þá, að reynt hefði á það, hvort samningsgrund völlur væri fyrir hendi. Þess væru yfirleitt ekki dæmi, að verkföll væru boðuð í alvöru fyrr en á þetta hefði reynt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.