Morgunblaðið - 26.05.1963, Síða 8

Morgunblaðið - 26.05.1963, Síða 8
8 Jf ORCV \ TtL ABIb Sunnudagur 26. maí 1963 B Wi ægilsgt !íí í sól hita og raka 9 ÞEGAR komið er yfir 6 þús. km. vegalengd að heiman £rá íslandi, er það bæði óvænt og kærkomið að hitta landa, og á- nægjan verður ennþá meiri, ef þeir eru jafn gestrisnir og elsku- legir og þeír þrír íslendingar, sem ég hitti í Lagos í Nigeríu. Auk Ómars Tómassonar, flug- manns, sem ég hef áður sagt frá í blaðinu, búa þar tvær íslenzk- ar konur. Krist'n, dóttir Björns Björnssonar, stórkaupmanns í London og Huldu konu hans, er gift enskum manni, Ian Daniel, sem er forstjóri hjá stórfyrir- tækinu Lever Bros. í Nigeriu, og hjá þeim dvelur móðursystir Kristínar, Elínborg Stefánsson. Kristin talar lýtalausa ís- lenzku, vantar aldrei orð og eng- inn erlendur hreimur greinist á mæli hennar, þó hún hafi flutzt frá íslandi 6 ára gömul, og að- eins dvalið á Íslandi tvisvar sinn um í nokkrar vikur síðan. Á upp vaxtarárunum var hún í erlend- um skólum, heimavistarskóla í Englandi og háskóla og tónlist- arskóla í Sviss, en á heimili henn ar í London var alltaf lögð á- herzla á að tala góða íslenzku og þar kom mikið af íslending- um og jafnvel nú grípa þær E1 ínborg taekifærið til að tala saman á íslenzku, þegar aðrir eru ekki viðstaddir. Elímborg, sem er dóttir Karls Bjarnasonar í Reykjavík, fór eftir lát manns síns utan til Huldu systur sinn- ar og Björns mágs síns árið 1936 og hefur verið með fjölskyld- unni síðan, nú síðast hjá Krist- ínu Björnsdóttur, og aðeins kom ið tvisvar í heimsókn til íslands. Kristín segist vel muna þegar hún fór frá íslandi til Danmerk- ur á stóru skipi í fylgd með stóru systur sinni, Ingu, sem þá var 12 ára gömul. Foreldrar þeirra voru áður komin út og var þetta mesta æfintýraferð í augum 6 ára hnátu. Þremur árum síðar flutti fjölskyldan til London, þar sem Björn og Hulda bjuggu lengst af í Purley, sem er í 15 km. fjarlægð frá sjálfri stór- borginni. Þar kynntist Kristín manni sínum, sem einnig á sina fjölskyldu í þessu úthverfi. Þau eru búin að vera gift í 8 ár og eiga tvo elskulega drengi, Anth- ony, sem er nærri 7 ára og Christ opher, 4ra ára. Ian Daniel var fyrstu hjúskaparár þeirra fram- kvæmdastjóri Pepsodent-tann- kremsverksmiðju Lever Bros fyrirtækisins í London, en var síðan sendur til Lagos, þar sem hann hefur verið markaðsfor- stjóri fyrirtækisins í 2 ár og er nú að taka við yfirstjórn allra verksmiðjanna á staðnum. • Geysistórar verksmiðjur Hann og mr. Clark, fráfarandi framkvæmdastjóri, gengu einn morgun með mér gegnum verk- smiðjuirnar í Lagos, en s'ðan spjallaði ég við þær frænkurn- ar yfir síðdegisteinu um dvölina þarna í hitabeltinu. Verksmiðjusvæðið nær yfir 9 ekrur lands. Það liggur að sjó í hafnarhverfinu Apapa, hefur eigin hafskipabryggju og lína frá járnbrautinni tekur á sig sveig gegnum verksmiðjusvæðið. Þarna eru framleiddar úr pálma kjörnum og pálmaolíu, sem eru aðalframleiðsluvörur Nigeríu, ýmsar vörur, sem jafnvel við hér norður á íslandi þekkjum, svo sem Sunlight-sápa, Life- buoy-sápa, Lux-sápa, sem að vísu er framl. úr nautafeiti, smjör líkið Blái borðinn, baðsápur o. fl. Verið er að setja upp Omo- þvottaefnisverksmiðju og einn- ig verksmiðju fyrir tannkremin Pepsodent, Signal og Gibbs, en þessar vörur selja Apapaverk- smiðurnar nú frá verksmiðjum fyrirtækisins annars staðar. Þá er í byggingu önnur smjörlíkis- verksmiðja, en þegar eru fram- leiddar þarna íirlega um 1300 lestir af smjörlíki og matarfeiti alls konar og um 19 þús. lestir af sópu. Seinna er svo áformað að bæta við framleiðslu á shampoo og kremum, en ilm- vötn og talkum voru áður fram- leidd í félagi við Nigeriufyrir- tæki, sem hefur nú tekið við á eigin spýtur. Auk framleiðslu á fyrrgreindum vörutegundum — og einihverju hefi ég vafalaust gleymt — sér verksmiðjan um að hreinsa pálmaolíu fyrir Nig- eríustjórn, sem ekki getur enn iátið annast slíkt hjá eigin fyr- irtækjum. Það liggur í augum uppi að slíkur verksmiðjurekstur er geysi umfangsmikill og keppir verk- smiðjan að því að hafa innan sinna vébanda flllt það sem verk smiðjan sjálf og starfslið henn- ar þurfa á að halda. Þarna er t.d. vélaverkstæði með um 100 manna starfsliði, vel útbúin rannsókn- arstofa, þvottahús, þar sem föt starfsfólks eru þvegin, mötu- neyti, þar sem það fær ódýrar máltíðir, og fastráðinn læknir frá Evrópu veitir starfsliði og fjölskyldum þess ókeypis lækn- ishjálp. Hefur hann um 3500 sjúklinga, en starfsliðið í verk- smiðjunum í Apapa er um 650 manns og í útibúinu í Aba 240, flest Afríkumenn. Framleiðslan er mest seld í Nigeríu og Kam- erún og hefur fyrirtækið 29 dreifingarstöðvar. Lever Bros tilheyrir einu stærsta verzlunarhring í heimi, Unilever. Það reisti sína fyrstu sápuverksmiðju í Nigeríu árið 1924, en smjörlíkisverksmiðjan tók til starfa árið 1954. í þessum verksmiðjum verður Ian Daniel nú aðalforstjóri og því býr hann með fjölskyldu sinni þar skammt frá, • Indælt í sólinni Lever Bros leggur fram- kvæmdastjórum sínum til góð hús, búin húsgögnum og önnur þægindi sem nauðsynleg eru tal- in í hitabel/tinu. Þau Ian og Kristín Damel búa í hvítmál- uðu steinhúsi í tveimur hæðum, sem umlukt er stórum garði. Háu frönsku gluggarnir á neðri hæðinni standa ávallt opnir út í garðinn og stofurnar prýða hvenær sem þar er komið fall- egar blómaskreytingar, sem þær frænkurnar eru mjög natnar við, enda fölna afskorin blóm fljótt í þessum hita. Uppi á loftinu eru stór loftkæld svefnherbergi, hvert með tilheyrandi baðher- bergi og þar er notalegt fyrir gesti að fá að koma úr hitanum og rakanum. — Það eru ekki nema 5-6 ár síðan loftkæling var tekin í not- kun í húsum í Nigeríu, segir Kristín, er ég hafði orð á þessu. Áður var loftslagið hvitu mönn- unum erfitt, en nú höfum við svo margs konar hjálpartæki og meðul til að hjálpa okkur að standast hita og sjúkdóma. Líf- ið hér í hitabeltinu er því ekki sambærilegt við það sem áður var. — Mér likar mjög vel hérna, bætir hún við og hér er gott að búa um stundarsakir. Ég hugsa oft um það hve það er nú í raun- inni miklu indælla hér í sólskin- inu en í þokunni í Englandi. Og þó saknar maður á vissan hátt heimalandsins. Við höfum hér næga heimilis- hjálp. Ég hefi t.d. það sem kall- að er á ensku „cook-steward“, en hann eldar matinn og þvær og straujar, en hér er alltaf nóg að þvo, því hver maður skiptir daglega um föt innst sem yzt. Þjónninn okkar hefur þvottavél með þurrkara, sem kemur sér ó- neitanlega vel yfir regntímann. Auk hans höfum við það, sem kallað er „small boy“, en hann gerir húsverkin, og fer snúninga. Þegar „harmattan" kemur norð- an frá eyðimörkinni nokkrar vik ur á ári, þá hefur hann nóg áð gera við að þurrka af. Þá berst fíngert rautt ryk frá eyðimerk- urstormunum í Sahara hingað og rykkornin smjúga alls staðar inn. Þetta kemur í gusum og kælir svolítið, því á meðan dreg- ur fyrir sólu. Önnur lífsþægindi höfum við hér. Okkur er lagður til bíll og bílstjóri og ég hefi lítinn bil, sem ég ek hér í kring. En þó ég sé alvön umferðinni í London, er manninum minum illa við að ég aki inni í Lagos- borg, vegna þess að bílstjórar hér hirða litið um umferðarregl- ur. — En hvernig þolið þið ís- lenzku konurnar loftslagið. Ég veit að þú leikur tennis, sem mér finnst vera fráleitt í þess- um hita, — Við Elínborg þolum hita mjög vel. Og þegar við hjónin leikum tennis við kunningjana, er eins og ég sé oft sú sem bezt stend mig í hitanum. Annars reynir maður yfirleitt að hafa sem minnsta áreynzlu vegna loftslagsins, og þarf þess reyndar ekki. Einustu heimilisverkin sem falla í okkar hlut er að baka kökur og laga ábætana þegar mikið er haft við, fyrir utan það að líta eftir börnunum og húsinu. Og það verður maður að gera stöðugt. Þó þjónarnir séu búnir að vera lengi á sama heim- ilinu og séu ágætir, verður allt- af að fylgjast með því að þeir geri hvern smáhlut, segja þeim að þvo sér um hendurnar, sjóða allt vatn og yfirleitt að gera ekki ráð fyrir að þeir muni neitt lengur en nofckra daga í einu. Þetta eru eins og börn og verð- ur að fara með þá eins. Og sjálf- sagt finnst þeim allt þetta hrein- lætisstúss mesti óþarfi. En það er vissulega mikilvægt hér. • Rakinn erfiður Að enskum sið er drukkið síð- degiste á heimilinu, sem þjónn ber fram í fallegri silfurkönnu og með þvi kökur og heimabak- að brauð, sem Elínborg hefur kennt kokkinum að búa til, en yfir öllum kökudiskum eru hettur úr hvítri grisju til varn- ar gegn skordýrum. Drengirnir borða súrmjólkina sína og við höldum áfram að spjalla. — Skilja þeir nokkuð í ís- lenzku? — Ég segi við þá bíddu og elskan og þessháttar skilja þeir, en lengra nær það nú efcki, svar- ar Kristín og hlær við. — Það er ýmsum erfiðleikum bundið að halda heimili í þessu heita og raka loftslagi, er það ekki? — Jú, allt skemmist og mygl- ar, einkum yfir regntimann í maí, júní og júlí. Við reynum ekki emu sinni að hafa bækur á heimilinu og maður verður jafn- vel að muna eftir að geyma síga- retturnar í loftkælda herberg- inu, þó að þær séu í blikkdós- um, ef þær eru ekki reyktar upp fljótlega. Alla fataskápa verður að láta standa opna öðru hverju og við höfum rafmagnsofna í skápnum, til að geta þurrkað loftið þegar rakast er. Þegair við komum úr fjögurra mánaða leyfi í sumar var myglað í öllum skápum og höfðu þjónarnir þó opnað glugga daglega. En hér er sem betur fer litið um pödd- ur, sem sækja í föt. Aftur á móti getur maður sjálfur fengið mosk- itobit, sem er óþægilegt en hættu laust ef tekið ei» inn kínin, og svokallaður „sandflær" geta bit- ið og valdið sérstakri tegund hitasóttar. Af matföngum er nægt úr- val, en það er eins og allur- mat- ur tapi bragði hér suðurfrá. Flestar vörur fást en vegna geymsluörðugleika er mikið notaður niðursoðinn matur og staðið getur þannig á skipaferð- Framhald á bls. 17 Daniei-fjölskyldan, Ian og Kristin meö synina tvo Heimili Drniel-fjöldskyldunnar í Lagos í Nigeríu. Fyrir utan standa húsráðendui með sonum sínum tveimur, Elínborgu frænku þeirra og mr. Clark, fráfarandi forstjóra Lever Bros., sem er í heimsókn. Við teborðið. Frá vinstri: Christopher, Kristín, Antony og Elinborg.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.