Morgunblaðið - 26.05.1963, Blaðsíða 13
Sunnudagur 26. maí 1963
M O R G JJ N B L 4 Ð I Ð
13
Landið
okkar
Næst liggur leið okkar til
Flateyrar og göngum við þar á
fund oddvita Flateyrarhrepps,
Eafns A. Péturssonar, og Gísla
Brynjólfssonar, sem ráðinn var
sveitarstjóri á síðasta hausti.
Þeir leysa vel og greiðlega úr
spurningum okkar.
Hafnarstræti.
íbúar hér á Flateyri voru 545
á manntalinu 1. des. 1962, og
hafði fjölgað um 20 frá árinu
áður. Þetta er sama sagan og á
öðrum stöðum á Vestfjörðum;
fólki fjölgar heldur, enda er af-
koma manna góð og atvinna alls
staðar mjög mikil og víða skort-
ur á vinnuafli þegar mest er að
gera á vertíð.
„Hér eru ágæt hafnarskilyrði",
segir Rafn, „og bryggja mjög
góð. Geta stærstu skip lagzt við
hana og hafnargarðurinn er rúm
góður og aðdýpi mikið. Fyrir-
huguð er stækkun á henni og til-
drengja. Nú er stefnt að því að
koma upp íþróttahúsi og sund-
laug. Má heita að íyrri áfanga
þess sé lokið og pæsti áfangi
verði íþróttasalur.
í vetur voru 92 nem.endur í
skólanum. Skólastjóri er Hjörtur
Hjálmarsson og við erum mjög
vel staddir með kennaralið. Skól-
inn er vel búinn að ýmsum tækj-
um, sérstaklega til handavinnu-
kennslu.
Á sl. hausti keypti hreppsfé-
lagið, með framlagi frá ríkinu,
íbúð fyrir skólastjóra, sem hefur
gert okkur kleift að leysa hús-
Isusfafc v,' ' "ta—
Barnaskólahúsið.
• • '. **V>.VVA\V^.V. ?**«. . .*.* -. v\0 •:
lögur frá Vitamálastjóra liggja
fyrir. Er mjög þægilegt um stækk
un, og gott að vinna að því í á-
föngum.
Frá fyrstu tíð hefur verið
mjög mikið um það að togarar
hafi notað höfnina hér sem líf-
höfn og til að liggja af sér veður.
Aðstaðan við höfnina hér er frá
náttúrunnar hendi, ein sú bezta
á landinu. Eyrin sjálf girðir fyrir
allan sjógang inn fjörðinn, en
ágætt bátalægi er fyrir innan
eyrina, sem lokar alveg fyrir út-
hafsöldunni.
í undirbúningi er aukning á
viðleguplássi fyrir bátana og við
höfum í huga að koma upp ver-
búðum fyrir sjö báta, og hefur
fengizt samþykkt að framlag
verði veitt til þeirra frá ríkinu
samkvsemt fjárveitingum, sem
heyrt hafa undir hafnarlög.
Annars vill hér alltaf vera
talsverður sjógangur á eyrina
norðanverða og úthafsaldan
gengur á eyrina á kafla að norð
anverðu. Á sl. sumri var því unn-
ið að því að aka stórgrýti í sjó-
varnargarð á nokkur hundruð
metra kafla.“
Næst spyrjum við Gísla sveit-
arstjóra um framkvæmdir í kaup
túninu.
„Þar hefur mest borið á nýja
barnaskólanum, sem er mjög full
kominn, og tekinn var í notkun
haustið 1961 fyrir barna og ungl-
ingafræðsluna, sem hafði verið
áður í gömlum og þröngum húsa-
kynnum.
Kennslustofur eru fjórar og
«uk þess handavinnustofa
næðisvandræði kennaranna, sem
var áður mikið vandamál.
Við höfum mikinn hug á því
að koma upp gagnfræðadeild við
skólann, enda verða árgangarnir
stærri með ári hverju og nemend
um fer fjölgandi, svo að á næsta
ári gæti verið fullskipuð gagn-
fræðadeild við skólann.
Ég vil taka það fram, að skól-
inn hefur notið mikillar vinsemd-
ar og skilnings fólks hér heima,
og eins þeirra, sem héðan eru
fluttir, t.d. gáfu gamlir nemend-
ur skólanum píanó.
Geta má þess, að nú eru í smíð
um 4 íbúðir, en húsnæðisvand-
ræði eru hér mjög mikil, enda
skortur á vinnuafli, en um aukn-
ingu á því er ekki að ræða nema
eitthvað rætist úr um húsnæði.
Félagslíf hér er gott. Hreppur-
inn á samkomuhús, en mikil
hreyfing er hér fyrir því að
byggja félagsheimili. Samkomu-
húsið er hér orðið gamalt og að
ýmsu leyti úr sér gengið. Hér er
starfandi nefnd með fulltrúum
allra félaganna á staðnum, að
undirbúa málið.
Leikstarfsemi hefur alltaf ver-
ið töluverð og sýnt leikrit á
hverjum vetri og þá farið með
það á næstu firði. Kvenfélagið
hér varð nýlega 45 ára, en það
hefur alltaf haldið uppi tölu-
verðri starfsemi hér. Sl. sumar
kom það upp barnaleikvelli, sem
er gæzluvöllur, og starfræktur
af kvenfélaginu sjálfu og var það
mikið framtak, sem konurnar
sýndu í því máli. Nokkur önnur
félög eru starfandi hér og nokk-
uð um íþróttir."
Næst spyrjum við Rafn odd-
vita um samgöngumálin:
„Ég álít að samgöngumálin hér
á Vestfjörðum verði ekki leyst á
öruggan hátt, fyrr en við fáum
sérstakt Vestfjarðaskip. Þó verð-
ur að stefna að því að bæta vega
kerfið, og flugsamgöngur eru
okkar aðal keppikefli. Nú er
sjúkraflugvöllur sunnanvert við
fjörðinn skammt frá höfuðból-
inu Holti í önundarfirði. Þarna
er fyrirhugað að gera flugvöll,
sem stærri flugvélar geti lent á.
Hér eru tvímælalaust beztu skil-
yrði á Vestfjörðum til flugvallar-
gerðar. Þarna eru sandar, sem
þarf að jafna, og aka síðan
malarlög ofan á. Flugmála-
stjórnin hefur ákveðið að hefj-
ast handa nú í vor, og flugmenn
telja að þarna gæti verið mjög á-
kjósanlegur varavöllyr fyrir ísa-
fjörð.
Vegasamband hér innansveit-
ar er yfirleitt ekki í góðu lagi.
Hér í firðinum er töluverður bú-
skapur, og mjólk er flutt til ísa-
fjarðar allt árið um kring. Að
sumrinu er mjólkin flutt með
bílum, en yfir veturinn kemur
bátur eimu sinni til tvisvar í
viilrn og tekur mjólkina. ■
Hér uim slóðir telja menn
að nauðsynlegt sé að end-
urbæta stórlega veginn yfir
Breiðadalsheiði, þannig að sam-
göngur milli ísafjarðar og Flat-
eyrar og Suðureyrar geti orðið
betri og tryggari. Við teljum
sömuleiðis að miklu meira mætti
gera að því að moka fjallvegi
hér á Vestfjörðum en raun hefur
orðið á, og þá í einhverju hlut-
falli við hinn mikla snjómokstur
sem hér á sér stað á hverju ári á
Suður- og Norðuflandi. Teljum
við okkur hafa verið afskipta í
þeim efnum, en vonandi stendur
það allt til bóta.“
Rafn A. Pétursson er fram-
kvæmdastjóri Fiskiðju Flateyr-
ar h.f., og við spyrjum hann um
útgerðarmálin:
„Fiskimiðin hér eru mjög feng.
sæl og borið hefur á því, að
fiskigengd hefur aukizt við út-
færslu landhelginnar, en við höf-
um hér 12 mílur allt árið. Þá er
ófriður vegna togaranna ákaflega
mikið vandamál á þessu svæði.
Okkur finnst að Landhelgisgæzl-
an þyrfti að gera meira að því
að bægja togurunum frá veiðar-
færum. Hér verða bátar oft fyrir
tilfinnanlegu veiðarfæratjóni
vegna ágengni erlendra togara,
en^þó einnig íslenzkra.
Ég sagði að miðin væru feng-
sæl, og á þeim er svo til ein-
göngu fiskað með línu og hrá-
efnið af þeim sökum mun betra
en annars staðar þekkist, og af
ýmsum ástæðum öðrum, t.d.
fiskstærðinni, en mest er af með-
alstórum fiski, má gera ráð fyrir
að enginn landshluti hafi ráð á
slíku úrvals hráefni til útflutn-
i ingsframleiðslu. Það er því mjög
ofárlega í huga margra Vest-
firðinga, hvoxt ekki muni vera
mögulegt að framleiðsla okkar
verði seld út undir sérstöku
gæðavörumerki.
Það er ekki víst að allir geri
sér grein fyrir því, hve hlutur
Vestfjarða í útflutningsfram-
leiðslu þjóðarinnar er stór. Vil
ég því sýna fram á það með
dæmi, þar sem eingöngu er átt
við frosinn fisk. Á árinu 1961
nam heildarverðmæti útflutnings
Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna 633 millj. kr., en hlutur
Vestfjarða af því var 112.9 millj.
kr., eða rúmlega sjötti hluti af
heildarverðmætinu. Það er líka
vert að benda á í þessu samfoandi
að þarna er svo til eingöngu um
að ræða úrvals línufisik og nær
enginn togarafiskur.
Við bindum við það mjög
sterkar vonir, að nú í vor verði
töluverð síldveiði hér á svæðinu
út af Vestfjörðum, og er margt
sem styður það. Síldin gengur
frá Suðvesturströhdinni eftir
hrygningu og vestur og norður
fyrir land á miðin. Með hinum
nýju síldarleitartækjum höfum
við mjög sterka trú á því, að við
eigum eftir að hafa hér árvissa
síldveiði á þessu svæði eftir
hrygningartímann fyrir sunnan.
Möguleikar á að hagnýta síld
hér á Vestfjörðum eru í fyrsta
lagi frysting á öllum fjörðunum,
og í öðru lagi eru verksmiðjur
á flestum stöðunum. Þær eru að
vísu ekki afkastamiklar, og af
þeim ástæðum er brýn þörf fyrir
stækkun og lagfæringu þeirra
tækja víðast hvar.“
En víkum næst að útgerð og
fiskvinnslu hér á Flateyri:
Héðan hafa verið gerðir út i
vetur 4 stórir bátar, 55—100
tonn. Yfir sumarmánuðina ganga
héðan að auki 15 þilfarsfoátar,
5—12 tonna. Afli og gæftir hatfa
verið með betra móti frameftir
vetri, en lélegar mjög allt frá
því að páskahretið kom. Bátarnir
sækja ýmist vestur eða norður,
eða þá beint út af önundarfirði,
en Flateyri er á fiskisvæðinu
miðju og því ekki síður í sveit
sett en aðrir staðir á Vestfjörð-
um.
Fyrrihluta vertíðar gætti meiri
ýsu í aflanum en áður, og telj-
um við það áhrif frá útfærslu
land)helginnar.“
Fiskiðja Flateyrar er stærsti
atvinnurekandinn á staðnum, en
það fyrirtæki var stofnað fyrir
2% ári og keypti þá allar eignir
ísfells h.f. hér. Strax var horfið
að því að endurbæta aðstöðu til
fiskvinnslu, og nú er svo komið,
að frystihúsið er flutt í ný húsa-
kynni, 1000 fermetra að flatar-
máli, sem virðist að allra dómi
mjög vel fyrir komið og hagan-
lega, miðað við útbúnað frysti-
faúsa nú á döguim.
Til jafnaðar starfa við það 50
—60 manns. Fiskiðjan er eigandi
að 2 bátum og vinnur afla þeirra
mestmegnis til frystingar. Einnig
kaupir hún allan afla trillubát-
anna. Nokkuð af þessum afla fer
í skreið, sérstaklega smáfiskur-
inn.
Fiskiðjan rekur einnig fiski-
mjölsverksmiðju, sem verið er
að endurbæta og gera starfhæfa
til að taka á móti síld, og eru á-
ætluð afköst hennar 700 mál á
sólarhring.
Annað fyrirtæki á Flateyri er
Fiskborg h.f., framkvæmdastjóri
Jón Stefánsson, viðskiptafræð-
ingur. Á hennar vegum er einn
bátur og fyrirtækið hefur stórt
og rúmgott verkunarhús og salt-
ar og herðir nær allan aflann.
Þá er Hjallanes h.f., en stærsti
hluthafi þar er Kaupfélag Ön-
firðinga, sem gerir út einn bát
og saltar og herðir mest af afl-
anum.
Þessi fyrirtæki skapa að sjálf-
sögðu mesta atvinnu á staðnum,
en sú atvinna er eingöngu bund-
in gæftum og aflabrögðum. Ef
vel fiskast er öllu til skila haldið
að hægt sé að anna vinnslu afl-
ans og jafnvel hörgull á fólki, og
er af þessum ástæðum nokkuð af
aðkomumönnum, þó sérstaklega
á bátunum. — ht.
Frá höfninni.
— Skák
Framh. af bls. 20.
21. — h6
22. Bf4 Rc8
Svartur gat ekki hindrað hvítan
í eftirfarandi peðsráni.
23. Hxf7! Rxd6
24. Hxg7f Kxg7
25. Bxd6 Hbc8
26. Bxf8f Kxf8
Hvítur á nú tveimur peðum
meira Og léttunna skák þar af
leiðandi. Lok skákarinnar þarfn-
ast ekki skýringa.
27. f4, b5; 28. Hd4, . 5; 29. a3, h5;
30. Kf2, h4; 31. Ke3, Rh5; 32. Bc2,
Rg3; 33. Bd3 (33. Bxg6, Bf5!)
33. — Hb8; 34. d6, Kf7; 35. Rd5,
Hd8; 36. Re7, Rf5; 37. Rxf5, gxf5;
38. Hd5, Ke6; 39. Hxf5, Kxd6;
40. Hg5, He8t; 41.
42. Bxb5, Bxb5; 43.
44. Hb6t Kd7; 45.
46. Hb7t , Ke8; 47,
48. b5, Hxa3; 49.
f5, Hxg2;
b4, Ha2;
b6, Hb3;
50. Hb8t gefið.
IRJÓh.
menn eignist þá nýjan heims-
meistara.
lokum þessa einvígis og tel ég
miklar líkur til þess að skák-