Morgunblaðið - 26.05.1963, Qupperneq 19
Sunnudagur 26. maí 1963
M O R C V JV R r A B I Ð
19
V”
Kennedy Bandaríkjaforseti sæmir Gordon Cooper geimfara heiðursmerki bandarísku geimferða-
stofnunarinnar. Á myndinni eru í fremstu röð frá vinstri: Frú Hattie Cooper, móðir geimfarans,
kona hans Trudy og dætur þeirra tvær, Camala og Janita, Cooper, Virgil Grissom geimfari,
Kennedy forseti, geimfararnir Alan Shepard, Walter Schirra, og Scott Carpenter.
Filippus prins, ciginmaður Englandsdrottningar, sést hér ræða
við nokkrar sýningarstúlkur að aflokinni tizkusýningu í
London.
Skriðdrekar byltingarmanna á leið yfir Kizilaytorg í Ankara sl. þriðjudag. Eins og kunnugt er
hófst þann dag byltingartilraun í Tyrklandi, en hún fór út um þúfur og leiðtogar byltingar-
manna eru nú í haldi.
Fyrir skömmu varð ljón starfsmanni dýragarðs í Aandaríkjun-
um að bana. Starfsmaðurinn var að hreinsa búr ljónsins, er
það réðst á hann. Reynt var að reka ljónið frá líki mannsins
inn í næsta búr við hliðina á, en það tókst ekki. Varð því að
stytta ljóninu aldur. Á myndinni sést leynilögreglumaðurinn,
sem skaut Ijónið, standa við lík þess og mansins, sem það drap.
Eins og skýrt var frá í fréttum, aflýsti Jóhannes páfi XXIII
móttöku í Péturskirkjunni í Róm sl. miðvikudag, vegna veik-
inda. 1 stað þess kom hann út í glugga íbúðar sinnar, sem snýr
að Péturstorginu, og blessaði 15 þús. menn, sem þar voru sam-
an komnir. Á myndinni sést páfinn blessa mannfjöldann úr
glugga íbúðar sinnar.
Frú Jacqueline Kennedy ber
tveggja ára gamlan son sinn,
John, upp tröppur Hvita hl'ss-
ins eftir að mæðginin höfðu
rætt nokkra stund við Gordon
Coöper, geimfara, fyrir utan
húsið.
Eins og skýrt hefur verið frá stendur nú yfir í Addis Abeba i
Etíopíu ráðstefna leiðtoga 30 sjálfstæðra Afríkuríkja. Á mynd-
inni sést Haille Selassie Etíopíukeisari (í miðju) taka á móti
William Tubman forseta Líberíu (t.v.) og Houphouet Boigny
forseta Filabeinsstrandarinnar (t.h.).