Morgunblaðið - 26.05.1963, Page 24

Morgunblaðið - 26.05.1963, Page 24
n Viðreisn að verki EFTIR nokkra daga opn- ar Samband íslenzkra sam vinnufélaga nýtt stórhýsi í Ármúla 3. Verður véla- deild SÍS þar til húsa í framtíðinni og skrifstofur á efri hæð hússins. Aðal- hygging hússins er fjórar hæðir, en auk þess er einn ar hæðar hakbygging. Stærð hússins er 26820 rúmm. Bygging þess hófst í maí 1961, og mun senn fulllokið. Verður ekki annað sagt en þessi glæsilega bygging SÍS, sem áætla má, að kosti um 40 millj. kr., sé talandi tákn um þann „samdrátt" og „móðuharð- indi“, sem ríkt hafa í land- inu undanfarin ár, og sér- lega glöggur vottur þess, hvemig núverandi ríkis- stjórn hefur „lagt sam- vinnuhreyfinguna í ein- elti“. (Ljósm. Mhl. ÓI. K. M.) „Þjóðvarnarmenn“ lýsa and- stöðu gegn bræðingnum TÍU af fyrrverandi forystumönn- um og frambjóðendum „Þjóð- vamarflokksins“ hafa sent Morg- unblaðinu yfirlýsingu, þar sem þeir lýsa yfir andstöðu sinni gegn kosningabandalagi kommúnista og nokkurra þjóðvamarmanna. Yfirlýsing þeirra er svohljóð- andi: Að gefnu tilefni viljum við undirrituð, sem studdum Þjóð- varnarflokkinn í síðustu alþingis kosningum, lýsa yfir eftirfarandi: Með kosningabandalagi því, sem efnt hefur verið til í nafni Þjóðvamarflokksin- við Sósía- listaflokkinn undir merkjum Al- þýðubandalagsins, teljum við al- gerlega gengið í berhögg við fyrri stefnu og yfirlýsingar Þjóð- varnarflokksins, enda munum við ekki veita fyrrnefndu kosninga- bandalagi atkvæði okkar né ann- an stuðning. Yfirlýsing þessi er send öllum dagblöðum Reykjavíkur til birt- ingar. Reykjavík, 24. maí 1963. Bárður Daníelsson (sign) Hafsteinn Guðmundsson (sign) Magnús Baldvinsson (sign) Valdimar Jóhannsson (sign) Þórhallur Halldórsson (sign) Björa Sigfússon (sign) Kristín Jónsdóttir (sign) Sigurður Elíasson (sign) Valdimar Jónsson (sign) Þórhallur Vilmundarson (sign) Svo sem af yfirlýsingu þessari má glögglega sjá, ríkir nú alger upplausn í því liði, sem áður stóð að hinum svonefnda „Þjóðvarn- arflokki". Af þeim tíu, sem yfirlýsinguna undrrita, eru fimm af stofnend- um flokksins, þ. e. Valdimar Jó- hannsson, fyrrv. formaður hans, Bárðwr Daníelsson, fyrrv. bæjar- fulltrúi hans í Reykjavík, Þór- hallur Halldórsson, Magnús Bald- vinSson og Þórhallur Vilmundar- son. Eins og áður hefur komið fram í blaðafregnum hefur stjórn „Þjóðvarnarfélags Kópavogs14 lýst sig andvígt framboði Gila Guðmundssonar í Reykjaneskjör- dæmi, og vitað er, að meðal kommúnista í kjördæminu ríkir lítil hrifning yfir framboði hans. Ekki mun heldur hafa gengið vel að fá samþykkt þeirrar stofn- unar flokksins, sem tekur ákvörð un um framboð flokksins, fyrir sambræðslunni við kommúnista. Munu aðeins 8 af 28 mönnum, sem þar eiga sæti, hafa lýst sam- þykki við hið sameiginlega fram- boð, 4—5 hafa greitt atkvæði á móti því, en aðrir ýmist ekki mætt eða setið hjá í mótmæla. skyni, þ. á. m. formaður „Þjóð- varnarfélags Reykjavíkur". Það virðist því. ekki sem þessi tilraun kommúnista til að bjarga fylgishruni flokks síns ætli að verða þeim að miklu haldi. Iltankjörstaðakosning UTANKJÖRSTAÐAKOSNING er nú hafin. Þeir sem ekki verða heima á kjördegi geta kosið hjá sýslumönnum, bæjarfógetum og hreppstjórum og í Reykjavík hjá borgarfógeta. Erlendis er hægt að kjósa hjá íslenzkum sendiráðum og ræðis- mönnum sem tala íslenzku. Listi Sjálfstæbisflokksins er D-listi Kosningaskrifstofa borgarfógeta í Reykjavík er í Melaskólan- nm. Skrifstofan er opin sem hér segir: alla virka daga kl. 10—12, 2—6, 8—10, sunnudaga kl. 2—6 Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins er i Valhöli við Suðurgötu, veitir hún allar upplýsingar og að- sloð í sambandi við utankjörstaðaatkvæðagreiðslu. — Upplýsingar um kjörskrárkærur eru veittar á sama stað. Stuðningsfólk Sjálfstæðisflokksins er beðið að gefa skrifstof- anni upplýsingar um fólk sem verður fjarverandi á kjördegi, inn- anlands og utanlands. -----•----- Símar skrifstofunnar eru 23118 og 22136. Sjálfboðaliðar ÞEIR sjálfboðaliðar, sem vilja starfa fyrir Sjálfstæðisflokkinn á kjördag, eru beðnir um að láta skrá sig í Sjálfstæðishúsinu eða í simum 17100 eða 18192. Sjálfstæðisflokkurinn. Furðuleg forherðing Menn höfðu almennt bú- izt við því, að eftir orð- sendingu brezka sendiherr ans til íslenzku ríkisstjórn- arinnar um landhelgismál- in mundi Tíminn sjá sig um hönd og láta fölsunar- áróður sinn í málinu nið- ur falla. Sú hefur þó ekki orðið reyndin, því að það er eins og blaðið hafi held- ur forherzt við ofanígjöf- ina. S.l. sunnudag segir það t.d. í forystugrein: „.....og brezka stjórn- in lýsir með því ótvírætt yfir í fyrsta sinn, að hún viðurkenni 12 mílna fisk- veiðilögsögu íslands og heitir því jafnframt að æskja ekki eftir framleng- ingu á undanþágunum. Yf irlýsingu um síðara atrið- ið hefur brezka stjórnin aldrei gefið áður“. Hin algjörlega fyrirlitn- ing á dómgreind almenn- ings, sem lýsir sér í hin- um tilvitnuðu orðum, er meiri en orð fá lýst. í orð- sendingu þeirri, sem brezki sendiherrann afhenti ís- lenzkum stjórnarvöldum fyrir hönd ríkisstjórnar sinnar, sagði orðrétt: „Samkvæmt orðsending- unni frá 11. marz 1961 get- ur enginn ágreiningur orð ið milli landa okkar um, að tólf mílna fiskveiðilög- sagan við ísland er viður- kennd af hálfu ríkisstjórn- ar minnar“. Brezka ríkisstjórnin lýs- ir því þannig yfir, að hún hafi fyrir tveimur árum endanlega viðurkennt 12 mílna fiskveiðilögsöguna við ísland. En íslenzkt málgagn — og það m.a.s. málgagn annars stærsta stjórnmálaflokks þjóðar- innar — telur sér sæma að halda því fram, að slík við urkenning sé nú veitt „í fyrsta sinn“. í orðsendingu brezka sendiherrans sagði enn- fremur: „Ég vil leyfa mér að endurtaka enn einu sinni þær yfirlýsingar, sem rík- isstjórn mín hefur áður gefið íslenzku ríkisstjórn- inni, um, að ríkisstjórn mín hefur ekki í hyggju að fara fram á framleng- ingu þriggja ára tímabils- ins, sem lýkur 11. marz 1964“. Þrátt fyrir þessa ótví- ræðu yfirlýsingu leyfir Tíminn sér að halda því fram, að brezka ríkisstjórn in hafi „aldrei“ áður lýst því yfir, að hún mundi ekki óska eftir framleng- ingu undanþáganna. Þessu er blákalt haldið fram, þó að utanríkisráðherra lands ins hafi tvívegis lýst því yfir með skömmu millibili, að slíkar yfirlýsingar lægju fyrir, bæði í áheyrn al- þjóðar í útvarpsumræðun- um fyrir tæpum mánuði og skömmu síðar í viðtali í málgagni sínu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.